Morgunblaðið - 06.04.2006, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.04.2006, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VIÐRÆÐUHÓPUR dómsmála- ráðuneytis, lögreglu og borgaryfir- valda um löggæslumál í Reykjavík hefur kynnt dómsmálaráðherra nið- urstöður sínar og tillögur til fram- fara í löggæslumálum í höfuðborg- inni. Meðal þess sem hópurinn leggur til er að samvinna lögreglu og borg- aryfirvalda verði aukin, m.a. með eft- irliti óeinkennisklæddra lögreglu- manna í samvinnu við starfsmenn borgarinnar, bæði starfsmenn ÍTR og þjónustumiðstöðva. Leggur hópurinn til að hverfalög- gæsla verði þróuð áfram í hverfum borgarinnar og í nánum tengslum við þjónustumiðstöðvar í hverfum borgarinnar. Þá er sett fram sú til- laga að komið verði á formlegu sam- starfi með samstarfssamningi eins og nú er á milli lögreglu og þjónustu- miðstöðva í Grafarvogi og Breiðholti í öðrum hverfum borgarinnar. Sam- bærileg úrræði og Hringurinn í Grafarvogi og Breiðholti verði til staðar í fleiri hverfum borgarinnar. Skipuleggja nágrannavörslu Lagt er til að unnið verði að skipu- lagningu nágrannavörslu í náinni samvinnu við borgaryfirvöld og við- eigandi hverfisfélög. Stutt verði við þá tilraun, sem er hafin á vegum þjónustu- og rekstrarsviðs og lög- reglunnar í Reykjavík um nágranna- vörslu í borginni, þar sem lögregla og borgaryfirvöld standa sameigin- lega að námskeiðum um þetta efni í hverju þjónustuhverfi borgarinnar. Unnið verði að því að efla sýnileika lögreglu með því að auka viðveru hennar í hverfum borgarinnar, efnt verði til funda reglulega í einstökum hverfum, þar sem farið verði yfir helstu leiðir til að koma í veg fyrir af- brot og tengsl lögreglu við borgar- búa efld með því að nýta upplýsinga- tækni til að miðla upplýsingum og taka við ábendingum frá borgurum. Borgaryfirvöld og lögregla sjái ennfremur til þess að eigendur mannlausra húsa gangi þannig frá eignum sínum, að ekki ógni öryggi annarra vegna hústöku eða af öðrum ástæðum. Meðal aðgerða sem hópurinn legg- ur til vegna umferðarmála o.fl. er að eftirlitsmyndavélum (upptökuvél- um) verði komið fyrir á öllum stærstu gatnamótum í höfuðborginni og að hraðaskiltum (sem sýna há- markshraða og mældan hraða) verði komið fyrir víðar í borginni, einkum í íbúðahverfum og í nágrenni skóla. Ekkert að vanbúnaði að hrinda tillögum í framkvæmd Í skýrslunni segir að viðræðuhóp- urinn sé skipaður æðstu yfirmönnum lögreglunnar í Reykjavík, fulltrúum meirihluta og minnihluta í borgar- stjórn Reykjavíkur og stýrt af full- trúa dóms- og kirkjumálaráðuneyt- isins. „Í því ljósi er viðræðuhópnum ekkert að vanbúnaði að hrinda fram- angreindum tillögum um aðgerðir í framkvæmd, að því marki sem tillög- urnar kalla ekki á meiriháttar út- gjöld eða fela í sér grundvallarbreyt- ingar að öðru leyti. Á það einkum við um tillögur um kaup og uppsetningu á öryggismyndavélum í miðborginni og á stærstu gatnamótum, sem fyr- irsjáanlega er kostnaðarsamt. Öðr- um tillögum ætti að vera unnt að hrinda í framkvæmd án mikils til- kostnaðar eða þróa nánar áfram sameiginlega af hálfu lögreglu og borgaryfirvalda,“ segir í skýrslunni. Viðræðuhópur um löggæslu í Reykjavík skilar ráðherra tillögum um aðgerðir Leggja til eftirlit óeinkenn- isklæddra lögreglumanna Morgunblaðið/Golli VIÐRÆÐUHÓPUR um löggæslu í Reykjavík leggur m.a. til að gripið verði til eftirfarandi aðgerða:  Eftirlitsmyndavélum í miðborg- inni verði fjölgað.  Efla þarf og auka samstarf lög- reglu við dyraverði á skemmti- stöðum í miðborginni í því skyni að auka öryggi og stytta við- bragðstíma þegar upp koma vandamál.  Auka þarf upplýsingamiðlun milli barnaverndaryfirvalda, þjón- ustumiðstöðva og lögreglu þannig að á báða bóga verði unnt að grípa fyrr til aðgerða og greina óæskilega þróun í unglingahópum.  Borgaryfirvöld og lögregla sjái til þess að eigendur mannlausra húsa gangi þannig frá eignum sín- um að ekki ógni öryggi annarra vegna hústöku eða af öðrum ástæðum.  