Morgunblaðið - 28.05.2006, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 23
Einu sinni var heima hjá mér lítilstúlka, svona fimm ára gömul,
sem tók heimilisköttinn í fangið. Sá
köttur er þannig gerður að hann vill
ekki láta halda á sér, bara klappa
sér. Hann braust því um og vildi
komast úr fangi stúlkunnar.
„Leyfðu honum
nú að fara,“ sagði
frændi stelpunnar.
„Nei, hann getur
sko gleymt því,“
svaraði stúlkan
fastmælt – og kött-
urinn mátti dúsa í
fangi hennar þó
nokkra stund eftir
þetta og væsti raunar ekki um hann.
Heima hjá mér eru nú oft að stað-
aldri nokkrir litlir krakkar, í þeim
hópi eru ein stúlka nær þriggja ára
og fjórir drengir frá tveggja til sjö
ára.
Það hefur vakið athygli mína hve
áberandi munur er á hegðun stúlk-
unnar og drengjanna gagnvart
heimiliskettinum. Í fyrsta lagi sýnir
stelpan kettinum miklu meiri áhuga
en strákarnir og líka miklu meiri
stjórnsemi.
Strákarnir klappa kettinum og
skoða atferli hans áhugasamir, eink-
um ef hann fer upp í tré í garðinum
og ef hann sýnir veiðitilburði. Litla
stúlkan hefur hins vegar meiri áhuga
á kettinum þegar hann liggur og sef-
ur eða hefur það notalegt. Þá kemur
hún og klappar honum ástúðlega,
breiðir yfir hann og situr svo lang-
tímum saman hjá honum og virðir
hann fyrir sér – mjög blíðlega og tal-
ar til hans hlýjum orðum. Ef kött-
urinn vill hins vegar fara út um
kattalúguna sína þá er henni að
mæta. Hún skammar hann höstug-
lega og harðbannar honum oft á tíð-
um að fara út, skellir aftur millihurð-
inni svo kötturinn kemst ekki út,
síðan átelur hún hann fyrir framferði
sitt og segir honum hátt og skýrt að
hann fái ekki að fara út og lætur á
sér skilja að það muni hafa háskaleg-
ar afleiðingar fyrir hann ef hann
óhlýðnist banninu.
Kettinum er því miður fyrirmunað
að skilja hvers vegna sú litla lætur
svona, mjálmar bara og ber sig aum-
lega, enda í miklum vanda staddur,
veit að ef hann gerir stykki sín inni
þá muni það kosta hann „mannorð-
ið“.
Ef kötturinn á eitthvað bágt er
líka munur á afstöðu drengjanna og
stúlkunnar til hans. Drengirnir
hvetja hann áfram en stúlkan sýnir
honum mikla meðaumkvun en vill þó
helst taka hann upp til að hugga
hann – sem auðvitað hugnast honum
ekki, því hann vill ekki láta halda á
sér.
Þetta hefur orðið mér umhugsun-
arefni. Skyldi koma svona fljótt í ljós
hinn mikli munur sem er á konum og
körlum í samskiptum þeirra?
Karl getur gengið að því nokkuð
vísu að ef kona sem hann er í sam-
bandi við lætur sig litlu skipta hvert
hann fer, hvernig hann er til fara og
sinnir ekki um að tína af jakkanum
hans hár eða kusk, þá er eitthvað
meira en lítið bogið við afstöðu henn-
ar. Ef kona hins vegar verður vitni
að því að karl hennar lætur sig litlu
skipta þótt aðrir ráðist á hana þann-
ig að hún sé í einhvers konar hættu
stödd – þá er eins gott fyrir hana að
finna sér nýjan mann.
Ég velti sem sagt fyrir mér út frá
atferli litlu krakkanna gagnvart
kettinum hvort stjórnsemi sem kon-
ur sýna gjarnan gagnvart sínu heim-
ilisfólki sé þeim í blóð borin en ekki
lært atferli – og háttsemi karla gagn-
vart árásum sé til komin á sama hátt.
Kannski er þetta margrannsakað
efni á annan hátt og væri þá fróðlegt
að heyra um það, en ekki hef ég enn
heyrt getið um svona kattarannsókn
og veit heldur ekki hvort hún er á
nokkurn hátt marktæk, líklega
þyrfti hún að vera stærri, kettirnir
fleiri og fleiri stelpur og strákar – en
áhugavert umhugsunarefni eigi að
síður.
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Er stjórnsemi konum í blóð borin?
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
Hann getur sko gleymt því!
www.verk.hi.is
MEISTARADAGUR
VERKFRÆÐIDEILD
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Fimmtudaginn 1. júní, kl. 13:00-18:30
VRII, Hjarðarhaga 2-6
VERKFRÆÐINNAR
Verkfræðistofnun Háskóla Íslands
vettvangur rannsókna í verkfræði við HÍ
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
19
7
8
17:00-17:15 Gunnar Guðni Tómasson, 20 ára byggingarverkfræðingur
17:15-17:30 Erla Sigríður Gestsdóttir, 10 ára vélaverkfræðingur
17:30-18:30 Léttar veitingar og spjall
Ávörp afmælisárganga
stofa V - 158
15:00-16:00 (V–158)
Iðnaðarverkfræði
Katrín Auðunardóttir
Úrbótaverkefni við framleiðslu
silíkonhulsa hjá Össuri hf
Margrét María Leifsdóttir
Staðarvalslíkan fyrir Slökkvilið
höðuðborgarsvæðisins
Runólfur V. Guðmundsson
Bestun afurðaverðmæta
í sjávarútvegi
16:00-16:45 (V-156)
Greining, hönnun og
bestun
Jóhannes Loftsson
Þreytuáraun á stálbrýr
á Íslandi
Stefán Þór Þórsson
Bestun á tímabilum
stórskoðana hjá FL Group
14:00-15:00 (V-155)
Kynning á doktors-
verkefnum
Mathieu Fauvel
Fusion of SVM
Classifiers
Elena Losievskaja
Greedy algorithms
for hypergraphs
Hlynur Stefánsson
Framleiðsluskipulagning
í lyfjaframleiðslu.
