Morgunblaðið - 30.05.2006, Page 34

Morgunblaðið - 30.05.2006, Page 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Björk Arn-grímsdóttir fæddist í Höfða í Glerárþorpi við Ak- ureyri 17. júní 1927. Hún andaðist á Landsspítala – Háskólasjúkrahúsi 17. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Arngrímur Jónsson frá Holta- koti í Reykjahverfi, f. 20. maí 1888, sem lést í vinnuslysi á Gefjun 5. janúar 1931 og Helga Sigríður Jónsdótt- ir, húsfreyja á Grímsstöðum og starfsmaður á Gefjun, f. í Geir- hildargörðum í Öxnadal 20. októ- ber 1891, d. 21. janúar 1972. Systkini Bjarkar eru: 1) Bára, f. 9. ágúst 1916, d. 15. feb. 1990, gift Jóni Guðjónssyni, 2) Guðrún Mar- grét, f. 9. mars 1919, d. 30. júní og Marta Karítas, f. 22. apríl 2003; Nína Björk, f. 6. maí 1975, gift Ársæli Aðalbergsyni, dætur þeirra eru Karen Sif, f. 26. októ- ber 1999 og Sigríður Sól, f. 27. maí 2003; Jón Grétar, f. 25. júní 1982, dóttir hans er Þórdís Birta, f. 26. september 2003. 2) Sævar, f. 3. ágúst 1953, dóttir hans er Hrafnhildur, f. 3. september 1973, gift Vali Erni Arnarsyni, börn þeirra eru Sævar Örn, f. 10. des- ember 1999 og Valgerður Ósk, f. 23. janúar 2002. 3) Helga Sjöfn, f. 9. febrúar 1955, gift Steingrími Þorvaldssyni, börn þeirra eru: Telma, f. 8. júlí 1976, gift Að- alsteini Sverrissyni, dóttir Telmu er Ársól Þorsteinsdóttir, f. 4. maí 2000; Axel, f. 28. október 1984 og Valgerður, f. 27. júlí 1987. 4) Þor- steinn, f. 10. apríl 1961, d. í októ- ber 1988. 5) Rannveig, f. 17. sept- ember 1965, gift Þórði Bogasyni, dætur þeirra eru: Gunnhildur, f. 16. apríl 1992, Björk, f. 14. des- ember 1994 og Steinunn, f. 28. júlí 2002. Útför Bjarkar verður gerð frá Laugarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. 2005, gift Brynjólfi Kristinssyni, 3) Jón Bergþór, f. 14. febr- úar 1925, d. 5. maí 2006, kvæntur Jón- ínu Axelsdóttur, 4) Bjarki, f. 17. júní 1927, kvæntur Hjör- dísi Jónsdóttur, 5) Rósa, f. 1929, d. 1930 og 6) Arngríma Rósa, f. 8. júní 1931, gift Jóni Sigurjóns- syni. Björk giftist 31. desember 1952 Guð- jóni Kristni Þorsteinssyni, bryta og kaupmanni, f. á Ísafirði 3. nóv- ember 1921. Björk og Guðjón eignuðust 5 börn, þau eru: 1) Haf- dís, f. 26. maí 1952, gift Þór Bragasyni, börn þeirra eru: Helga Sigríður, f. 26. október 1972, gift Ingibjarti Jónssyni, dætur þeirra eru Rebekka, f. 8. febrúar 1996 Það var yndislegt vorkvöld í vest- urbænum þegar tengdamóðir mín og vinkona, Björk Arngrímsdóttir, lagði upp í sína hinstu för. Kallið kom óvænt, fyrirvaralaust og það dró úr gleði vorkomunnar. Björk var fædd í Glerárþorpi við Eyjafjörð 17. júní 1927 og alin þar upp í húsinu Gríms- stöðum sem foreldrar hennar reistu. Tvíburabróðir hennar er Bjarki sem enn sækir sjóinn úr Sandgerðisbót- inni. Móðir hennar þurfti ein að sjá fyrir stórum barnahópi eftir að heim- ilisfaðirinn lést í vinnuslysi þegar Björk var barn að aldri og yngsta systir hennar, Arngríma Rósa, enn í móðurkviði. Ekki er að efa að sá vilji móður hennar að halda saman sínum barnahópi í miðri kreppunni, af eigin rammleik en einnig með hjálp fjöl- skyldu og góðra manna, hefur mótað viðhorf Bjarkar til þess sem skiptir máli í lífinu. Hún hlaut einnig víðsýni sína í móðurarf. Það er unnt að álykta frá því að þegar tvíburanir fæddust þótti við hæfi vegna fæðingardagsins að þau yrðu látin heita Jón og Ingi- björg. Björk og Bjarki voru framúr- stefnuleg nöfn á þeim tíma og til marks um sjálfstæði Helgu Sigríðar á Grímsstöðum. Eftir nám í Glerárskóla og hús- mæðraskólanum að Laugarlandi, auk kvöldnámskeiða í iðnskólanum, fór Björk ung að árum suður til Reykja- víkur og vann þar um sinn við þjón- ustu- og framreiðslustörf, meðal ann- ars í Skíðaskálanum og á Kommakaffi þar sem hún hitti helstu skáld sam- tímans. Hinn síðarnefndi starfsstaður hafði þó ekkert með hennar stjórn- málaskoðanir að gera. Öðru nær. Hún lét af þessum störfum þegar hún kynnist manni