Morgunblaðið - 06.04.2006, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
AUKAÁRSFUNDUR
FRJÁLSA LÍFEYRISSJÓ‹SINS
Aukaársfundur Frjálsa lífeyrissjó›sins ver›ur
haldinn 27. apríl nk. kl. 16.00 í KB banka,
Borgartúni 19, 4. hæ›.
Tillögur um breytingar á samflykktum sem kynntar voru á
ársfundi sjó›sins 4. apríl sl. ver›a birtar eigi sí›ar en tveimur
vikum fyrir fundinn á heimasí›u sjó›sins, frjalsilif.is.
Einnig ver›ur hægt a› nálgast flær í höfu›stö›vum KB banka
a› Borgartúni 19. Stjórn sjó›sins vill hvetja sjó›félaga til
a› mæta á fundinn.
1. Tillögur um breytingar á samflykktum sjó›sins
2. Önnur mál
Dagskrá:
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
2
12
4
1
„ÞAÐ er komin upp algjör
pattstaða í þessu máli. Raunar
er pattstaðan svo mikil að heil-
brigðisráðherra er farinn að
horfa í aðrar áttir,“ segir Guð-
mundur Hallvarðsson, stjórn-
arformaður Hrafnistu um setu-
verkfall starfsmanna.
Guðmundur segir rekstrar-
aðila hjúkrunar- og dvalar-
heimila sem rekin séu sem
sjálfseignarstofnanir lenta milli
steins og sleggju þar sem hver
vísi á annan þegar spurt sé um
ábyrgð. Veltir hann upp þeirri
spurningu hvort sveitarfélögin,
sem í raun beri ábyrgð á launa-
skriði ófaglærðs starfsfólks,
séu reiðibúin að axla sína
ábyrgð og koma að lausn mála
hjá sjálfseignarstofnunum.
„Ég velti fyrir mér hvort
borgin og önnur sveitarfélög
séu reiðubúin að greiða launa-
mismuninn milli þess sem ríkið
er að greiða óbeint í formi
daggjalda til sjálfseignar-
stofnana og verið er að greiða
á hjúkrunarheimilum í eigu
sveitarfélaga, til þess að jafna
stöðu þessa fólks sem vinnur
annars vegar hjá sjálfseign-
arstofnun og hins vegar á
hjúkrunarheimili í eigu sveit-
arfélaganna,“ segir Guð-
mundur og veltir fyrir sér
hvort sveitarfélögin ætli bara
að hugsa um skjólstæðinga
sína sem lendi á hjúkr-
unarheimilum sem þau sjálf
eiga og reka.
Segist hann þeirrar skoð-
unar að sveitarfélögin séu að
gera upp á milli aldraðra íbúa
sinna eftir því hvort þeir búi á
hjúkrunarheimili sem borg og
sveitarfélög sjálf reka eða á
heimili sem rekið sé af sjálf-
eignarstofnun. „Ætlar borgin
og sveitarfélögin ekki að
hugsa um skjólstæðinga sína
sem búa á sjálfseignarstofn-
unum?“ spyr Guðmundur og
tekur fram að sér finnist hálf-
dapurlegt að Hrafnista, sem
sinnt hafi Reykvíkingum vel í
öldrunarmálum síðan 1957,
skuli nú nánast vera orðin ein-
hver blóraböggull.
Algjör pattstaða og ráðherra
horfir í aðrar áttir
Guðmundur Hallvarðsson
TVEGGJA sólarhringa langt setuverkfall hófst
hjá ófaglærðu starfsfólki á nokkrum hjúkrunar-
og dvalarheimilum á miðnætti í gærkvöldi.
Starfsfólkið vill með þessu leggja áherslu á þær
kröfur sínar að fá sama kaup og fólk í sambæri-
legum störfum hjá Reykjavíkurborg. Verkfallið
nær til um 900 starfsmanna á Hrafnistu í
Reykjavík, Hrafnistu í Hafnarfirði, Vífilsstöð-
um og Víðinesi, ásamt dvalarheimilunum
Grund, Ási í Hveragerði, Sunnuhlíð og Skóg-
arbæ, en ekki er nema rétt rúm vika síðan sami
starfshópur stóð fyrir sólarhrings löngu setu-
verkfalli. Að þessu sinni bætast ófaglærðir
starfsmenn á hjúkrunarheimilinu Eir og á
sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum einnig við og
taka þátt í setuverkfallinu.
