Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Laureus-íþróttahátíðin er haldin við end-ann á Diagonal, hraðbrautinni semskásker Barcelona frá norðvestri tilsuðausturs. Þar var áður verksmiðju-
hverfi við ós Besos-fljóts, risavaxnar vöru-
skemmur að hruni komnar, ryðgað stál og brot-
ið gler og í jaðrinum íbúðarhús, verkamanna-
bústaðir sem urðu síðar athvarf innflytjenda og
atvinnuleysingja, fátækrahverfi sem enginn fór
inn í ótilneyddur, leigubílstjórar neituðu að
keyra þangað og enginn sást á ferli að nætur-
lagi. Ekki góður staður til að búa á og hverfi sem
löngu var kominn tími á að endurnýja.
Stóru stökkin
Í Barcelona vilja yfirvöld helst taka stór
stökk, breyta heilum hverfum í einu, frekar en
að tjasla upp á þau smátt og smátt. Þannig var
það með Ólympíuleikana þegar strandlengjunni
var gerbylt og borginni nánast kippt inn í nú-
tímann, og þannig var það líka með menning-
arhátíðina Fòrum sem haldin var fyrir tveimur
árum, drauminn hans Maragall. Enginn vissi
eiginlega hvað sú hátíð snerist um, en íbúarnir í
La Mina fengu að finna fyrir því, þeim var rusl-
að í burtu og ekki bara þeim heldur var hverfið
sem slíkt lagt af – þar sem áður var La Mina eru
nú önnur hverfi, fátækrahverfið er horfið inn í
Sant Martí, Poblenou og nýtt hverfi með sölu-
legu nafni, Diagonal Mar – La Mar Bella.
Nú er hverfið sem borgaryfirvöld skömmuð-
ust sín fyrir, sem áður var uppspretta vandræða
og leiðinda, semsagt orðið að einu glæsilegasta
hverfi Barcelona, nútímalegt safn glæsilegra há-
hýsa úr steinsteypu, gleri og stáli. Þar eru til að
mynda nú nokkur af dýrustu og íburðarmestu
hótelum Barcelona, gríðarmikil verslunarmið-
stöð og hátísku- og hátækniverslanir. Innan um
eru svo ljót hús, verulega ljót, því það kunna
Barcelonabúar líka, að eyða miklu fé í að búa til
ljót hús – í þessari borg sem í eru mörg af feg-
urstu húsum Evrópu er líka að finna mörg þau
ljótustu, svona eins og til að skapa fagurfræði-
legt jafnvægi.
Óskarsverðlaun íþróttanna
Í húsinu sem ber nafn menningarhátíðarinn-
ar dularfullu, Fòrum, fara hátíðarhöldin fram,
þar safnast saman margir af helstu íþrótta-
mönnum heims, þotulið íþróttanna, og blanda
geði við hitt þotuliðið, fræga leikara og tónlist-
armenn, þá sem eru frægir fyrir að vera ríkir og
þá sem eru frægir fyrir að vera frægir. Tilefni
veislunnar miklu er Laureus-verðlaunin,
íþróttahátíðin mikla, en Laureus-verðlaun fá
þeir íþróttamenn sem teljast fremstir meðal
jafningja; ekki bara þeir sem fremst hafa náð á
sínu sviði, heldur hafa sýnt þvílíka yfirburði að
eftir því er tekið.
Íþróttakademía Laureus er kjölfestan í starfi
Laureus-stofnunarinnar, en í akademíunni eru
42 fremstu núlifandi íþróttamenn sögunnar.
Edwin Moses, grindahlauparinn snjalli, er for-
maður hennar. Félagar í akademíunni eru út-
sendarar stofnunarinnar og í sífelldum ferðalög-
um við að kynna starf hennar, auka áhuga á
íþróttum og veita ýmislegu líknarstarfi lið.
Laureus-verðlaunin sjálf eru eftirsóknarverð,
e.k. óskarsverðlaun íþróttanna, og eins og með
óskarinn velur sérstök akademía verðlaunahafa
í hverjum flokki, Laureus-akademían. Íþrótta-
mennirnir eru tilnefndir af íþróttafréttamönn-
um um allan heim og síðan kýs akademían úr
hópi hinna tilnefndu. Þeim hefur fjölgað jafnt og
þétt sem taka þátt í að tilnefna íþróttamenn og
þetta árið voru þeir 737 frá 99 löndum.
Náttúruval eða hvað?
Íþróttamenn eru ungir, ungir menn og ungar
konur, alla jafna vel á sig komin líkamlega og
fyrir einhverjar sakir er það íþróttafólk sem
best gengur, sem mest ber á í það minnsta, jafn-
an glæsilegt útlits. Það er ekki bara stæltur lík-
aminn sem geislar af hreysti heldur er einsog
íþróttastjörnurnar verði fegurri með árunum,
líkjast æ meir kvikmyndastjörnum. Hvað veldur
er ekki gott að segja. Augljós tilgáta er að fjöl-
miðlar hampa þeim best sem helst eru fyrir aug-
að, en eins má vel vera að íþróttamenn gefi útliti
sínu betur gaum, láti jafnvel lappa uppá það til
að ná meiri athygli og betri auglýsingasamn-
ingum. Svo má ekki vanmeta náttúruvalið.
