Morgunblaðið - 06.04.2006, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÝMISLEGT bendir til að enn einn fjandvinur
Bandaríkjastjórnar komist senn til valda í róm-
önsku Ameríku, en á sunnudag verða haldnar for-
setakosningar í Perú. Samkvæmt skoðanakönn-
unum hefur nefnilega Ollanta Humala, fyrr-
verandi yfirmaður í her landsins, forskot á aðra
frambjóðendur en Humala þykir sumpartinn
svipa til róttæklinganna Evo Morales, sem nýver-
ið tók við embætti forseta í Bólivíu, og Hugo
Chavez, forseta Venesúela.
Alls eru tuttugu í framboði í forsetakosning-
unum í Perú en skv. skoðanakönnun sem birt var
sl. sunnudag fylgja 32,6% landsmanna Humala að
málum. Næst á eftir honum kemur lögfræðing-
urinn og miðhægrikonan Lourdes Flores með 26%
og sósíal-demókratinn Alan Garcia, sem er fyrr-
verandi forseti Perú, með 23%. Ólíklegt er að
nokkuð þessara þriggja nái að tryggja sér 50% at-
kvæða í kosningunum á sunnudag og því er næsta
víst, að kjósa þarf aftur á milli tveggja efstu
manna.
Kjaftfor pópúlisti
Ollanta Humala er ýmist sagður 42, 43 eða 44
ára að aldri, hefur aldrei verið í framboði áður en
heitir því að stokka upp spilin í stjórnmálum Perú,
stjórna landinu þannig að hag fátækari íbúanna
verði betur borgið.
Líkt og Morales í Bólivíu og Chavez í Venesúela
hefur Humala í kosningabaráttunni byggt fram-
boð sitt á gagnrýni á „nýfrjálshyggju hagstjórnar-
módelið“ sem hann segir ekki hafa verið almenn-
ingi í Perú til góðs. Þá hefur hann fordæmt umsvif
erlendra stórfyrirtækja í landinu, segir þau engin
jákvæð áhrif hafa á líf fólksins. Hefur hann heitið
því að taka upp samninga við önnur ríki, þannig að
hagur Perú vænkist, tryggja yfirráð ríkisins yfir
námu- og gasvinnslu í landinu og útrýma allri
spillingu í stjórnkerfinu.
Fréttaskýrendur hafa lýst Humala sem pópúl-
ista í líkingu við hinn orðhvata forseta Venesúela,
Hugo Chavez. En Humala á það einnig sameig-
inlegt með Chavez að eiga að baki langan yfir-
mannsferil í hernum. Hann þykir kjaftfor og síð-
ast í gær voru ummæli, sem hann lét falla á
þriðjudag, fordæmd; en þá spáði Humala því að
keppinautur hans, Lourdes Flores, myndi ekki
endast ár í embætti ef hún sigraði í kosningunum.
Gaf hann í skyn að þjóðin myndi bylta henni úr
embætti.
Flores sagði um þessi ummæli Humalas í gær
að óviðunandi væri að „maður sem tæki þátt í lýð-
ræðislegum kosningum tilkynnti að hann myndi
grafa undan sigurvegaranum [ef hann sjálfur tap-
aði]“.
Auðnum illa skipt
Tæplega 28 milljónir manna búa í Perú en þar
af eru um 16 milljónir á kjörskrá. Margir búa við
mikla fátækt og hefur það leitt til þess, að mikil
óánægja ríkir með stjórnmálastétt landsins og frá-
farandi forseti, Alejandro Toledo, er svo óvinsæll
að flokkur hans hefur ekki einu sinni fyrir því að
bjóða fram í forsetakosningunum að þessu sinni.
Toledo getur ekki sjálfur verið í framboði því að
stjórnarskrá Perú bannar mönnum að sitja lengur
en fimm ár á forsetastóli.