Að sögn Álfheiðar Bjarnadóttur, forsvars-
manns starfsmannanna, munu þeir aðeins veita
lágmarksþjónustu meðan á verkfallinu stendur.
Aðspurð segir hún íbúa hjúkrunar- og dvalar-
heimilanna sem og aðstandendur þeirra sýna
verkfallinu mikinn skilning, en reynt hafi verið
að undirbúa heimilisfólk með sem bestum hætti
fyrir verkfallið.
Spurð hvernig yfirlýsingar ráðamanna, s.s.
heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra, um
málið að undanförnu komi henni fyrir sjónir
segir Álfheiður það líta út fyrir að ráðamenn séu
að reyna að þvo hendur sínar af málinu. „Mér
virðist því allt líta út fyrir að við verðum hrein-
lega að labba út til þess að einhver lausn fáist í
stöðunni. Ég er voðalega hrædd um að það sé
það eina sem virki. En auðvitað langar engan til
þess að grípa til slíkra neyðarúrræða,“ segir
Álfheiður.
Aðspurð segir hún mikla samstöðu ríkja hjá
starfsfólkinu í aðgerðunum. „Við ætlum að af-
henda ljósrit af undirskriftarlistum ófaglærðra
við Alþingishúsið á morgun [fimmtudag] kl. 13
og vonumst til þess að annaðhvort heilbrigð-
isráðherra eða Geir Haarde veiti listanum við-
töku. Álfheiður segir að starfsmenn hafi vakið
athygli á málinu en ráðherrar vísi hver á annan.
Stjórnvöld eru hvött til að sýna ábyrgð, enda
líði gamla fólkið fyrir þá stöðu sem upp er kom-
in. „Hvað gerist ef við göngum allar út?“ er
spurt á undirskriftalistanum.
Morgunblaðið leitaði eftir viðbrögðum að-
stoðarmanns fjármálaráðherra við stöðu mála
án árangurs.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ófaglært starfsfólk hjúkrunarheimila ríkisins hefur að nýju hafið setuverkfall. Í síðustu viku
hafði setuverkfall þess veruleg áhrif á þjónustu við heimilismenn.
Tveggja sólarhringa setuverkfall
starfsmanna á hjúkrunarheimilum hafið
STURLA Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra, sagði í ávarpi sem hann
flutti á Samgönguþingi í gær, að
innanlandsflug yrði ekki eflt með
því að leggja niður flugvöllinn í
höfuðborginni.
Árið 2002 voru
sett lög um
samgöngu-
áætlun en um
þessar mundir
væri verið að
endurskoða
áætlunina,
sem gerð var
til tólf ára.
Lagði ráð-
herra áherslu
á að við þá
endurskoðun þyrfti að efla innan-
landsflugið með því að tryggja
bestu aðstöðu á flugvöllum lands-
ins.
Mikilvægt væri að ná sátt um
lausn fyrir innanlandsflugið sem
byggðist á tillögum sem verið væri
að undirbúa á vegum ráðuneytisins
og borgarinnar undir formennsku
Helga Hallgrímssonar. Sturla
ræddi einnig um millilandaflug og
sagði að huga þyrfti að því og
væntanlegum breyttum aðstæðum
í alþjóðaflugi út frá Keflavík.
Tryggja þarf samkeppnis-
stöðu hafnanna
Þá vék Sturla að hafnamálum og
sagði að tryggja þyrfti afkomu og
samkeppnisstöðu hafnanna. Ná
þyrfti aukinni hagræðingu í rekstri
þeirra með því að sameina hafn-
arreksturinn í tiltekin hafnarsvæði
sem gætu verið 10–12 á landinu
öllu. Vakti Sturla meðal annars at-
hygli á góðum árangri hafnanna á
Faxaflóasvæðinu og á þeim mögu-
leika að Snæfellsnes yrði eitt
hafnasvæði.
Einnig sagði Sturla í ávarpi sínu
að eðlilegur framkvæmdahraði
yrði að vera við uppbyggingu vega-
kerfisins og að allar aðgerðir í
þeirri uppbyggingu ættu að miðast
við umferðaröryggi, svo sem að
koma slitlagi á helstu stofnleiðir.
