Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Viðfangsefni sem eiga að vera góð fyrir heilsuna en eru ekki svo skemmtileg hamla velgengni þinni. Reyndu að koma eins mikilli afþreyingu fyrir á einum degi og þú mögulega getur. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið er dálítið ástfangið í dag, að minnsta kosti frekar hrifið. Það er sama hvert leiðin liggur eftir þetta, einstök manneskja er eins og töframelódía sem aldrei hverfur úr minni. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Himintunglin draga fram aðstæður sem eru eins og einkapartí. Það er auðveld- ara að komast inn og blanda geði ef þú veist að nafnið þitt er á gestalistanum. Hvað verður það? Þú færð boð um að taka til þinna ráða. Ekki gleyma að svara. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það er mikilvægt að vera einstakur, en í dag er eins og sjálfir kækirnir hafi kæki. Það er ekkert gaman að vera handan þess sem fólk á gott með að skilja, til allrar hamingju verður viðleitni þín til þess að skilja einhvern endurgoldin. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Ljónið verður á fullu í allan dag og því ekki úr vegi að byrja daginn á því að gefa sér tíma fyrir smávegis yndisauka heima; góðan morgunverð, langa sturtu, kyrrlátt og íhugult augnablik. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það er augljóst hvað er ekki að virka og í dag er rétti dagurinn til þess að horfast í augu við vandamálið, taka ábyrgð og laga það. Þú átt í sérstöku sambandi við einhvern í fiskamerkinu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Liðið þitt á eftir að standa með þér. Ef þú þarft á meðmælum að halda, vitn- isburði eða traustsyfirlýsingu hefur þú heppnina með þér. Margir eiga eftir að leggja þér lið. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sporðdrekinn er á valdi duttlunganna og á eftir að skipta skapi sjö sinnum. Það er auðveldara ef þú binst ekki fastmælum um neitt. Þér ber að þakka þeim sem eiga það inni og taka sjálfur á móti við- urkenningu. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmaðurinn er algerlega staðráðinn í því að ná settu marki, en veit ekki hvern- ig hann á að fara að því. Ef tilviljana- kenndir fundir og atburðir sem gerast á sama tíma vísa veginn verður þú dálítið hissa. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Himintunglin halda áfram að hressa upp á félagslífið. Góðir mannasiðir eru nauð- synlegir til þess að eiga samskipti við hina ólíku og áhugaverðu persónuleika sem verða á vegi þínum. Þú getur breytt tilfinningalegri upplifun með því hvernig þú talar um hana. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Dagurinn einkennist af deyfð. Him- intunglin hvetja vatnsberann til þess að tjá sig af kostgæfni, ekki oft. Talaðu af varkárni og hugsaðu áður en þú opnar munninn. Þú þarft að finna réttu orðin sem eiga við dýpt aðstæðnanna. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Himintunglin færa fisknum heppni í formi svara, en það er undir honum kom- ið að spyrja réttu spurninganna. Reyndu að spyrja hvernig þú getir gert það sem þú gerir af meiri ástríðu, eða aukið spennu í lífi þínu? Hvernig kemstu á næsta stig? Stjörnuspá Holiday Mathis Góð tenging milli Merkúrs og Neptúnusar hjálpar okkur við að ná sambandi við okkar andlegu hliðar og smjúga inn og út úr sviði ímyndunar, sýnar og drauma. Listir, söngur, bænir og ljóð eru tjáningarmáti sem brúar bilið á milli efn- islegra og loftkenndra heima og fær aukið vægi næstu daga. Reykjavíkurakademían er félag sjálf-stætt starfandi fræðimanna með að-setur í JL-húsinu við Hringbraut.Akademían var stofnuð 1997 en nú hefur verið stofnuð sjálfseignarstofnunin Reykjavíkurakademían sem verður bakhjarl starfseminnar. Formaður stjórnar hinnar nýju stofnunar er Clarence Glad Ph.D. Viðar Hreinsson er framkvæmdastjóri Reykjavíkurakademíunnar: „Þegar starfsemin var sett á laggirnar fluttu 10 manns inn í JL- húsið, og höfðum við áhyggjur af því hvort við gætum nýtt þá tylft skrifstofa sem við fengum til afnota. Síðan þá hefur starfsemin heldur betur aukist og starfa í dag við Reykjavíkurakadem- íuna 80 fræðimenn á 56 skrifstofum,“ segir Við- ar. „Reykjavíkurakademían er í dag lifandi og öfl- ugur vettvangur sjálfstætt starfandi fræði- manna. Eftir mikið starf hefur tekist að koma jafnvægi á reksturinn og þótti tímabært að þróa starfsemina frekar til að nýta sem best þann mannauð sem akademían býr að. Starfsemin hef- ur nú verið færð í form sjálfseignarstofnunar og verða starfandi fjórar rannsóknarstofnanir innan þess ramma. Með þessu móti gefst kostur á að nýta betur þann fjárstuðning sem starfsemin nýtur í dag auk þess að sækja með markvissari og skipulegari hætti fjármögnun í rannsóknar- og þróunarsjóði.