Morgunblaðið - 03.08.2006, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 03.08.2006, Qupperneq 20
KAMMERTÓNLEIKAR á Kirkju- bæjarklaustri eru í vændum. Þeir verða haldnir dagana 11., 12. og 13. ágúst. Á þessari þriggja daga löngu hátíð verður boðið upp á marg- víslega klassíska tónleika. Tónleikarnir hafa skipað fastan sess í íslensku tónlistarlífi í fjölda ára, og það hefur verið vinsælt hjá tónlistarunnendum að gista í ná- grenni Kirkjubæjarklausturs og njóta náttúrufegurðar og tónlistar. En nú bregður svo við að frum- kvöðull hátíðarinnar og listrænn stjórnandi hennar síðastliðinn fimmtán ár, Edda Erlendsdóttir, hefur ákveðið að draga sig í hlé. Í ár mun því nýr listrænn stjórnandi annast hátíðina og fyrir valinu varð mezzósópransöngkonan Guðrún Jó- hanna Ólafsdóttir. Yngri kynslóð á hátíðinni Guðrún segir það hafa komið flatt upp á sig að hafa orðið fyrir valinu. „Á síðasta ári sóttist ég eftir því að fá að syngja á tónleikunum, en þá var Edda búin að skipuleggja hátíð- ina. Hún bað mig svo nokkrum mánuðum síðar að taka við sem list- rænn stjórnandi, sem kom mér mjög á óvart. Edda hefur haft mjög metn- aðarfulla dagskrá á hátíðinni, þau fimmtán ár sem hún hefur verið haldin, og ég sá að þetta væri spennandi verkefni að takast á við. Ég ákvað að hafa fyrst samband við þá listamenn sem ég vildi vinna með og ákvað út frá þeim og þeirra hugmyndum hvaða dagskrá við myndum flytja.“ Guðrún setti sig í samband við Víking Heiðar Ólafsson píanóleik- ara, Eyjólf Eyjólfsson tenórsöngv- ara, Stefán Jón Bernharðsson horn- leikara, Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara og Francisco Javier Jáuregui gítarleikara. Þau munu flytja dagskrá hátíðarinnar eftir viku ásamt Guðrúnu. „Þetta er mjög góður hópur sem ég er að vinna með. Við sem komum fram erum öll af yngri kynslóð tón- listarmanna, sem kann að vera breyting frá því sem áður var. Tón- listarmenn voru oftar á öllum aldri, þegar Edda skipulagði hátíðina.“ Hópurinn mun annast alla dag- skrána á þessari kammerhátíð, í mismunandi samsetningum hljóð- færa og radda. Verkin spanna langt tímasvið: frá 16. öld og allt til þessa árs. „Við munum til að mynda leika frægt verk eftir ungverska tón- skáldið Ligeti í fyrsta skipti hér á landi, en það er horntríó frá árinu 1982. Einnig eru á dagskrá verk eftir Schubert, Ravel, Chopin, Tarragó og Þorkel Sigurbjörnsson. Svo flytjum við ljóðaflokkinn Haugtussa og Vorið eftir Grieg; síð- ara verkið í gullfallegri þýðingu Þorsteins Gylfasonar.“ Eru breytingar í vændum hjá þér sem listrænn stjórnandi? „Ég verð bara við stjórnvölinn í ár, en síðar meir ákveður sveitarfé- lagið hver tekur við svo við í fram- haldinu. Fram til þessa hefur þetta verið mjög þægilegt vinnuumhverfi og vel skipulagt af menningar- málanefnd Skaftárhrepps.“ Værirðu til í að halda áfram með hátíðina? „Ég verð bara að líta yfir farinn veg þegar hátíðin er búin og svara þessu þá,“ svarar Guðrún brosandi. Kynnir spænska menningu Guðrún Jóhanna segist alltaf hafa sungið mikið sem barn auk þess sem hún tók þátt í leikritum frá því hún var níu ára. Hún var meðal annars í sýningum Þjóðleikhússins, Leikfélags Akureyrar og Leikfélags Menntaskólans við Hamrahlíð. „Ég fór ekki í alvarlegt söngnám fyrr en ég varð 19 ára, en fann þá strax að það ætti mjög vel við mig og að þar lægi framtíð mín.