Morgunblaðið - 03.08.2006, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NEYSLA DREGST SAMAN
Fleiri vísbendingar sjást um að
einkaneysla sé farin að dragast sam-
an. Sala á nýjum bílum dróst saman
um 23% í júlí sé miðað við sama tíma
í fyrra. Veltan á íbúðamarkaði á höf-
uðborgarsvæðinu hefur einnig dreg-
ist saman um 30% ef bornir eru sam-
an júlímánuðir ársins 2005 og 2006.
Gróðahyggja ráði för
Skammtímahagsmunir og gróða-
hyggja ráða í auknum mæli um
ákvarðanir stórra fyrirtækja í
starfsmannamálum á kostnað laun-
þega og samfélagsins í heild. Þetta
segir Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,
varaforseti ASÍ. Hún telur að setja
eigi reglur um félagslega ábyrgð
fyrirtækja og fjárfesta.
Vilja flytja sumarhús sín
Sumarhúsaeigendur í Skorradal
skoða nú möguleika á því að flytja
sumarhús sín af svæðinu vegna þess
sem þeir kalla afarkosti sem nýir
landeigendur hafi sett. Landeig-
endur hafi í huga að selja lóðirnar á
verði sem sé langt yfir markaðs-
verði.
Óttast að 10.000 hafi farist
Óttast er að allt að 10.000 manns
hafi farist í flóðum í Norður-Kóreu
sem yfirvöld segja þau verstu í heila
öld. Talið er að 1,5 milljónir manna
hafi misst heimili sín. N-kóreski
Rauði krosinn hafnaði aðstoð frá
þeim suður-kóreska og sagðist ætla
að sjá sjálfur um neyðaraðstoðina.
Hizbollah herðir árásirnar
Liðsmenn Hizbollah í Líbanon
skutu í gær 230 flugskeytum á Ísrael
og hafa ekki skotið jafnmörgum
flugskeytum á einum degi frá því að
átök þeirra og Ísraelshers hófust
fyrir rúmum þremur vikum. Árásir
Hizbollah náðu jafnframt lengra inn
í Ísrael en áður.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 30/37
Úr verinu 14 Minningar 31/37
Erlent 14/15 Myndasögur 40
Minn staður 16 Víkverji 40
Höfuðborgin 17 Dagbók 40/43
Akureyri 18 Staður og stund 42
Landið 19 Leikhús 44
Menning 20/21 Bíó 46/49
Daglegt líf 22/25 Ljósvakamiðlar 50
Forystugrein 26 Veður 51
Viðhorf 28 Staksteinar 51
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
MS drykkjarvörur í ferðalagið
MS mjólkurdrykkirnir eru prótein- og kalkríkir og stútfullir
af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í
handhægum umbúðum í næstu verslun.
MÁLEFNI Ísraels og Líbanons
voru rædd á fundi sem haldinn var í
utanríkismálanefnd Alþingis í gær.
Að sögn Halldórs Blöndal, þing-
manns Sjálfstæðisflokks og for-
manns nefndarinnar, var fundurinn
boðaður að ósk Steingríms J. Sigfús-
sonar, formanns Vinstri grænna,
sem sæti á í nefndinni. Steingrímur
lagði fram tillögu á fundinum sem fól
m.a. í sér að utanríkismálanefnd
krefðist þess að Ísraelar féllust án
skilyrða og tafarlaust á vopnahlé og
hættu öllum hernaðaraðgerðum í
Líbanon og á sjálfsstjórnarsvæðum
Palestínumanna. Tillagan var ekki
samþykkt á fundinum. Segir Halldór
að eftir hann hafi verið ákveðið að
hittast á nýjan leik. Ekki hafi verið
tekin endanleg ákvörðun um hvort
utanríkisráðherra verði boðaður á
næsta fund nefndarinnar.
Spurður hvort ekki liggi á að
nefndin taki afstöðu til málsins
vegna stöðunnar í Líbanon bendir
Halldór á að ríkisstjórnin hafi ritað
utanríkisráðherra Ísraels bréf og Ís-
lendingar hafi staðið að ályktun Evr-
ópusambandsins um málið. „Þar
kemur okkar skoðun glöggt fram,“
segir hann.
Bréfið til ísraelska utan-
ríkisráðherrans meingallað
Steingrímur J. Sigfússon segist
helst hafa viljað að nefndin hefði lát-
ið eitthvað til sín taka í þessu máli nú
því skelfilegir atburðir eigi sér stað í
Líbanon, en málið sé þó áfram á dag-
skrá hennar.
Hann segir tillögu sína hafa verið
þríþætta. Í henni hafi verið vísað í
fyrri samþykktir Alþingis um deilur
Ísraels og Palestínumanna frá 18.
maí 1989 og 30. apríl 2002, en Alþingi
hafi sjálft mótað talsvert stefnu Ís-
lands í þessum efnum, ekki síst með
þessum tveimur samþykktum. Sú
fyrri hafi verið býsna framsækin á
sínum tíma, „en þar var Ísland að
skipa sér í fremstu röð ríkja sem við-
urkenndu sjálfsákvörðunarrétt pal-
estínsku þjóðarinnar og rétt flótta-
manna til að snúa til baka og mælti
með vinsamlegum samskiptum við
PLO [Frelsissamtök Palestínu]“,
segir Steingrímur.
