Morgunblaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 23 DAGLEGT LÍF Í ÁGÚST Smellpassa fyrir Verslunar- mannahelgina Stærðir 35-43 Verð 4.400 kr. HEILSUSKÓRNIR HAFA SLEGIÐ Í GEGN Á ÍSLANDI Útsölustaðir: Valmiki Kringlunni - Euroskór Firðinum - B-Young Laugavegi - Nína Akranesi - Heimahornið Stykkishólmi - Mössubúð Akureyri - Töff föt Húsavík - Okkar á milli Egilsstöðum - Galenía Selfossi - Jazz Vestmannaeyjum. EUROCONFORTO HIÐ árlega Kotmót Hvítasunnu- kirkjunnar verður haldið um versl- unarmannahelgina í Kirkjulækj- arkoti. Mikið verður um dýrðir á mótinu og verður dagskráin vegleg þar sem bæði verður bryddað upp á tónlistaratriði, dagskrá fyrir unga fólkið og önnur afþreying. Meðal dagskrárliða verða bæna- og lofgjörðarstundir, biblíufræðsla, vitnisburðarstund í boði kirkju unga fólksins, fjölskyldusamvera, söngvastund í umsjón Óskars Ein- arssonar, samverustundir þar sem Ester Jacobsen mun koma fram og samkomur sem Gary Wilkerson mun stýra svo ekki sé minnst á varðeldinn sem tendraður verður á laugardagskvöldið, en brennustjóri verður Geir Jón Þórisson. Huggarinn er hér á Kotmóti Hvítasunnukirkjunnar SÍLDARÆVINTÝRIÐ á Siglufirði verður rifjað upp um verslunarmannahelgina í sextánda skiptið í ár. Mótshaldarar segja að hátíðin sé löngu búin að festa sig í sessi sem stórkostleg fjölskylduhátíð. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá á Síldarævintýrinu og hefst hún í kvöld með siglfirsku skemmtikvöldi á Bíó Cafe. Fjöldi hljómsveita og annarra skemmtikrafta mun koma fram, meðal annars sönghópurinn Roðlaust og beinlaust, Örvar Kristjáns og dansband Dúa Ben, hljómsveitirnar Spútnik og Terlín, dúettinn Tóti og Danni, hljómsveitin Miðaldamenn, Geirmundur Valtýs- son, hljómsveitin Cargo og fleiri. Dagskráin verður ekki síðri fyrir börnin, Tóti tann- álfur og Jósafat mannahrellir munu koma fram auk Ávaxtakörfunnar auk þess sem keppt verður í dorg- veiði og haldin verður söngvakeppni barna. Tvö tjaldstæði eru á svæðinu, golfvöllur er að Hóli, jet-ski leiga verður á svæðinu og fleira. Ekkert kostar inn á svæðið en greiða þarf 700 krón- ur fyrir nóttina á tjaldsvæðinu, 1.000 krónur fyrir hús- bíl, felli- eða hjólhýsi. Síldarstemmningin rifjuð upp á Siglufirði TENGLAR .................................................................................. www.siglo.is SKIPULÖGÐ útivistar- og tón- listardagskrá verður að Stafa- felli í Lóni um verslunarmanna- helgina. Meðal annars verður opnun glæsilegrar göngubrúar við Eskifell fagnað auk opn- unar gönguleiðar frá Víðidal um Kollmúla og Eskifell til byggðar. Tónlistardagskrá verður við Vötn sem er kerlaga staður innarlega í sumarbústaða- byggðinni á Stafafelli. Þar mun meðal annars koma fram Sig- tryggur Baldursson, sem kenndur hefur verið við Syk- urmolana og Bogomil Font, ásamt söngfólki úr Sumaróper- unni og Vigni Stefánssyni pí- anóleikara, og flytja valin lög úr söngleiknum Happy End eft- ir Kurt Weill og Bertold Brecht. Einnig verða flutt lög úr fleiri söngleikjum. Á laugardagskvöldinu munu heimamenn setja saman dag- skrá sem endar með varðeldi og fjöldasögn. Ingimar Ein- arsson harmonikkuleikari leik- ur á nikkuna í fundarhúsinu öll kvöldin. 1.000 króna aðgangs- eyrir er á tónleika Sigtryggs og félaga. Bogomil Font á Stafafelli í Lóni BINDINDISFÉLAGIÐ I.O.G.T. hefur í fjöldamörg ár staðið fyrir útihátíð í Galtalækjarskógi og er árið í ár engin undantekning. Skipuleggjendur hátíðarinnar segjast leggja áherslu á glæsi- leika og ferskleika á sama tíma og haldið er í gömlu góðu Galta- lækjargildin sem flestum eru að góðu kunn: fjölskylduhátíð í vímulausu umhverfi. Glæsileg dagskrá verður og munu félagarnir í Sumargleðinni, Ómar Ragnarsson, Ragnar Bjarnason, Þorgeir Ástvaldsson, Magnús Ólafsson og Hermann Gunnarsson koma fram eftir 20 ára hlé. Auk þeirra félaga munu Stuðmenn, Skímó, Paparnir, Snorri Snorrason úr Idol, Ízafold, Ingó og Bríet Sunna