Morgunblaðið - 28.05.2006, Síða 68

Morgunblaðið - 28.05.2006, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. BORINN Jötunn er langt kominn með að bora holu 13 í Bjarnarflagi fyrir Lands- virkjun. Ásgrímur Guðmunds- son, jarðfræðingur hjá Ís- lenskum orkurannsóknum (ÍSOR), sagði að harðavetur hefði skollið á eftir þessa fínu sumardaga í byrjun maí þegar hitinn fór í 18–20 stig. „Svo snarsnerist þetta við og fór að kólna og snjóa. Það snjóaði heilmikið,“ sagði Ásgrímur. Hann sagðist vona að veðrið væri nú að breytast til hins betra. Í áhöfn Jötuns eru 25 manns, þar af níu Ungverjar. Ásgrímur sagði Ungverjana hafa spurt hvernig veðrið yrði hér í júlí, því nú þegar væri hitinn heima hjá þeim kominn í 30 stig meðan snjóaði hér. Stefnuborað undir Námafjall Verið er að bora vinnslu- hluta nýju holunnar. Ás- grímur sagði að búið væri að fóðra holuna í efri jarðlögum, niður á 800–900 metra dýpi. Síðan er boraður sá hluti sem vinna á gufuna úr. Holan er stefnuboruð undir Námafjall og verður alls 2.000–2.200 metra djúp. Ásgrímur taldi að boruninni lyki í dag, sunnu- dag.Morgunblaðið/BFH Hita- leit í kalsa- veðri UM 2⁄3 íbúa á Reyðarfirði eru starfsmenn Bechtel, sem sér um byggingu álvers Alcoa á Reyðarfirði. Starfmannafjöld- inn hjá Bechtel er nú kominn í um 1.600 manns, en aðrir íbúar á Reyðarfirði eru um 860. Mannfjöldi á staðnum hefur því nánast þrefaldast á skömmum tíma. Um 70% starfsmanna Bechtel eru Pólverjar, en um 20% eru Íslendingar. Björn Lárusson, kynningar- stjóri Bechtel, segir að starfs- mannafjöldi fyrirtækisins sé nú kominn í hámark og verði það fram á haustið, en þá fari að fækka í hópnum. Þó að um 1.600 manns séu í vinnu hjá fyrirtækinu eru um 200 manns að jafnaði í fríi í einu. Björn segir að búið sé að vinna 35% verksins, sem sé í samræmi við áætlun. Um áramót sé stefnt að því að 75–80% verksins verði lokið. Upphaflega var áformað að stærri hluti starfsmannahóps- ins yrði íslenskur, en vegna þenslu á vinnumarkaði gekk fyrirtækinu illa að fá nægilega marga starfsmenn hér á landi. Þess vegna voru fleiri ráðnir frá Póllandi, en yfir 1.100 Pól- verjar eru nú á Reyðarfirði. Björn segir að vinna við byggingu álversins hafi gengið vel. Veður hafi ekki tafið fram- kvæmdir svo neinu nemi. Þeirri reglu sé fylgt að ekki sé híft ef vindur fari yfir átta metra á sekúndu og það hafi verið nokkuð oft sem menn hafi ekki getað notað krana vegna roks. Hann segir þetta athyglisvert í ljósi fullyrðinga um að mikil staðviðri séu í Reyðarfirði. Aukin umsvif í verslun Íbúar á Reyðarfirði eru nú um 840, samkvæmt þjóðskrá, en árið 1997, áður en Reyð- arfjörður sameinaðist Fjarða- byggð, voru íbúar 682. Búið er að byggja mikið af íbúðarhús- næði á staðnum síðustu miss- erin. Bjarni Sigurðsson, verslun- arstjóri í verslun Krónunnar í Molanum á Reyðarfirði, segir að það gangi vel að reka versl- un á Reyðarfirði þegar upp- byggingin sé í bænum og fólki fjölgi. Íbúum eigi eftir að fjölga enn meira þegar álverið fari í gang og fastir starfsmenn komi til starfa. Hann segir að erlendir starfsmenn Bechtel geri engin stórinnkaup hjá sér. Þeir komi og kaupi sér eitthvað að drekka og kaupi smávöru. „Síð- an skreppa þeir niður á bryggju að veiða. Það er þeirra aðalsport þegar þeir eiga frí,“ sagði Bjarni. Nú er verið að stækka versl- un ÁTVR í Molanum á Reyð- arfirði, en það er ein af mörg- um framkvæmdum sem unnið er að í bænum. Starfsmannafjöldi Bechtel, sem byggir álverið, hefur náð hámarki Íbúafjöldi Reyðarfjarðar hefur næstum þrefaldast Mikil fjölgun hefur verið á Reyðarfirði undanfarna mánuði. Myndin er tekin fyrir skömmu þegar efnt var til „karnivals“ í bænum. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is SPÁNVERJINN Remo Balcells, sem stýrir tækni- brellum í sjónvarpsþáttunum um Latabæ, segir fagmennsk- una og metnaðinn mikinn við gerð þáttanna. Hann vissi lítið sem ekkert um Ísland áður en hann kom hingað til starfa í nóvember síðastliðnum en seg- ir aðstöðuna hafa komið sér þægilega á óvart. „Þekking á sviði sjónvarpsþáttagerðar er mikil hérna og tækjakostur eins og best verður á kosið.“ Balcells er enginn nýgræðingur í faginu. Hef- ur m.a. unnið við gerð kvikmynda á borð við Tit- anic og The Day After Tomorrow. Markmiðið með ráðningu hans var að lyfta tæknibrellunum í Latabæ á æðra plan. „Standardinn hér var hár fyrir en Raymond Le Gué upptökustjóri og Magnús Scheving lögðu áherslu á að ég með mína þekkingu og reynslu væri rétti maðurinn til að lyfta honum enn hærra. Þess vegna tók ég með mér nokkra listamenn að utan og blandaði þeim saman við hópinn sem var hér fyrir. Ég lagði áherslu á að þetta væri fólk sem hefði sérþekkingu á hlutum sem ekki höfðu verið gerðir hér áður. Hérna eru nú fjórir útlendingar og fimm heimamenn og þessi hópur hefur að mínu viti smollið vel saman,“ segir Balcells og bætir við að bryddað hafi verið upp á ýmsum nýj- ungum í tölvuvinnslunni á þáttunum. „Sem ég vona að geri góðan þátt enn betri.“ | Tímarit Fagmennska og metnaður í Latabæ Remo Balcells LÖGREGLAN í Reykjavík varð vör við að bíl var ekið á 140 km hraða niður Ártúnsbrekkuna laust fyrir klukkan eitt, aðfaranótt laugardags. Ökumaður bílsins sinnti ekki stöðvunarmerkj- um og ók nokkuð stóran hring um borgina. Hann fór meðal annars fimm sinnum yfir gatnamót á rauðu ljósi. Lögreglu tókst loks að stöðva mann- inn á mótum Langholtsvegar og Suðurlands- brautar. Reyndist hann þá vera með um 5 grömm af fíkniefnum, aðallega kókaíni og amfetamíni, í fórum sínum. Að sögn lögreglu var maðurinn ekki undir áhrifum efna eða áfengis og var honum sleppt eftir yfirheyrslur. Sömu nótt stöðvaði lögreglan fleiri ökumenn, sem grunaðir eru um ölvun við akstur. Á ofsahraða á flótta undan lögreglu Nylon hitaði upp fyrir Westlife á Wembley og er nú á ferðalagi með Girls Aloud. STELPURNAR í Nylon verða fyrstu íslensku tónlistarmennirnir sem hafa komið þrisvar fram á Wembley Arena í Lundúnum, þegar yfirstand- andi tónleikaferðalagi með Girls Aloud lýkur í næsta mánuði. Nylon byrjaði að hita upp fyrir Girls Aloud þegar ferðalaginu með Westlife lauk með tvennum tónleikum á Wembley Arena um síðastliðna helgi. Alma, Camilla, Emilía og Klara segja spenn- andi að fá að spila með annarri stelpna- hljómsveit. „Girls Aloud eru alveg á toppnum núna hér í Bretlandi og örugglega vinsælasta stelpubandið í bili. Vonandi getum við náð til áheyrendahópsins sem þær eru með og kannski enn breiðari hóps með okkar músik.“ Nylon kemur fram á tíu stöðum með Girls Aloud. „Við búumst ekki við því að eiga frí á næstunni og þegar þessi tónleikaferð er búin för- um við í það að kynna smáskífuna okkar, Losing a Friend. Þá munum við koma fram einar og búið er að bóka okkur á nokkra staði. Einnig er búið að bóka mikið af viðtölum í útvarpi og sjón- varpi.“ | Tímarit Ekkert lát á Nylon í Bretlandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.