Morgunblaðið - 03.08.2006, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SÖGUSIGLINGAR um Eyjafjörð,
um borð í eikarbátnum Húna II
verða í boði nú í ágúst, alls þrjár
ferðir, næstu miðvikudagskvöld og
er sú fyrsta 9. ágúst næstkomandi
og svo tvo miðvikudagskvöld þar á
eftir. Þá verður boðið upp á siglingu
með Húna nú um komandi versl-
unarmannahelgi, tvær á dag, frá
föstudegi til sunnudags. Þorsteinn
Pétursson, sem er í forsvari fyrir
Hollvinafélagið Húni II, kynnti
áformin á siglingu um Pollinn í
gærdag, en þær eru tilkomnar m.a.
vegna mikils áhuga sem fólk hefur
sýnt bátnum í sumar. Hann hefur
verið opinn almenningi frá kl. 13 til
18 á daginn og fjölmargir, um 1400
manns, hafa brugðið sér um borð og
skoðað bátinn og sumir farið í
stutta siglingu. Hollvinafélaginu
þótti því tilvalið að bjóða upp á sigl-
ingar, leyfa fólki að sjá bæinn frá
öðru sjónarhorni en það er vant.
Hörður Geirsson, starfsmaður á
Minjasafninu á Akureyri, verður
leiðsögumaður og mun hann fræða
fólk um ýmsa þætti úr sögunni. Í
lok hverrar ferðar fá menn tækifæri
til að dýfa færi í sjó og renna fyrir
fisk.
Húni II er 130 tonna eikarbátur,
smíðaður í Skipasmíðastöð KEA
1963, skömmu áður en smíði slíkra
tréskipa var hætt. Hann er eini
óbreytti báturinn af þessari stærð
sem til er á Íslandi. Hann var tek-
inn af skipaskrá árið 1994, talið var
að Húni II hefði þá lokið hlutverki
sínu. Til stóð að eyða honum end-
anlega á næstu áramótabrennu, en
þá föluðust þau Þorvaldur Skafta-
son og Erna Sigurbjörnsdóttir eftir
bátnum, þau vildu varðveita sögu-
legar minjar skipasmíða á Íslandi.
Fór mikil vinna í að fá niðurfelldar
eyðingarkröfur sem á bátnum
hvíldu, það tókst og Húni II var
kominn á skipaskrá á ný árið 1995.
Báturinn hefur verið gerður út sem
skemmtibátur fyrir sjóstangaveiði
og hvalaskoðun, frá Skagaströnd,
Hafnarfirði og Akureyri.
Húni II er nú safngripur, er í
eigu Iðnaðarsafnsins á Akureyri.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Fiskinn Ingi Pétursson hafði erindi sem erfiði,
hann náði að draga inn einn, enda vanur maður,
var á ÚA-togurunum í gamla daga. Myndið þið
brottkastið, hrópaði Víðir Benediktsson, fyrrver-
andi skipstjóri á Kaldbak, þegar Ingi tók sig til og
fleygði fengnum fyrir borð.
Sögusigling Þorsteinn Pétursson, Steini Pje, var
einn talsmanna þess að varðveita eikarbátinn
Húna II, en hann er einn af síðustu bátum þess-
arar tegundar sem smíðaðir voru hér á landi. Nú í
ágúst verða í boði sögusiglingar með bátnum og
þá gefst gestum tækfæri á að sigla með bátnum
um komandi helgi.
Sögusiglingar
með Húna II
Sjóstöng Farþegum um borð í eikarbátnum Húna II gefst tækifæri á að
renna fyrir fiski á siglingu um Pollinn. Ekki amalegt með Akureyri baðaða
í sólskini í bakgrunni.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Kaldbakskallar Þeir höfðu greinilega um margt
að spjalla Sveinn Hjálmarsson og Víðir Benedikts-
son þar sem þeir voru á rólegri siglingu með eik-
arbátnum Húna II um Pollinn við Akureyri. Báðir
stóðu í ströngu í eina tíð, voru skipstjórar á Kald-
bak EA. Að baki þeim dólar Birgir Guðmundsson
lektor við Háskólann á Akureyri á trillu sinni.
N4 tekur við
af Aksjón
N4 – sjónvarp Norðurlands hyggst
efla þjónustu við Norðlendinga
með endurreisn norðlensks sjón-
varps. Fréttatími N4 – sjónvarp
Norðurlands hefur þegar verið
stórefldur.
Fram til þessa hafa útsendingar
sjónvarpsins verið undir nafni Ak-
sjón, en í gær, 2. ágúst , varð
breyting á þegar Aksjón kvaddi
og N4 – sjónvarp Norðurlands
birtist Akureyringum á skjánum
með tilheyrandi útlitsbreytingum.
