Morgunblaðið - 06.04.2006, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Á ESSO STÖÐINNI
Svangur?
ÍSLENSKAR stúlkur lentu í kúlna-
hríð á hóteli í úthverfinu Malden
skammt fyrir utan Boston fyrir
rúmri viku. Sigrún Helgadóttir gisti
ásamt þremur vinkonum sínum á
hótelinu. Stúlkurnar vöknuðu við
umgang fyrir utan dyrnar sínar, ein-
hver knúði dyra en þær fóru ekki til
dyra og skömmu síðar heyrðu þær
þrjá skothvelli. Ein kúlan lenti í
hurðinni á herbergi þeirra og önnur
fór í gegnum gluggakarm en ekki er
vitað um afdrif þriðju kúlunnar.
Stúlkurnar lögðust á gólfið og óttuð-
ust að stór gluggi sem þær sváfu
undir myndi brotna. Byssumennirnir
hurfu á brott og lögreglan kom
skömmu síðar og tók skýrslu af
stúlkunum.
Sigrún hefur verið au-pair-stúlka
hjá fjölskyldu í Hampton í New
Hampshire-ríki í Bandaríkjunum í
sjö mánuði og fékk hún þrjár bestu
vinkonur sínar í heimsókn. „Við vor-
um á ódýru tveggja hæða hóteli með
svalagangi og vöknuðum við að það
var bankað fast á dyrnar,“ sagði Sig-
rún. „Svo komu allt í einu þrjú byssu-
skot og maður vissi ekkert hvað var
að gerast.“
Síðar kom í ljós að þarna voru
nokkrir grímuklæddir menn á ferð.
Þurftu stúlkurnar að skipta um
herbergi því lögreglan tók hurðina
með sér til rannsóknar og tók Sigrún
fram að stúlkurnar hefðu fengið
„skotnóttina“ endurgjaldslaust. Lög-
reglan undraðist hvað fjórar stúlkur
frá Íslandi væru að gera í Malden á
svo ódýru hóteli. Sigrún sagði að það
hefði verið í sparnaðarskyni og að
lögreglan hefði sagt: „Maður fær það
sem maður borgar fyrir.“
Íslenskar stúlkur í kúlna-
hríð utan við Boston
„ÞÓTT maður sé kannski gráðugur í fiskinn, þá
vill maður helst ekki lenda á botninum fyrir
hann,“ sagði Jón Magnússon, skipstjóri á línu-
bátnum Friðfinni ÍS 105 frá Flateyri, einum hinna
þriggja báta sem komust klakklaust í land í gær
eftir hörkulegar aðstæður á sjó, sambandsleysi og
mikla ísingu. Bátarnir hættu veiðum vegna
storms og leituðu til lands, en þrátt fyrir hauga-
sjó, 5 metra ölduhæð og norðanstorm, var hins
vegar mesti vandinn fólginn í ísingunni sem ein-
angraði loftnetin og hindraði eðlilegt samband við
land.
„Loftnetin fyrir sjálfvirku tilkynningaskylduna
ísuðu hjá okkur og það var ekki hægt að senda
mann út til að berja af þeim vegna veðurs,“ sagði
Jón. „Það var vitlaust veður, hrein norðanátt með
20 metrum á sekúndu. Á heimleiðinni fengum við
á okkur hnút svo GPS áttavitinn datt út í smá-
stund þannig að við þurftum að handstýra bátnum
á meðan.“
Jón telur að ölduhæðin hafi verið um 5 metrar
og brot. „Þetta var smáskælingur en hættan var
aldrei mikil.“
Bátarnir þrír voru um 8 mílur frá landi þegar
þeir héldu til Þingeyrar. „Við ætluðum fyrst að
reyna að komast til Flateyrar en gáfumst upp á að
sigla á móti vindinum. Því tókum við stefnuna inn
á Þingeyri með ölduna á hlið. Þetta eru það góðir
bátar að siglingin gekk vel en aftur á móti var að-
alvandamálið fólgið í ísingunni. Það náðist illa
samband við okkur en hitt var ekkert alvarlegt.“
Jón segir það næsta furðulegt að lenda í svona
vetrarhríð í vetrarlok. „Þegar hann ætti nú að
vera að sprengja af sér veturinn þá erum við að
berjast í ísingu og kolvitlausu veðri. Það er búið
að vera blíða nánast í allan vetur.“
Friðfinnur ÍS 105 var með rúm 4 tonn af afla
þegar hann sigldi í land og sagði Jón að ekki hefði
komið til álita að reyna að auka aflann í storm-
inum, heldur koma sér í land. „Við hættum allir
þrír að draga vegna veðurs. Það var ekki hægt að
hanga í því lengur.“
„Maður vill helst ekki lenda á botninum“
HÁ glæpatíðni er í Malden, úthverfi
Bostonborgar, sérstaklega rán og
líkamsárásir. Á vefsíðunni
www.malden.areaconnect.com/
crime eru birtar tölur yfir af-
brotatíðni í Malden á árinu 2004.
