Morgunblaðið - 30.05.2006, Qupperneq 18
Su›urlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími 540 7000 • www.falkinn.is
LEGUR í bíla og tæki
• Kúlulegur
• Keflalegur
• Keilulegur
• Nála- og línulegur
• Flans- og
búkkalegur
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
31
.2
94
Miðbær | Barist er um borðin á
útiveitingastöðum í miðbænum
á góðviðrisdögum og kaffihúsa-
lífið líkist stórborgum. Rólegt
var yfir Skólavörðustígnum
daginn sem þessi mynd var
tekin. Vinkonurnar Hildur og
Hugrún létu fara vel um sig
fyrir utan Mokka og sötruðu
kakó. Allar áhyggjur hvers-
dagsins hurfu eins og dögg fyr-
ir sólu.
Morgunblaðið/Ásdís
Kakóbolli á Mokka
Kaffihús
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Bæjarstjórnarkosningar eru afstaðnar.
Ró og friður færist aftur yfir mannlífið, eft-
ir að tveir listar tókust drengilega á um að
ná hylli kjósenda. D-listinn hélt meirihluta
sínum sem hann hefur gert lengi og heldur
um stjórnvölinn næstu 4 árin. Erla Frið-
riksdóttir sem tók við starfi bæjarstjóra sl.
sumar mun gegna starfinu áfram næsta
kjörtímabil. Kosningaloforð voru gefin
kjósendum og nú reynir á bæjarstjórn að
efna þau. Meðal annars á að byggja nýtt
húsnæði yfir Amtbókasafnið, byggja við
Grunnskólann svo allur skólinn og tónlist-
arskólinn verði undir sama þaki. Byggja á
nýja smábátahöfn til að anna aukinni um-
ferð skemmtibáta og skúta. Allt kostar
þetta peninga. Öflugt atvinnulíf er örugg-
asta leiðin til að afla tekna fyrir bæjarsjóð.
Atvinnufyrirtækin eru undirstaða sam-
félagsins. Eins og fyrr þarf að bæjarstjórn
að veita þeim stuðning eins og hægt er og
um leið að greiða fyrir því að ný fyrirtæki
sjá fýsilegan kost í að nema hér land.
Kjörsókn í Stykkishólmi var sérstaklega
góð í bæjarstjórnarkosningunum á laug-
ardag. Á kjörskrá voru um 800 manns og
alls kusu 92,5% íbúa á kjörskrá. Það kemur
mér ekki á óvart að hér hafi verið ein besta
kosningaþátttaka á landinu. Ástæðan er
líklega sú að hér eru íbúar áhugasamir um
bæjarmálin og vilja leggja sitt að mörkum
til að hafa þar áhrif á.
Nú er vor um Breiðafjörð og hafinn er
annatími hjá eyjabændum. Þeir þurfa að
sinna varpi og sauðburði. Æðarkollan er
sest upp og aðrir fuglar farnir að verpa.
Um helgina voru tínd fyrstu ritueggin.
Þetta er tími sem eyjabændur búnir að bíða
eftir á dimmum vetrardögum. Það er mikil
endurnæring að komast út í eyjar og hvíla
sig frá hinu daglega amstri.
Eitt umsvifamesta fyrirtækið í Stykkis-
hólmi er Skipavík hf. Í vetur hefur drátt-
arbraut félagsins verið endurbætt fyrir
tugi milljóna króna. Hægt verður að taka
upp skip sem vega allt að 350–370 þunga-
tonn. Næg verkefni eru framundan í
slippnum og eru pantaðar upptökur fyrir
báta langt fram á haust. Það eru einkum út-
gerðir báta af Snæfellsnesi og Vestfjörðum
sem nýta sér þjónustu fyrirtækisins.
Úr
bæjarlífinu
STYKKISHÓLMUR
EFTIR GUNNLAUG ÁRNASON
FRÉTTARITARA
2.200 fermetrar að flat-
armáli. Sveinbjörn Sig-
urðsson ehf. er eigandi
Jóhannes Jónsson íBónus tók fyrstuskóflustungu að
nýrri verslunarmiðstöð á
Akranesi við Þjóðbraut
og hefur verslunarmið-
stöðin einnig verið nefnd
Þjóðbraut. Í bygging-
unni verður að stærstum
hluta Bónusverslun í
vesturenda ásamt sér-
verslunum í austurenda,
sem hafa allar sameig-
inlegt aðgengi úr mið-
kjarna verslunarmið-
stöðvarinnar. Auk þess
verður á lóðinni bensín-
og olíuafgreiðslustöð
Orkunnar.
