Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 28.05.2006, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Alda Steina And-ersen (Tómas- dóttir) fæddist í Reykjavík 16. október 1940. Hún lést á heim- ili sínu Østerskov 16, Horslund á Lálandi í Danmörku 28. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Jak- obína Þórðardóttir, f. á Tjörnesi 4. maí 1907, d. 16. júlí 1986, og Tómas Sigurður Gíslason vélstjóri, f. á Sandnesi á Snæfjallaströnd 18. nóvember 1900, d. í Reykjavík 12. ágúst 1954. Fósturmóðir Öldu var Petrína Sigríður Magnúsdóttir, f. á Hvítanesi við Ísafjarðardjúp 5. manni sínum, Kurt Andersen renni- og járnsmið, f. í Danmörku 9. apríl 1941. Dóttir þeirra er Belinda Kar- ítas, f. í Reykjavík 26. júlí 1966. Starfar hjá lyfjaverslun í Ferring. Maður hennar er Per Jensen, f. 21. júní 1960, starfar hjá Kodak. Börn þeirra eru Patrick, f. 23. mars 1987, og Bianca Karitas, f. 20. júní 1991. Sonur Öldu fyrir hjónaband er Tóm- as Kristinn Shealy bifvélavirki, f. í Reykjavík 2. maí 1961. Hann ólst upp hjá þeim Kurt. Fyrri kona Tóm- asar er Marinne Sanne, f. 19. októ- ber 1962. Börn þeirra: Jane, f. 30. maí 1983, Crestina, f. 14. nóvember 1986, og Malene, f. 22. september 1988. Seinni kona Tómasar er Anne Mette Schönfeldt, f. 29. maí 1963. Börn þeirra eru Tómas, Sara og Tea. Útför Öldu var gerð frá Nøbbet- kirkju á Lálandi 6. maí, en ekki 6. apríl eins og misritaðist í tilkynn- ingu í Morgunblaðinu 25. maí. október 1910, d. á Víf- ilsstöðum 14. október 1943. Foreldrar hennar voru Magnús Guð- mundsson, f. á Kaldbak í Kaldrananeshreppi á Ströndum 16. septem- ber 1869, og Karítas Skarphéðinsdóttir, f. í Æðey í Ísafjarðardjúpi 20. janúar 1890, d. 29. desember 1972. Hálfsystkini Öldu, sammæðra, eru Þórður Guðbjörn Georgsson, f. 8. ágúst 1938, d. 3. nóvember 1995, og Guðbjörg Benjamínsdóttir hús- freyja í Keflavík, f. 22. apríl 1948. Alda giftist í Kaupmannahöfn 1. desember 1967 eftirlifandi eigin- Hún kom inn á heimili móður minnar 1940, nokkurra daga gömul. Systir mín Petrína tók hana í fóstur en móðir mín og Petrína ásamt Tóm- asi eiginmanni hennar leigðu saman íbúð í Skerjafirði. Í apríl um vorið fór Peta (eins og hún var alltaf kölluð) í röntgenskoðun í Líkn. Peta var út- skrifuð frá Kristneshæli í tæplega eitt ár en átti nú eftir þessa skoðun að innskrifast á Vífilsstaði. Það var mikil sorg fyrir fjölskylduna. Um sama leyti kom frétt í útvarpinu um að skip bróður okkar hefði verið skotið niður af Þjóðverjum. Hann var skipstjóri á Péturseynni en syst- ursonur mömmu var stýrimaður. Á þessum tímapunkti er ég að koma fyrstu sporin fram úr rúminu eftir sex mánaða legu í næsta herbergi við litlu Öldu. Þetta var mikil sorg fyrir Karítas móður okkar. Móðir mín sinnti barninu með ástúð og um- hyggju. Um haustið, þá eins árs gamalt, var barnið skírt. Biskup Ís- lands, herra Sigurgeir Sigurðsson, kom heim á Stað í Skerjafirði og skírði telpuna en hún heitir Alda, eft- ir sjónum, og Steina eftir bróður mínum sem fórst en hann hét Þor- steinn. Hr. Sigurgeir þekkti fjöl- skylduna síðan á Ísafirði, þá prestur og kennari minn og vinur. Peta systir komst aldrei út af Víf- ilsstöðum. Hún lést þar 1943 en þá var ég komin þangað sem sjúklingur og gat setið hjá henni til loka hennar lífs. Alda ólst upp hjá móður minni Karítas. Hún fermdist í Þjóðkirkju Hafnarfjarðar. Í Hafnarfirði eignað- ist Alda góðar vinkonur, þ.