Morgunblaðið - 06.04.2006, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. APRÍL 2006 43
DAGBÓK
SÍNE, Samband íslenskra námsmanna er-lendis, stendur fyrir hádegisráðstefnu ámorgun, 7. apríl. Yfirskrift ráðstefnunnarer „Vitur er sá er víða ratar: Mannauður í
alþjóðlegu fyrirtæki“.
Hjördís Jónsdóttir er framkvæmdastjóri SÍNE:
„Sem hagsmunasamtök námsmanna erlendis þótti
okkur hjá SÍNE tímabært að fjalla um og vekja at-
hygli á gildi þess fyrir íslensk fyrirtæki og samfélag
að námsmenn fari erlendis að sækja menntun sína.
Við höfum boðið til fundarins góðum fyrirlesurum
og fulltrúum fyrirtækja á alþjóðamarkaði og verður
áhugavert að heyra þeirra sýn á þetta málefni.“
Fyrirlesarar verða: Hilmar Garðar Hjaltason hjá
IMG-mannafli, Tanya Zharov, lögfræðingur hjá de-
CODE, Jón Kr. Gíslason hjá Össuri, Svali Björg-
vinsson hjá KB banka og Halla Tómasdóttir frá
Viðskiptaráði Íslands. Fundarstjóri er Halldór
Benjamín Þorbergsson, einnig frá Viðskiptaráði Ís-
lands.
„Ræðumenn hafa frjálsar hendur og munu flestir
ræða út frá starfsemi eigin fyrirtækja,“ segir Hjör-
dís. „Gaman er að nefna, í þessu sambandi að
Framtíðarhópur Viðskiptaráðs Íslands gaf á dög-
unum út skýrslu sem sýndi að 80% yfirmanna öfl-
ugustu útrásarfyrirtækja landsins eru menntaðir
erlendis.“
Samband íslenskra námsmanna erlendis var
stofnað 13. ágúst 1961 og er því 45 ára í ár. SÍNE
eru hagsmunasamtök námsmanna og hafa skrif-
stofu í Pósthússtræti. Utan eins launaðs starfs-
manns er allt starf SÍNE unnið í sjálfboðastarfi.
„Við njótum engra opinberra styrkja heldur gefst
námsmönnum kostur á að greiða félagsgjöld með
því að haka í þar til gerðan reit á umsókn-
areyðublöðum Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Félagið á fulltrúa í stjórn LÍN og gætir þar hags-
muna námsmanna. Einnig á SÍNE fulltrúa í vafa-
málanefnd sem úrskurðar um vafaatriði í afgreiðslu
lánþega hjá Lánasjóðnum. Sæmundur heitir blað
félagsins sem gefið er út tvisvar á ári og sent til
allra félagsmeðlima um allan heim, en þar er bland-
að saman umfjöllunum og fróðleik, reynslusögum
námsmanna erlendis og birt ýmis tilboð sem fé-
lagsmönnum standa til boða,“ segir Hjördís. „Þá
eigum við í miklu samstarfi við aðrar náms-
mannahreyfingar, s.s. Iðnnemasambandið, Stúd-
entaráð HÍ og BÍSN og tökum meðal annars þátt í
framkvæmd sameiginlegrar framfærslukönnunar
sem send er til allra félagsmanna okkar. Slíkar
kannanir koma að miklum notum við endurskoðun
úthlutunarreglna Lánasjóðsins, en SÍNE tekur
þátt í endurskoðunarferlinu sem fram fer árlega.“
Félagsmenn SÍNE eru nú um tólf hundruð tals-
ins.
Hádegisráðstefna SÍNE verður sem fyrr segir
haldin á morgun, föstudaginn 7. apríl. Hún er hald-
in í fundarsal Þjóðminjasafnsins og hefst kl. 12.
Námsmenn eru sérstaklega hvattir til að sækja
fundinn en aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Boðið er upp á léttar veitingar eftir fundinn.
