Morgunblaðið - 30.05.2006, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2006 47
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Sími - 551 9000
X-Men kl. 6, 8.30 og 10.50 B.i. 12 ára
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Hoodwinked/Rauðhetta m. ensku tali kl. 6 og 10
Rauðhetta/Hoodwinked m. ísl. tali kl. 6
Cry Wolf kl. 8 B.i. 16 ára
Prime kl. 8 og 10.15
Þau bjuggu til morðingja sem
snerist gegn þeim…!
eee
H.J. Mbl
Mannbætandi og þrælfyndin rómantísk
gamanmynd með með Uma Thurman
og Meryl Streep í fantaformi!
50.000 gestir!
-bara lúxus
Sýnd kl. 5, 8 og 10:50 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 6 B.i. 10 ára
Salma hayekpénelope cruz
eeee
-LIB, Topp5.is
eeee
-MMJ kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8 B.i. 16 ára
LEITIÐ SANNLEIKANS - HVERJU TRÚIR ÞÚ?
Sýnd kl. 6, 8 og 10:10 B.i. 12 ára
eee
VJV - TOPP5.is
eee
S.V. MBL.
LOKAUPPGJÖRIÐ Í HINUM STÓRKOSTLEGA X-MEN SAGNABÁLKI.
NÚNA MUNU HINIR STÖKKBREYTTU BERJAST INNBYRÐIS
MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ?
www.xy.is
200 kr afsláttur
fyrir XY félaga
eee
V.J.V.Topp5.is
eee
D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM
„...einn útsmognasti, frumlegasti
og vitrænasti spennutryllir ársins“
eeee- SV, MBL
„...gleðitíðindi fyrir unnendur
góðra trylla.“ - FGG, Fréttablaðið
EFTIRSÓTTUSTU
BANKARÆNINGJAR
VILLTA VESTURSINS
ERU MÆTTIR
FRÁBÆR
GRÍNSPENNU-
MYND FRÁ
SNILLINGNUM
LUC BESSON
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Extra sterkt
Lið-a-mót
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
SöngkonanRagnheiður
Gröndal og
trúbadorinn
Helgi Valur
verða með tón-
leika í Hvera-
gerðiskirkju í
kvöld. Þar munu
þau flytja frum-
samið efni ásamt tökulögum, spila
saman og í sitt í hvoru lagi. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20 og kostar 1.500
kr. inn. Sérstakur gestur er Magnús
Þór Sigmundsson tónlistarmaður.
Að sögn Helga Vals eru tónleikarnir
liður í að efla menningarlíf Hvera-
gerðisbæjar og þá er Ragnheiður
Gröndal á leið til Bandaríkjanna í
nám og því fer hver að verða síð-
astur til að hlýða á söngkonuna áður
en hún heldur yfir hafið.
Fólk folk@mbl.is
Fegurðardrottning Íslands 2006,Sif Aradóttir, mun verða fulltrúi
Íslands í keppninni um ungfrú alheim
(Miss Universe) í Los Angeles þann
23. júlí næstkomandi. Fegurðar-
samkeppni Íslands hefur ekki sent
keppanda í keppnina frá árinu 2003,
þegar Manúela Ósk Harðardóttir var
fulltrúi Íslands, en þurfti að hætta
keppni vegna veikinda, aðeins tveim-
ur dögum fyrir aðalkeppnina. Ásdís
Svava Hallgrímsdóttir, sem hafnaði í
2. sæti, keppir fyrir hönd Íslands um
titilinn ungfrú heimur (Miss World)
sem fram fer í Varsjá, Póllandi, 30.
september á þessu ári og Jóna Krist-
ín Heimisdóttir ferðast alla leið til
Kína til að keppa í ungfrú þverálfa
(Miss Intercontinental) í ágúst.
Fyrirhugðumtónleikum
plötusnúðanna
GZA og Muggs
sem vera áttu á
Gauki á Stöng
hinn 2. júní
næstkomandi hefur verið frestað,
en upphaflega áttu þeir að vera
annað kvöld. Í fréttatilkynningu
segir að ekki hafi tekist að bóka
tengiflug til Íslands frá Bandaríkj-
unum í tæka tíð, en þeir félagar
munu einnig halda til Rússlands
til tónleikahalds. Ný dagsetning
tónleikanna verður tilkynnt síðar.
Tilefni tónleikanna er fimm ára
afmæli Kronik Entertainment sem
hipp hopp-frömuðurinn Robbi
Kronik stendur fyrir.
GZA hefur getið sér gott orð
bæði undir eigin nafni, en einnig
sem meðlimur hinnar heims-
þekktu rappsveitar Wu Tang
Clan.
DJ Muggs er þekktastur sem
maðurinn á bak við rappsveitina
Cypress Hill sem sló í gegn með
plötunni Black Sunday árið 1993.
