Morgunblaðið - 30.05.2006, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 37
AFMÆLI
Í DAG 30. maí er
tengdafaðir minn sr.
Gísli H. Kolbeins, Ás-
holti 32, Reykjavík, átt-
ræður.
Sr. Gísli fæddist í
Flatey á Breiðafirði, en
fluttist þaðan nokkurra
vikna að Stað í Súg-
andafirði. 1951 var sr.
Gísli vígður til prests og
tók við embætti sóknar-
prests í Sauðlauksdal.
Hann þjónaði síðan
Melstaðarprestakalli
frá 1954 til 1977 og
Stykkishólmi frá 1977
til 1992, en þá fór sr. Gísli á eftirlaun.
Í Sauðlauksdal og á Melstað var
sr. Gísli með búskap með embætt-
isstörfum sínum, en þegar hann tók
við embætti í Stykkishólmi fékk
hann sér trillu og stundaði eggjatöku
og nýtti æðardún í Breiðafjarðareyj-
um eins og forfeður hans gerðu. Eft-
ir það leysti hann af víða um land, en
hefur undanfarin ár stundað fræði-
störf, og hefur m.a. rannsakað og
skrifað rit um Vatns-
enda-Rósu, störf henn-
ar og ævi.
Sr. Gísli er sonur sr.
Halldórs Kolbeins og
frú Láru Ágústu Kol-
beins. Eiginkona sr.
Gísla er frú Sigríður I.
Bjarnadóttir Kolbeins
frá Brekkubæ í Nesj-
um. Þau eiga fimm
börn,12 barnabörn og
3 barnabarnabörn.
Ég kynntist sr.
Gísla 1974 og 1976 gaf
hann mig og eldri dótt-
ur sína Önnu Láru
saman, hélt okkur veglega brúð-
kaupsveislu og var heimanmundur-
inn rauður gæðingur. Þetta gera að-
eins stórhöfðingjar.
Fyrir hönd fjölskyldu minnar óska
ég þér innilega til hamingju með af-
mælið kæri tengdapabbi. Megir þú
lengi lifa.
Sr. Gísli dvelur á afmælisdaginn
fyrir austan fjall við fræðistörf.
Halldór Bergmann.
GÍSLI H. KOLBEINS
ÁTTRÆÐUR
ANDI Ólympíuleika er að þátt-
takendur eru allir sigurvegarar, það
skiptir meira máli að vera með en að
vinna. Kannski er þessi frasi afsök-
un fyrir þá sem ná skammt í keppni
og að því leytinu til minnir það á
frambjóðendur í kosningum sem að
þeim loknum líta allir á sig sem sig-
urvegara. Hvernig sem á það er litið
er gott að hafa þessa jákvæðu hug-
mynd í undirmeðvitundinni þegar
erfiðleikar steðja að í keppni.
Á þetta er minnst þar sem ís-
lenska liðið í opnum flokki á Ólymp-
íuskákmótinu í Tórínó á Ítalíu virð-
ist þurfa á jákvæðum straumum að
halda eftir risastórt tap fyrir sveit
Filippseyinga í sjöundu umferð
mótsins. Fram að þessari viðureign
hafði gengi íslenska liðsins verið vel
viðunandi. Góður sigur vannst á
Chile í annarri umferð, 3–1, þar sem
Jóhann Hjartarson (2.619) vann
sína skák en þetta var fyrsta skák
hans á Ólympíumóti síðan hann
gerði jafntefli við rússneska ofur-
stórmeistarann Peter Svidler í loka-
umferð mótsins í Armeníu árið 1996.
Í þriðju umferð stóð Jóhann sig
einnig vel þegar hann gerði jafntefli
með svörtu gegn víetnamska stór-
meistaranum Nguyen Anh Dung
(2.542) á meðan kollegar hans
Hannes Hlífar (2.579) og Helgi
Ólafsson (2.521) unnu sínar skákir
en Þröstur Þórhallsson (2.448) tap-
aði.
