Morgunblaðið - 30.05.2006, Side 2

Morgunblaðið - 30.05.2006, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÁTÖK Í KABÚL Til mikilla óeirða kom í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær eftir að bandarískur hervagn lenti í árekstri við fólksbíl. Lést einn mað- ur eða fleiri í slysinu. Hrópaði fólkið ókvæðisorð að bandarískum her- mönnum og afgönskum og sagt er, að 14 hafi legið í valnum áður en lauk. Útgöngubann var í borginni í nótt og í ávarpi Hamid Karzai, for- seta landsins, hvatti hann fólk til stillingar og kenndi „undirróð- ursmönnum“ um ólætin. Vilhjálmur borgarstjóri Sjálfstæðismenn og framsókn- armenn ákváðu í gær að mynda meirihluta í borgarstjórn Reykjavík- ur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd- viti sjálfstæðismanna, verður borg- arstjóri og Björn Ingi Hrafnsson, Framsóknarflokki, verður formaður borgarráðs. Þetta er í fyrsta sinn sem tveir flokkar mynda meirihluta í borgarstjórn. Viðræðuslit á Akureyri Samfylkingin á Akureyri sleit í gær viðræðum um myndun meiri- hluta með Vinstri grænum og Lista fólksins og fór í stað þess fram á að ræða við Sjálfstæðisflokk um mögu- legt samstarf á kjörtímabilinu. 1.400 síldartonnum landað Sigurður VE hefur landað norsk- íslenzkri síld tvívegis nú á nokkrum dögum, fyrstur íslenzkra skipa. Hann landaði tæpum 1.400 tonnum í Krossanesi á laugardag og síðan um 1.500 tonnum, eða fullfermi, á sama stað í gærkvöldi. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Menning 23 Fréttaskýring 8 Umræðan 24/29 Úr verinu 13 Forystugrein 26 Viðskipti 14/15 Minningar 30/36 Erlent 16/17 Dagbók 40/43 Heima 18 Víkverji 40 Austurland 19 Velvakandi 41 Akureyri 20 Staður og stund 42 Landið 20 Ljósvakamiðlar 50 Suðurnes 21 Veður 51 Daglegt líf 22/23 Staksteinar 51 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " # $ %        &         '() * +,,,                       FRUMVARP iðnaðarráðherra um Nýsköpunarmiðstöð atvinnuveganna var afgreitt með smávægilegum breytingum úr iðnaðarnefnd í gær. Varaformaður nefndarinnar segir ráðherra Sjálfstæðisflokksins hafa metið það svo að ef málið yrði ekki af- greitt í gær gætu öll mál ríkisstjórn- arinnar verið í uppnámi. Fjallað var um málið á þingflokks- fundi hjá Sjálfstæðisflokki í hádeginu í gær, en þar kom fram að formenn ríkisstjórnarflokkanna og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins legðu á það mikla áherslu að málið yrði afgreitt úr iðnaðarnefnd sem fyrst, segir Ein- ar Oddur Kristjánsson, varaformað- ur nefndarinnar. „Það lá fyrir frá ráðherrum Sjálf- stæðisflokksins að þeir teldu það gríðarlega þýðingarmikið að þetta mál yrði tekið út [úr nefndinni] núna, og ekki seinna en núna. Þeir mátu það svo að annars gætu öll mál rík- isstjórnarinnar verið í uppnámi,“ seg- ir Einar Oddur. „Ég mælti mjög gegn þessu, ég taldi það mjög rangt að taka málið út [úr nefndinni]. Ég reikna með að það hafi hinar verstu afleiðingar og muni tefja sumarþingið gríðarlega,“ sagði Einar Oddur. Hann segist hafa lagt það til að málið yrði látið bíða þar til á haustþingi, en þegar ljóst var að svo yrði ekki hafi hann dregið sig í hlé og ákveðið að sitja ekki fund iðnaðar- nefndar þar sem málið var afgreitt. Spurður hvers vegna svo mikil áhersla hafi verið lögð á það að af- greiða málið nú segir Einar Oddur: „Ég veit að það var krafa frá fram- sóknarmönnum.“ Hann sagðist þó vita að það tengdist á engan hátt við- ræðum Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks um meirihlutasamstarf í Reykjavík. „Ég tel það fráleitt, og veit að svo er ekki. Ég veit bara að iðnaðarráðherra hefur knúið á um þetta og talið öllu skipta að þetta verði afgreitt. Um það snýst þetta.“ Þrenns konar breytingar Birkir J. Jónsson, formaður iðnað- arnefndar, staðfestir að þrýstingur hafi verið á það af hálfu forystu- manna stjórnarflokkana að málið yrði afgreitt úr nefndinni. „Hér er um stjórnarfrumvarp að ræða og það er auðvitað metnaður þingflokks og ráð- herra að þau stjórnarfrumvörp sem lögð eru fyrir þingið fái þinglega með- ferð og umræðu í þinginu.