Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 19 ur og skömmu síðar lokaði tísku- verslun við Laugaveginn með sama nafni. The Towering Inferno og allar hinar Tilkomumest, dýrust og vinsælust stórslysamyndanna er The Tower- ing Inferno, mikilfengleg mynd um eldsvoða í nýbyggðum skýjakljúfi. Hún var tímamótamynd því hún var fyrsta samstarfsverkefni tveggja risavera, Fox og Warner Bros, og eitt fyrsta samstarf tveggja slíkra Hollywood-risa. Það kom til af því að bæði höfðu keypt kvikmyndarétt bóka um svipaða atburði og ákváðu að setja öryggið á oddinn og slá sam- an. Þau lögðu gnótt fjár í fyrirtækið, sem státaði m.a. af tveimur, virtustu og vinsælustu karlstjörnum samtím- ans, Paul Newman og Steve McQueen. Fleiri mætir leikarar komu við sögu, þ. á m. William Holden, Faye Dunaway og Fred Astaire. Myndin sópaði að sér áhorf- endum og óskarsverðlaunatilnefn- ingum og hlaut nokkur, m.a. fyrir stórfenglega kvikmyndatöku Freds Koenekamps. The Towering Inferno hefur elst mun betur en flestar stöll- ur hennar. Meðal fárra stjarna stórslysa- myndanna eru glæsivélin Boeing 707 og gamli jálkurinn Charlton Heston og þau eru í aðalhlutverkum í Skyjacked (’72), auðgleymdu há- loftadrama þar sem vitstola Víet- nam-hermaður ætlar allt að drepa ef hann verður ekki settur úr vélinni í Sovétríkjunum. Þvílík geggjun! Yvette Mimieux og Claude Akins eru í leikhópnum, þar sem James Brolin stelur senunni af öllum mönn- um í hlutverki flugræningjans. Áður hefur verið minnst á Earth- quake (’74), þar sem Heston fer fyrir vel á annan tug kunnra leikara. Þeir túlka þverskurð borgara Los Angel- es, í hrikalegustu jarðskjálftum sem skekið hafa vesturströndina. Övu Gardner bregður fyrir ásamt George Kennedy, Bonanza-for- sprakkanum Lorne Greene og kan- adísku þokkadísinni Geneviève Bujold. Myndin malaði gull. Jarðskjálfti með svimandi tölu á Richter-kvarðanum kemur einnig við sögu í The Neptune Factor (’73), vondri dellu þar sem glæðaleikarinn Ben Gazzara er aldrei þessu vant í aðalhlutverki í stórmynd. Hann stjórnar björgunaraðgerðum þegar jarðskjálfti stórskaddar vísindastöð á hafsbotni og kafbátur er sendur á slysstað. Myndin er með Walter Pidgeon, Ernest Borgnine og Yvette Mimieux í aukahlutverkum. 1976 helltust þrjár stórar ham- faramyndir yfir bíógesti. The Cass- andra Crossing var sýnu ómerkileg- ust, en það sama verður ekki sagt um leikhópinn með Sophiu Loren, Richard Harris, Martin Sheen, Övu Gardner og Burt Lancaster innan- borðs í hraðlest þegar bráðdrepandi plága brýst út meðal farþeganna 1000. The Hindenburg fjallar um slysið þegar loftfarið, sem myndin dregur nafn sitt af, eyðilagðist í eldi. George C. Scott og Anne Bancroft fara fyrir vel mönnuðum leikhópi undir stjórn Robert Wise, en allt kemur fyrir ekki, myndin er algjört ónýti. Rollercoaster er síst skárri, Timothy Bottoms fer með hlutverk hryðjuverkamanns sem sprengir upp rússíbana af miklum móð þegar hann er svikinn um lausnargjald. Meðal leikara eru George Segal, Richard Widmark og Henry Fonda. 1978 var lítið skárra. Heston sýndi mjög tennurnar í Gray Lady Down þar sem hann leikur kaptein kaf- bátsins Neptúnasar sem lendir í árekstri við flutningaskip og voðinn er vís. David Carradine, Stacy Keach, Ned Beatty og fleira gott fólk rambar á barmi örvæntingar- innar. Avalanche er verri, Rock Hudson og Mia Farrow leika þar hugprúðar hetjur sem bjarga því sem bjargað verður þegar snjóflóð fellur á skíðaparadís. Sú þriðja, The Swarm, er sýnu verst. Hún er byggð á vá sem komst í heimsfréttirnar; stein sem stefndi með ógnarhraða á móður jörð og allt var í hers hönd- um. Natalie Wood og sægur þekkra leikara kom við sögu en Meteor kol- féll, þó hann eyddi ekki mannkyninu. When Time Ran Out (’80) reyndist lokapunktur stórslysamyndaáratug- arins og þvílík endalok. Það var vel við hæfi að guðfaðir myndagreinar- innar, Irwin Allen, framleiddi grip- inn. Myndin er ein sú versta á ferli Pauls Newman, jafnvel þeirra allra; Jacqueline Bisset, Williams Holden, Edwards Albert, Reds Buttons, Burgess Meredith og Ernest Borgn- ine, sem þó hefur óhikað marga fjör- una sopið. Þessi aumkunarverða mynd um eldgos á eyju í Karíbahaf- inu á sem betur fer fáa sína líka. Hamfaramyndabylgjan stóra og stæðilega var orðin að agnarsmárri gáru. Poseidon Adventure er kvikmynd sem í huga gallharðra aðdáenda sinna hefur verið sett á svipaðan stall og Rocky Horror Picture Show. bylgju saebjorn@heimsnet.is sjáanleg á tískubylgjunni og hún að líða undir lok. Næstsíðasta myndin, Meteor (’79), státaði að vísu af Sean Connery, en hann var þá enn nokkuð óstyrkur og fálmandi eftir Bond og ekki búinn að ná stefnunni á réttu hlutverkin. Myndin, sem varð einn líkkistunaglinn í sögu American Int- ernational Pictures (sem hafði fram að þessu einbeitt sér að og lifað góðu lífi á B-myndum sem sýndar voru m.a. í Hafnarbíói), hverfðist um loft- mannskæðum býflugum ættuðum frá Afríku sem skelfdu Mið- og Suð- ur-Ameríku og nálguðust nú Banda- ríkin, illt var í efni. Framleiðandinn Irwin Allen settist sjálfur í leik- stjórastólinn og stýrði misrismiklum mannskap, stöddum á vafasömum slóðum ferils síns: Michael Caine, Katharine Ross, Richard Widmark og Richard Chamberlain, svo örfáir séu nefndir. Forvitnilegt væri að vita hvar manndrápsflugurnar halda sig í dag. Nú voru greinileg þreytumerki sun. 28. maí kl. 19:15 sun. 28. maí kl. 19:15 sun. 28. maí kl. 20:00 mán. 29. maí kl. 19:15 mán. 29. maí kl. 20:00 ÍBV - Víkingur Keflavík - KR Fylkir - FH ÍBreiðablik - Grindavík Valur - ÍA þri. 30. maí kl. 19:15 þri. 30. maí kl. 19:15 þri. 30. maí kl. 19:15 þri. 30. maí kl. 19:15 Fylkir - Valur Breiðablik - FH KR - Keflavík Þór/KA - Stjarnan 3. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA 4. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA 410 4000 | landsbanki.is Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 29 00 05 /2 00 6 Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 29 00 05 /2 00 6 Tryggðu þér miða á betra verði á landsbankadeildin.is eða ksi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.