Í tillögunni hafi verið lagt til að ut-
anríkismálanefnd krefjist þess að
Ísraelar falli án skilyrða og tafar-
laust á vopnahlé og jafnframt að rík-
isstjórnin beiti sér á alþjóðavett-
vangi fyrir hinu sama og berjist m.a.
fyrir því að allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna verði kallað saman.
Málefni Ísraels og Líbanons rædd á fundi utanríkismálanefndar Alþingis
Tillaga um að krefja Ísraela
um vopnahlé ekki samþykkt
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
Steingrímur J.
Sigfússon
Halldór
Blöndal
„KARLMENN segja NEI við
nauðgunum“ er yfirskrift kynn-
ingarátaks sem karlahópur
Femínistafélags Íslands og
V-dagssamtökin standa nú fyrir
fjórðu verslunarmannahelgina í
röð. Fulltrúar samtakanna hittust
á Miklatúni í gær og hentu svif-
diskum og spiluðu blak til að
undirstrika skemmtanagildi úti-
hátíða.
„Verslunarmannahelgin á að
vera skemmtileg og það má ekki
gleymast í umræðunni um nauðg-
anir og ofbeldi,“ segir Gísli Hrafn
Atlason hjá karlahópi Femínista-
félagsins. „En við viljum fá karla
til að tala saman og auka um-
ræðuna um þessi mál,“ bætir
hann við.
„Auðvitað eru allir á móti
nauðgunum ef karlar eru spurðir
að því, en margir hafa hins vegar
ranghugmyndir um ýmis grá
svæði. Margir telja t.d. í lagi að
nýta sér áfengissljóleika stúlku
til að hafa mök við hana en að
sjálfsögðu er það einnig nauðg-
un,“ segir Gísli.
Beinist gegn gerendum
„Þetta er í fimmta skiptið sem
V-dagssamtökin standa fyrir
átaki gegn nauðgunum. Áður
voru umræður um nauðganir oft
á þann veg að konur þyrftu að
vara sig,“ segir Hildur Sverr-
isdóttir, framkvæmdastjóri sam-
takanna. „Slík umræða er góð og
blessuð enda er ekkert að því að
vera varkár, en hins vegar höf-
um við beint áróðri okkar gegn
gerendunum sem eru yfirleitt
karlmenn. Það eru nauðgararnir
sem bera ábyrgð á gjörðum sín-
um og þess vegna eru það þeir
sem þurfa að segja nei við
nauðgunum,“ segir Hildur.
Til að koma fræðslunni til skila
verða fulltrúar frá karlahópnum
fyrir utan nokkrar verslanir
ÁTVR, Flugstöð Reykjavíkur,
BSÍ og á þjóðhátíðinni í Vest-
mannaeyjum og dreifa þar
bæklingum og barmmerkjum auk
þess að ræða við fólk. Einnig
hafa birst auglýsingar á strætó-
skýlum með slagorðinu „Ertu
klikkaður í rúminu?“.
„Við reynum að höfða til karl-
manna með kaldhæðnislegum at-
hugasemdum, og þetta nýja slag-
orð er gott dæmi um það,“ segir
Hildur en auglýsingin hefur
fengið góð viðbrögð og var með-
al annars tilnefnd til íslensku
auglýsingaverðlaunanna fyrr á
árinu.
Morgunblaðið/Eggert
Fulltrúar karlahóps Femínistafélagsins og V-dagssamtakanna henda svifdiskum á Miklatúni.
Höfðað til karla með kald-
hæðnislegum athugasemdum
ÞRJÁR björgunarsveitir tóku þátt í
leit að ungum manni í Kollafirði á
Ströndum í gær og voru um 40
björgunarsveitarmenn auk lögreglu
á svæðinu sem leituðu. Maðurinn
fannst á tólfta tímanum í gærkvöldi
en þá hafði leit staðið yfir síðan
klukkan hálfátta um kvöldið. Hópur,
sem maðurinn tilheyrði, lagði upp í
göngu klukkan hálftvö um daginn
en maðurinn varð viðskila við hóp-
inn. Þegar björgunarsveitarmenn
fundu manninn seint í gærkvöldi
hafði hann gengið töluverða vega-
lengd frá þeirri leið sem hópurinn
hafði gengið en samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Hólmavík
varð manninum þó ekki meint af.
Maður fannst eftir
leit í Kollafirði
ÁREKSTUR varð milli bifhjóls og
fólksbifreiðar á tólfta tímanum í
gærkvöldi. Tildrög slyssins eru
óljós en samkvæmt upplýsingum
frá Lögreglunni í Reykjavík voru
áverkar minniháttar og slapp bif-
hjólamaðurinn óskaddaður. Árekst-
urinn varð á Hringbraut nærri Bif-
reiðastöð Íslands (BSÍ).
Árekstur
á Hringbraut