Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 62
62 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
hafa hana ennþá lágstemmdari. En
þarna eru líka lög sem eru nokkuð
hress og platan þróaðist nokkuð með-
an á upptökuferlinu stóð. Þegar við
vorum að æfa lögin komu hljóðfæra-
leikararnir með margar skemmti-
legar hugmyndir og viðbætur sem
breyttu lokaútgáfu sumra laganna.“
Þroskaðri tónlistarkona
– Hvernig valdirðu hljóðfæraleik-
arana á plötuna?
„Þetta var búinn að vera svolítill
hausverkur en svo ákvað ég að tala
við Kidda sem hjálpaði mér á fyrri
plötunni og hann benti mér strax á þá
bræður, Börk og Daða Birgissyni og
svo Kristin Snæ sem leikur á tromm-
ur: Það myndaðist strax mikil vinátta
á milli okkar og samstaða þannig að
þetta gekk eins og í sögu.“
– Hvað varstu lengi að taka plöt-
una upp?
„Eiginlega allt síðasta sumar.
Byrjuðum í júní og lukum henni í lok
ágúst en höfum síðan verið að hljóð-
blanda og tónjafna í rólegheitum.
Fyrsta lagið var hins vegar samið fyr-
ir tveimur árum, stuttu eftir að fyrsta
plata mín Standing Still kom út.“
– Heyrirðu mikinn mun á plöt-
unum tveimur?
„Já, ég heyri mikinn mun. Þessi
plata er mun þroskaðra verk. Ég hef
náttúrlega þroskast sjálf á þessum
rúmu tveimur árum og svo hef ég
þróað þessa tónlist með mér mjög
lengi.“
Damien Rice
– Textarnir á plötunni eru mjög
persónulegir. Finnst þér erfitt að
syngja um persónulega hluti eða er
það þér óumflýjanlegt?
Tónlistarkonan Lára Rúnars-dóttir hefur á undanförnumárum getið sér gott orð fyr-ir bæði fallega og persónu-
lega tónlist. Lára á ekki að baki lang-
an feril á poppsviðinu þó að hún hafi
leikið tónlist frá unga aldri en óhætt
er að segja að hún hafi listgreinina í
blóðinu enda dóttir tónlistarmannsins
Rúnars Þórissonar sem einnig gaf út
plötu fyrir stuttu. Lára semur og
syngur öll lögin á nýju plötunni en
henni til aðstoðar með flutninginn
voru nokkrir af færustu hljóðfæra-
leikurum landsins; Börkur Hrafn
Birgisson, Daði Birgisson, Kristinn
Snær Agnarsson, Pétur Sigurðsson
og Sigurður Flosason auk þess sem
Írinn, Damien Rice syngur með Láru
í laginu „Why“.
Lágstemmd plata
Hljómplatan ber hið mótsagna-
kennda nafn Þögn og Lára er fyrst
beðin um að útskýra nafngiftina:
„Ég samdi lag sem ég kallaði
„Þögn“ og er afar persónulegt lag. Í
kjölfarið skrifaði amma mín ljóðræna
klausu um merkingu þagnarinnar –
og birtist í umslaginu sem fylgir plöt-
unni – og í framhaldinu ákvað ég að
gera plötu sem fjallaði með einum eða
öðrum hætti um þögnina. Platan er
lágstemmd og þögnin er ávallt mjög
nálæg á plötunni. Mér finnst þögnin
geta verið mjög máttug ef hún er not-
uð á réttum stöðum.“
– Var það alltaf hugmyndin að hafa
plötuna lágstemmda, eins og þú seg-
ir?
„Já, og ég ætlaði meira að segja að
„Ég hugsa aldrei um áheyrendur
eða plötukaupendur þegar ég sem
texta. Það er að vísu eitt lag á plöt-
unni sem kallast „Í síðasta sinn“ sem
mér fannst of persónulegt en þegar
ég reyndi að breyta textanum varð
hann bara asnalegur. Tónlistin er
minn sálfræðingur og mér tekst að
losa um alla spennu þegar ég sem
tónlist. Ég held að það sé heldur ekki
á mínu valdi að hætta að spila per-
sónulega tónlist. Ég gæti hins vegar
hætt að gefa hana út.“
– Damien Rice syngur með þér í
einu lagi á plötunni, hvernig kom það
til?
„Við héldum pínkulitlu sambandi
eftir tónleikana í NASA í hitteðfyrra
þar sem ég hitaði upp fyrir hann og
einn daginn ákvað ég bara að slá til
og spyrja hvort hann hefði áhuga á að
syngja með mér á plötunni. Hann
ætlaði að gera þetta þegar hann var
hér að spila á Hætta! tónleikunum í
Höllinni en var svo ekki í neinu stuði
þá. Í staðinn bauð hann mér að koma
til Írlands sem og ég gerði vikuna eft-
ir og þá tókum við lagið upp.“
Tónleikar í LA
– Myndirðu segja að þetta væri
sumarplata?
„Nei, alls ekki. Hún hljómar eflaust
betur í skammdeginu. Nei, nei, það
eru þarna lög sem eiga vel við í sól-
inni.“
Lára hyggur á nokkuð tónleika-
hald í kjölfar útgáfunnar á plötunni
en fyrst ætlar hún að skella sér til
Los Angeles í tvær vikur þar sem hún
mun leika á nokkrum tónleikum sem
kunningi hennar þar ytra skipulegg-
ur.
Útgáfutónleikarnir hér á landi
verða svo fljótlega eftir að hún kemur
heim eða 15. júní í Iðnó þar sem þeir
hljóðfæraleikarar sem spila á plöt-
unni hyggjast koma fram með Láru.
Tónlist | Lára Rúnarsdóttir sendir frá sér nýja hljómplötu sem ber heitið Þögn
Máttur
þagnarinnar
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Þögnin er Láru Rúnarsdóttur áleitin á nýju plötunni sem kom út á dögunum.
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Þau bjuggu til
morðingja sem
snerist gegn
þeim…!
eee
H.J. Mbl
X-MEN 3 kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.i. 12 ára
The DaVinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Rauðhetta kl. 2 (400 kr)
Saltkráka 4 kl. 4 (400 kr)
Skrolla og Skelfir
Á SALTKRÁKU
400krVERÐ
ÍSLENSKT TAL
LEITIÐ SANNLEIK
www.xy.is
200 kr afsláttur
fyrir XY félaga
HEIMSFRUMSÝNING
LOKAUPPGJÖRIÐ Í HINUM STÓRKOSTLEGA X-MEN SAGNABÁLKI.
NÚNA MUNU HINIR STÖKKBREYTTU BERJAST INNBYRÐIS
SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS.
MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ?
MAGNAÐUR SUMARSMELLUR SEM ENGINN MÁ MISSA AF!
VINSÆLAST
eee
S.V. MBL.
50.000 gestir!
X-Men 3 kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Da Vinci Code kl. 2, 4, 5, 7, 8, 10 og 11 B.i. 14 ára
Da Vinci Code LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 11
Cry Wolf kl. 10 B.i. 16 ára
Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 12, 6 og 8
Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 12, 2 og 4
Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 12 og 2