Síðan þá hefur Jóhann ekki séð til
sólar á mótinu en hann hefur tapað
þremur skákum gegn öflugum stór-
meisturum. Þó að gengi Jóhanns
hafi verið slakt tefldu Hannes Hlíf-
ar, Helgi Ólafsson og Stefán Krist-
jánsson (2.480) mjög vel framan af
og tryggðu þeir að sveitin héldi sjó
þar til að liðið tapaði 1½–2½ gegn
Indónesíu í sjöttu umferð en þá
fengu fyrrnefndir þremenningar
eingöngu hálfan vinning á meðan
Þröstur Þórhallsson bjargaði andliti
sveitarinnar með baráttusigri á
fjórða borði. Í viðureigninni gegn
Filippseyingum stóð ekki steinn yfir
steini og var stórmeistarinn Henrik
Danielsen (2.521) sá eini sem náði
hálfum vinningi gegn sókndjörfu
Asíubúunum.
Íslenska liðið er í 59.–66. sæti
með 15 vinninga og í áttundu um-
ferð mætir liðið sveit Albana og má
búast við að sú viðureign og næstu
tvær til viðbótar skeri úr um hvort
íslenska liðið eigi raunhæfa mögu-
leika að verða á meðal þeirra tutt-
ugu bestu en alls verða tefldar 13
umferðir á mótinu.
Í opnum flokki er lið Armena í
efsta sæti með 21 vinning en Levon
Aronjan (2.756) teflir þar á fyrsta
borði. Hann hefur staðið sig vel og
eingöngu tapað einni skák, fyrir
endurnærðum Vladimir Kramnik
(2.729) sem teflir fyrir lið Rússa.
Kramnik lagði á sínum tíma Kasp-
arov að velli í einvígi en hefur und-
anfarin ár átt erfitt uppdráttar. Í
Tórínó hinsvegar hefur hann verið
að sýna gamla og góða takta sem
hefur hjálpað stigahæstu sveit
keppninnar að halda sér í toppbar-
áttunni og eru Rússarnir nú í öðru
sæti með 20 vinninga.
Íslenska kvennaliðið hefur staðið
sig prýðilega á mótinu til þessa en
það hefur 9½ vinning af 21 mögu-
legum að sjö umferðum loknum og
er í 64.–73. sæti. Lenka Ptácníková
(2.183) hefur 3½ vinning að loknum
sex skákum en Guðlaug Þorsteins-
dóttir (2.138) hefur 4 vinninga. Þær
standa sig báðar betur en stig
þeirra segja til um en Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir (2.013) og Sig-
urlaug Friðþjófsdóttir (1.876) hafa
ekki verið jafn farsælar. Lið Rússa
er efst í kvennaflokki með 17½ vinn-
ing en næst á eftir þeim kemur lið
Úkraínu með 16½ vinning.
Á netinu er hægt að fylgjast með
gangi mála í Tórínó enda eru skák-
irnar sýndar í beinni útsendingu á
heimasíðu mótshaldaranna, http://
www.chessolympiad-torino2006.org.
Jafnframt er á www.skak.is að finna
alla þá hlekki sem nauðsynlegir eru
til að fá upplýsingar um keppnina.
Þar er m.a. hægt að nálgast blogg
liðsstjóra íslenska liðsins í opnum
flokki en óhægt er að segja að það
sé mikil skemmtilesning enda er
Björn Þorfinnsson liðtækur penni í
meira lagi. Af skrifum hans að
dæma eru híbýli keppenda ekki eins
góð og vonir stóðu til en eigi að síð-
ur er ólympíumótsandanum haldið
vel við enda hittast þar manneskjur
frá langflestum löndum heims og fá
að kynnast ólíkum þankagangi, lífs-
gildum og menningu.
Já, rétt eins og í kosningum, eru
allir sigurvegarar á Ólympíuleikum.
Við erum öll sigurvegarar!
Morgunblaðið/ÓmarMorgunblaðið/Ómar
Stefán Kristjánsson og Guðlaug Þorsteinsdóttir hafa fengið flesta vinninga
íslensku keppendanna á ÓL.
