Morgunblaðið - 28.05.2006, Page 54
Risaeðlugrín
LENGRA TIL VINSTRI ...
© DARGAUD
MEIRA, MEIRA AÐEINS
MEIRA ... STOPP!!
AÐEINS HÆRRA NÚNA ... MEIRA, MEIRA,
MEIRA .... JÁ NÚNA
STOPP!!
EITT STIG Í VIÐBÓT FYRIR ÞIG!
EIGUM VIÐ AÐ HALDA
ÁFRAM OG ÞÁ MEÐ
SKJALDBÖKUR?
JÁ, HVÍ
EKKI ÞAÐ!
Kalvin & Hobbes
ER ÞETTA
BÓKASAFNIÐ? MIG
VANTAR AÐ FÁ
UPPLÝSINGAR UM
ÁKVEÐIÐ ORÐ...
VANDAMÁLIÐ ER AÐ ÉG
VEIT EKKI HVERNIG ÞAÐ ER
STAFSETT OG ÉG KANN
HELDUR EKKI AÐ BERA ÞAÐ
FRAM...
VILTU EKKI BARA BYRJA Á
ÞVÍ AÐ ÞYLJA UPP ÖLL
BLÓTSYRÐI SEM ÞÚ KANNT
OG ÉG STOPPA ÞIG ÞEGAR
ÞAÐ KEMUR... HALLÓ?
ER ÞETTA ÞJÓNUSTAN
SEM ÉG FÆ FYRIR
SKATTPENINGINN MINN?
Kalvin & Hobbes
ÉG ÆTLA
ALDREI AÐ
TAKA LÁN...
ÉG ÆTLA AÐ VERA
EINN AF ÞEIM SEM VERÐUR
RÍKUR Á EINNI NÓTTU...
ÉG VIL FÁ
LÍFIÐ AFHENT Á
SILFURFATI
GANGI
ÞÉR
VEL!
ÞÚ HLÝTUR AÐ SJÁ
AÐ ÉG Á ÞAÐ SKILIÐ!!
Kalvin & Hobbes
ÉG REYNI ALLTAF AÐ GERA
SJÓNVARPSGLÁP AÐ
FULLKOMINNI
SLÖKUN
SJÁÐU HVERNIG ÉG HEF
KJÁLKANN LAUSAN ÞANNIG
AÐ MUNNURINN Á MÉR
HELST OPINN. ÉG REYNI AÐ
SLEPPA ÞVÍ AÐ KYNGJA,
ÞANNIG AÐ ÉG SLEFA BARA Í
STAÐINN OG ÉG REYNI AÐ
HALDA MINNSTU
EINBEITINGU MEÐ AUGUNUM
ÉG TEK SLAKANDI
DÆGRASTYTTINGU OG GERI
HANA ENNÞÁ MEIRA
SLAKANDI. ÉG NÝT ÞESS
BARA AÐ GERA EKKI NEITT.
ÉG ER Í
FULLKOMNU
JAFNVÆGI
ÉG ÆTLA
AÐ FARA
ÁÐUR EN
FLUGURNAR
FARA AÐ
KOMA
ÉG FINN FYRIR
ÞVÍ HVERNIG
TAUGAKERFIÐ
SLEKKUR Á
SÉR...
Dagbók
Í dag er sunnudagur 28. maí, 148. dagur ársins 2006
Í kuldakastinu semgekk yfir landið í
síðustu viku, saknaði
Víkverji sumarsins
síns sárt. Eitt sinn
leit hann meira að
segja út um gluggann
og kom á óvart að sjá
öll tré laufguð. Þá
mundi hann að það
var raunverulega
kominn seinnihluti
maí, þrátt fyrir allt.
Svona blekkti kuldinn
Víkverja, og (aug-
ljóslega) lélegt
skammtímaminni
hans.
En það er ekki bara betra veður
sem boðar sumarkomuna í huga
Víkverja. Honum finnst nefnilega
ekki komið sumar fyrr en hvers
kyns álagi er lokið. Ætli það eimi
ekki enn af tæplega tuttugu ára
skólagöngu hans þegar hann hugs-
ar um sumarkomuna, sem óhjá-
kvæmilega tengdist alltaf prófa- og
skólalokum.
Í dag finnst Víkverja í raun kom-
ið sumar í fyrsta skiptið í ár. Nú er
nefnilega lokið öllu havaríinu í
kring um Evróvisjón og Silvíu Nótt
fyrir nokkru, sem hélt þjóðfélags-
umræðunni í heljargreipum um
nokkurt skeið. En í dag eru sveit-
arstjórnarkosningarnar líka loksins
búnar, og því fagnar Víkverji mjög.
Loksins verður
hægt að slappa af og
hugsa um eitthvað
hversdagslegt; símtöl-
in frá stjórnmála-
flokkunum eru búin í
bili og allur ruslpóst-
urinn snýst nú von-
andi nær eingöngu
um tilboð á grillmat
og garðhúsgögnum.
Vonandi er „hitinn“
líka kominn til að
vera.
Annars heyrði Vík-verji skondna
auglýsingu í Ríkisútvarpinu á
föstudagsmorgun, fyrsta daginn í
langan tíma sem veðrið var við-
unandi, að minnsta kosti hér í
Reykjavíkinni. Hún var frá Norð-
urlandi.is, og auglýsti að minnsta
kosti í tvígang að nú væri hið
margrómaða góða veður loksins
komið á Norðurland, eflaust með
það í huga að lokka þangað ferða-
menn.
Þegar Víkverji hafði farið með
barnið inn á leikskólann, voru aug-
lýsingar og fréttir búnar, og komn-
ar veðurfréttir í útvarpinu. Heyrði
þá Víkverji hitann á Akureyri les-
inn:
„Akureyri, þriggja stiga hiti …“
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Hönnun | Margir kannast við hægindastól af þessari gerð, sem kemur úr
smiðju hönnuðanna frægu, Eames-hjónanna Ray og Charles, og sést hér
gerður úr rósaviði, svörtu leðri og áli.
Nú hefur heil sýning verið kennd við stólinn, enda þykir hann hafa brotið
blað í hönnunarsögunni. Hún fram fer í lista- og hönnunarsafninu í New
York og ber heitið „The Eames Lounge Chair: An Icon of Modern Design“.
Sýning stendur til 3. september.
AP
Braut blað í hönnunarsögunni
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Gjörið því iðrun og snúið yður, að syndir yðar verði
afmáðar. (Post. 3, 19.)