BANDARÍSKI leikarinn Paul Gleason lést í Burbank í
Kaliforníu á laugardaginn, 67 ára að aldri. Banamein
hans var lungnakrabbamein. Gleason lék í rúmlega
60 kvikmyndum um ævina, en þeirra þekktastar eru
Die Hard, Van Wilder og The Breakfast Club. Þá kom
hann fram í fjölda sjónvarpsþátta, þar á meðal
Friends og Seinfeld.
Gleason fæddist í Miami þann 4. maí árið 1944.
Hann lagði stund á hafnarbolta áður en hann gerðist
leikari á sjöunda áratug síðustu aldar. Það var eig-
inkona hans, Susan Gleason, sem tilkynnti um lát
hans. „Það var aldrei leiðinlegt að vera með Paul.
Hann var frábær maður,“ sagði hún meðal annars í
yfirlýsingunni.
Bandaríski
leikarinn Paul
Gleason látinn
Paul Gleason lék í yfir 60 kvikmyndum um ævina og
kom fram í fjölda sjónvarpsþátta.
AP
Það fór vel á með þeimKeanu Reeves og RobertDowney Jr. á nýafstaðinnikvikmyndahátíð í Cannes
en þar kynntu þeir nýjustu mynd
sína, A Scanner Darkly undir leik-
stjórn Richard Linklater. Myndin er
byggð á framtíðarskáldsögu Philip
K. Dick frá 1977 og fjallar um fólk
sem verður háð nýrri tegund eitur-
lyfja sem leiða til ofsóknarbrjálæðis
og ofskynjana.
Loðnir inniskór
Robert Downey Jr., sem lengi
hefur átt í baráttu við eitur-
lyfjanotkun, sló um sig með glettinni
hæðni þegar hann ræddi myndina
við blaðamenn. Sagði hann loðna,
bleika inniskó sem hann klæddist á
meðan á tökum stóð hafa nýst hon-
um hvað best í hlutverki hans í
myndinni. „Reyndar fyrir utan þau
25 ár sem ég hef lagt í rannsóknir á
eiturlyfjum,“ bætti hann við. En
hvað varðaði ofskynjarnir sem
fylgdu neyslunni sneri hann út úr:
„Stundum er reyndar einhver inni í
skáp.“
Keanu Reeves talaði hins vegar
um eiturlyfjaneyslu sem tvíeggjað
sverð. „Og vonandi detturðu ekki á
það eða þá meiðir aðra,“ sagði
Matrix-stjarnan sem er í raun svolít-
ið sveitastrákslegur, sýnilega víðles-
inn og vingjarnlegur í fótlaga skóm.
Teiknað yfir myndina
A Scanner Darkly er óvenjuleg
mynd að því leytinu að hún er leikin
en svo er teiknað yfir myndina
þannig að áhorfandinn sér teikni-
mynd, þó með þekktum leikurum en
auk Downey og Reeves leika Woody
Harrelson og Winona Ryder í
myndinni. Leikstjórinn Richard
Linklater sagði forvinnslu mynd-
arinnar hafa tekið gríðarmikinn
tíma. Tekið hefði 500 klukkustundir
að teikna hverja mínútu af myndinni
í tölvum.
Á tvær í Cannes
Sagðist hann hafa átt í vandræð-
um með að fá fjármögnun fyrir
myndina þar sem um væri að ræða
teiknimynd fyrir fullorðna. „Það
vildi enginn gera þessa mynd með
mér en þegar ég var búinn að fá
Keanu og hina leikarana til liðs við
mig, þá var eins og handritið hefði
skánað til muna,“ sagði Linklater í
skoti á amerísku kvikmyndaverin. A
Scanner Darkly keppti ekki um
Gullpálmann en var í flokki mynda
sem sérstök athygli var vakin á.
Linklater átti þó mynd í aðalvali há-
tíðarinnar, Fast Food Nation, og er
sennilega fyrsti leikstjórinn sem
hefur fengið tvær mynda sinna
valdar inn á sömu hátíðina í Cannes.
Kvikmyndir | A Scanner Darkly var kynnt í Cannes
Eiturlyf og ofskynjanir
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Leikstjórinn Richard Linklater ásamt Robert Downey Jr. og Keanu
Reeves, stjörnunum í nýrri mynd hans.
Eftir Soffíu Haraldsdóttur í Cannes
soffia@islandia.is
Breska tvíeykið Wham! kemursaman á ný í sumar ef
marka má ástralska dagblaðið
Daily Telegraph. Söngvarinn al-
ræmdi George Michael hefur
sagt að hann vilji hitta hinn síður
eftirminnilega helming sveit-
arinnar, Andrew Ridgeley, og
flytja með honum lagið „Last
Christmas“.
Tuttugu ár eru síðan fé-
lagarnir komu fram saman í síð-
asta sinn á Wembley leikvell-
inum í London. Þar flutti
hljómsveitin lagið sígilda, „Last
Christmas“ og segir George
Michael að hann vilji gjarnan
endurtaka leikinn.
Fólk folk@mbl.is