á m. Hansínu Óskarsdóttur, sem andaðist ung að aldri, og Kristínu Hansen. Hún minntist oft á þær með kærleik. Alda fór ekki í framhaldsskóla en fór snemma að vinna í frystihúsi eins og mamma. Alda var glaðleg stúlka og skapgóð en auðsærð ef á hana var hallað. Hún var listræn og hefði það verið létt að læra ef aðstæður hefðu verið aðrar. Veikinda minna vegna gat ég ekki fylgst með henni á ung- lingsárunum og langt á milli en eng- inn sími. Seinna eða 1961 bjuggum við saman með móður minni og börn- unum okkar, Tomma og Katý, og það var yndislegur tími þótt þrengsli væru mikil. Ástríki mömmu og um- hyggja fyrir okkur öllum var að sjálf- sögðu í fyrirrúmi. Því miður varði þetta aðeins eitt ár. Stuttu eftir þetta þurfti mamma að fá umönnun og fór á Hrafnistu og við fórum hvor í sína áttina. Eftir að Alda flutti til Kaup- mannahafnar höfðum við mikið og gott samband og skiptumst á heim- sóknum. Heimili hennar var mér alltaf opið. Fyrstu árin voru bréfa- skriftir miklar en síminn var betri fyrir hana því systir mín var frekar löt að skrifa í seinni tíð. Hún var ánægð í sveitinni á Lá- landi. Þar höfðu þau hjón hund, ketti og pútur og nytjagarða. Algjör para- dís fannst mér. Alltaf var gagnkvæm væntumþykja hjá okkur Öldu Steinu. Þegar Belinda fæddist bjuggu þau hjá mér á Reynimel og Kurt vann í Héðni sem rennismiður og þeim líkaði mjög vel við hann. Ég sem ætlaði að eyða með þeim tíma í júnímánuði þegar ég yrði áttræð en nú verð ég að skipuleggja mitt sum- arfrí að nýju. Mér líður ekki vel með það en tek öllu sem sjálfsögðum hlut úr þessu. Hún fór snögglega og ég vona að það verði eins með mig. Nú kveð ég Öldu Steinu með Guðsblessun. Kurt, Tómasi, Belindu, Guðbjörgu og fjölskyldum þeirra sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Pálína Magnúsdóttir (Palla). ALDA STEINA ANDERSENElskuleg dóttir mín, BERTA BJÖRG FRIÐFINNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. maí kl. 15:00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurlaug Albertsdóttir. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, SKÚLA GÍSLASONAR, Frostafold 119, Reykjavík. Kristín Ólafsdóttir, Garðar Skúlason, Guðrún Kristinsdóttir, Gísli Skúlason, Áslaug Baldursdóttir, Lárus Óskarsson, Guðlaug Helgadóttir, Ásthildur Óskarsdóttir, Eiríkur Ingvarsson, Anna María Óskarsdóttir, Halldór Brynjarsson, Andri Þór Óskarsson, Una Ósk Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður, SIGURÐAR G.H. INGASONAR fv. póstrekstrarstjóra, Hvassaleiti 58. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilsstaða. Erna Jónsdóttir, Skúli Már Sigurðsson, Sigrún Einarsdóttir, Gísli Jón Sigurðsson, Þorbjörg Jónsdóttir, Örn Sigurðsson, Una Guðlaug Haraldsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför föður míns, GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR prentara, Tjarnarbóli 14, Seltjarnarnesi. Gústaf Guðmundsson og aðrir aðstandendur. Þökkum vinum, ættingjum og samferðafólki sem sýndu okkur vináttu og samhug vegna fráfalls og útfarar HAUKS EGGERTSSONAR, Barmahlíð 54, Reykjavík. Lára Böðvarsdóttir, Eggert Hauksson, Sigríður Teitsdóttir, Ágústa Hauksdóttir, Jónas Ingimundarson, Ása Guðmundsdóttir og fjölskyldur. Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGIBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Reykja- vík, deildar A3. Rannveig Bjarnadóttir, Óskar B. Benediktsson, Sigríður Kolbrún Bjarnadóttir, Guðmundur Aronsson, Kolbeinn Bjarnason, Bjarni Kolbeinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ GuðmundurTorfason fæddist á Kóngsbakka í Helga- fellssveit á Snæfells- nesi 25. júní 1923. Hann lést 16. apríl síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Torfi Jörgen Hjaltalín Ill- ugason, bóndi og sjó- maður á Garðsenda í Eyrarsveit, d. 