“ Miðstöð innflytjendarannsókna má fyrsta nefna af þeim rannsóknarstofnunum sem starfa munu innan Reykjavíkurakademíunnar: „Henni mun ætlað að svara mjög brýnni þörf og efla rannsóknir á þessu sviði sem vonandi nýtast til markvissari stefnumótunar hins opinbera og að komist verði hjá þeim mistökum sem aðrar þjóð- ir hafa gert á þessu sviði,“ segir Viðar. Ísland og ímyndir norðursins er heiti annarar rannsóknarstofnunar: „Öflugur hópur innan aka- demíunnar rannsakar ímyndir og ímyndarfræði og stóð fyrir veglegri alþjóðlegri ráðstefnu um þessi mál í vetur. Hópurinn hefur tekið al- þjóðlega forystu sem þarf að viðhalda, og efla rannsóknarsviðið enn frekar.“ Þá verður sett á laggirnar Stofnun um at- vinnusögu og byggðasögu: „Með því móti verður hægt að efla rannsóknir á fræðasviðinu og beina í markvissari farveg,“ segir Viðar. Loks er stofnunin Nýr vettvangur um íslenska menningarsögu: „Vonir standa til að sú stofnun komi með nýjar áherslur og krafta inn í menn- ingar- og bókmenntasögurannsóknir á Íslandi. Viljum við eiga í auknu samstarfi við fræðasetur og stofnanir víða um land til að rannsaka betur menningararf landsins.“ Reykjavíkurakademían hefur sett sterkan svip á íslenskt fræðasamfélag frá upphafi: „Við viljum taka virkan þátt í mótun þekkingarsamfélagsins og auka hlut félags- og hugvísinda í samfélags- umræðu og -mótun. Við Reykjavíkurakademíuna starfar kraftmikill hópur sem hreinlega brennur í skinninu að miðla sinni þekkingu.“ Vísindi | Reykjavíkurakademían sjálfseignarstofnun með sjálfstæðar rannsóknarstofnanir  Viðar Hreinsson fæddist 1956 og ólst upp á Hríshóli í Saur- bæjarhreppi. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1975, BA í íslensku og bókmenntafræði frá HÍ 1980 og Mag. art. í bók- menntafræði frá Kaup- mannahafnarháskóla 1989. Viðar kenndi við Manitobaháskóla 1992— 94. Hann hefur fengist við ýmis fræðistörf og skrif og verið framkvæmdastjóri Reykjavíkur- akademíunnar frá september 2005. Viðar er kvæntur Önnu Guðrúnu Júlíusdóttur deildar- stjóra og eiga þau fjögur börn. Kraftmikið samfélag fræðimanna Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 klaufaskapur, 8 æpi, 9 æviskeiðið, 10 meis, 11 óheflaðan mann, 13 áma, 15 stafli, 18 storkar, 21 lúsaregg, 22 undirnar, 23 mergð, 24 glamraði. Lóðrétt | 2 hlutdeild, 3 þræta, 4 bjart, 5 kraft- urinn, 6 digur, 7 venda, 12 afreksverk, 14 ótta, 15 fíkniefni, 16 peningar, 17 út, 18 duglegur, 19 lofað, 20 væskill. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fjöld, 4 gepil, 7 úldin, 8 felur, 9 dún, 11 auðn, 13 hrái, 14 ýlfur, 15 barr, 17 æfir, 20 þrá, 22 lokka, 23 bifar, 24 rimma, 25 tuska. Lóðrétt: 1 fjúka, 2 önduð, 3 dund, 4 Gefn, 5 pólar, 6 lerki, 10 úlfur, 12 nýr, 13 hræ, 15 bolur, 16 rekum, 18 fífls, 19 rorra, 20 þaka, 21 ábót.  1. e4 c5 2. f4 g6 3. Rf3 Bg7 4. d3 Rc6 5. c3 d6 6. g3 Rf6 7. Dc2 Bg4 8. Bg2 Rd7 9. 0-0 Bxf3 10. Bxf3 0-0 11. Bg2 Hb8 12. Be3 Dc7 13. a4 a6 14. Rd2 b5 15. axb5 axb5 16. h3 Rb6 17. Kh2 Hfc8 18. Hfc1 Dd7 19. Hf1 b4 20. Bg1 Hc7 21. Hfe1 Dc8 22. Bf2 Dd7 23. Bg1 e6 24. Hf1 De7 25. Hfe1 Df6 26. e5 dxe5 27. Re4 Dd8 28. fxe5 bxc3 29. bxc3 Rxe5 30. Rxc5 Rbd7 31. Ra4 Dg5 32. Be3 Dh5 33. Bf4 Rg4+ 34. Kh1 e5 35. Be3 Rxe3 36. Hxe3 Dg5 37. Df2 f5 38. Hee1 Kh8 39. Heb1 Hf8 40. Hb5 f4 41. g4 f3 42. Bxf3 Df4 43. Kg2 Staðan kom upp á sterku alþjóðlegu unglingamóti sem lauk fyrir skömmu í Kirishi í Rússlandi. Sanan Sjugirov (2.412) frá Rússlandi hafði svart gegn landa sínum Alexander Kulikov (2.038). 43. … e4! 44. dxe4 Re5 45. Hf1 Hcf7 46. Hxe5 Bxe5 47. Hh1 Dxf3+ og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.