Íbúar þar eru rúmlega 5.600 en
fram kemur að framdir voru 411 of-
beldisglæpir í Malden á árinu 2004
og voru þeir mun algengari en sem
nemur meðaltali á landsvísu í
Bandaríkjunum. Morð í Malden eru
nokkuð undir meðaltali en skráð
var 281 líkamsárás, sem er langt yf-
ir meðaltali glæpa á hverja 100 þús-
und íbúa í Bandaríkjunum. Nauðg-
anir og rán voru einnig mun tíðari
miðað við íbúafjölda en meðaltal
þeirra glæpa meðal Bandaríkja-
manna.
Ofbeldisglæpir algengir í Malden
„ÞETTA gekk mjög vel og við er-
um alveg sátt við ákvörðun um
rýmingu,“ sagði Margrét Gunn-
arsdóttir á Bolungarvík sem býr
við Dísarland en hún var meðal
þeirra sem rýmdu hús sín vegna
snjóflóðahættu íTraðarhyrnu í
gær. Flutti hún sig ásamt fjöl-
skyldu sinni yfir í autt hús ætt-
ingja á meðan viðbúnaðarstig er í
gangi. Íbúar við Dísarland og
Traðarland í sex húsum rýmdu
hús sín og átti rýmingu að vera
lokið fyrir kl. 21 í gærkvöldi.
Kafasnjór er á Bolungarvík og
var vonskuveður og snjókoma í
bænum í gær. Sagði Margrét að
fólk færi aftur heim til sín þegar
hríðinni slotaði og hættuástandi
yrði aflýst. Sagði hún að þótt
vissulega hafi hvarflað lauslega
að henni að hugsanlega þyrfti að
rýma hús, hafi ákvörðun sýslu-
manns samt komið á óvart síð-
degis í gær. „Maður bjóst ekki
við þessu fyrr en þá kannski á
morgun [fimmtudag],“ sagði hún.
Þar sem stutt er í sumardaginn
fyrsta hljómar nokkuð ein-
kennilega þegar snjóflóðahættu
er lýst yfir, ekki síst eftir jafn-
snjólausan vetur og raun ber
vitni. En það er samt ekki nýtt
fyrir Bolvíkinga, að sögn Mar-
grétar, því grípa hefur þurft til
rýmingar í bænum vegna snjó-
flóðahættu um páska. „Meðan
snjóar í vestan- og hánorðanátt
eigum við von á þessu. En þetta
er mesti snjór sem komið hefur í
vetur.“
Margrét sagði það töluverða
fyrirhöfn að rýma hús sitt, ekki
síst þegar flust er í autt hús í
eigu ættingja eins og hún og fjöl-
skylda hennar gerði. Muna þurfi
eftir öllum vinnufötum fyrir
morgundaginn og e.t.v. næstu
daga að ógleymdum skólafötum
fyrir börnin. Mat þurfi líka að
taka með sér þar sem ekki verði
skroppið sisona í klukkubúð.
„Þegar maður fer inn í tóm hús,
þarf maður að hafa eitthvað með
sér,“ sagði hún.
Sátt við
rýmingu en
ákvörðunin
kom á óvart
Óveður var á Fróðárheiði og einnig
stormur í Staðarsveitinni. Á Vest-
fjörðum er Klettsháls ófær og flestir
vegir á norðanverðum fjörðunum
þar sem ekki er ferðaveður. Þá var
stórhríð í Strandasýslu í gær.
Þær upplýsingar fengust hjá lög-
reglunni á Blönduósi í gærkvöldi að
björgunarsveitir hafi verið ræstar út
til að aðstoða fólk sem ekið hafði út
af vegum og lent í vandræðum.