“ Birkir segir að smávægilegar breytingar hafi verið gerðar á frum- varpinu í iðnaðarnefnd. Í fyrsta lagi til að greina á milli fagsviða rann- sókna og ráðgjafar, með því að setja framkvæmdastjóra yfir hvort svið. Í öðru lagi með því að skipuð verði ráð- gjafarnefnd sem verði forstjóra og ráðherra til ráðgjafar um framtíðar- skipulag tæknirannsókna á Íslandi. Þriðja breytingin sem gerð var var ákvæði sem sett var inn til bráða- birgða um að skipuð verði nefnd til að meta besta rekstrarform starfsem- innar, en hún á að skila niðurstöðu fyrir árslok 2008. Alþingi kemur saman á ný í dag eftir hlé sem ákveðið var að taka fram yfir sveitarstjórnarkosningar. Frumvarp um Nýsköpunarmiðstöð afgreitt úr iðnaðarnefnd Alþingis í gær Hefði getað sett öll mál rík- isstjórnarinnar í uppnám Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Einar Oddur Kristjánsson Birkir J. Jónsson HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef- ur dæmt 18 ára pilt í þriggja mán- aða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárásir og fíkniefnabrot. Ann- ar 18 ára gamall piltur var í málinu dæmdur í 250 þúsund króna sekt fyrir aðild að líkamsárás og önnur brot. Sparkaði í liggjandi mann Piltarnir voru m.a. báðir fundnir sekir um að hafa ráðist á mann í Garðabæ í júlí 2005. Annar pilt- urinn sló manninn í höfuð og skrokk og hinn sparkaði í hann liggjandi. Sá síðarnefndi var einnig ákærður fyrir að hafa ráðist á stúlku í desember sl., hrint henni þannig að hún féll í jörðina og sparkað í höfuð stúlkunnar þar sem hún lá á jörðinni. Í dómnum segir, að það sé metið piltinum til þyngingar refsingar, að hann sparkaði tvívegis í liggjandi mann, sem sé lítilmannlegt, og einnig í höfuð stúlkunnar, sem geti verið mjög hættulegt auk þess að vera fólskulegt. Hins vegar beri að líta til ungs aldurs piltsins og var hann því dæmdur í 3 mánaða fang- elsi. Dómurinn ákvað jafnframt að skilorðsbinda refsinguna með tilliti til þess, að pilturinn var ekki fullra 18 ára þegar hann framdi verkn- aðinn og hann hefur leitað sér sál- fræðilegrar aðstoðar vegna hegð- unarvandamála og misnotkunar áfengis. Guðmundur L. Jóhannesson hér- aðsdómari dæmdi málið. Anna Svava Þórðardóttir fulltrúi sýslu- mannsins í Hafnarfirði sótti málið. Í fangelsi fyrir líkamsárásir HALLDÓR Ásgrímsson for- sætisráðherra átti í gær fund með forsvarsmönnum Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) um íbúðalánamarkaðinn hér á landi. Bjarni Ármanns- son, forstjóri Glitnis banka og formaður stjórnar SBV, og Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans og vara- formaður stjórnar SBV, sátu fundinn fyrir hönd samtak- anna. Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu var fund- urinn gagnlegur og áfram verð- ur unnið í málinu. Í febrúar sl. var stýrihópi fé- lagsmálaráðherra um íbúða- lánamarkaðinn falið að efna til víðtæks samráðs um hlutverk og aðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðinum. Í síð- asta mánuði skilaði hópurinn áfangaáliti um að rétt væri að þróa hlutverk Íbúðalánasjóðs í átt til hlutverks svonefnds íbúðabanka á íbúðamarkaði. Fundað með bönkunum um íbúðalán SUMARIÐ er komið til Akureyrar. Fyrsta skemmtiferðaskip ársins, Mona Lisa, lagðist að bryggju í höfuðstað Norð- urlands í gærmorgun og þó ekki sé hægt að segja að sólbaðsveður hafi verið á erlendan mælikvarða var veðrið ágætt. Á meðan farþegar Monu Lisu spók- uðu sig í miðbænum og skoðuðu lystigarðinn léku frænkurnar Hildur og Fjóla sér að því að vaða í Gleránni með hundinum Pjakki í grennd við heim- ili annarrar þeirra við Skarðshlíð. „Hann er eig- inlega að koma í vatn í fyrsta skipti,“ sagði Hild- ur, sem á Pjakk. „En við erum vanar að leika okk- ur í vatni, til dæmis í Ey- vindaránni með öðrum hundi, Tínu, sem afi henn- ar á en hann er frændi minn,“ sagði Fjóla. „Hann stingur trýninu alltaf ofan í vatnið; það er eins og hann sé að berjast við vatnið,“ bætti hún svo við um Pjakk. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sumarið komið til Akureyrar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.