1953, og Ingibjörg Kristín Finnsdóttir, d. 1974. Guðmundur var 6. í röð 12 systkina, en af þeim eru nú fjögur eftirlifandi. Guðmundur var tekinn í fóstur af hjónunum Þorsteini Brynjólfs- syni, d. 1961, og Júlíönu Jóhönnu Sturlaugsdóttur, d. 1979. Hann ólst upp á Reykhólum í Reykhólasókn í Austur-Barðastrandarsýslu og fermdist þar. Fjölskyldan flutti að Hreiðurborg í Sand- víkurhreppi í Árnes- sýslu 1944. Uppeldis- systkini Guðmundar eru Brynjólfur Þor- steinsson, d. 2001, og Karólína Þorsteins- dóttir. Guðmundur kvænt- ist 1953 Sigríði Krist- jánsdóttur frá Miðengi í Garðahreppi og eign- uðust þau eina dóttur, Júlíönu. Þau slitu sam- vistum. Júlíana er gift Ellerti Eggertssyni, tæknistjóra hjá Air Atlanta Icelandic. Börn Júlíönu eru 1) Kristján, f. 1969, kvæntur Berglindi Hrafnkelsdótt- ur og eiga þau eina dóttur, Krist- jönu Sigríði, 2) Erna, f. 1979, í sam- búð með Birni Brynjari Jónssyni. Guðmundur var jarðsunginn 27. apríl, í kyrrþey að eigin ósk. Kveðja frá Hreiðurborgarsystkinum Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guðmundur Torfason er látinn á áttugasta og þriðja aldursári. Hann vildi láta jarða sig í kyrrþey og segja má að það lýsi honum fullkomlega. Hann vildi aldrei neitt vesen og enga fyrirhöfn. Miklu fremur halda sig til hlés og láta lítið á sér bera. Fyrir hönd okkar systkinanna frá Hreiðurborg langar mig að minnast hans í fáeinum orðum, þó svo að hann hefði ef til vill verið á móti því sjálfur. Guðmundur var uppeldisbróðir föður okkar. Hann kom oft í Hreið- urborg að heimsækja okkur og finna lyktina af sveitinni. Þá gekk hann um hlöðin, skoðaði það sem hafði verið gert, tók þátt í heyskapnum ef þann- ig stóð á eða kíkti í fjósið ef það voru mjaltir. Hann heilsaði hundunum jafnt og heimilisfólkinu og vildi enga fyrirhöfn og alls ekki að fólk hætti í verkum þó að hann kæmi. Það var frekar óvenjulegt að gest- ir færu í útihúsin og því þótti okkur alltaf gaman þegar Gvendur Torfa, eins og pabbi kallaði hann, kom til okkar, því hann var í heimsókn af lífi og sál og sýndi sveitinni svo mikinn áhuga. Kannski líka von, því þarna hafði hann alist upp að nokkru leyti og þarna kvöddu fósturforeldrar hans þetta jarðlíf, en þeir voru hon- um mjög kærir. Við vorum frekar feimin þegar gestir komu og það þótti honum svo- lítið skemmtilegt. „Ertu hrædd við kallinn?“ sagði hann þá og brosti og vildum við þá ekki viðurkenna það og heilsuðum honum með handabandi. Hann stríddi okkur pínulítið en það var alltaf mjög góðlátlegt og svo skríkti hann ofan í bringuna á sinn sérstaka og skemmtilega hátt og þar með var það allt fyrirgefið. Hann hafði gaman af hestum. Meira gaman en pabbi okkar og sennilega meira vit á þeim líka, enda vildi pabbi nú helst nota þá til átu. Báðir ólust upp við að vinna með hestum, en viðhorf þeirra til hest- anna gjörólíkt. Guðmundur átti hesta á yngri árum og fór gjarnan á bak og hafði gaman af. Kom hann ríðandi á hestum sínum úr Reykjavík á vorin til að hafa þá í hagabeit yfir sumarið. Hann talaði oft um Háfeta sem pabbi átti og greinilegt var að hann bar virðingu fyrir þeim hesti og viðurkenndi kosti hans. „Hann er með mannsvit!“ sagði hann stundum og blikið í augum hans staðfesti að hann meinti það og trúði því stað- fastlega. Guðmundur Torfason var góður maður og við þökkum honum þær samvistir sem við höfðum við hann á meðan hann lifði og sendum dóttur hans og fjölskyldu hennar samúðar- kveðjur okkar. Hvíl í friði. Með kveðju frá systkinunum frá Hreiðurborg. Hulda Brynjólfsdóttir. GUÐMUNDUR TORFASON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.