Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Á sunnudags-kvöld varð ljóst
að í-búar Svartfjalla-lands
hefðu sam-þykkt til-lögu um
sjálf-stæði.
„Þetta er mikil-vægasti
dagurinn í sögu
Svartfjalla-lands,“ sagði Milo
Djukanovic forsætis-ráðherra
þegar hann kynnti
bráða-birgða-úrslitin.
Stuðningur við sjálf-stæðið
er mis-jafn eftir
lands-hlutum, víða í
fjalla-héruðum við
landa-mærin að Serbíu voru
menn and-vígir til-lögunni.
Einnig voru leið-togar
rétttrúnaðar-kirkjunnar
al-mennt á móti sjálf-stæði.
Svartfjalla-land er eitt af
fá-tækustu löndum í Evrópu
en margir vona að inn-ganga
í Evrópu-sambandið geti
breytt því.
Þau rök Djukanovic að
meiri líkur væru á að
Svartfellingar fengju að-ild að
ESB væru þeir ekki hluti af
Serbíu virkuðu.
ESB hafði bein af-skipti af
atkvæða-greiðslunni með því
að setja á-kveðin skil-yrði.
Minnst 55% kjós-enda yrðu
að kjósa sjálf-stæði og
kjör-sókn yrði að vera yfir
50%.
Kjör-sóknin var um 86% og
55,4% studdu sjálf-stæðið.
Sam-tök and-stæðinga
sjálf-stæðis kröfðust
endur-talningar, en
kosn-ingarnar þóttu fara vel
fram.
Svartfjalla-land fær sjálf-stæði
ReutersSjálfstæðis-sinnar fagna úr-slitunum.
Netfang: auefni@mbl.is
Á fimmtu-daginn fann
kvið-dómur í Texas Kenneth
Lay og Jeffrey Skilling,
fyrr-verandi yfir-menn
stór-fyrir-tækisins Enron,
seka um margvís-leg svik og
um að bera megin-ábyrgð á
gjald-þroti fyrir-tækisins árið
2001.
Skilling, sem var
framkvæmda-stjóri
fyrir-tækisins gæti
hugsan-lega hlotið 185 ára
dóm. Lay, stofn-andi Enron
og for-stjóri, gætri hlotið
165 ár. Dómar yfir þeim
báðum verða kveðnir upp
11. september
næst-komandi.
Enron-málið er eitt mesta
hneyksli í banda-rískri
fjármála-sögu. Þar
sam-einuðust allir
stjórn-endur fyrir-tækisins,
endur-skoðendur þess og
lög-menn um að fela fyrir
fjár-festum og
fjármála-eftirlitinu að
fyrir-tækið skuldaði 2.900
milljarða íslenskra króna.
Yfir-menn
Enron
sak-
felldir
Guðni Th. Jóhannesson
sagn-fræðingur hefur fundið
skrif-legar heimildir sem sýna
að símar voru hleraðir á
vegum stjórn-valda í 6
til-vikum í kalda stríðinu. Á
árunum 1949-1968 var
síminn hleraður hjá 4
alþingis-mönnum, þar á
meðal þegar verið var að
fjalla um samkomu-lag við
Breta í þorska-stríðinu á
Alþingi árið 1968. Þetta
nálgast það að geta kallast
pólitískar njósnir. Öllum
gögnum sem fengust úr
þessum lögreglu-aðgerðum
var eytt í síðasta lagi árið
1977.
Niður-stöður Guðna voru
ræddar á ríkisstjórnar-fundi í
vikunni. Halldór Ásgrímsson
forsætis-ráðherra ætlar að
leggja fram til-lögu á næsta
ríkisstjórnar-fundi um að
málið verði upp-lýst einsog
hægt er. Hann sagði að
niðurstöður Guðna kæmu
sér, eins og mörgum öðrum,
á óvart.
Síma-
hleranir
stjórn-
valda
Eiður Smári Guðjohnsen,
landsliðs-fyrirliði íslenska
knattspyrnu-liðsins hefur
verið metinn á 1.100 milljónir
króna í enskum fjöl-miðlum.
Sagt er að Eiður Smári sé
efstur á óska-lista
Evrópu-meistara Barcelona
þar sem Thierry Henry verði
áfram í Arsenal og Diego
Forlan hjá Villareal. Blaðið
segir að auk Barcelona séu
Real Madrid, Atletico Madrid,
Tottenham, Arsenal,
Newcastle og Blackburn öll
mjög áhuga-söm um að fá Eið
Smára til liðs við sig, en hann
hefur einnig verið orðaður við
Manchester United.
Arnór Guðjohnsen, faðir
Eiðs Smára og
umboðs-maður segist bara
geta sagt að Eiður Smári vilji
yfir-gefa Chelsea. „Hann vill
fara til félags sem hann getur
unnið marga titla með og
Barcelona gæti orðið það
félag.“
Eiður Smári 1.100
milljóna króna virði
AP
Eiður Smári með Chelsea.
Mikið snjóaði norðan-lands í
vikunni og var víða 25-30
senti-metra jafn-fallinn snjó.
Fara þarf til ársins 1979 til
þess að finna dæmi um jafn
lang-varandi kulda-kast og nú
í maí-mánuði.
Sam-kvæmt skrám um
veður-mælingar undan-farin
60 ár, hafa bæði verið slegin
hita- og kulda-met í
mánuðinum. Meðal-hiti það
sem af er maí-mánuði er 6,4
gráður og er það 0,7 gráðum
yfir meðal-lagi, þrátt fyrir
kulda-kastið sem fór yfir
landið. Ekki hefur verið
kaldara miðað við árs-tíma í
100 ár.
Æðar-varp á Norður-landi
er í miklu upp-námi vegna
kulda-kastsins og er hætt við
að æðar-kollur á eggjum
annað-hvort drepist á meðan
þær liggja á eggjunum, eða
yfir-gefi hreiðrið til að bjarga
sjálfum sér úr vos-búðinni.
Ár hvert eru
útflutnings-tekjur vegna
æðar-dúns um 225 milljónir
króna. Kulda-kastið setur því
stórt strik í reikninginn.
Kuldakast á landinu
Ljósmynd/Sveinn Þorsteinsson
Kollan situr sem fastast á
hreiðrinu.
Fullt hús var á
tón-leikum Ians
Andersons, for-sprakka
hljóm-sveitarinnar
Jethro Tull, í
Laugardals-höll á
þriðju-daginn.
Anderson spilaði
ásamt
sinfóníu-hljómsveit og
Reykjavík Session Chamber
Orchestra. Anderson lék m.a.
þekktustu Jethro Tull-lögin og
fór með gaman-mál á milli
laga við góðar undir-tektir.
Þetta er í annað sinn sem
Anderson heldur tón-leika hér
á landi en Jethro Tull spilaði
fyrir fullu húsi á Akranesi árið
1992.
Ragnheiður Eiríksdóttir
tónlistar-gagnrýnandi á
Morgun-blaðinu segir
Anderson „búa til eitt-hvað
ótrú-lega fallegt sem flokkast
lík-lega bara undir hina
full-komnu ævintýra-tónlist.“
Anderson hefur lengi verið
mikill áhuga-maður um
skóg-rækt og plantaði hann
trjám í Vina-skógi á
Þing-völlum á mánu-dag.
Fullt á Anderson
Morgunblaðið/Kristinn
Anderson í Laugardals-höll.