Laureus-hátíðin er eðlilegt framhald á þess-
ari þróun – íþróttamenn njóta í mörgu sömu
hylli og kvikmyndastjörnur og eru margir millj-
ónungar líkt og þær. Að auki eru þeir glæsilegir
á velli – geisla af hreysti og heilsu, enda ná menn
ekki langt í íþróttum þegar þeir eru sokknir í
sollinn. Þeir taka því líka vel að fá sinn rauða
dregil, fá að standa í sviðsljósinu og veifa ljós-
myndaraskaranum, sumir með skrauteiginkonu
eða skrauteiginmann sér við hlið.
Alls voru 44 íþróttamenn tilnefndir þetta árið
úr ólíkum íþróttagreinum, fótbolta, tennis,
frjálsum íþróttum, skíðum, formúlu 1, ralli, hjól-
reiðum, golfi, körfubolta og svo má telja. Einn
íþróttamaður fékk tvær tilnefningar, belgíska
tenniskonan Kim Clijsters, sem tilnefnd var sem
íþróttakona ársins og einnig sem sá íþróttamað-
ur sem best tókst upp við að hefja keppni á ný,
en Clijsters var frá keppni vegna meiðsla í heilt
ár og fáir áttu von á að hún myndi keppa aftur.
Eins má reyndar segja að brasilíski fótbolta-
snillingurinn Ronaldinho hafi fengið tvær til-
nefningar þar sem hann var tilnefndur sem
íþróttamaður ársins og einnig var lið hans,
Barcelona, tilnefnt sem lið ársins.
Ljótasta hús Barcelona
Það er alltaf margt fólk á ferli í Diagonal Mar
– La Mar Bella, fólk kemur til að sýna sig og sjá
aðra, spássera eftir strandveginum, og mikið er
líka af verslunum á svæðinu, til að mynda stór-
markaðurinn mikli sem heitir einfaldlega
Diagonal Mar og er alltaf stappfullur af fólki.
Húsin í kring eru annars mörg meira og minna
tóm því það þarf meira ef nafnbreytingu áður en
fólk langar til að flytja þangað sem áður var La
Mina – það tekur hverfi smá tíma að verða til,
sjá t.a.m. ólympíuþorpið sem ekki er enn orðið
þorp hálfum öðrum áratug eftir ólympíuleikana.
Verðlaunahátíðin mikla var svo haldin í Fòr-
um-húsinu sjálfu eins og getið er, einu ljótasta
húsi Barcelona og þótt víðar væri leitað, fjólu-
blár hraunaður kassi. Þar var ekki þverfótað
fyrir íþróttamönnum, Severiano Ballesteros,
Boris Becker, Sergey Bubka, Bobby Charlton,
Emerson Fittipaldi, Miguel Indurain, Michael
Johnson, Edwin Moses, Martina Navratilova,
Monica Seles, Yelena Isinbayeva, Katarina Witt
og Mark Spitz, svo taldir séu nokkrir af akadem-
íumönnum sem voru á staðnum, en einnig mátti
sjá leikara og listamenn; Morgan Freeman,
Cuba Gooding Jr., sem var kynnir hátíðarinnar,
Teri Hatcher og Joaquin Cortes, sá síðastnefndi
íþróttamaður á sinn hátt eins og þeir muna sem
sáu sýningu hans í Laugardalshöllinni á sínum
tíma. Á staðnum voru líka Bernie Ecclestone,
FIFA foringinn Sepp Blatter, Jonah Lomu, sem
er mikill maður á velli, og Juan Pablo Montoya.
Ekki má svo gleyma Spánarkonungi, Jóhanni
Karli sjálfum, en hann sýndi hátíðinni mikinn
velvilja og sótti Laureus-veislur kvölds og
morgna.
Liður í því að halda hátíðina í Barcelona var
að skapa stemmningu fyrir stofnun Spánar-
deildar Laureus eins og þeir félagar Seve Ball-
esteros og Miguel Indurain segja okkur blaða-
mönnum, en formaður þeirrar stofnunar er
Juan Antonio Samaranch yngri, sonur þess
gamla sem gaf Barcelona Ólympíuleikana, ein-
valdi Ólympíunefndarinnar sem Katalóníumenn
vita eiginlega ekki hvort þeir eigi að hata eða
elska – víst varð hann til þess að kippa Barce-
lona inn í nútímann og gera að einni helstu borg
Evrópu með því að hlutast til um að Ólympíu-
leikarnir yrðu haldnir þar á sínum tíma, en hann
er líka gangandi þversögn; Katalóni sem var líka
falangisti, traustur liðsmaður Francos sem enn
er hataður af heift í Katalóníu.