Óveður og
vetrarófærð
víða um land
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
SPÁÐ var versnandi veðri, stormi
með ofankomu á Vestfjörðum og var
reiknað með að færð myndi spillast á
Norðurlandi og síðar Norðaustur-
landi í nótt sem leið og nú undir
morgun, fimmtudag. Veðurstofan
varar við mjög hvassri norðvestanátt
og sviptivindum sunnan Vatnajökuls
fyrri hluta dags í dag.
Víða á norðanverðu landinu var
óveður og versnandi færð í gær.
Björgunarmennirnir Ari Jóhannsson, Guðjón Flosason og Guðjón Jóhann
Jónsson áttu ásamt félaga sínum mikinn þátt í björgun fólksbílsins á Súða-
víkurvegi í gær. Þeir sluppu allir naumlega þegar snjóflóð féll á bílana.
Vinkonur frá vinstri: Katrín Diljá Jónsdóttir, Margrét Malena Magnús-
dóttir, Sigrún Helgadóttir og Svanhildur Sif Halldórsdóttir.
TALSVERÐUR viðbúnaður var sett-
ur í gang í gær vegna þriggja línubáta
á veiðum við Kópsnes úti fyrir Arn-
arfirði sem þurftu frá að hverfa vegna
óveðurs og leita til lands í haugasjó og
kafaldsbyl. Óskuðu bátarnir eftir að
sérstaklega yrði fylgst með þeim á
heimstíminu en samband þeirra við
Vaktstöð siglinga rofnaði vegna ísing-
ar á fjarskiptaloftnetum. Mjög hvöss
norðanáttin gerði það að verkum að
bátarnir ákváðu að hætta veiðum og
koma sér í land en ekki var þó lýst yfir
neyðarástandi. Vegna óstöðugs sam-
bands við bátana létu varðstjórar í
Vaktstöðinni athuga hvaða skip voru
nærstödd og úr varð að togarinn Páll
Pálsson var beðinn um að hífa trollið
inn og halda í átt til bátanna, sam-
kvæmt upplýsingum frá Landhelgis-
gæslunni. Togarinn var þá staddur 30
sjómílur vestur af Kópanesi. Einnig
var kannað í sjálfvirka tilkynningar-
kerfinu hvaða skip voru í nærliggj-
andi höfnum á Vestfjörðum.
Að beiðni Vaktstöðvar siglinga
leysti áhöfn togbátsins Gunnbjarnar
ÍS-302, sem var nýkominn inn til
Flateyrar, landfestar og hélt til móts
við bátana. Fiskiskipið Bjarni Gísla-
son, sem statt var á Patreksfjarðar-
flóa, gerði slíkt hið sama. Vaktstöð
siglinga setti einnig björgunarsveitir
Slysavarnafélagsins Landsbjargar á
Vestfjörðum í viðbragðsstöðu, þ.m.t.
áhafnir björgunarbátanna Gunnars
Friðrikssonar á Ísafirði og Varðar á
Patreksfirði. Áhöfn Varðar færði sig
yfir í togbátinn Vestra frá Patreks-
firði sem talinn var henta betur til að-
gerða vegna veðurs og beið átekta.
Áhafnir björgunarbátanna létu Vakt-
stöð siglinga vita að kolvitlaust veður
væri á Patreksfirði og Ísafirði. Vegna
veðurs og ísingarhættu var ekki talið
Viðbúnaður vegna línubáta í haugasjó
ráðlegt að senda Sif, björgunarþyrlu
Landhelgisgæslunnar, af stað enda
hafði neyðarástandi ekki verið lýst yf-
ir. Varðskipið Ægir, sem statt var við
sunnanvert Snæfellsnes, var hins
vegar sent áleiðis norður yfir Breiða-
fjörðinn.
Skipstjórar bátanna reyndu að
vera í samfloti og miðaði þeim hægt
og örugglega í átt að mynni Dýra-
fjarðar. Samband náðist við þá af og
til. Um kl. 13:30 voru bátarnir komnir
í rólegri sjó í mynni Dýrafjarðar og
smám saman var dregið úr viðbúnaði.
Upp úr kl. 14:30 höfðu bátarnir náð
höfn á Þingeyri heilu og höldnu.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is