Morgunblaðið - 28.05.2006, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Svokallaðar stórslysa- eðahamfaramyndir eru þekkt-ar allt frá árdögum kvik-myndalistarinnar, en þæráttu sitt blómaskeið sem
var allur áttundi áratugurinn.
Nafnið Poseidon kveikir heldur
betur á perunni hjá gömlum unn-
endum hamfara- og stórslysa-
myndanna, því önnur formæðra flóð-
bylgju þessarar kvikmyndagreinar
var The Poseidon Adventure (’72),
með öllum einkennunum sem áttu
eftir að verða vörumerki fyrirbær-
isins. Aðalsmerki þessara mynda
voru stórslys eða náttúruhamfarir,
ef ekki hvorutveggja. (The Poseidon
Adventure gerist um borð í
skemmtiferðaskipi sem hvolfir).
Samfara ósköpunum gekk mikið á
hjá persónunum sem voru margar
og litríkar, hádramatík sem bar
ósvikinn keim af sápuóperum, í
faðmlögum við spennuna. Leikhóp-
urinn var því í flestum tilfellum stór
og matarmikill og gjarnan tjaldað til
þekktum en ekkert endilega eftir-
sóttum nöfnum, með heiðarlegum
undantekningum.
Kvikmyndagreinin kom umtals-
verðri hreyfingu á framþróun brellu-
gerðar, Universal gekk lengst út á
tæknibrautina og lét hanna nýtt
kerfi í kvikmyndahúsin sem sýndu
þessar afurðir kvikmyndaversins.
Var það fyrst tekið í notkun á sýn-
ingum Earthquake (’74). Fyrirbrigð-
ið nefndist Sensurround og olli titr-
ingi í bíósölum, sem átti að minna á
jarðskjálfta. Titringurinn var þó
ekki tilkomumeiri en svo að gestir
létu sér fátt um finnast og tækni-
undrið dó drottni sínum.
Nýjum Poseidon hleypt
af stokkunum
Poseidon-myndirnar urðu tvær,
því sú fyrri, sem framleidd var af
20th Century Fox, varð metaðsókn-
ar- og tímamótamynd sem setti
bylgjuna af stað. Framleiðandinn,
Irwin Allen, var sá langstærsti á
þessu sviði og stóð á bakvið a.m.k.
fimm slík verk á meðan tískubylgjan
lifði. Allen vildi gera framhaldsmynd
en Fox leist ekki á handritið og end-
aði Allen hjá Warner sem tók honum
opnum örmum og fjármagnaði
Beyond The Poseidon Adventure
(’79). Síðar kom á daginn að sú mynd
stóð að engu leyti undir væntingum.
Þannig eignaðist Warner þetta
sögufræga nafn og nú, röskum ald-
arfjórðungi síðar, hefur fyrirtækið
hleypt nýjum Poseidon af stokkun-
um. Efnið er í sjálfu sér magnað og
tímalaust og freistandi að skella því í
endurvinnsluna með hjálp tölvu-
brellna samtímans.
Atburðarásin í Poseidon hinum
nýja hefst á gamlárskvöld og fjörið
ríkir um borð í hinu spánnýja og
glæsilega skemmtiferðaskipi þar
sem það klýfur öldur Norður-Atl-
antshafsins. Poseidon er tækniund-
ur með yfir tuttugu þilför, þar af
þrettán ætluð farþegum.
Flestir eru samankomnir í aðal-
samkomusalnum, þar sem kampa-
vínið flýtur. Á sama tíma sér stýri-
maður á vakt að ekki er allt með
felldu; úti við sjóndeildarhring rís
hrikaleg flóðbylgja, um 50 metrar á
hæð, og fyrr en varir skellur hún á
skipinu. Risavaxin aldan leggur
Poseidon umsvifalaust á hliðina, síð-
an hvolfir hún þessari fljótandi borg.
Um borð fer allt á annan endann,
stór hluti farþeganna týnir lífinu í
slysinu, aðrir slasast en um 500 lifa
af, flestir í aðalsalnum sem nú er
langt undir sjávarmáli. Eftir að skip-
verjar hafa áttað sig á aðstæðum og
komist yfir fyrsta áfallið skipar skip-
stjórinn þeim að halda hópinn í
myrkvuðum salarkynnunum og bíða
utanaðkomandi hjálpar.
