Morgunblaðið - 08.03.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2006 15
Soffía
Theodórsdóttir
löggiltur fasteignasali
Austurmörk 4, Hveragerði, www.byr.is
sími 483 5800
Valsheiði
Í byggingu er 4ja herbergja
einbýli, 198,1 fm með bílskúr.
Húsið afhendist tilbúið að
utan með grófjafnaðri lóð, og
grófsparslað og grunnað að
innan. Verð 35 m.
Þelamörk
5 herbergja einbýlishús með
bílskúr, 171,5 fm. Sérlega
falleg og vel skipulögð eign
með verönd og draumagarði.
Verð 25,2 m.
Bjarkarheiði
Höfum í einkasölu stórglæsi-
legt 155,5 fm endaraðhús, m/
innbyggðum bílskúr, verönd,
heitum potti og grónum garði
sem liggur að litlum golfvelli.
Þetta hús er aðeins búið því
besta. Verð 28,9 m.
Borgarheiði
Mikið endurnýjað 100 fm 3.
herb. parhús m/bílskúr. Hús í
rólegu umhverfi með falleg-
um garði og sólpalli. Verð 16,
9 m.
Heiðmörk
76 fm, 3ja herbergja parhús.
Mikið endurnýjað að utan
sem innan, t.d. nýjar
innréttingar, skápar og
gólfefni. Snyrtileg eign í
grónu hverfi. Verð 15.7m
Lyngheiði
Í einkasölu er glæsilegt 4ra-5
herb. einb., með sólpalli og
heitum potti. Þessi eign hefur
verið mikið endurnýjuð og á
mjög vandaðan hátt. Hún er
192,4 fm, þar af er bílskúrinn
52 fm. Tilboð óskast.
HVERAGERÐI
Háabarð
Einb. á einni hæð ásamt bíl-
skúr. Heildarstærð er 165 fm,
þar af er húsið 129,5 fm. Auk
þess er innsti hluti bílskúrsins
nýttur sem herb., sem gengið
er í úr stofu. Nýleg innrétting í
eldhúsi. Verð 35,2 m.
Funalind
Í einkasölu er 85,1 fm íbúð á
fyrstu hæð í 4. hæða fjölbýl-
ishúsi. Skemmtilega skipu-
lögð eign, 3. herbergja, á
frábærum stað. Verð 21,8 m.
Vallarás
86,6 fm 3-4 herb. íbúð á 4
hæð í lyftuhúsi. Eignin er
klædd að utan og fylgir sér-
bílastæði hverri íbúð. Frábært
útsýni. Verð 19,5 m.
Árbakki
Erum með í sölu fallegt 4.
herbergja einbýlishús á
Selfossi. Húsið er 188,9 fm,
þar af er bílskúrinn 46,3 fm.
Ca 40 fm sólpallur er í garð-
inum og þar eru einnig til
staðar lagnir fyrir heitan pott.
Verðtilboð óskast.
Svínavatn
Í byggingu er 75,4 fm sumar-
hús á stöplum með 26,5 fm
svefnlofti. Að utan verður bú-
staðurinn klæddur m/bjálka-
klæðningu og að innan verð-
ur hann einangraður, sett
rakasperra og lagnagrind á
alla útveggi og loft. Svefn-
loftssperrur verða tilbúnar til
klæðningar. Rafmagn og kalt
vatn er komið að lóðarmörk-
um. Tilbúinn til afhendingar
15. mars 2006. Verð 9,7 m.
Brekka, sumarhús
Lítill og snyrtilegur sumarbú-
staður í kjarrivöxnu umhverfi
með fallegu útsýni. Góð ver-
önd er fyrir framan og við
hliðina á bústaðnum, eins er
lokuð verönd í kringum heita
pottinn. Innbú fylgir. Verð 9,8
m.
Kjalbraut
Höfum í sölu þrjú 60 fm sum-
arhús í góðu ástandi, við
Kjalbraut. Heitur pottur og
verönd er við öll húsin. Innbú
fylgir. Verð á hverju húsi er
16,9 m.
KÓPAVOGUR
HAFNARFJÖRÐUR
REYKJAVÍK
SELFOSS
GRÍMSNES
BLÁSKÓGARBYGGÐ
GRÍMSNES
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● HLUTABRÉF hækkuðu lítillega í
verði í Kauphöll Íslands í gær. Úr-
valsvísitalan hækkaði um 0,09% og
var 6494 stig við lok viðskipta. Við-
skipti með hlutabréf námu 4,9 millj-
örðum króna, þar af 1,3 milljörðum
með bréf KB banka. Bréf Trygginga-
miðstöðvarinnar hækkuðu um
9,26%, bréf Marels um 1,32% og
bréf Icelandic Group um 1,31%. Bréf
Bakkavarar lækkuðu um 1,54% og
bréf Atlantic Petrolium um 0,88%.
Mest verslað með
bréf KB banka
● MAGNÚS
Kristinsson,
stjórnarmaður í
Straumi-
Burðarási fjár-
festingarbanka,
hefur aukið hlut
sinn í bank-
anum. Félög í
hans eigu, Smá-
ey og MK-44,
keyptu á mánu-
dag 35,5 milljónir hluta í Straumi
fyrir alls um 685 milljónir króna.
Eftir kaupin eiga félög tengd
Magnúsi ríflega 14% hlut í bank-
anum og er hann næstur á eftir
Fjárfestingafélaginu Gretti og
Landsbankanum, sem hvor um sig
eiga nærri 16% hluti í bankanum.
Miðað við núverandi gengi er mark-
aðsvirði hluta Magnúsar hátt í 29
milljarðar króna.
Magnús bætir við
sig í Straumi
Magnús
Kristinsson
KAUPÞING banki seldi í
gær 8,75% hlutafjár í Baugi
Group og hefur þar með selt
allan hlut sinn í félaginu. Inn-
leystur hagnaður vegna söl-
unnar nemur um 3,3 millj-
örðum króna. Kaupandi
hlutanna er fjárfestingafélag-
ið Gaumur og Eignarhalds-
félagið ISP, sem bæði tengj-
ast eigendum Baugs.
Áframhaldandi samstarf
Í tilkynningu KB banka til
Kauphallar í gær segir að
með sölunni ljúki verkefni
sem hafi hafist árið 2003 með
yfirtöku og afskráningu
Baugs úr Kauphöllinni, ásamt
skiptingu þess í fjárfestinga-
félagið Baug Group hf. og
smásölufyrirtækið Haga hf.
Þar sá bankinn um ráðgjöf og
fjármögnun og eignaðist við
það um fimmtungs hlut í
Baugi.
Í tilkynningunni kemur
fram að Kaupþing banki hafi
um árabil starfað með Baugi
Group að ýmsum umbreyt-
ingarverkefnum á fyrirtækj-
um og muni salan á eign-
arhlutanum nú engin áhrif
hafa á áframhaldandi sam-
starf. Kaupverð er trúnaðar-
mál og ekki fengust frekari
upplýsingar frá bankanum
um málið aðrar en þær sem
koma fram í tilkynningunni í
gær.
KB banki
hagnaðist
um 3,3
milljarða
á Baugi