Samstarf Imperial College og HÍ
15:00-16:00 (V-155)
Kynning á doktorsverkefnum
Rúnar Unnþórsson
Ástandsgreining á koltrefja-
hlutum með hljóðþrýstimælingum
Steinn Guðmundsson
Greining á Alzheimers-
sjúkdómnum með heilaritum
Benedikt Helgason
Einstaklingsbundin líkön af
beinum - Greining með
einingaaðferðinni
Málstofur
Meistaravarnir
Iðnaðarverkfræði
(V–158)
14:00- Agnar Möller
14:45 Hermilíkan af
lífeyrissjóðum
15:00- Málstofa:
15:45 Iðnaðarverkfræði
16:00- Sigrún Lilja
16:45 Sigmarsdóttir
Bestun verkröðunar
í lyfjaframleiðslu
Lífverkfræði
(V–157)
J. Lilja Pálsdóttir
Hönnun og prófun
aðferðar til vöktunar
raförvunarmeðferðar
aftaugaðra vöðva
Sveinn R. Jóelsson
Myndvinnsla á
augnbotnamyndum
Fjóla Jóhannesdóttir
Áhrif raförvunar á
beinþéttni í
mænusköðuðum
einstaklingum
Greining og
líkangerð
(V–156)
Eggert Þröstur
Þórarinsson
Greining á
rafsegulflæði í
gervihné
Sævar Helgi Lárusson
Greining á samverkan
ökutækja í alvarlegum
árekstrum á Íslandi
Málstofa:
Greining, hönnun
og bestun
Leit, mynd- og
nytsemisgreining
(V–258)
Sigurbjörg Gróa
Vilbergsdóttir
Greining nytsemis-
vandamála: Notkun
forritara á niðurstöðum
notendaprófana
Hörður Jóhannsson
Sjálfvirk leit
neðansjávar
Hafrún Hauksdóttir
Óháðir þættir í
myndvinnslu
fjarkönnunarmynda
Streymis-, steypu- og
byggingarannsóknir
(V–261)
Margrét Aðalsteinsdóttir
Virkni hljóðdeyfigólfa.
Samanburður mældra og
reiknaðra gilda
Einar Sigursteinn Bergþórsson
Flæðisgerðir og þrýstifall í
tveggja fasa flæði í söfn-
unaræðum jarðorkuvera
Björn Hjartarsson
Rheometer-4SCC,
ferðaseigjumælir fyrir
sjálfútleggjandi
steinsteypu
Tími
13:00-13:10 Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
13:10-13:25 Andrés Þórarinsson, 30 ára rafmagnsverkfræðingur
13:25-13:40 Guðni B. Guðnason, 20 ára tölvunarfræðingur
Setning og ávörp
stofa V - 158
Dagskrá
FRÉTTIR
AUGLÝST hefur verið eftir starfs-
fólki til að taka þátt í þróun há-
gæsluþjónustu á Barnaspítala
Hringsins. Þjálfun fyrir starfið mun
hefjast sem fyrst.
Svo sem kunnugt er gáfu Jóhann-
es Jónsson í Bónus, Jón Ásgeir Jó-
hannesson og Kristín Jóhannesdótt-
ir 300 milljónir til verkefnisins fyrir
nokkru og verður upphæðin greidd í
áföngum á fimm árum. Fyrsta
greiðsla hefur þegar verið innt af
hendi.
Auglýst eftir
fólki í hágæslu
MAÐUR var fluttur með sjúkra-
bifreið á slysadeild Landspítala –
háskólasjúkrahúss í Fossvogi, að-
faranótt laugardags, eftir umferð-
arslys á Mýrdalssandi.
Slysið varð með þeim hætti að
ökumaður missti stjórn á bifreið
sinni með þeim afleiðingum að bif-
reiðin hafnaði utan vegar og enda-
stakkst áður en hún stöðvaðist 100
metrum utan við veginn. Lögreglan
í Vík fór á slyssstað, en auk lög-
reglu komu læknar frá Kirkjubæj-
arklaustri og Vík ásamt sjúkrabif-
reið á vettvang. Þrír voru í
bifreiðinni. Sá sem fluttur var með
sjúkrabifreið til Reykjavíkur er
ekki talinn alvarlega slasaður.
Að sögn lögreglu var mikil um-
ferð austur á Kirkjubæjarklaustur
seinnipart föstudags og fram á nótt
vegna mótorkrossmóts sem þar fer
fram um helgina. Talið er að á ann-
að þúsund manns sé nú saman
komið á Kirkjubæjarklaustri og ná-
grenni.
Ók út af á
Mýrdals-
sandi
♦♦♦