koma fram að ógleymdum Nylon söng- flokknum. Vegleg barnadagskrá verður, söngvakeppni og fleira ásamt stóru leiksvæði. Í nágrenni Galta- lækjar eru einnig hestaleigur, sundlaug og hægt er að kaupa veiðileyfi í Tangavatni. Auk þess sem tjaldsvæði eru í Galtalæk er mögulegt að leigja sumarbústaði. Aðgangseyrir er 6.900 fyrir fullorðna en 5.900 fyrir börn. Vímulaus fjölskyldu- skemmtun í Galtalæk TENGLAR ..................................................... www.galtalaekur.is SÆLUDAGAR verða í Vatna- skógi um helgina en það eru stað- arhaldarar í KFUM- og K sem standa fyrir sæludögum. Móts- haldarar segja Sæludaga vera einstaka hátíð þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Eins og flestum er kunnug er Vatnaskóg- ur með þekktustu sumarbúðum landsins og er aðstaða til ým- iskonar útivistar til fyrirmyndar að sögn mótshaldara. Verður boðið upp á bátsferðir, leiktæki af ýmsum gerðum auk þess sem salernisaðstaða er til fyr- irmyndar. Meðal þeirra sem munu koma fram í fjölbreyttri dagskrá verða meðal annars KK, Ellen Krist- jáns, Pétur Ben, Örn Árnason, Aiz-you og Jón Víðis ásamt fleir- um. Auk þess verður hægt að spila knattspyrnu, Café Lindarrjóður verður opið, keppt verður í koddaslag, kappróðri og bur- tróðri, kassabílarall verður á íþróttavellinum, fánahylling verð- ur á morgnana, haldin verður söngvakeppni barna auk fleiri skemmtiatriða og annarrar af- þreyingar. Verð á Sæludaga er 2.200 og er frítt fyrir 13 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Sæludagar með fjölskyldunni í Vatnaskógi TENGLAR ..................................................... www.kfum.is ÞJÓÐHÁTÍÐ í Eyjum hefur verið haldin nær óslitið frá árinu 1874 og er án efa lífseigasta útihátíð verslunarmannahelgarinnar. Dag- skráin í ár verður með glæsileg- asta móti, Dr. Spock, Á móti Sól, Stuðmenn, Todmobile, Jet Black Joe, Í svörtum fötum, Bubbi Mort- hens, Hoffman, Dans á rósum og Hálft í hvoru eru á meðal hljóm- sveita sem munu koma fram á tveimur sviðum, Brekkusviðinu og Tjarnarsviðinu. Ekki má svo gleyma hinum víðfræga brekku- söng Árna Johnsens sem verður á sunnudagskvöldinu. Auk þess verður vegleg barna- dagskrá, Ungmennafélagið Óðinn mun standa fyrir frjálsum íþrótt- um, Brúðubíllinn mætir á svæðið, haldin verður söngvakeppni barna með undirspili Dans á rósum, Björgvin Frans kemur fram, Leik- félag Vestmannaeyja sýnir leik- atriði og einnig verður haldið barnaball. Aðgangseyrir er 9.900 krónur. Ókeypis er fyrir börn yngri en 14 ára og ellilífeyrisþega. Hægt er að komast til Vest- mannaeyja með ferjunni Herjólfi eða með Landsflugi eða Flugfélagi Vestmannaeyja. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í meira en hundrað ár TENGLAR ..................................................... www.neistaflug.is UNGLINGALANDSMÓT UMFÍ verður haldið á Laugum í Þing- eyjarsveit um verslunarmanna- helgina. Þetta er í níunda skiptið sem unglingalandsmótið er haldið en það er haldið ár hvert. Keppt verður í frjálsum íþrótt- um, knattspyrnu, körfubolta, sundi, glímu, hestaíþróttum og skák. Auk íþróttakeppninnar verður boðið upp á fjölbreytta afþrey- ingu fyrir alla aldurshópa þar sem hljómsveitir og skemmti- kraftar munu koma fram, kvöld- vökur verða haldnar í stóru tjaldi og risa flugeldasýning verður haldin. Haldin verður hæfileikakeppni fyrir ungmenni á aldrinum 11–18 ára, kynntar verðar íþróttagrein- ar sem ekki er keppt í á lands- mótinu, til dæmis svifdiskar, golf, karate og dans. Leiktæki fyrir yngstu börnin verða á svæðinu og bíó, opið verður í sundlaugina á svæðinu. Skráningargjald fyrir kepp- endur er 5.500 krónur og veitir rétt til keppni. Ekkert annað gjald er innheimt og er aðgangur að svæðinu og tjaldsvæðinu ókeypis. Unglingalandsmót í Þingeyjarsveit TENGLAR ..................................................... www.umfi.is Morgunblaðið/Margrét Þóra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.