Morgunblaðið - 28.05.2006, Side 30
30 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Rannsóknamiðstöð Íslands • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 515 5800 • Bréfsími 552 9814 • www.rannis.is
Hvert verkefni skal unnið af a.m.k. tveimur fyrirtækjum frá ofangreindum ríkjum og einni
rannsóknastofnun frá öðru ríkjanna tveggja. Upplýsingar um frekari þátttökuskilyrði og
leiðbeiningar fyrir umsækjendur er að finna í handbók fyrir umsækjendur á vefslóðinni
http://www.rannis.is/sjodir/taeknithrounarsjodur/.
Umsækjendum býðst að senda inn drög að umsóknum til umsagnar fyrir 8. júní nk.
Einnig býðst aðstoð við leit að samstarfsaðilum.
Stefnt er að því að styrkja 2-3 verkefni með íslenskri þátttöku í tvö ár en hámarksstyrkveiting
úr Tækniþróunarsjóði eru 10 milljónir á ári.
Lokafrestur til að senda inn umsóknir er 15. september.
Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Brynjar Björnsson, sérfræðingur á alþjóðasviði
í síma 515 5800 eða tölvupóstfanginu thorsteinn@rannis.is.
Rannsóknamiðstöð Íslands, RANNÍS,
auglýsir eftir umsóknum á sviði markfæðis
(food for better human health)
Í samstarfi við rannsóknasjóði frá Finnlandi, Noregi, Spáni,
Frakklandi og Belgíu er stefnt að því að fjármagna íslenska þátttöku
í alþjóðlegum rannsóknarverkefnum af ofangreindu sviði sem
uppfylla kröfur Tækniþróunarsjóðs
U M S Ó K N I R
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Margir eyða ótrúlegumtíma, krafti og pen-ingum í að geraheimili sín að full-komnum griðastað
eftir eigin höfði. Útlit heimilisins bæði
að utan og innan skiptir máli og hafa
húseigendur mikil völd þegar kemur
að ákvörðunum um framkvæmdir á
sínum heimilum. Þegar við stígum út
úr innkeyrslunum okkar erum við
komin á sameiginlegt svæði hvað
varðar útlit og skipulag, þar eru
ákvarðanir teknar af starfsfólki borga
og bæja og einstaklingurinn er að
vissu leyti hálfvaldalaus hvað varðar
niðurstöður og útkomu ákvarðana.
Hið mannlega gleymdist
Skipulagsslys eiga sér stað víða,
þau eru mismikil og sum geta haft al-
varlegar afleiðingar. Fræg tegund af
einskonar skipulagsslysi eru svoköll-
uð módernísk blokkahverfi sem voru
reist víða í úthverfum stórborga á
sjötta og sjöunda áratugnum. Mód-
ernísk fjölbýlishús eru oft algjörlega
hlutlaus og hafa engar vísanir í hið
persónulega. Stór og mikil blokkar-
hverfi í módernískum stíl eru oft hel-
tekin af því að sýna hvernig þau eru
uppbyggð tæknilega, hvernig bygg-
ingarnar virka, þar er ekkert pláss
fyrir menningarlegt minni fólksins
sem þar býr. Félagsleg svæði svo sem
litlir garðar, markaðir, aðalgata og
torg voru ekki höfð í huga þegar hin
módernísku úthverfi voru hönnuð.
Það er eins og hin móderníska hugsun
hafi gleymt því mannlega í tæknileg-
um æsingi. Þegar fólk missir staðina
sem eru miðpunktur félagslegra sam-
skipta verður umhverfi þeirra að tóm-
legum stað fyrir vélræna tilveru þar
sem ekkert vex og dafnar.
Brodway Estate er hverfi í bænum
Tilbury sem stendur við Thames á
rétt fyrir utan London. Húsin sem
mynda Brodway Estate eru hefð-
bundnar módernískar kassablokkir
byggðar á sjöunda áratugnum og í
kring eru nokkrar lengjur af raðhús-
um í sama stíl með flöt þök. Hverfið
hlaut viðurnefnið „Bronx“ vegna þess
hve dæmigert fátækrahverfi það
myndaði. Mikil félagsleg vandamál
hafa fylgt hverfinu, íbúar stoppa stutt
við, flestir eru sendir þangað vegna
húsnæðiseklu í London eða eru
flökkufólk í anda sígauna. Vegna vax-
andi vandamála í kringum Brodway
Estate ákváðu félagsleg yfirvöld og
bæjarstjórn Tilbury árið 2003 að veita
fjármagn til þess að reyna að finna
lausn á þessum vandamálum.