Hagvöxtur hefur raunar verið góður í forsetatíð
Toledos og var t.d. 6,67% á síðasta ári. Þess sér
hins vegar ekki stað í pyngju fátækari íbúa lands-
ins að þjóðartekjurnar hafi aukist, um 48% lands-
manna búa undir fátæktarmörkum og um fjórð-
ungur lifir við sára fátækt. Þessum ójöfnuði hefur
Humala haldið á lofti í kosningabaráttu sinni í því
augnamiði að fá hina efnaminni til að fylkja liði
með sér.
Humala fæddist raunar sjálfur inn í millistétt og
hefur haft það býsna gott, var á sínum tíma hern-
aðarfulltrúi við sendiráð Perú í París í Frakklandi
og Seoul í Suður-Kóreu. Engu að síður hefur hann
reynt að skilgreina sjálfan sig sem mann fólksins,
auðmjúkan hermann sem berjist fyrir lítilmagn-
ann í samfélaginu.
Skrautleg fjölskylda
Fjölskylda Humalas er skrautleg í meira lagi,
þar er hver öðrum róttækari. Hefur Humala átt
fullt í fangi með að sverja af sér skoðanir ætt-
menna sinna, en faðir hans, Isaac, er m.a. sakaður
um að hatast við kynþátt hvíta mannsins og um að
hafa horn í síðu homma.
Isaac Humala er sjötíu og fimm ára gamall og
lítur svo á að hann sé beinn afkomandi inka-
konunga, kveðst harður marxisti en lofar jafn-
framt Adolf Hitler. Hann hefur rætt það op-
inberlega að hann og kona hans hafi alið sex börn
sín upp við þá hugsun, að þeirra biði að taka við
völdum í landi sínu, með vopnavaldi ef nauðsyn
krefur.
Einn yngri bræðra Ollantas Humala, Antauro,
reyndi einmitt að velta Alejandro Toledo úr sessi í
janúar í fyrra en þá var hann majór í hernum. Sit-
ur hann nú í fangelsi og bíður réttarhalda, en fjór-
ir týndu lífi í valdaránstilrauninni.
Enn annar bróðir Ollantas Humala, Ulises, er
meðal frambjóðendanna tuttugu í forsetakjörinu
sem fram fer nú á sunnudag. Sá er hins vegar ekki
talinn eiga mikla möguleika á sigri.
Fjölgar fjendum Bandaríkjanna?
Humala með forskot fyrir forsetakosningarnar í Perú á sunnudag
Reuters
Ollanta Humala, íklæddur inkabúningi.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Haag. AFP. | Slobodan Milosevic,
fyrrverandi forseti Júgóslavíu,
lést af völdum hjartaáfalls og ekk-
ert bendir til þess að honum hafi
verið byrlað eitur eða að hann hafi
tekið lyf sem hafi valdið hjarta-
áfallinu. Þetta er niðurstaða hol-
lenskra réttarlækna og saksókn-
ara sem rannsökuðu dauða
Milosevic í fangelsi stríðsglæpa-
dómstóls Sameinuðu þjóðanna í
Haag 11. mars.
„Milosevic lést af eðlilegum or-
sökum og engar vísbendingar hafa
komið fram um að glæpur hafi
verið framinn,“ sagði í tilkynningu
frá saksóknurunum í gær.
Stuðnings-
menn Milosevic
höfðu haldið því
fram að honum
hefði verið byrl-
að eitur. Enn-
fremur höfðu
vaknað grun-
semdir um að
Milosevic hefði
sjálfur tekið
skaðleg lyf í von um að hann yrði
sendur til lækninga í Moskvu.
Saksóknararnir sögðu að í líki
Milosevic hefðu ekki fundist nein-
ar leifar lyfja sem læknar Milos-
evic hefðu ekki ávísað.
Lést ekki af völd-
um lyfja eða eiturs
Slobodan Milosevic
Bagdad. AP, AFP. | Saddam Hussein,
fyrrverandi forseti Íraks, hafnaði í
gær sönnunargögnum sem ætlað var
að tengja hann við fjöldamorð á sjít-
um í þorpinu Dujail árið 1982, sem
fylgdi í kjölfar þess að reynt var að
ráða hann af dögum. Á sama tíma vís-
aði Rauf Abdel Rahman, yfirdómari í
réttarhöldunum yfir Saddam, einum
af verjendum hans úr réttarsal vegna
óviðeigandi hegðunar.