Borgaryfirvöld og lögregla þrói sameiginlega úrræði til að taka á vandamálum og áhættu- hegðun. Sem dæmi eru nefnd námskeið um samskipti nágranna þar sem farið yrði yfir aðferðir til að leysa nágrannaerjur, námskeið vegna heimilisofbeldis fyrir þol- endur og eftir atvikum stuðnings- meðferð fyrir gerendur og nám- skeið eða stuðningur fyrir börn sem leiðst hafa út í neyslu áfengis eða reykingar. Eftirlits- myndavélum í miðborginni fjölgað SVÍINN Dag Hammarskjöld, aðal- ritari Sameinuðu þjóðanna, lést í flugslysi árið 1961, en það er mat landa hans dr. Hans Blix að mjög erfitt hefði verið fyrir Hamm- arskjöld að sinna starfi sínu áfram þegar þarna var komið sögu – vegna þess að Sovétríkin og bandalagsþjóðir þeirra í Austur- Evrópu voru farin að sniðganga hann. Dr. Blix, fyrrverandi yfirmaður vopnaeftirlits Sameinuðu þjóð- anna, sagði í fyrirlestri í Háskól- anum á Akureyri í gær, að sjálf- stæði skipti miklu máli í starfi eins og aðalritara SÞ. Hammarskjöld hefði áttað sig mjög vel á því og ávallt staðið fastur á sínu, en það væri eflaust rétt sem Tryggve Lie – Norðmaðurinn sem fyrstur gegndi starfi aðalritara SÞ – hefði sagt Hammarskjöld áður en hann tók við af honum, að þetta væri erfiðasta starf í heimi. „Þegar opinber starfsmaður vinnur fyrir eigin þjóð þjónar hann aðeins einum húsbónda, starfs- maður SÞ þjónar hins vegar 191 húsbónda; hverri einustu aðild- arþjóð. Og það má aldrei beygja sig fyrir neinum. Hammarskjöld varðist með kjafti og klóm hörðum árásum banda- ríska öldungadeildarþingmannsins McCarthy og síðan lá hann undir miklu ámæli Nikita Khrushcevs, leiðtoga Sovétríkjanna, meðan á átökunum í Kongó stóð á sínum tíma.“ Blix nefnir einnig að Frakkar og Bretar hafi verið ósáttir við Hammarskjöld í Súezdeilunni; þá hafi hann ekki verið í ósvipaðri stöðu og Kofi Annan, núverandi aðalritari SÞ, þegar innrásin var gerð í Írak fyrir fáeinum miss- erum. Blix sagði arfleifð Hammar- skjöld tvenns konar; annars vegar var hann alþjóðlegur opinber starfsmaður og hins vegar nýj- ungagjarn aðalritari SÞ. „Hann vildi þróa samtökin og mörg þeirra verkefna sem þau eru enn að fást við í dag komu fyrst til þegar hann var við stjórnvölinn; friðargæsla og lausn deilna af ýmsu tagi.“ Hann sagði Hammarskjöld hafa verið færan embættismann og mjög óvilhallan í alla staði. Sú væri oft raunin að embættismönnum frá Norðurlöndum væri treyst betur en ýmsum öðrum. „Skýringin er hugsanlega sú að enginn óttast stórveldisdrauma okkar fyrir hönd eigin þjóða, en það skiptir líka máli að á Norðurlöndum höfum við ríka hefð fyrir því að setjast niður og leysa mál í sátt og samlyndi í stað þess að lenda í erfiðum ill- deilum. Auðvitað verður ósætti hér eins og annars staðar, en við leggj- um alltaf mikla áherslu á að ná niðurstöðu sem flestir sætta sig við.“ Aðalritari SÞ er ekki stjórn- málamaður, en verður þó að vera með puttann á púlsinum. „Hamm- arskjöld sagði einhvern tíma að að- alritarinn mætti ekki vera í póli- tísku hjónabandi, en hann mætti heldur ekki vera hrein mey á póli- tíska sviðinu. Ég held að mikið sé til í þessu,“ sagði Hans Blix. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hans Blix ræðir um Svíann Dag Hammarskjöld í Háskólanum á Akureyri í gær og sagði hann hafa verið snjallan og nýjungagjarnan. Sýnd var ný átta mínútna kvikmynd – Friður í huga – um Hammarskjöld. Hammarskjöld vissi að ekki má beygja sig fyrir neinum DR. HANS Blix mun halda opinn fyr- irlestur á morgun, föstudaginn 7. apr- íl kl. 12, um þróun reglna alþjóðasam- félagsins um valdbeitingu; tilraunir til að hefta útbreiðslu gereyðingar- vopna; umbætur í starfi Sameinuðu þjóðanna. Fyrirlesturinn verður í há- tíðarsal Háskóla Íslands. Hans Blix er gestur Háskóla Ís- lands í samvinnu við sendiráð Sví- þjóðar og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Af hálfu HÍ er Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála gest- gjafi dr. Blix. Í fyrirlestrinum mun dr. Blix ræða þrjú tengd efni og áhrif þeirra á stöðu mála í heiminum í dag; Hvernig hafa reglur alþjóðasamfélagsins um vald- beitingu þróast? Hvað hefur verið gert og hvað er að gerast varðandi til- raunir til að hefta útbreiðslu og eyða gereyðingarvopnum, kjarnorkuvopn- um, efna- og lífræknivopnum og loks mun hann fjalla um umbætur Sam- einuðu þjóðanna á liðnum árum. Í lok fyrirlestrarins mun gefast góður tími til fyrirspurna og umræðna. Sýning í Norræna húsinu Dr. Hans Blix er formaður nefndar gegn gereyðingarvopnum (WMDC), hann er fyrrverandi utanríkisráð- herra Svíþjóðar, fyrrverandi yfirmað- ur vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna (UNMOVIC) og fyrrverandi aðalfor- stjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnun- arinnar (IAEA). Brynhildur Ólafsdóttir, forstöðu- maður Alþjóðamálastofnunar HÍ og yfirmaður erlendra frétta hjá NFS, verður fundarstjóri. Hans Blix mun einnig opna sýn- ingu í Norræna húsinu í dag kl. 17.30 til minningar um hundrað ára afmæli Dag Hammarskjöld, sem var fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna árin 1953–1961. Geir H. Haarde utan- ríkisráðherra verður viðstaddur at- höfnina. Enn fremur mun Hans Blix halda málstofu fyrir meistaranem- endur HÍ í alþjóðasamskiptum. Valdbeiting, gereyð- ingarvopn og SÞ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.