Arkitekta- og myndlistarhópurinn
Muf sendi inn tillögu að lausn á
vandamáli Brodway Estate sem var
valin til framkvæmdar. Muf hefur
unnið með hugmyndir um almenn-
ingssvæði frá stofnun hópsins árið
1994, upphaflega var Muf hópur
kvenarkitekta og myndlistarkvenna
sem vann að því að blanda saman
óvæntum og um leið langvarandi inn-
setningum í hið efnislega og fé-
lagslega borgarumhverfi. Stofnendur
Muf eru arkitektarnir Juliet Bidgood
og Liza Fior og myndlistarkonan
Katherine Clarke. Í dag hefur starfs-
mönnun Muf fjölgað til muna og eru
þeir af báðum kynjum og menntaðir
sem arkitektar, félagsfræðingar,
myndlistarmenn, mannfræðingar og
skipulagsfræðingar.
Hjá Muf er lögð mikil áherslu á að
starfsfólkið sé menntað í mismunandi
fögum til þess að geta nálgast verk-
efnin frá sem flestum hliðum, starfs-
menn nýta sér sérþekkingu annarra
innan hópsins sem gerir það að verk-
um að útkoman verður sterkari og
áhugaverðari. Verkefni Muf hafa ver-
ið mjög fjölbreytt frá stofnun hópsins,
allt frá hönnun bygginga til vídeo-inn-
setninga.
Sameiginlegt svæði endurhannað
Eitt af stærri og þekktari verkefn-
um Muf er lausn þeirra á vanda fé-
lagslegrar íbúðarbyggðarinnar
Brodway Estate í Tilbury. Verkefni
Muf fólst í að endurhanna sameigin-
legt svæði sem stendur á milli fjöl-
býlishúsanna. Íbúar Brodway Estate
tilheyrðu í raun ekki Tilbury, þeir
voru félagsleg úrhrök sem bjuggu á
jaðrinum í landfræðilegum og fé-
lagslegum skilningi. Skortur á garði
eða öðru almenningsrými gerði fólkið
einangrað í íbúðum sínum, það sam-
lagaðist ekki umhverfinu og kynntist
nágrönnum sínum lítið sem ekkert.
Sameiginlega svæðið var staður sem
enginn hætti sér út að kvöldlagi og
hljóð slökkvibíla sem mættu til að
slökkva elda í bílhræjum heyrðust að
minnsta kosti vikulega.
Villtir hestar
Verkefni Muf skiptist í tvo hluta.
Þegar farið var að skoða svæðið kom í
ljós að hrossaskítur var þar á víð og
dreif og við nánari athugun komst
hópurinn að því að hestar lifa villtir í
kringum hverfið og koma sjaldan inn í
bæinn. Þetta taldi Muf vera lykilinn
að því að gera hverfið mannúðlegra
og komu með þá tillögu að útbúa
þjálfunarsvæði fyrir hesta á hluta al-
menningssvæðisins með það í huga að
koma íbúunum meira út og gera
svæðið þannig að stað þar sem fólki
finnst gott að koma saman. Hinn hluti
verkefnisins var að vinna með börn-
unum í hverfinu að gjörningi sem
snerist um megináherslu garðsins,
hestana.
Svæðinu á milli fjölbýlishúsanna
var skipt í þrjú svæði sem voru girt af
með stálgrindum sem voru svo þaktar
torfi, þannig var ekki hægt að
skemma girðingarnar, þær féllu að
landslaginu og verkuðu ekki sem tæki
til aðskilnaðar á fólk. Fyrsta svæðið
var leiksvæði fyrir yngri börnin með
leiktækjum og lágum hólum sem var í
augsýn við húsin í kring. Aðalsvæðið
var grasvöllur sem hægt var að nýta
sem fótboltavöll og til hliðar við það
voru steyptar tröppur sem mynduðu
nokkurs konar áhorfendapalla. Þriðja
svæðið var svo hækkað upp og afgirt
með trégirðingu og innihélt þjálfun-
arsvæði hestanna. Hestarnir eru ekki
alltaf til staðar en svæðið gefur þeim
ákveðna stöðu innan hverfisins. Þeir
eru ekki lengur flækingar sem villast
inn í Tilbury heldur eiga þeir sér stað
þar. Hestaunnendur koma hvaðan-
æva til að nýta sér svæðið þannig að
íbúarnir eru ekki lengur jafnafskiptir
og þeir voru.