“ Tónlistarskólinn í Reykjavík var fyrsti viðkomustaður, en hún lauk þaðan námi árið 2000. Eftir það fór hún í mastersnám í óperudeild Gu- ildhall School of Music and Drama í London, og kláraði það árið 2003. Hún hefur einnig sótt einkatíma hjá söngkonunni Aliciu Nafé í Madríd. Guðrún hefur nokkur tengsl við Spán, en hún er gift spænskum manni. Hún bar einnig sigur úr být- um hinn 1. júní sl. í virtri tónlist- arkeppni á Spáni, kenndri við Joa- quín Rodrigo. „Ég þurfti þá að syngja mörg verk eftir Rodrigo og spænskan ljóðasöng sérstaklega.“ Guðrún hefur einnig ferðast um Evrópu með spænskri kammersveit og mun bráðlega flytja með henni spænsk þjóðlög í Stokkhólmi. „Ég hef semsagt verið að kynna spænska menningu með kamm- ersveitinni en verkefnið er m.a. styrkt af Cervantes-stofnuninni. Ég hvet Íslendinga eindregið til að setja á fót svipaða stofnun til að senda listamenn um Evrópu og kynna íslenska menningu. Það væri kannski hægt að nefna hana Lax- nessstofnun,“ segir Guðrún og hlær. Spennandi verkefni í vel skipulögðu umhverfi Morgunblaðið/ÞÖK Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir er nýr listrænn stjórnandi Kammertónleika á Kirkjubæjarklaustri. Hún hefur einnig kynnt spænska menningu erlendis. Tónlist| Nýr listrænn stjórnandi Kammertónleika á Kirkjubæjarklaustri Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson hsb@mbl.is 20 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING HANDRITIÐ að bókinni frægu Á vegum úti eftir Jack Kerouac verður endur- útgefið á næsta ári í upphaflegri og óbreyttri út- gáfu. Þetta sagði talsmaður út- gáfufyrirtæk- isins Viking Press. Útgáfan sem er á upprunalegu handritinu hefur annan tón en breytta útgáfan. Tungumálið er t.a.m. óheflaðra í handritinu, og raunveruleg nöfn eru notuð á sum- ar sögupersónurnar. Sagan um annað sjálf Kerouacs, Sal Paradise, verður útgefin 2007, 50 árum eftir að Viking Press út- gáfan gaf hana út upphaflega. Sag- an fékkst lengi ekki útgefin vegna forms hennar, sem þótt til- raunakennt. Hún hefur síðar orðið klassík og kom Bítkynslóðinni á kortið. „Á vegum úti er mikilvægur hluti bandarískrar bókmennta- sögu“, sagði Paul Slovak hjá út- gáfufyrirtækinu Viking þegar til- kynnt var um útgáfuna. Upprunalega handritið, sem er 36 metra löng pappírsrúlla vélrituð með einföldu bili, var seld Jim Irsay árið 2001. Irsay þessi er eigandi bandaríska ruðningsliðsins In- dianapolis Colts. Handritið er um þessar mundir á ferðalagi um Bandaríkin á minjasöfnum og bóka- söfnum. Handrit Kerouacs í nýrri útgáfu Jack Kerouac BRESKI rithöf- undurinn og feminístia-íkonið Germaine Greer eru komin í hár saman. Rushdie hefur nýlega lát- ið þau orð frá sér falla að stuðningur henn- ar við bengalska mótmælendur tiltekinnar kvik- myndar væri plebbalegur, skamm- arlegur og gervilegur. Málið byrjaði þannig að mótmæl- endurnir settu sig upp á móti kvik- myndaútgáfu af bókinni Brick Lane eftir breska rithöfundinn Mo- nicu Ali. Þeir hafa skipulagt bóka- brennur og ætla sér að mótmæla myndinni á frekari hátt. Bókin fjallar um konu frá Bangladesh sem býr í austurhluta Lund- únaborgar. Mótmælendum þykir bókin draga upp ansi dökka og niðrandi mynd af Bengölum búa í þessum hluta borgarinnar. Greer skrifaði síðar grein í tíma- ritið Guardian og sagði að mót- mælendur hefðu rétt á að koma í veg fyrir gerð myndarinnar. Fram kom í máli hennar að Ali hefði gleymt því hvernig væri að vera frá Bangladesh og að hún skrifaði frá „bresku“ sjónarhorni. Germaine Greer lengi haft horn í síðu Salmans Rushdies Rushdie svaraði bréfi Greer í Guardian með öðru bréfi í dag- blaðið, þar sem hann ver málstað Ali. Rétttrúaðir lögfræðingar múslíma úrskurðuðu á sínum tíma að Rushdie væri réttdræpur fyrir skrif sínum í Söngvum Satans. Í bréfinu rifjar Rushdie upp að Greer hefði þá ekki viljað taka þátt í stuðningsyfirlýsingu fyrir hann, og látið þau orð falla að Söngvarnir „fjalli um hans eigin vandamál.