Morgunblaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Minnisvarði um strand kanadíska tundurspillisins HMCS Skeena oghetjulega björgun áhafnarinnar var afhjúpaður á vesturodda Við-eyjar síðdegis í gær við hátíðlega athöfn. Þá var rétt öld liðin frá fæðingu Einars Sigurðssonar, skipstjóra á Aðalbjörgu RE-5, sem með kunnáttu sinni og hugrekki vann sannkallaða hetjudáð við björgunina. Einar var fenginn til að fara fyrir hópi breskra her- manna á bandarískum landgöngupramma út í Viðey í for- áttuveðri og stórsjó. Honum tókst að brimlenda pramm- anum í Sandvík. Þaðan gengu björgunarmennirnir á strandstaðinn og tókst björgun 198 skipverja giftusamlega. Einar var þar fremstur í flokki, stjórnaði aðgerðum og stóð í fjöruborðinu og tók á móti skipbrotsmönnunum í um tvær klukkustundir. Stundum náði olíumengaður og ískaldur sjórinn honum í háls. Skipbrotsmennirnir af HMCS Skeena, sem enn eru á lífi, minnast afreks Einars með mikilli virð- ingu og þakka honum giftusamlega björgun. Athöfnin var látlaus og virðuleg. Kristbjörg Ágústsdóttir frá kanadíska sendiráðinu stýrði athöfninni. Ávörp fluttu Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra, Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi, Richard Têtu, sendiherra Kanada á Íslandi, og Leighton Steinhoff, skipverji af HMCS Skeena. Meðal viðstaddra voru Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, afkomendur Einars Sigurðssonar skipstjóra og ættingjar fólksins á Mógilsá í Kollafirði sem bjargaði sex skipverjum sem rak inn Kollafjörð, fulltrúar kanadíska sjóhersins og Landhelgisgæslunnar, Við- eyingar og fleiri. Börn Einars Sigurðssonar og skipverjarnir af Skeena afhjúpuðu síðan skips- skrúfuna af Skeena, sem fannst við eyna í fyrrahaust. Þá afhjúpaði Norman Perkins minningarskjöld við minnismerkið. Isaac Unger, sem missti bróður sinn í slysinu, og séra Bjarni Þór Bjarnason fóru með bænir. Með gerð minnisvarðans vilja fyrrverandi skipsfélagar á HMCS Skeena og fjölskyldur þeirra, kanadísk, bresk og íslensk stjórnvöld heiðra minningu þeirra sem fórust í strandinu. Einnig að minnast sérstaklega Einars Sigurðssonar og eins heimilisfólksins á Mógilsá sem kom illa hröktum sjóliðum til bjargar, eins og segir í fréttatilkynningu. Minnisvarðinn var gerður með stuðningi ríkisstjórna Íslands og Kanada, borgaryfirvalda í Reykjavík, Landhelgisgæslu Íslands og útgerðar Aðalbjargar RE-5. Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir, barnabarn Einars Sigurðssonar, skipstjóra á Aðalbjörgu RE-5, sagði að Landhelgisgæslan hefði verið fengin til að leita að sprengjum á strandstaðnum á liðnu hausti. Þá fannst stjórnborðsskrúfa Skeena sem nú er orðin að minnisvarða í Viðey. Vildi Sigrún þakka ríkisstjórn Íslands og borgaryfirvöldum fyrir stuðning við uppsetningu og frágang minnismerkisins. Minnisvarði afhjúpaður í Viðey til heiðurs þeim sem fór Sannkölluð het Kafarar Landhelgisgæs Einar Sigurðsson GUÐRÚN Einarsdóttir, elsta barn Einars Sigurðs- sonar, skipstjóra á Aðalbjörgu RE-5, var átta ára gömul þegar HMCS Skeena strandaði við Viðey. „Ég man mjög vel eftir þessu,“ sagði Guðrún í samtali við Morgunblaðið. „Pabbi var mjög mikill Bretasinni og stoltur af að vinna fyrir þá. Hann ferjaði Breta héðan frá Reykjavík og upp í Hvalfjörð og til baka. Þetta gerði hann einu sinni á dag öll stríðsárin og fór hvernig sem viðraði.“ Guðrún sagðist hafa verið farin að hafa vit á því að vera oft hrædd um pabba sinn á sjónum. Svo rann upp örlaganóttin þegar síminn hringdi um klukkan eitt eftir miðnættið. „Ég vissi alltaf að það væri eitthvað mikið að ger- ast þegar pabbi flýtti sér svona mikið. Hann fór í sím- ann og hentist í fötin. Það var náttúrlega alltaf föð- urlandið fyrst. Síðan fer hann og segir ekki neitt, nema að hann þurfi að fara niður í Baldur, tund- urspilli sem var við Loftsbryggju. Svo líður nóttin og pabbi er ekki kominn heim um morguninn. Ég sé að mamma er óskaplega hrædd. Ég er ekki látin fara í skólann og bíð á tröppunum fyrir utan heima – alltaf að bíða eftir pabba. Það ból- aði ekkert á honum þótt komið væri hádegi. Svo