Morgunblaðið - 28.05.2006, Síða 58
58 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÚT ER komin ljóðabókin Sítenging eft-
ir Sigurbjörn Þorkelsson. Um er að
ræða 90 ljóð sem flest ef ekki öll
hafa einhvern trúarlegan tón. Í frétta-
tilkynningu segir um bókina. „Þau eru
einskonar smáskilaboð. Atriði til at-
hugunar, skot til skoðunar, molar til
meltingar og nesti til næringar. Ljóðin
fjalla um frelsi og frið, trú, von og kær-
leika, ljósið og lífið. Þau eru vitn-
isburður um lífið og óður höfundar til
þess. Ljóðin eru gerð á árunum
2001–2006.“
Sítenging er fjórtánda bók Sig-
urbjörns Þorkelssonar og jafnframt
hans þriðja ljóðabók. Áður hafa komið
út eftir hann ljóðabækurnar, Aðeins
eitt líf, árið 2000 og Lífið heldur
áfram, árið 2002.
Bókina hyggst höfundur meðal ann-
ars gefa á biðstofur hvers konar, svo
sem á dekkjaverkstæði, hárgreiðslu-
og rakarastofur, biðstofur lækna og
tannlækna, á sjúkrahús, hjúkrunar-
og dvalarheimili aldraðra og í skóla
landsins eftir því sem upplag endist
og heilsa og kraftar leyfa.
Bókin er 135 bls. Um uppsetningu
og útlitshönnun sá Heimir Ósk-
arsson.
Bókin er prentuð í Prentsmiðjunni
Litrófi ehf og bundin inn hjá Bókavirk-
inu ehf. Höfundur gefur bókina sjálfur
út.
Nýjar
bækur
ERLA S. Haraldsdóttir, sem hefur tekið þátt í alþjóðlegu
vinnustofuprógrammi í hinni virtu listamiðstöð Kunstler-
haus Bethanien, heldur nú einkasýningu í Studio 3, einu af
galleríum listamiðstöðvarinnar. Á sýningunni er mynd-
bandsverkið Sad with Satie sem fjallar um ástarsorg,
þjáningu og skapandi innsæi, unnið með samblandi teikn-
inga og stafrænnar myndatöku. „Sad With Satie er búta-
saumur myndbandsupptöku og teiknimynda, einhvers
konar skynvillu-atburða, sem eru eins og ofnir inn í frí-
hendis upptöku af vanabundnum daglegum athöfnum
söguhetjunnar,“ segir Lisi Raskin í texta um sýninguna.
Erla er kunnust fyrir ljósmyndaseríur en verkið „Here,
there and everywhere“, sem hún vann með Bo Melin, var
sýnt í Galleríi Hlemmi og Gerðarsafni árið 2001. Í því
verki var ásýnd Reykjavíkurborgar gerbreytt með tölvu-
tækni og ímynd borgarinnar blandað saman við ásýnd ým-
issa stórborga erlendis.
Erla S. Haraldsdóttir fæddist árið 1967 í Reykjavík.
Hún nam myndlist í Gautaborg, Stokkhólmi og San
Francisco. Hún útskrifaðist með MFA-gráðu úr Konst-
högskolan Valand í Gautaborg árið 1998. Erla hefur haldið
fjölda sýninga og tekið þátt í samsýningum víða um Evr-
ópu. Verk hennar eru í eigu ýmissa stofnanna og einka-
aðila, meðal annars Statens Konstråd í Sviþjóð, og Lista-
safns Reykjavíkur. Sýning Erlu í Studio 3, Kunstlerhaus
Bethanien hlaut styrk frá CIA og Myndstefi og er hún til
húsa á Mariannenplatz 2, Kreuzberg, Berlín.
Myndlist | Erla S. Haraldsdóttir sýnir í Berlín
Ástarsorg, þjáning og innsæi
„Sad With Satie er bútasaumur myndsbandsupptöku
og teiknimynda, einhverskonar skynvillu-atburða, sem
eru einsog ofnir inn í fríhendis upptöku af vanabundn-
um, daglegum athöfnum söguhetjunnar,“ segir Lisi
Raskin í texta um sýningu Erlu S. Haraldsdóttur.
„BEST að borða ljóð og serenöður
við dökkan spegil“ er yfirskrift
15:15-tónleika í Norræna húsinu í
dag, sunnudag.
„Yfirskrift tónleikanna er sam-
sett af titlum þeirra verka sem
flutt verða,“ segir Eydís Franz-
dóttir óbóleikari.
Hlín Pétursdóttir sópran er í for-
grunni á tónleikunum: „Dagskráin
er spennandi og í léttari kantinum
en þetta er með fyrstu kammertón-
leikum Hlínar sem mest hefur
sinnt óperutónlist,“ segir Eydís.
Tónleikarnir hefjast á verkinu
„Im dunklen Spiegel“ eftir Elínu
Gunnlaugsdóttur: „Verkið er sér-
staklega samið fyrir hópinn, við
ljóð eftir Barböru Köhler. Verkið
er ofboðslega fallegt og var frum-
flutt á tónleikum á Selfossi síðast-
liðið haust. Elín hefur gert nokkrar
breytingar á verkinu síðan þá og
verður verkið í sinni endanlegu
mynd frumflutt í Norræna húsinu.“
Næst á efnisskrá tónleikanna er
Serenaða eftir Paul Hindemith:
„Þetta er magnað verk sem reynir
mjög mikið á hljóðfæraleikara og
söngvara. Hindemith notar öll lit-
brigði hljómsveitarinnar sem gerir
verkið margbreytilegt og skemmti-
legt,“ segir Eydís.