“ Rushdie segir einnig að Greer hafi kallað hann mik- ilmennskubrjálæðing og þeldökkan Englending. Rushdie og Greer stunduðu bæði nám í Cambridge seint á 7. ára- tugnum og þeim hefur margoft lostið saman áður. Rushdie og Greer rífast Salman Rushdie ásamt eiginkonu sinni Padma Lakshmi. SEINNI tónleikar laugardagsins í Skálholti gáfu nokkuð gott skyndi- yfirlit yfir strengjakvartetta Mozarts. Skipta má 27 kvartettum hans í tvö meginsköpunarskeið, fyrstu sextán frá 1770–73 (K136–73) í hið fyrra og háþroskaverkunum K387–590 (frá og með „Haydn“-kvartettunum sex frá 1782–85) í hið seinna. Í hnotskurn sýna þeir ótrúlega öra þróun Mozarts frá laufléttu skemmtitónskáldi (fyrstu kvartetta sína kallaði hann „dívertí- mentó“) í djúptækan listamann. En jafnvel í æskuverkum sínum er Mozart fráleitt alltaf allur þar sem hann er séður, og koma víða fyrir þættir sem vísa langt fram á veginn. Þannig var um syngjandi ang- urværan miðþátt þríþætta G-dúr kvartettsins K156 frá 1772 úr flokki skrifuðum á Ítalíu „á mettíma“ eins og Jaap Schröder sagði í sérfróðum skrifum sínum í tónleikaskrá. Tríó- kafli lokamenúettsins var sömuleiðis bráðskemmtilegur og ljómandi vel spilaður. Innsæi hollenzka leiðarans leyndi sér né heldur í næsta verki, enda rómaðar hljómplötur hans með Est- erházy-kvartettnum frá 8.–9. áratug meðal fyrstu túlkana á Mozart undir formerkjum upprunahyggju, þó svo að svalur gömbutónn hópsins í hæg- um þáttum færi í fyrstu fyrir brjóstið á eldri hlustendum. Sérkennilegt þrá- hyggju-„örlagastefið“ er gegnsýrir I. þátt d-moll-kvartettsins K173 frá 1773 minnti nærri því á Beethoven í svipuðum hrynham, og af innþáttum var menúettinn (III) sérlega vel mót- aður og beinlínis æsispennandi. „Forneskjuleg“ fúga fínalsins á hníg- andi krómatísku stefi – samin þrem árum eftir kontrapunktnám Wolf- gangs hjá Padre Martini í Bologna en heilum áratug áður en van Swieten barón vakti áhuga hans á fúgum Bachs – var glæsileg í túlkun jafnt sem að smíð (skartaði viðsnúnum svörum, misþéttum stefskörunum o.fl), þótt undarlega endasleppt nið- urlagið skildi eftir ófullnægðar vænt- ingar um a.m.k. þriðjungi lengra framhald. Síðasti kvartett dagsins var sá í D- dúr K499 frá Don Giovanni-árinu 1786, kenndur við forleggjarann Hoffmeister. Útþættirnir eru afar þétt skrifaðir, nærri því sinfónískir eins og Schröder benti á, og með ríkulega unninni gegnfærslu er veit allt fram á Schubert. I. þáttur kom allvel út í natinni meðferð Skálholts- kvartettsins. Hins vegar bar restin greinilega með sér að útheimta ára- langa og stöðuga samspilsrútínu, enda var spilamennskan á köflum ekki nógu samtaka og stundum jafn- vel gruggug. E.t.v. hefði hópurinn átt að fara ögn varlegar í tenuto-mótun í gjöfulli heyrð kirkjunnar og leika heldur tónstyttra. Lokaþátturinn – ákaft „moto perpetuo“ með öndunar- stöðum inn á milli – slapp að vísu fyrir horn, en ekki miklu meira, og olli því heildin óneitanlega vonbrigðum eftir vel heppnuðu fyrri verkin. Hinn bráðþroska Mozart TÓNLIST Skálholtskirkja Mozart: Strengjakvartettar í G, d og D, K156, 173 og 499. Skálholtskvartettinn (Jaap Schröder / Rut Ingólfsdóttir fiðla, Svava Bernharðsdóttir víóla og Sigurður Halldórsson selló). Laugardaginn 29. júlí kl. 17. Sumartónleikar í Skálholti Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Brynjar Gauti Tónleikarnir gáfu nokkuð gott skyndiyfirlit yfir strengjakvartetta Mozarts en þeim má skipta í tvö meginsköpunarskeið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.