Þá benti hann á að áfram yrði að
tryggja fjármuni til öryggisað-
gerða í flugi, siglingum og umferð.
Sturla Böðvarsson á Samgönguþingi
Flug ekki eflt með
því að leggja niður
völlinn í Reykjavík
Sturla Böðvarsson
LÖGREGLAN á Egilsstöðum hand-
tók tvo menn sem grunur leikur á að
hafi framvísað fölsuðum vegabréf-
um við komuna til landsins með ferj-
unni Norrönu á þriðjudag. Sam-
kvæmt vegabréfunum eru
mennirnir búlgarskir. Krafist var
gæsluvarðhalds yfir mönnunum en
ekki fengust upplýsingar um hvort
fallist hafði verið á það þegar Morg-
unblaðið fór í prentun.
Óskar Bjartmarz, yfirlögreglu-
þjónn á Egilsstöðum, segir að menn-
irnir hafi verið handteknir kl. 21.30
á þriðjudag, og bæði vegabréfin séu
í rannsókn. Hann vildi ekki tjá sig
nánar um málið að svo stöddu.
Grunur um
framvísun fals-
aðra vegabréfa
AFAR misjafnt er hversu
auðvelt aðstandendur heim-
ilismanna á hjúkrunarheim-
ilinu Eir eiga með að koma að
þjónustu við sína nánustu
meðan á setuverkfalli ófag-
lærðra starfsmanna heimilis-
ins stendur, að sögn Birnu
Kristínar Svavarsdóttur,
hjúkrunarforstjóra á Eir.
Hún segir að deildarstjórar á
Eir hafi haft samband við
ættingja heimilismanna á
deildum sínum vegna setu-
verkfallsins, eftir að hafa
metið aðstæður hvers og eins
einstaklings.
Búið sé að funda með
starfsfólki Eirar vegna þeirr-
ar stöðu sem upp komi í dag
og á morgun. „Við erum búin
að undirbúa þetta eins vel og
unnt er,“ segir Birna Kristín.
Staðan á Eir er nokkuð góð
en hjúkrunarfræðingar eru
starfandi á öllum deildum og
þar er nokkuð stór hópur
sjúkraliða sem mun ganga
sínar vaktir næstu daga. „Þá
munu okkar ágætu Efling-
arstarfsmenn mæta og
tryggja lágmarksþjónustu,“
segir Birna Kristín. Mikil-
vægast sé að öryggi allra íbúa
á Eir verði tryggt. „Þess
vegna höfum við kallað til
starfa alla hjúkrunarfræðinga
heimilisins. Þeir munu starfa
á öllum deildum og við verð-
um því með allt okkar heil-
brigðismenntaða starfsfólk á
fullri keyrslu þessa tvo daga,“
segir hún.
Birna Kristín segir það
óskemmtilegt að koma þurfi
til aðgerða sem þeirra sem
hinir ófaglærðu starfsmenn
hyggjast grípa til.
„Það er erfitt að kalla til
starfa fólk við þessi erfiðu
störf og undarlegt að það
skuli ekki vera sátt í sam-
félaginu um það að þau störf
séu launuð þannig að fólk fá-
ist til að sinna þeim,“ segir
Birna Kristín. Það sé maka-
laust að lögmálið um framboð
og eftirspurn gildi ekki þegar
komi að umönnunarstörfum.
Misjafnt hve auðvelt
ættingjar eiga með að hjálpa
Birna Kr. Svavarsdóttir
BROTIST var inn í matvöruverslun
og dekkjaverkstæði á Akranesi í
fyrrinótt, og eru þjófurinn eða þjóf-
arnir ófundnir. Að sögn lögreglu
varð eigandi matvöruverslunar, sem
býr á efri hæð húsnæðisins sem
verslunin er í, var við skarkala utan
við verslunina um kl. 2 aðfaranótt
miðvikudags. Þegar hann gerði vart
við sig hafði þjófurinn sig á brott án
þess að hafa nokkuð upp úr ráns-
ferðinni, en honum hafði tekist að
spenna upp aðaldyr verslunarinnar.
Um nóttina var einnig brotist inn
á dekkjaverkstæði í bænum.
Tvö innbrot
á Akranesi