Bygginginn verður um
húsnæðisins og hefur
umsjón með allri hönnun
og verkframkvæmd.
Verslunarmiðstöðin
Þjóðbraut rís á Akranesi E
ins og alltaf unnu
allir flokkarnir
sigur í sveitar-
stjórnarkosningunum,
jafnvel þó að þeir töpuðu
fylgi. Davíð Hjálmar Har-
aldsson yrkir:
Formenn tjá sig flokkum hjá,
frasana við kunnum:
„Úrslitunum una má.“
„Ólíkt betr’en nokkur spá.“
„Varnarsigur öruggan hér unn-
um.“
Sumir flokkarnir mið-
uðu árangur sinn við
skoðanakannanir. Hjálm-
ar Freysteinsson yrkir:
Notalegt er nú að sjá
nægjusemina í mönnunum.
Sumir unnu sigur á
svörtustu skoðanakönnunum.
Friðrik Steingrímsson
leggur út af sama tilefni:
Nú er fjör það seg’ég satt
sýnast allir vinir,
jafnvel þeir sem fóru flatt
fagna eins og hinir.
Kosningasigur
pebl@mbl.is
Hólmavík | Tólf ára strákur á Hólmavík,
Daníel Birgir Bjarnason, sigraði í dægur-
lagasamkeppni fyrir bæjarhátíðina Ham-
ingjudaga á Hólmavík sem haldin verður
dagana 29. júní til 2. júlí. Lag sitt nefnir
Daníel „Á hamingjudögum“ og var það
flutt af Bjarna Ómari Haraldssyni og Að-
alheiði Lilju Bjarnadóttur.
Ellefu lög kepptu um að verða ham-
ingjulagið í ár og komu fram mörg bráð-
skemmtileg og vel gerð lög, að því er fram
kemur á strandir.is. Troðfullur salur af
fólki fylgdist með og allir skemmtu sér
konunglega. Höfundar komu fram undir
dulnefnum þar til kosningu var lokið, en
áhorfendur 12 ára og eldri kusu sigurlagið
eftir að hafa heyrt lögin flutt.
Tólf ára
lagahöfundur
sigraði
Njarðvík | Reykjaneshöfn hefur leyst til
sín meltutankana sem hafa verið að grotna
niður við Njarðvíkurhöfn undanfarin ár og
er vinna hafin við að rífa þá.
Tankarnir við Njarðvíkurhöfn hafa ekki
verið í notkun í allmörg ár og hafa verið lýti
á umhverfinu. Bæjaryfirvöld hafa haft
áhuga á að láta fjarlægja tankana en ekki
hafa náðst um það samningar við eigendur
þeirra, fyrr en nú að Reykjaneshöfn tók til
baka lóðina og keypti eignirnar sem á
henni eru.
Að sögn Péturs Jóhannssonar hafnar-
stjóra borgar höfnin 11 milljónir kr. fyrir
eignirnar, það er fyrir tankana og fasteign
sem þar er. Einnig fá eigendurnir lóð í
Helguvík.
Strax var gengið til samninga við Hring-
rás um að fjarlægja tankana og þar sem
fyrirtækið var með tæki tilbúin í Reykja-
nesbæ var hægt að hefja verkið strax.
Áætlað er að um 500 tonn af málmi séu í
þessum sjö tönkum.
Tankarnir
í Njarðvík
fjarlægðir
♦♦♦
Vestmannaeyjar | Um hvítasunnuna
standa stofnanir Vestmannaeyjabæjar fyr-
ir fjölskyldudagskrá með stuðningi
margra aðila. Markmiðið er að efla og
hveta fjölskylduna til enn frekari samveru.
Meðal þess sem er í boði, eru göngur,
íþróttir, leikir, myndlist, tónlist, skák,
spranga og tuðruferðir. Fjölmargt annað
er í boði, jazzhátíð, Sjóstangaveiðimót,
golfmót og Eyja fest - tónleikar.
Fjölskylduhelgi í
Vestmannaeyjum
Fréttir í tölvupósti