„Would you stay or would you go,“
söng The Clash á sínum tíma. Ljóð-
línan segir allt um ástandið um borð.
Þeir hugrökku vilja leita útgöngu,
hinir híma lafhræddir á loftinu í
danssalnum. Einn farþeganna, fjár-
hættuspilarinn Dylan Johns (Josh
Lucas), ákveður að yfirgefa sam-
kvæmið og leggur af stað um nið-
myrkt skipið. Conor (Jimmy Nenn-
ett), níu ára gömul telpa, krefst þess
að fá að fara með honum og móðir
hennar, Maggie (Jacinda Barrett),
fylgir á eftir ásamt Robert Ramsey
(Kurt Russell), sem er að leita að
dóttur sinni og kærasta hennar
(Emmy Rossum og Mike Vogel.)
Dylan leiðir hópinn sem mjakast
upp, nær kilinum. Á leiðinni slást í
för með þeim laumufarþegi (Mia
Maestro) og maður í sjálfsmorðs-
hugleiðingum (Richard Dreyfuss)
auk skipsþjóns (Freddy Rodriguez)
sem er öllum hnútum kunnugur um
borð.
Umhverfi og aðstæður endur-
spegla þær í gamla Poseidon, en per-
sónurnar eru dálítið frábrugðnar. Þó
má sjá vissan skyldleika með Russell
og Gene Hackman, Josh Lucas og
Ernest Borgnine og Richard
Dreyfuss, sem leikur samkyn-
hneigðan mann í ástarsorg, minnir á
þau Red Buttons og Shelley Wint-
ers, steypt saman í eina persónu.
Flóðbylgjan milli 1970—1980
Ein jólamyndanna árið 1972
nefndist The Poseidon Adventure,
stórmynd gerð af Ronald Neame,
gamalkunnum, breskum kvik-
myndatökustjóra sem hafði ekki
skráð nafn sitt stórum stöfum sem
leikstjóri – fyrr en þá. Myndin er eitt
af fáum afrekum Neames, hún gerist
um borð í skemmtiferðaskipinu
Poseidon og er að öllu leyti tekin á
risastórum sviðum hjá Fox-kvik-
myndaverinu í Los Angeles. Þau
minna á voldugt völundarhús en
Neame tekst með sóma að leiða hóp-
inn sinn frá byrjunarreit til enda.
Þegar hér er komið sögu er s.s.
Poseidon búinn að lifa sitt fegursta,
orðinn úr sér genginn ryðkláfur.
Eftir þessa siglingu á að selja skipið
í brotajárn. Það er því einstaklega
illa búið þegar á því skellur gríðarleg
flóðbylgja og færir það á hvolf.
Nokkrir farþegar lifa af og reyna að
brjótast upp að kilinum í von um ut-
anaðkomandi björgun.
Farþegalistinn er einstaklega for-
vitnilegur. Minnisstæðastir eru
Gene Hackman sem séra Frank
Scott, Ernest Borgnine sem Mike
Rogo lögregluforingi og Stella Stev-
ens sem Linda eiginkona hans og
fyrrum vændiskona. Red Buttons
lék kveifina James Martin og Shell-
ey Winters og Jack Albertson
prýddu hópinn sem Rosen-hjónin.
Margir fleiri komu við sögu.
The Poseidon Adventure er á
svipuðum stalli og The Rocky
Horror Picture Show, aðdáendur
hennar koma af og til saman, vítt og
breitt um heiminn, til að horfa á eft-
irlætið sitt, allir í hlutverkum ákveð-
innar persónu í myndinni. Uppruna-
legu leikararnir hressa stundum upp
á hópinn með nærveru sinni og hafa
miklu ánægju af ódrepandi vinsæld-
um hennar. Þeir eru hreyknari af
The Poseidon Adventure en mörg-
um öðrum og e.t.v. merkilegri mynd-
um á ferlinum. Jafnvel leikstjórinn,
Neame, sem orðinn er 95 ára gamall,
á það til að mæta enn þann dag í dag
og fagna gamla flaggskipinu sínu.
