Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 31 Æ, ÉG veit það ekki. Ég veit ekki hvort ég hlakka til að fara aftur til Íslands. Hef fyllst einhverju óþoli eftir að hafa fylgst, stopult og í fjarlægð, með kosningabaráttunni í Reykjavík. Þessi yfirmáta áhersla á félagsmálin, einkum að- búnað aldraðra rétt fyrir kosn- ingar lyktar af lýðskrumi. Æstir fréttamenn krefja pólitíska fram- bjóðendur tafarlausra svara: Hvernig ætlar þú og þinn flokkur að bæta kjör aldraðra? Hvað mun borgin gera ef þið komist í stjórn? Og ekki stendur á svörunum, allir telja þetta „brýnasta úrlausnar- efnið“. Góðvildin bókstaflega lekur af Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni þar sem hann lýsir því yfir að hann sé sérstakur verndari og velunnari aldraðra og hafi alltaf verið. Flest- ir hinna taka í svipaðan streng. Það er öruggast fyrir mig að taka strax fram að ég hef ekkert á móti bættum aðbúnaði aldraðra. Mig grunar bara að frambjóðendurnir hafi meiri áhuga á atkvæðum aldr- aðra en aðbúnaði þeirra, í öðru lagi finnst mér að yfirvöld eigi ekki alltaf að sjá um allt og þriðja lagi finnst mér fagurfræði mikil- vægari en félagsmál. Það sem ég á við er að lífsgæði í borgum mótast fyrst og fremst af skipulagi þeirra. Tökum dæmi: Í Firðafylki á vesturströnd Noregs er 30.000 manna bær sem heitir Förde. Þetta er furðulegur bær sem byggðist alfarið upp eftir stríð, einkum síðustu 10 til 20 árin. Miðbærinn er lagður undir fjögur þriggja hæða verslunarmoll sem hvert um sig er umgirt stórum bílastæðum en tvær breiðgötur skerast þar á milli og marka hverju molli sitt svæði. Ég fer einu sinni í viku með dóttur mína í fiðlutíma í Förde og við förum stundum í eitt mollið til að kíkja í H&M. Það gengur þokkalega af því við erum á bíl. En það er næstum ógerlegt að komast fót- gangandi yfir í næsta moll. Já, það er nánast ógerlegt að vera fót- gangandi í miðbænum í Förde. Skipulagið virðist byggjast á þeirri hugmyndafræði að fólk eigi bara að vera fótgangandi inni, aldrei úti – nema rétt til að komast út í bíl. Samt er þarna góðviðrasamt og umhverfið þarna er svo sannarlega fallegt með háum kollóttum fjöll- um, norskum skógi og lygnum firði. En það verður að segjast eins og er að Förde er kallaður „den styggeste by i Norge“. Já það er alveg rétt, þetta er ljótur bær og illa skipulagður. Ég get varla ímyndað mér að það sé skemmtilegt að eiga heima þarna. Sér í lagi held ég að það hljóti að vera dapurlegt hlutskipti að vera aldraður maður í Förde á miðbæj- arrölti á marmaragólfunum inni í einhverju mollinu. Um annað mið- bæjarrölt er ekki að ræða. Ég hef reyndar aldrei séð aldraða Förde- búa, bara bólugrafna unglinga í H&M og miðaldra konur að tékka á útsölum. Auðvitað er Förde fagurfræði út af fyrir sig en sú fagurfræði virð- ist geta af sér frekar takmörkuð lífsgæði. Það sem ég á við er að slæmt borgarskipulag leiðir til fé- lagslegra vandamála, til að mynda: einangrunar, leiða, einsemdar, ör- væntingar. Gott borgarskipulag getur hins vegar leyst félagsleg vandamál. Ég held til dæmis að það geti verið skemmtilegt að vera gamall maður eða kona í Bergen. Þar er alvöru miðbær með vel heppnaðri blöndu af gömlum timb- urhúsum og dálítið hrárri nýrri steinsteypu. Það er gaman að rölta þar um göturnar einfaldlega vegna þess að þar er mikið af fólki og göturnar fallegar. Bílaumferð er hvergi bönnuð nema á Torgal- menningen en það fer ekkert milli mála að hér inni í miðri borg á fólk á fæti réttinn. Ef ég væri orð- inn 75 ára og byggi í Bergen væri ég sennilega að skrifa skáldsögu á nýnorsku sem ég lyki aldrei við en hún myndi byggjast að nokkru leyti á „Die Wahlverwandschaften“ eftir Goethe. Um hádegi á föstudegi færi ég að spássera um borgina. Ég myndi kíkja í eina eða tvær forn- bókabúðir og fá mér síðan miðdeg- issnarl og kaldan bjór á Köttbas- aren. Þar myndi ég örugglega hitta einhverja sem ég þekkti. Síð- an myndi ég láta mig reka aðeins um bæinn en sennilega enda á Torgalmenningen þar sem ég myndi stinga mér inn í versl- unarmiðstöð og kaupa mér ljós- lituð jakkaföt og bleika skyrtu, því að það væri að koma sumar. Já, já, ég væri svolítill spjátrungur. Ég myndi spá í skúturnar í höfninni og rölta svo á stóra fiskmarkaðinn á Torget, fá mér hvítvínsglas og kaupa spriklandi hnakkastykki af þorski til helgarinnar. Ég þyrfti ekki á neinum stjórn- málamönnum að halda. Ég væri ekki brýnt úrlausnarefni. Ég vona að fagurfræðin eigi eftir að bjóða fram í Reykjavík. Bréf frá Noregi eftir Hjálmar Sveinsson Fagurfræði eða félagsmál INNRITUN FYRIR HAUSTÖNN Innihaldið skiptir máli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.