Menntun | „Vitur er sá er víða ratar“ – Hádegisráðsefna SÍNE í Þjóðminjasafninu á morgun
Gildi menntunar erlendis
Hjördís Jónsdóttir
fæddist í Reykjavík
1974. Hún lauk stúd-
entsprófi frá Versl-
unarskóla Íslands 1994
og BS í alþjóðamark-
aðsfræði frá Tæknihá-
skóla Íslands 2000.
Árið 2002 lauk Hjördís
mastersnámi í al-
þjóðamarkaðsfræði og
stefnumótun frá Við-
skiptaháskólanum í Kaupmannahöfn.
Meðfram námi vann Hjördís hjá Íslandsbanka,
þá hjá Barnahjálp SÞ (UNICEF) í Kaupmanna-
höfn og síðar hjá Íshestum. Hún tók við starfi
framkvæmdastjóra SÍNE í janúar 2006. Sam-
býlismaður Hjördísar er Ole Rønne forritari og
eiga þau soninn Magnús.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
60 ÁRA afmæli. Í dag, 6. apríl, ersextugur Vigfús Þór Árnason,
sóknarprestur í Grafarvogi. Eig-
inkona hans er Elín Pálsdóttir. Þau
eru að heiman í dag.
Sabine Auken.
Norður
♠10
♥10 N/Enginn
♦Á106542
♣G10982
Vestur Austur
♠9542 ♠KG873
♥D9754 ♥ÁK82
♦K ♦D7
♣D64 ♣53
Suður
♠ÁD6
♥G63
♦G983
♣ÁK7
„I Love This Game“ heitir ný bók
um bridsferil þýsku landsliðskon-
unnar Sabine Auken, sem er stiga-
hæsti kvenspilari heims um þessar
mundir. Sabine er skráður höfundur
– og talar jafnan í fyrstu persónu – en
Bretinn Mark Horton ritstýrði verk-
inu.
Spilið að ofan kom upp í 8 liða úr-
slitum HM í París 2001. Sabine og
Daniela von Arnim voru í NS gegn
bandarísku konunum Montin og
Meyers:
Vestur Norður Austur Suður
Montin Dany Meyers Sabine
-- 2 spaðar * Dobl 2 grönd
3 hjörtu 3 grönd Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Dobl Pass
Pass 4 spaðar Pass 5 tíglar
Pass Pass Pass
Opnun von Arnims á tveimur spöð-
um sýndi veik spil með minnst 5-5 í
hálitum eða láglitum, og dobl Meyers
í austur lofaði hálitunum. Í framhald-
inu kom í ljós að norður átti láglitina
og fyrirstöður í hjarta og spaða.
Út kom lítið hjarta, sem austur tók
með kóng og skipti yfir í lítinn spaða.
Spilið snýst augljóslega um lauf-
drottninguna, sem ekki liggur fyrir
svíningu. Leikurinn var sýndur á
töflu og áhorfendur – sem sáu allar
hendur – misstu fljótt áhugann og
undruðust hvað Sabine tók sér lang-
an tíma í öðrum slag. Af hverju drap
hún ekki á spaðaás, fór í trompið og
svínaði svo í laufi? Var nokkuð annað
að gera?
Eftir drjúga stund kom Sabine öll-
um á óvart með því að svína spaða-
drottningu! Hún stakk svo hjarta,
lagði niður tígulás, og notaði innkom-
urnar á ÁK í laufi til að trompa út há-
litina. Spilaði loks trompi.
Austur lenti inni á tíguldrottningu
og varð að spila hálit í tvöfalda eyðu
og tapslagurinn í laufi gufaði þar með
upp.
Þetta er ekki tæknilega erfitt, en
að baki liggur glögg túlkun á sögum.
Úr því að vestur valdi að segja þrjú
hjörtu við doblinu, taldi Sabine taldi
líklegt að austur væri með fimm
spaða og fjögur hjörtu. Og spila-
mennska hennar myndi duga til vinn-
ings, hvort heldur austur ætti 2-2 í
láglitunum eða einn tígul og þrjú lauf
(þá lendir vestur inni á hátromp og
verður að spila í tvöfalda eyðu).