sínum, Guðjóni Kristni Þorsteinssyni, og hóf með honum bú- skap í borginni árið 1952 að Kirkju- teigi 19, þar sem þau bjuggu alla tíð. Fyrstu hjúskaparárin var Björk far- mannskona og oft langdvölum ein með börn sín lítil meðan Guðjón sigldi sem bryti á skipum Eimskipafélags- ins. Árið 1963 urðu mikil umskipti í lífi þeirra þegar Guðjón kom í land og Teigabúðin, sem var á jarðhæð íbúð- arhúss þeirra, var keypt. Rekstur Teigabúðarinnar varð því óumflýjan- lega samofin heimilislífinu, samstarfs- verkefni þeirra hjóna, allt þar til henni var lokað árið 1995. Í raun var hlutverk Bjarkar líkt og húsfreyju til sveita, hin ósýnilega hönd sem tryggir að allt gangi snuðrulaust fyrir sig í bú- rekstrinum. Björk lagði áherslu á að börnin hjálpuðu föður þeirra niðri búð en hún rak mötuneytið uppi í litla eld- húsinu sínu, minnsta plássið, mestur mannfjöldinn, mesta fjörið. Björk var samstíga manni sínum í að stunda úti- vist með fjölskyldunni. Á veturna var iðulega farið á skíði með allan hópinn og sumrin notuð til ferðalaga. Voru þau brautryðjendur í notkun hjólhýsa og um árabil var hjólhýsið samveru- staður fjölskyldunnar í fríum. Á síðari árum fór Björk gjarnan á gönguskíði eða hjólaði í Laugardalnum og alla tíð var hún röskur göngumaður. Hún hafði góðan smekk og lagði alltaf mik- ið uppúr því að vera vel til fara. Björk og Guðjón eignuðust fimm börn. Af óskilyrtri ást helgaði hún sig allt fram á síðustu stund velferð þeirra, barna þeirra og barnabarna. Þótt hún væri hvorki hávaxin né fyr- irferðamikil hafði Björk ákveðnar skoðanir og vildi stundum ráða ferð- inni. En hún var hollur ráðgjafi og sanngjarn. Sem yngstur tengdasona þeirra hjóna kom ég inn í stóra og samheldna fjölskyldu en það létti mér aðlögunina að okkur Björk varð strax vel til vina, líkt og gilti um samband hennar við hina tengdasyni sína. Þá veitti ég því athygli að stuðningur Bjarkar við börn sín var mikill. Kirkjuteigurinn var eins og umferð- armiðstöð og öll barnabörnin voru oft og reglulega hjá ömmu sinni og afa. Þótt ég vissi það ekki þá nutum við Rannveig og dætur okkar síðar þessa stuðnings í ríkum mæli. Við búferla- flutninga okkar með nýfæddan frum- burðinn til Brussel og síðar fæðingu dóttur þar ytra var aðstoð hennar ómetanlega. Það kom bara eitt nafn til greina á þetta stúlkubarn, Björk. Þegar heim var komið á ný skipti stuðningur hennar við okkur Rann- veigu sköpum, hvort sem var í námi, störfum eða frístundum. Hann var langt í frá sjálfsagður þótt þar styddi móðir dóttur sína og tengdason. Eldri barnabörn Bjarkar hafa einnig notið liðsinnis ömmu sinnar því oft var hún að passa langömmubörnin sem þótti gott að vera hjá ömmu Björk. Starf uppalandans verður seint ofmetið en er líklega vanmetið í okkar þjóðfélagi. Björk var uppalandi að aðalstarfi og lífsgleði hennar endurspeglaðist í ást hennar á æskunni. Laun Bjarkar fyr- ir þetta ævistarf var ást á henni af hálfu þeirra sem nutu. Þar í flokki eru dætur mínar og Rannveigar, Gunn- hildur, Björk og Steinunn, sem nú kveðja ömmu sína með söknuði og þakka stuðninginn og samfylgdina sem að ósekju hefði mátt vera lengri að þeirra mati. Lífið er blanda af gleði og sorg. Stærsta áfall í lífi Bjarkar var þegar yngri sonur hennar, Þorsteinn, fórst ásamt Kristni Rúnarssyni æskufélaga sínum við fjallgöngu í Nepal árið 1988. Það er hjartnæmt dæmi um móður- ástina hvernig Björk á sinn hógværa hátt hélt alla tíð minningu hans lifandi og það verða fagnaðarfundir þegar þau mæðgin nú hittast á ný. Björk var ljóðaunnandi. Tómas Guðmundsson var í uppáhaldi og til hans vísa upphafsorð þessarar grein- ar. Þau áttu það sammerkt að koma utan að landi og taka ástfóstri við Reykjavík. Tómas dró fram fegurð þess hversdagslega í borgarlífinu í ljóðum sínum og gaf því nýja merk- ingu sem því sæmdi. Minning Bjarkar er í raun lofsöngur um það sama, sönnun þess að það eru þau atriði í líf- inu sem við teljum ef til