Fengu krakkana með sér
Hin leiðin sem Muf fór til að breyta
svæðinu var að fá krakkana í hverfinu
með sér í að mynda þema garðsins.
Þau fylgdust með hestunum, gerðu
veggspjöld sem voru hengd á strætó-
stöðvar í bænum til að vekja athygli
bæjarbúa á tilveru hestanna og að
lokum voru þau með gjörning við
vígslu garðsins þar sem þau klæddust
hestabúningum og gengu í röð frá
jaðri bæjarins inn í garðinn. Með
þessu fengu þau aukna virðingu fyrir
umhverfinu og ný gildi, þau lærðu að
meta hesta frekar en stolna bíla.
Þetta töldu Muf vera afar mikilvægan
hluta af verkefninu, að gera þetta að
samfélagi frekar en tímabundinn
geymslustað fyrir húsgögn fólksins
sem bjó þarna.
Staðir eins og Broadway Estate
lenda oft illa í eiginhagsmunasemi
leigusala og lítið er gert til að gera líf
íbúa ánægjulegt. Ýmislegt hefur ver-
ið reynt til að bæta líf íbúa með breyt-
ingum á útliti húsanna en það hefur
reynst skammvinn ánægja. Þegar
íbúar Broadway Estate voru spurðir
hvað þeir teldu að gæti gert umhverfi
þeirra betra voru svör margra að það
að setja hallandi þök á hin flatþöktu
raðhús myndi breyta miklu. Í öðru út-
hverfi í London með svipuð vandamál
og Broadway Estate var þetta reynt
og með miklum tilkostnaði voru hall-
andi þök byggð ofan á módernískar
flatþaktar raðhúsalengjur. Þökin
breyttu ekki miklu, hverfið varð ekki
vinalegra þar sem vandamálið var
ekki leyst heldur bara málað yfir það.
Áhrifamáttur þessa verkefnis Muf
hópsins skín í gegnum notkun þeirra
á samfélagslegum minnum en þó er
hönnun þeirra það sterkbyggð að
ómögulegt er að eyðileggja veggina
og áhorfendapallana. Fólk þekkir og
kann að meta grasflötinn, þjálfunar-
svæði hestanna og áhorfendapallana
og það gerir þetta svæði að stað til að
leika sér á, slaka á og hafa það gott
saman. Með öðrum orðum að vera fé-
lagslynd.
Hverfi í upp-
lausn breytt
í griðastað
Ljósmynd/Oliver Clairdge
Muf fékk börnin í hverfinu með sér til þess að mynda þema garðsins. Þau fylgdust með hestunum, gerðu veggspjöld til að
vekja athygli bæjarbúa á tilveru hestanna og að lokum voru þau með gjörning við vígslu svæðisins þar sem þau klæddust
hestabúningum og gengu í röð frá jaðri bæjarins inn á svæðið. Með þessu báru börnin aukna virðingu fyrir umhverfinu,
þau lærðu að meta hesta frekar en stolna bíla.
Í hlutarins eðli | Mýmörg dæmi eru um að stór blokka-
hverfi stórborganna hafi misheppnast. Þau hafa orðið
kaldranaleg og lítt eftirsótt til búsetu. Brynhildur Pálsdóttir
segir frá tilraun sem gerð var í bænum Tilbury skammt frá
London til að breyta félagslegu víti í blómlega byggð.
Ljósmynd/Jason Lowe
Hestaunnendur koma hvaðanæva til að nýta sér æfingasvæðið fyrir hestana
þannig að íbúar Brodway Estate eru ekki lengur jafnafskiptir og þeir voru.
Ljósmynd/Jason Lowe
Íbúar Broadway Estate kunna að meta úrlausn Muf á svæði sem fáir þorðu að
hætta sér inn á að kvöldlagi.
TENGLAR
..............................................
www.muf.co.uk vefsíða muf
www.muf.co.uk/ahorsestale/ vef-
síða Broadway Estate verkefnisins
Höfundur er vöruhönnuður.
hannar@mbl.is