Skrautsýningin mikla
Verðlaunahátíðin sjálf var mikil skrautsýn-
ing, íþróttamenn að sýna að þeir kunni að klæða
sig uppá ekki síður en kvikmyndastjörnurnar –
fólk streymdi eftir rauða dreglinum, stillti sér
upp og brosti og veifaði til ljósmyndaranna.
Kemur væntanlega ekki á óvart að mest var
klappað, hrópað og myndað ef fönguleg stúlka
birtist á dreglinum og hrópin hækkuðu eftir því
sem hún var í færri og minni spjörum.
Niðurstaða akademíunnar kom eilítið á óvart
enda tennisstjörnur í mörgum helstu hlutverk-
um. Þannig var Roger Federer útnefndur
íþróttamaður ársins í annað sinn og vann s.s.
fyrir því með sigri á þremur helstu stórmótum
tennisheimsins. Martina Hingis var verðlaunuð
fyrir bestu endurkomu í íþróttum á árinu, en
hún sneri aftur til keppni eftir að hafa ekki getað
keppt lengi vegna meiðsla. Þriðji tenniskappinn
sem hlaut Laureus-verðlaun var svo Rafael
Nadal sem fékk verðlaun sem nýliði ársins.
Íþróttakona ársins var kjörin skíðakonan
Janica Kostelic, suður-afríski íþróttamaðurinn
Ernst van Dyk var valinn fatlaði íþróttamaður
ársins, en hann var ósigrandi í hjólastólakapp-
hlaupi, og ítalski svifnökkvakappinn Angelo
d’Arrigo fékk verðlaun sem jaðaríþróttamaður
ársins, en hann lést í flugslysi í mars sl.
Það var greinilegt að áheyrendur voru ekki
fullsáttir við valið á keppnisliði ársins, því allir
gerðu ráð fyrir að það yrði fótboltalið Barcelona,
en formúlulið Renault fékk verðlaunin og átti
það svosem skilið eftir að hafa unnið keppni bíl-
smiða í formúlu 1 í fyrsta sinn og um leið komið í
veg fyrir að Ferrari gerði það sjöunda árið í röð.
Nokkur önnur verðlaun voru veitt sem ekki
verða tíunduð hér.
Unnið fyrir börn
Laureus-verðlaununum hefur sífellt vaxið
fiskur um hrygg, enda sett upp sem skemmti-
atriði, frægar kvikmyndastjörnur kynna og fullt
af frægu fólki slæst í hópinn, öðruvísi frægt ef
svo má segja, því þó Cuba Gooding, annar kynn-
irinn að þessu sinni, sé heimsþekktur, er hann í
öðrum flokki en Nelson Mandela og Spánarkon-
ungur, svo dæmi séu tekin. Herlegheitin voru
tekin upp fyrir sjónvarp og send út víða um heim
– 300 milljónir manna fylgdust með fyrstu hátíð-
inni en þetta árið var áætlað að ríflega hálfur
annar milljarður sjónvarpsáhorefnda myndi
horfa á verðlaunaafhendinguna.
Ólíkt kvikmyndastjörnum er starfsferill
íþróttamanna stuttur, en þeir njóta þess að geta
látið gott af sér leiða, kvikmyndastjörnurnar
fara ekki um og hvetja börn og ungmenni til að
leika í kvikmyndum, setja ekki upp leiklistar-
skóla eða gefa leikmuni. Tilgangur Laureus-
stofnunarinnar er einmitt að liðsinna börnum og
ungmennum víða um heim, hvetja þau og að-
stoða til þátttöku í íþróttastarfi með það að leið-
arljósi að sá sem vill ná árangri í íþróttum, vill
sigra keppninauta sína, þarf fyrst að sigrast á
sjálfum sér sem er fyrsta skrefið í átt að þroska.
Það verður svo væntanlega til að ýta enn undir
áhugann að sjá að maður getur líka verið
stjarna, líka komist í þotuliðið.
Ljósmynd/ Getty Images
Þær voru í efnislitlum klæðum, dömurnar sem fylgdu Cuba Gooding Jr. á svið.
Roger Federer — íþróttamaður ársins.
Janica Kostelic — íþróttakona ársins.
Þotulið íþróttanna
Fyrir sex árum var haldin í fyrsta sinn íþróttahátíð mikil sem kallaðist Laureus-
hátíðin. Þá komu saman íþróttastjörnur víða að, alla jafna fremstu íþróttamenn
heims, og verðlaunuðu hver annan fyrir framúrskarandi frammistöðu – klædd-
ust í kjól og hvítt og hátískuflíkur. Árni Matthíasson var meðal gesta á sjöundu
Laureus-hátíðinni og fylgdist með stjörnustælum íþróttamanna.
arnim@mbl.is