„Vitnin sem báru vitni voru sótt
hingað eftir að þeim hafði verið mút-
að og eftir að þeim hafði verið sagt
hvað þau áttu að segja,“ sagði Sadd-
am við réttarhöldin í gær.
Í yfirheyrslum vegna morðanna í
Dujail varði Saddam þá ákvörðun
sína að láta rétta yfir þeim sem grun-
aðir voru um að hafa reynt að ráða
hann af dögum áður en þeir voru
dæmdir til dauða. „Þetta var mín
ákvörðun sem forseta. Ég hafði rétt
til þess að spyrja spurninga [vegna
dauðadómsins], en var sannfærður
um réttmæti sönnunargagnanna.“
Saddam hafnaði einnig sönnunar-
gögnum sem ætlað var að tengja
hann við morðin í Dujail, þ.m.t. per-
sónuskilríkjum þeirra dæmdu tilræð-
ismanna sem voru börn og unglingar
þegar dauðadómurinn var kveðinn
upp. „Öll þessi skilríki eru fölsuð,“
sagði Saddam. „Ég get keypt svona
skilríki á götum Bagdad sem sýna að
Rauf dómari sé 25 ára gamall.“
Hafnar hugmyndum um afsögn
Ibrahim Jaafari, forsætisráðherra
Íraks, hafnaði á mánudag tillögu
Adel Abdel Mahdi, varaforseta lands-
ins, um að hann segði af sér embætti
til að liðka fyrir myndun þjóðstjórn-
ar.
Gaf Mahdi lítið fyrir þá áherslu
Jaafaris að það væri íraska þingsins
að ákveða pólitíska framtíð hans.
„Jafnvel í bandalagi sjíta er andstaða
[gegn Jaafari],“ sagði Mahdi í viðtali
við BBC í fyrradag, en bætti jafn-
framt við að hann væri sjálfur tilbú-
inn í embætti forsætisráðherra. „Ég
tel að hann ætti að víkja.“
Leiðtogar súnní-araba og Kúrda
og þingmenn, sem aðhyllast verald-
arhyggju í stjórnmálum, hafa ekki
farið leynt með óánægju sína með
störf Jaafaris, á sama tíma og æ fleiri
flokksbræður hans hafi lagt til að
hann segi af sér embætti.
Segir vitnum hafa
verið mútað
! "
#$%&
#$%%
!
!
"
' #$%% #$$$
% % %
& ("' ! !(!
)
&
*+ ( *
( ,-.
%)
!
!% *!#$%+
/ %
, 0 1 2
314 25
657 1 '0
)
(
,#$
- .
London. AP. | Fregnir af ósætti Tonys
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
og Gordons Brown fjármálaráð-
herra, sem þykir líklegur til að taka
við af Blair, hafa enn á ný farið á flug
síðustu daga. Þeir Blair og Brown
komu hins vegar fram saman opin-
berlega í gær, þegar Verkamanna-
flokkurinn kynnti stefnuskrá sína
vegna komandi sveitarstjórnarkosn-
inga, og reyndu þannig að kveða nið-
ur slíkan orðróm.
Grannt verður fylgst með gengi
Verkamannaflokksins í þessum
kosningum, en hugsanlegt er talið að
úrslit þeirra hafi áhrif á það hvenær
Blair víkur sæti.
Helmingur vill að Blair hætti
Tæpur helmingur Breta telur að
Blair eigi að hætta áður en árið er
liðið. Þetta kemur fram í nýrri skoð-
anakönnun á afstöðu kjósenda til
forsætisráðherrans, sem hefur sjald-
an eða aldrei verið óvinsælli.
Samkvæmt könnuninni, sem var
birt í dagblaðinu The Times, telja 34
prósent Breta að Blair eigi að hætta
þegar í stað, en 13 prósent að hann
eigi að hætta fyrir árslok.
Snúa
bökum
saman
Reuters
Tony Blair og Gordon Brown koma
til höfuðstöðva Verkamannaflokks-
ins í London í gær.