NBC-sjónvarpsstöðin gerði afar
vonda, samnefnda stuttmyndaseríu
byggða á mynd Neames árið 2005.
Hún virðist einkum hafa gegnt því
hlutverki að bjarga útbrunnum leik-
urum um vinnu; Rutger Hauer, C.
Thomas Howell, Steve Guttenberg,
Bryan Brown, Peter Weller, og ryk-
ið hefur jafnvel verið dustað af Sylv-
iu Sims. Það jaðrar við að hópurinn
geri myndina forvitnilega.
Airport og afkvæmin hennar
Airport á heiðurinn af því að vera
fyrsta mynd bylgjunnar og markaði
hún upphaf hennar1970. Myndin var
byggð á metsölubók eftir Arthur
Hailey og hana prýddu á annan tug
þekktra leikara, með Burt Lancast-
er, Dean Martin, Jean Seberg,
Jacqueline Bisset, George Kennedy,
Helen Hayes og Van Heflin í veiga-
mestu hlutverkunum. Hlaut hún
nokkuð óvænt metaðsókn um allan
heim.
Bókin og myndin höfðu eitthvað
fyrir alla. Baksviðið er flugvöllur í
Miðríkjunum, í uppsiglingu er
versta stórhríð í manna minnum, á
vellinum ríkja margflókin vandamál
og ekki eru þau minni um borð í
Boeing 707-vélinni, sem væntanleg
er til lendingar. Martin leikur flug-
stjóra í framhjáhaldi, en hann er
giftur systur flugvallarstjórans,
Lancaster. Farþeginn Van Heflin
ætlar að sprengja sig í loft upp og
þar með flugvélina, konu hans
(Maureen Stapleton) til mikils ama,
en Heflin er valmenni í fjárkröggum.
Helen Hayes, sem hóf kvikmynda-
leik á fyrsta áratug síðustu aldar,
leikur krumpinn og lúinn laumu-
farþega og svo mætti lengi telja.
Þar með voru Universal og Hailey
komin á flug. Í kjölfarið fylgdu Air-
port ’75, Airport 1977, og bálknum
lauk með ósköpum The Concorde:
Airport ’79. Þá var tekinn að þynn-
ast þrettándinn. Reynt að hífa upp
áhuga almennings með því að skipta
á Boeing og hinni nýju og þá ofur-
spennandi Concorde, og hressa upp
á mannskapinn sem tekinn var að
lýjast. Í stíl við flugvélina þótti við
hæfi að manna hana með Evrópu-
búum að hluta. Hjartaknúsarinn
Alain Delon settist í flugstjórasætið
og tók sig ekki síður vel út með
flugstjórakaskeitið en Borsalino-
hattinn. Klámmyndaleikkonan Sylv-
ia Kristel (Emmanuelle) þótti tilval-
in á farþegalistann, Bibi Anderson
brá fyrir ásamt Susan Blakely og
Robert Wagner. George Kennedy
fór með stórt hlutverk í öllum mynd-
unum fjórum. Allt kom fyrir ekki,
Concorde var hundleiðinlegur skell-
Ljósmynd/Claudette Barius
Flestir eru saman komnir í aðalsamkomusalnum, þar sem kampavínið flýtur, þegar 50 metra há flóðbylgjan skellur á skipinu.
Ljósmynd/Claudette Barius
Hinir hugrökku vilja leita útgöngu en hinir híma lafhræddir í danssalnum.
Nýr Poseidon á gamalli
Stórslysamyndirnar sem
tröllriðu kvikmyndahúsum
allan áttunda áratuginn
snúa aftur í vikunni.
Sæbjörn Valdimarsson
rifjar upp þessa tískubylgju
í tilefni frumsýningar
Poseidon, nýrrar myndar
eftir Wolfgang Petersen, á
miðvikudaginn kemur,
kíkir um borð í skipið og
rennir yfir farþegalistann.
Um borð fer allt
á annan endann,
stór hluti farþeganna
týnir lífinu í slysinu,
aðrir slasast en um
500 lifa af, flestir
í aðalsalnum sem
nú er langt undir
sjávarmáli.