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Þetta er ekki þjónusta
VIÐ hjónin ásamt 5 ára dóttur okk-
ar fórum á Pizza Hut sl. laugardag
að fá okkur að borða. Við pöntuðum
m.a. pitsu og fengum pitsu sem
hafði greinilega verið of lengi í ofn-
inum því osturinn var orðinn þurr
og pitsan ólystug. Spurðum við því
hvort við gætum ekki fengið aðra
pitsu – en svarið var nei. Töluðum
við þá við annan starfsmann sem
viðurkenndi að ofninn væri stund-
um leiðinlegur. Því spurðum við
aftur og fengum aftur þvert nei.
Þegar við höfðum lokið við að
borða spurðum við hvort ekki væri
nægilegt að borga bara brauð-
stangirnar og gosið en þá ætlaði
starfsmaður þarna að hringja í lög-
regluna. Ég náði að stoppa hana af
og borguðum við pitsuna.
Ég hafði síðan samband við yf-
irmann Pizza Hut sl. mánudags-
morgun sem endurgreiddi okkur
pitsuna og viðurkenndi að ofninn
væri ekki í lagi.
Við erum engir unglingar og vor-
um með barn með okkur og skiljum
ekki hvaða mál þetta var – eða
hvers vegna starfsmaðurinn var
með þennan hroka og hótun um að
hringja á lögregluna.
Er ekki betra að leysa svona
vandamál á staðnum í stað þess að
skapa þessi leiðindi?
Við höfum fengið betri þjónustu
annars staðar því ef eitthvað hefur
verið að pitsu sem maður hefur
pantað hefur það ekki verið neitt
mál að fá nýja.
Maríanna Brynhildardóttir.
Um fjölmiðlaflóru
Í AUKINNI samkeppni fjölmiðla
vekur það athygli hvað sum mik-
ilvæg mál fá litla umfjöllun og
hverfa síðan fyrir öðrum, líkt og
þau hafi aldrei verið til.
Dæmi: Nýlega kom í ljós að Al-
coa ætlar að hafa mengunarvarnir í
Reyðarfjarðarverksmiðju sinni í
antik-stíl, þ.e. tvo 19. aldar strompa
sem munu losa 12 sinnum meiri
mengun en Alþjóðabankinn setur
sem skilyrði fyrir lánveitingum. Al-
coa tekur líklega ekki lán þar. Og
ekki er umhverfismatið að þvælast
fyrir, það liggur enn í uppkasts-
formi á borði Alcoa.
Annað dæmi er frétt um að vext-
ir á Íslandi séu 4–6 sinnum hærri,
að teknu tilliti til verðtryggingar,
en í nágrannalöndunum. Eina svar-
ið við því virðast vera eldri karl-
menn sem réttlæta verðtrygg-
inguna og vara síðan við ástandinu
sem myndaðist þegar þeir sjálfir
fengu húsin og námslánin svo til
gefins. Og getur verið að þingmenn
freistist til að elta fréttamatið sér
til frama, frekar en að standa við
eiða sína?
Sjálfrennireiðarstjóri.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
4 vikna
vornámskeið
hefst 22. apríl.
Upplagt til kynningar
fyrir byrjendur.
www.ballett.is
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620.
Vantar fyrir trausta kaupendur
• Stóra 3ja herb. eða 4ra herb. íbúð í Fossvogi (Löndunum).
• 3ja herb. íbúð með bílskúr í Breiðholti. Helst í Seljahverfi eða þar í
nánd.
• Einnig vantar okkur 2ja til 3ja herb. íbúðir sem þarfnast lagfæringa.
Allt kemur til greina.
Nú er besti tíminn framundan í sölu sumarhúsa. Vegna góðrar eftir-
spurnar vantar sumarhús til sölu.
Við bjóðum sanngjarna þóknun fyrir fulla þjónustu.
Vantar allar gerðir fasteigna á söluskrá.