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is
SKÁK
Tórínó á Ítalíu
20. maí–4. júní 2006
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ 2006
FRÉTTIR
ÚTSKRIFT Iðnskólans í Hafnarfirði
fór fram 20. maí sl. í Fríkirkjunni í
Hafnarfirði.
54 nemendur luku námi á þessu
vori, 37 konur og 17 karlar. 30 í
löggiltum iðngreinum og 24 í
tækniteiknun, listnámi og af
útstillingabraut. Í þessum hópi er
einn sem lýkur námi af tveimur
brautum, bæði rennismíði og vél-
virkjun, og einn nemandi sem jafn-
framt lýkur stúdentsprófi af list-
námsbraut. Verðlaun fyrir hæstu
einkunn á burtfararprófi komu í
hlut Höllu Sigmarsdóttur tækni-
teiknara.
Jóhannes Einarsson skólameist-
ari sagði meðal annars að í ár væru
merk tímamót í sögu skólans því 50
ár væru síðan Iðnaðarmannafélagið
hætti rekstri hans og ríki og bær
tóku við rekstrinum, og fyrstu nem-
endur brautskráðust frá dagskóla,
en Iðnaðarmannafélagið hafði
ávallt rekið skólann sem kvöldskóla.
Nemendur skólans stóðu sig vel í
hönnunarsamkeppninni Sumar
2006 og fengu fimm af sex verðlaun-
um.
Einnig tókust á þessu skólaári
samningar á milli verkfræðideildar
Háskóla Íslands og Iðnskólans um
að skólinn tæki að sér að kenna
véla- og iðnaðarverkfræðinemum
rennismíði, CNC-tölvutækni og
plötusmíði.
54 nemar brautskráðir frá
Iðnskólanum í Hafnarfirði
MENNTASKÓLINN í Kópavogi, út-
skrifaði 245 nemendur, í Digra-
neskirkju 26. maí sl. Alls 62 stúd-
entar, 28 iðnnemar og 5 nemar af
heimilisbraut. Þá brautskráðust 26
ferðafræðinemar, 37 leiðsögumenn,
38 nemar af skrifstofubraut, 28
nemar úr hagnýtu viðskipta- og
fjármálagreinanámi, 12 matsveinar
og 8 nemar úr meistaraskóla mat-
vælagreina sl. miðvikudag 24. maí.
Auk þess 1 nemi af starfsbraut ein-
hverfra.
Víðir Smári Petersen nýstúdent
útskrifaðist frá MK með afburðaár-
angri af félagsfræðibraut en Víðir
Smári er aðeins 18 ára. Hann lauk
MK á 3 árum en hann hafði lokið
grunnskólanámi einu ári fyrr en
venja er.
Í ræðu Margrétar Friðriksdóttur
skólameistara kom m.a. fram að á
skólaárinu hefur verið í gangi um-
fangsmikil vinna að undirbúningi
og innleiðingu á gæðastjórn-
unarkerfi skv. ISO 9001 sem er al-
þjóðlegur staðall um gæðastjórn-
unarkerfi og þær kröfur sem þarf
að uppfylla. Stefnt er að því að
sækja um vottun á kerfinu á árinu.
Ljósmynd/Jón Svavarsson
245 nemar brautskráðir frá MK
VÁTRYGGINGAFÉLAG Íslands
og knattspyrnufélagið Fram hafa
framlengt samning sinn og var hann
undirritaður fyrir nokkru þegar
fulltrúar VÍS komu í heimsókn í
Framheimilið.
Myndin var tekin við undirritun.
Frá vinstri: Brynjar Jóhannesson
framkvæmdastjóri Fram, Finn-
björn Agnarsson formaður stjórnar
Fram, fótboltafélags, Ásgeir Bald-
urs framkvæmdastjóri VÍS og Auð-
ur Björk Guðmundsdóttir kynning-
arfulltrúi VÍS. Leikmenn Fram eru,
frá vinstri: Jónas Grani Garðarsson,
Eydís Blöndal, Gunnar Sigurðsson,
Daði Guðmundsson og Axel Arnar
Finnbjörnsson.
VÍS og knattspyrnufélagið
Fram framlengja samning