Fréttaþátturinn Korter verður
ekki lengur á dagskrá, heldur
verður sendur út fréttatími undir
nafninu N4 – fréttir. Einnig kveð-
ur Sjónarhornið en eftir frétta-
tíma N4 verður magasínþáttur á
dagskrá þar sem inntakið verður
fréttir, mannlíf og menning á
Norðurlandi. Með haustinu áætlar
N4 að framleiða innlenda þætti
sem verða á dagskrá N4 – sjón-
varps Norðurlands í vetur.
Enn frekari breytingar eru
framundan því N4 mun í haust
flytja í nýtt húsnæði í göngugöt-
unni í Hafnarstræti, í hjarta bæj-
arins.
Nýtt fjölmiðla- og framleiðslu-
fyrirtæki var stofnað í maí síðast-
liðnum á Akureyri þegar Samver,
Extra dagskráin, Smit kvikmynda-
gerð og Traustmynd sameinuðust
undir einn hatt, í félagið N4.
Ljóðakvöld | Heimur ljóðsins er
dagskrá sem Populus tremula stend-
ur fyrir annað kvöld, föstudags-
kvöldið 3. ágúst, með yfirskriftinni
„… á laufahrúgu af skornum vín-
við“. Dagskráin fer fram í Deiglunni.
Leiðsögumenn á ferðalagi um
lendur grískrar ljóðlistar og tónlist-
ar verða þeir Arthúr Björgvin Bolla-
son og Sigurður A. Magnússon.
Dagskráin er helguð minningu
Þorsteins Gylfasonar sem með
ógleymanlegum hætti opnaði heim
ljóðsins aftur og aftur fyrir Ak-
ureyringa og gesti þeirra. Slík ljóða-
og tónakvöld hófust í ágúst 1998 og
hafa verið árlegur viðburður síðan.
Kvöldvaka| Hreinlæti fyrr og nú
verður til umfjöllunar á sjöttu
kvöldvöku sumarsins í Laufási í
kvöld, fimmtudagskvöld, 3. ágúst
kl. 20.30.
HAraldur Þór Egilsson sagn-
fræðingur og safnakennari á
Minjasafninu flytur erindi um
hreinlæti Íslendinga á 19. öld.
Opið er á fimmtudagskvöldum í
sumar til 22 í Gamla bænum í
Laufási og í veitingasalnum í
Gamla prestshúsinu.
Skákmót | Það verður eflaust líf
og fjör á Oddeyrarbryggju í dag,
fimmtudag, en þá efnir Skákfélag
Akureyrar og Hafnasamlag Norð-
urlands til skákkeppni þar.
Þrjú skemmtiferðaskip eru
væntanleg þannig að gera má ráð
fyrir mikilli umferð um hafn-
arbakkann.
Skákkeppnin hefst kl. 14 og er
öllum heimil þátttaka.
GUÐLAUGUR Már Halldórsson
akstursíþróttamaður og Íþrótta-
maður Akureyrar 2005 keppti til
úrslita í kvartmílu í keppninni Ten
of the best sem fram fór í Elv-
ington í York í Englandi nýlega.
Hann varð í fjórða sæti þegar
heildarstig höfðu verið tekin saman
en keppt er í nokkrum greinum,
m.a. kvartmílu.
Guðlaugur náði 8. besta tímanum
í brautinni, 38,7 sek., og var 1,6
sek. á eftir besta tíma. Í hámarks-
hraða tókst honum aðeins að aka
einu sinni, þar sem brautin lokaðist
í nærri eina og hálfa klukkustund
vegna olíu sem fór á hana. Árang-
urinn var hins vegar mjög góður. Í
kvartmílunni gekk vel þó ekki næði
hann að bæta besta tíma sem hann
hefur áður náð.
Í undanúrslitum í kvartmílu
sigraði Guðlaugur keppinaut sinn
og keppti því til úrslita. Í úrslita-
spyrnunni „þjófstartaði“ hann og
missti þar með af möguleikanum á
að sigra í kvartmílunni. Ástæðan
fyrir þjófstartinu var sú að við fulla
bensíngjöf á startlínunni tengdist
kúplingin að hluta og dró bílinn
fram úr geislanum, handbremsan
hélt ekki áður en græna ljósið kom.
„Það var vissulega súrt, en að ná
því að keppa til úrslita í kvartmíl-
unni er hins vegar mjög gott og
annað sætið þar vakti verðskuldaða
athygli,“ segir á vefsíðu feðganna
Guðlaugs og Halldórs Jónssonar.
Þar kemur einnig fram að sam-
anlagður árangur hans í öllum
þremur greinunum hafi verið mjög
góður og það markmið sem sett
hafi verið fyrir keppnina, að vera
einn af fimm bestu í heilarárangri,
hafi náðst. Niðurstaðan varð sú að
hann varð í fjórði í röð allra kepp-
enda. „Sýnir það og sannar að bæði
ökumaður og bíll eru meðal þeirra
bestu. “
Guðlaugur Már Halldórsson akstursíþróttamaður
Keppti til úrslita í kvartmílu
TENGLAR
..............................................
www.teamice.is
AKUREYRI