Minnum á heimasíðu okkar www.hibyliogskip.is
Þuríður Halldórsdóttir hdl., lögg. skipasali
www.hibyliogskip.is hibyliogskip@hibyliogskip.is
Símar: 551 7270, 551 7282 og 893 3985
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 e5 5. Rb5 d6 6. R1c3 a6 7.
Ra3 Be7 8. Rd5 Rf6 9. Rxf6+
Bxf6 10. Rc4 Be7 11. Be3 Be6 12.
Rb6 Hb8 13. c3 Bg5 14. Bxg5
Dxg5 15. Dd2 Dd8 16. Rc4 d5 17.
exd5 Dxd5 18. Dxd5 Bxd5 19. O-
O-O Be6 20. Rd6+ Ke7 21. Bc4
Hhd8 22. Bxe6 Kxe6 23. Re4 b6
24. Hxd8 Rxd8 25. Hd1 f6 26. c4
f5 27. Rc3 Hc8 28. Kb1 Rf7 29.
Rd5 b5 30. cxb5 axb5 31. a3 Rd6
32. Rc3 Hc4 33. Ka2 g5 34. Kb3
Hf4 35. Hd2 Rc4 36. Hc2 Ra5+
37. Ka2 b4 38. axb4 Rc6 39. Ka3
Rxb4 40. Hd2 Rc6 41. Ra4 Rd4 42.
Rc3 Hh4 43. h3 g4 44. hxg4 Hxg4
45. f3 Hg8 46. Ka2 h5 47. b4 h4
48. Re2 Rc6 49. b5 Rb4+ 50. Kb3
Rd5 51. Rc3 Re3 52. b6 Rxg2 53.
Ra4 h3 54. Rc5+ Kf7 55. Rd7 h2
56. Hd1
Staðan kom upp á opna al-
þjóðlega Reykjavíkurmótinu sem
lauk fyrir skömmu í skákmiðstöð-
inni í Faxafeni 12. Norska undra-
barnið Magnus Carlsen (2625)
hafði svart gegn Mohammed Tiss-
ir (2444). 56... Re1! 57. Hxe1 57.
Rxe5+ hefði einnig tapað eftir
57...Ke6 58. Hxe1 Hg1. 57... Hg1
58. Rxe5+ Kg7 59. He2 hvítur
hefði einnig beðið ósigur eftir 59.
b7 Hxe1 þar eð ef hvítur myndi
vekja upp drottningu þá myndi
svartur skáka hana af. 59... h1=D
og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Hlutavelta | Þeir Elmar Örn Gunn-
arsson og Björn Andri Bergsson héldu
tombólu og söfnuðu 2.314 kr. til styrkt-
ar Rauða kross Íslands.
HÖRÐUR Torfa heldur í Borgar-
leikhúsinu í kvöld sína árlegu
Kertaljósatónleika. Tónleikana hef-
ur Hörður haldið í áratugi á vorin
og þeir verið vel sóttir líkt og árleg-
ir hausttónleikar hans.
Hann hefur sýnt og sannað að
hann er einstakur listamaður í ís-
lensku listalífi og í þá tæpu fjóra
áratugi sem hann hefur unnið sem
söngvaskáld, hefur hann sent frá
sér tugi platna með eigin söngvum
sem teljast vel á fjórða hundraðið.
Hörður er leikari sem hefur nýtt
sér menntun sína á óvenjulegan
hátt og hóf strax, að leiklistarnámi
loknu 1970, að ferðast um landið og
ræða við fólk í gegnum söngva um
málefni sem snerta okkur öll.
Hörður segir að yfirskrift tón-
leikanna vísi til þess að kertið sé
tákn lífs, friðar og samveru. Sam-
veran sé að hugsa upphátt og af
velvilja til hvert annars og um-
hverfis okkar. Samvera kalli líka á
að við hlustum á boðskap söngva
sem er þegar á botninn er hvolft,
hamingja og gleði.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Boðskapur söngva