vill minnst og sjálfsögðust sem mestu skipta þegar upp er staðið. Að vera góð manneskja sem aðrir geta tekið sér til fyrirmynd- ar er ekki svo auðvelt eða sjálfgefið. Það eiga ekki allir ómælt rými fyrir elsku í hjarta sínu. En þannig mann- eskja var Björk, fyrirmyndarkona í alla staði. Síðustu börnin sem amma Björk passaði voru yngstu barnabörn henn- ar, dætur mínar og Rannveigar. Þeg- ar ég ók henni heim að kvöldi sunnu- dagsins fyrir andlát hennar, sem verið hafði sólríkur vordagur, var hún kát og hafði einlæglega notið samvist- anna við stelpurnar. Henni var þó of- arlega í huga líf og dauði því elskuleg- ur bróðir hennar Bergþór lést 5. maí sl. og hún var nýkomin úr jarðarför hans. Það var reiðarslag að frétta að strax næsta morgun var Björk flutt í skyndingu á sjúkrahús. Þar gafst þó fjölskyldunni tóm til að heimsækja hana og dvelja með henni þótt engan grunaði að kveðjustundin væri svo skammt undan. Ég og stelpurnar mínar heimsóttum ömmu Björk síð- degis á dánardægri hennar og áttum yndislega stund með henni ásamt dóttursyni hennar. Hún var hress í anda og hafði gaman af yngstu dótt- urdótturinni sem kom með vínber færandi hendi sem hún spændi svo upp í sig sjálf. Tómas minnir okkur á, í kvæði sínu Hótel Jörð, að þegar að lokastundinni kemur gefst ekki færi á að ráðstafa nokkru betur. Björk var áhyggjulaus og sátt við guð og menn. Ég get ekki ímyndað mér nokkuð sem hún hefði getað ráðstafað betur. Hún kvaddi með reisn. Það eru margir sem hefðu viljað geta kvatt hana á móti og þakkað samfylgdina, þar á meðal for- eldrar mínir og bróðir fyrir góðar stundir á hátíðardögum. Það er ekki á valdi mínu að sefa sorgina í huga tengdaföður míns, sem nú kveður sinn lífsförunaut, eða barna Bjarkar og barnabarna sem nú kveðja móður sína og ömmu. En þessi djúpa sorg sprettur eingöngu upp af mikilli ást, kærleika og þakklæti fyrir allar góðu stundirnar sem við nutum með henni. Þannig mun minning merkrar heiðurskonu, Bjarkar Arn- grímsdóttur, lifa sem minning um ást, kærleika og lífsgleði. Hjartans Björk, farðu í friði, góður Guð geymi þig. Þórður. BJÖRK ARNGRÍMSDÓTTIR Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Minningargreinar Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði LEGSTEINAR SteinsmiðjanMOSAIK Hamarshöfða 4 – sími 587 1960 www.mosaik.is Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Maðurinn minn, HÖRÐUR ÞORGEIRSSON húsasmíðameistari, Stigahlíð 88, Reykjavík, lést á Landakotsspítala sunnudaginn 28. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 8. júní kl. 15:00. Unnur Guðmundsdóttir. VIGDÍS HANNESDÓTTIR frá Hvoli, Vestmannaeyjum, Melbæ 23, lést sunnudaginn 28. maí. Útför auglýst síðar. Hannes Haraldsson, Elín Jónsdóttir, Ómar Haraldsson, Gréta Gunnarsdóttir, Ása Haraldsdóttir, Tómas Kristinsson. MARGRÉT FRIÐRIKSDÓTTIR ljósmóðir, Grettisgötu 46, Reykjavík, er látin. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Jóna V. Friðriksdóttir. Systir okkar og föðursystir, SÓLEY ÞORSTEINSDÓTTIR, Álfaskeiði 64b, Hafnarfirði, lést á Landspítala við Hringbraut mánudaginn 22. maí. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 1. júní kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Ó. Hafberg, Guðjón Kristinn Einarsson, Ingólfur Einarsson, Einar Þórir Dagbjartsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, PÁLÍNA SIGURRÓS GUÐJÓNSDÓTTIR frá Munaðarnesi, Strandasýslu, sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 24. maí, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 6. júní kl. 15.00. Guðlaug Jónsdóttir, Guðmundur G. Jónsson, Sólveig Jónsdóttir, Guðjón Jónsson, Sigríður Jakobsdóttir, Samúel Jónsson, Bjarney Georgsdóttir, Erla Jónsdóttir, Ágúst Skarphéðinsson, Ragnar Jónsson, Þórey Guðmundsdóttir, Anna Jónsdóttir, Kristján Kristjánsson, Jón E. Jónsson, Antonia Rodrigues, Ólöf B. Jónsdóttir, Reynir Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.