Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 59
MENNING
ÞESSI mynd mexíkanska myndlist-
armannsins Fridu Kahlo er máluð
með olíu á stál árið 1943 og ber
heitið Rætur.
Í síðustu viku seldist myndin hjá
Sotheby’s-uppboðshúsinu í New
York fyrir 5,6 milljónir dollara, eða
rúmar 400 milljónir króna. Mun
þetta vera hæsta verð sem fengist
hefur fyrir myndlistarverk mex-
íkansks listamanns, og raunar róm-
ansk-amerísks listamanns yfirleitt.
Metverð fyrir
mexíkanskt verk
AP
11.00 Sunnudagsmorgnar með
Schumann, píanótónleikar í Ými.
Flytjandi: Kristín Jónína Taylor.
Þriðji hluti.
17.00 I Fagiolini – Monteverdi:
Brennandi hjarta. Tónleikar í Ís-
lensku óperunni
20.00 Danshátíð á Listahátíð –
Trans Danse Europe.
Magnolia frá Dada von Bzdülöw-
leikhúsinu í Póllandi í Borgarleik-
húsinu
21.00 Mugison og hljómsveit með
tónleika í Austurbæ.
Allar nánari upplýsingar um við-
burði Listahátíðar má finna á
www.listahatid.is.
Sunnudagur
28. maí
BIRGIR Andrésson myndlistar-
maður fjallar um verk sín á sýningu
sem nú stendur yfir á verkum hans í
Listasafni Íslands í safninu í dag kl.
14. Gunnar J. Árnason listheimspek-
ingur leiðir samtalið.
Hinn þjóðlegi menningararfur er
uppspretta margra verkanna á sýn-
ingunni. Birgir veltir upp marg-
víslegum spurningum sem varða
sjálfsmynd þjóðar. Mörg verkanna
endurspegla jafnframt áhuga lista-
mannsins á sambandi orða og skynj-
unar eða talmáls og myndmáls.
Verkin á sýningunni spanna allan
feril Birgis en á sýningunni eru um
50 verk.
Almenn leiðsögn er jafnframt um
sýningar safnsins í hádeginu á
þriðjudögum og föstudögum kl.
12.10–12.40.
Morgunblaðið/Jim Smart
Birgir Andrésson
Birgir
fjallar um
verk sín
www.listasafn.is
ÚT ER komin ein fyrsta rannsókn um
málefni Afríku sem gerð hefur verið af
Íslendingi. Bókin heitir Poverty Allevia-
tion Policy in Uganda since 1986.
States, Donors and NGO’s og er eftir
Alan Sturlu Sverrisson. Rannsóknin
er doktorsritgerð höfundarins í stjórn-
málafræðum frá Caledonian háskóla í
Glasgow. Hún fjallar um veigamikla
þætti í þróunarhjálp vestrænna ríkja
við Úganda, hvað hefur tekist vel við
íhlutun auðugra þjóða í innanríkismál
þar og hvaða hindranir hafa mætt
þeim sem hafa viljað draga úr fátækt
og stuðla að velferð og jöfnuði.
Bókin er gefin út af Stormi, útgáfu-
stofu, í minningu höfundarins Alans
Sturlu Sverrissonar sem lést í um-
ferðarslysi í Glasgow 3. ágúst árið
2000. Ritstjórn önnuðust Sverrir Tóm-
asson og Susan Bury. Prentþjónusta
var í höndum Háskólaútgáfunnar sem
jafnframt sér um dreifingu hennar.
Bókina hannaði Helga Gerður Magn-
úsdóttir.
Nýjar bækur
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Gottnám
Farsæl leið
til þróunar í starfi
ogmeiri lífsgæða.
Félagsvísindadeild Háskóla Íslands
býður spennandi námskost:
15eininga diplómanám
ámeistarastigi
NÁMSGREINAR:
Félagsvísindadeild
Háskóla Íslands
Inngönguskilyrði er BA- próf eða sambærilegt próf.
Diplómanám er metið inn í viðkomandi meistaranám fái nemendur
inngöngu í það.
Umsóknum skal skilað til Kolbrúnar Eggertsdóttur, deildarstjóra
framhaldsnáms, skrifstofu félagsvísindadeildar, Odda við Sturlugötu,
sími 525-4263, tölvupóstfang kolbegg@hi.is.
Umsóknareyðublöð og allar upplýsingar eru á heimasíðu
deildar: www. felags.hi.is
iTilvalið
nám
með sta
rf
Umsóknarfrestur
er til 6. júní
Fötlunarfræði
Opinber stjórnsýsla
Kynjafræði
Rannsóknaraðferðir
félagsvísinda
Þróunarfræði
Afbrotafræði
Alþjóðasamskipti
Atvinnulífsfræði
Áhættuhegðun
og forvarnir
Fræðslustarf og stjórnun
Fjölmiðlafræði
H
O
R
N
/
H
a
u
k
u
r
/
2
3
8
3
a
Lloret de Mar
í júní
frá kr. 39.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Heimsferðir bjóða
einstakt tilboð á einn
vinsælasta áfangastað
Costa Brava strandar-
innar við Barcelona,
Lloret de Mar.
Gott hótel með góðri
aðstöðu, fallegum
garði, sundlaug og
veitingastöðum.
Örstutt í golf og á
ströndina. Öll herbergi
með baði, sjónvarpi
og síma.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
5 nætur - allt innifalið
Verð kr. 39.990
allt innifalið
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting
í tvíbýli með allt innifalið á Hotel Sunrise
í 5 nætur. 8. júní og 15. júní.