Tónleikunum lýkur með lögum
Jóhanns G. Jóhannssonar við ljóð
Halldórs Laxness og Þórarins Eld-
járn. „Tvö lögin eru við verk Lax-
ness og eru fengin úr leikritinu
Halldór í Hollywood. Jóhann hefur
útsett þessi fallegu lög sérstaklega
fyrir hljóðfærahópinn og einsöngv-
ara. Jóhann fær síðan að láni tvö
ljóð úr ljóðaflokki Þórarins Eld-
járn, „Best að borða ljóð“ og færir í
tónlist.“
Flytjendur eru Hlín Pétursdóttir
sópran, Eydís Franzdóttir óbóleik-
ari, Bryndís Pálsdóttir fiðluleikari,
Herdís Anna Jónsdóttir víóluleik-
ari, Sigurður Halldórsson sellóleik-
ari og Bryndís Björgvinsdóttir
sellóleikari.
Tónleikarnir eru sem fyrr segir í
Norræna húsinu og hefjast kl.
15.15.
Tónlist | 15:15-tónleikar í Norræna húsinu
Serenöður
og ljóð
Morgunblaðið/Ásdís
Sigurður Halldórsson, Eydís Franzdóttir, Bryndís Pálsdóttir, Hlín
Pétursdóttir og Bryndís Björgvinsdóttir. Á myndina vantar Herdísi
Önnu Jónsdóttur.
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Í dag kl. 14 UPPS.
SÍÐASTA SÝNING Í VOR.
Miðasala hafin á sýningar í haust!
FULLKOMIÐ BRÚÐKAUP
Í kvöld kl. 20 UPPS. Fi 1/6 kl. 20 UPPS.
Fö 2/6 kl. 20 UPPS. Fö 2/6 kl. 22:30
Má 5/6 kl. 20 Þri 6/6 kl. 20 UPPS.
Fö 9/6 kl. 20 UPPS. Fö 9/6 kl. 23
Má 12/6 kl. 20 Þri 13/6 kl. 20
VILTU FINNA MILLJÓN?
Mi 31/5 kl. 10 UPPS.
Fö 2/6 kl. 20 UPPS. Lau 3/6 kl. 20 UPPS.
Má 5/6 kl. 20 Fi 8/6 kl. 20 UPPS.
Fö 9/6 kl. 20 UPPS. Lau 10/6 kl. 20 UPPS.
Su 11/6 kl. 20 AUKASÝNING
Fi 15/6 kl. 20 Sun 18/6 kl. 20
HLÁTURHÁTÍÐ
Í kvöld kl. 20:00
HLÁTURNÁMSKEIÐ
MIÐAVERÐ 1.000
Ásta Valdimarsdóttir og Kristján Helgason
kenna hláturjóga.
NAGLINN
Fi 1/6 kl. 20 SÍÐASTA SÝNING
25 TÍMAR
DANSLEIKHÚSSAMKEPPNIN 2006
9 verk verða frumsýnd sem keppa til
verðlauna.
Fi 8/6 kl. 20
Teldu mig með. Höf. Ólöf Ingólfsdóttir og
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachman.
Elsku bróðir. Höf. Steinunn Ketilsdóttir.
Blind ást. Höf. Rebekka Rán Samper.
Tommi og Jenni. Höf. Elma Backman, Stefán
Hallur Stefánsson ogHalldóra Malín Pétursd.
Boðorðin 10. Höf. Marta Nordal.
Guðæri. Höf. Ólafur Darri Ólafsson og Lovísa
Ósk Gunnarsdóttir
Dillir dó og Dummi. Höf. Benóný Ægisson.
Shoe size nine months. Höf. Peter Anderson.
Stigma. Höf Andreas Consantinou.
MIÐAVERÐ 2.500. Miðasala hafin.
RONJUVÖRUR
Bolir, sundpokar, nælur, geisladiskur ofl.
Fæst í miðasölu Borgarleikhússins.
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
MIÐASALA OPIN
ALLAN SÓLAR-
HRINGINN Á NETINU.
Litla hryllingsbúðin – aukasýningar í september!
Vegnar mikillar aðsóknar: Aukasýningar í september!
Lau 2/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus
Sun 3/9 kl. 20 AUKASÝNING – nokkur sæti laus
Fös 8/9 kl. 19 AUKASÝNING – örfá sæti laus
Lau 9/9 kl. 19 AUKASÝNING – nokkur sæti laus
Fullkomið brúðkaup – Borgarleikhúsinu. Sýningar í fullum gangi.
Litla hryllingsbúðin – Íslensku óperunni. Sýningar í fullum gangi.
Leiklistarnámskeið á Akureyri í júní.
tónleikar í háskólabíói
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson
Einleikari ::: Stefán Ragnar Höskuldsson
FIMMTUDAGINN 1. JÚNÍ KL. 19.30
Lowell Liebermann ::: Flautukonsert op. 39
Atli Heimir Sveinsson ::: Sinfónía nr. 2
FL Group er aðalstyrktaraðili
Sinfóníuhljómsveitar Íslands
! " #
$$$
%
!"" #$$ %&%"&'( )* !+(,-&. +#'!/'&'
0
1
#+&%233.
45 6 #+&%233.
#+&%233.
45 6 #+&%233.