kemur stór hertrukkur og út úr honum stíga tveir hermenn og draga kolsvartan mann út úr bíln- um. Ég hélt í raun að þetta væri svartur maður. Ég var’ hálf angistarfull og fór að horfa betur. Þeir héldu undir báðar hendur á manninum, sem gat ekki gengið, heldur drógust fæturnir eftir götunni. Þeir drógu hann inn heima, ataðan í olíu og kolsvartan. Það eina sem ég heyrði í honum var eitthvert m og þá man ég að ég kallaði: „Pabbi, ert þetta þ Guðrún segist hafa tekið eftir því að búið va færa pabba hennar úr ytri fötum og var hann í nærfötunum einum klæða. „Mennirnir báðu m að hita vatn. Það voru engir hitapokar til held vatnið sett á flöskur og í sokka. Þetta voru sjál læknar, en ég hafði ekki vit á að spyrja að því. hlúðu að honum, hituðu honum og helltu í han Pabbi vaknaði aftur um kvöldið og mér var ég mætti ekki trufla hann. Hann var óskaplega ur.“ Næstu daga segist Guðrún hafa tekið eftir þ augun í Einari voru mjög blóðhlaupin eftir olíu segir að hann hafi verið lengi að jafna sig í aug en að öðru leyti fljótur að jafna sig eftir þrekr Það var ekkert slegið af og á sjóinn fór hann d eftir. Guðrún sagði að faðir hennar hefði lengi minnst á þennan atburð. „Það eina sem hann sagði við mig í seinni tíð það hefði verið verst með þessa ungu menn sem hefðu þurft að deyja. Hann talaði aldrei um að hefði bjargað neinum.“ Guðrún segir að faðir hennar hafi gert miki slasaða hermenn sem lágu á hersjúkrahúsinu firði, án þess að það hafi farið hátt. Hún hafi o send til að kaupa sælgæti, sokka, peysur, vatn hitt og þetta sem hann færði hermönnum á sjú sæng. Margir hermenn komu heim til þeirra o gestrisni þar og hughreystingar í erfiðleikum ástvinum sínum og ættlandi. Börn Einars Sigurðssonar og fjöldi afkomenda hans var við afhjúpun minnisvarðans við strandstað HM Skeena á aldarafmæli Einars í gær. F.v. Stefán, Guðbjartur, Guðrún og Sigurður Einarsbörn. „Pabbi, ert þetta þú?“ VARNIR ARNA Morgunblaðið birti í fyrradag fréttum að þremur arnarhreiðrum hefði verið spillt í Breiðafirði í sumar og hefði varp paranna, sem í hlut áttu, misfarizt. Þetta á sinn þátt í því að arnarvarp í ár er eitt það allralakasta undanfarna tvo áratugi. Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndarfélags Íslands, segir í blaðinu að miklar líkur séu á að hreiðrunum hafi verið spillt af manna- völdum. Það geti verið nóg að sigla of nálægt hreiðrunum og dæmi séu um að menn setji upp gasbyssur til að halda geldörnum í fjarlægð. Fyrir rúmum þremur árum var maður sýknaður í Hæstarétti af því að raska hreiðurstað arna í Breiðafirði. Hæstiréttur taldi þágildandi lög um náttúruvernd óljós, en ekki var um- deilt að reynt var að spilla fyrir arn- arvarpinu. Þessi dómur varð tilefni þess að árið 2004 var ákvæðum um verndun arn- arins breytt og mjög hert á þeim vörn- um, sem hafðar eru uppi fyrir hönd konungs fuglanna. Þar er m.a. tekið fram að óheimilt sé frá 15. mars til 15. ágúst að koma nær arnarhreiðrum en 500 metra nema brýna nauðsyn beri til, enda sýni menn þá ýtrustu var- kárni og forðist að trufla fugla. Þessi takmörkun á umferð á bæði við þar sem ernir búa sig undir varp og hreið- ur, þar sem eggjum hefur verið orpið. Þá er óheimilt að hrófla við svæði 100 metra frá hreiðri eða hreiðurstæði arnar, hvort heldur er á varptímanum eða utan hans. Samkvæmt lögunum er ennfremur óheimilt að koma fyrir hvers kyns búnaði í þeim tilgangi að fæla fugla frá hreiðurstæðum eða reyna að hindra þá í að verpa þar og er þar m.a. átt við gasbyssurnar. Einu undantekning- arnar frá þessari friðun eru að heimilt er að stugga við örnum, sem halda til eða sjást í friðlýstum æðarvörpum, en þá þannig að fuglunum, hreiðrum þeirra, eggjum og ungum sé ekki hætta búin. Þessi lagaákvæði gætu ekki verið miklu skýrari. Það er að sjálfsögðu ástæða til þess, sé grunur um að menn hafi spillt arnarvarpi, að lögreglan rannsaki málið og reyni að fá viðkom- andi sakfellda. En það er ekki bara lögbrot að spilla varpi þessa tignarlegasta fugls ís- lenzkrar náttúru. Það er siðferðislegt brot gegn lífríkinu, sem við eigum að bera virðingu fyrir. STEFNA BLAIRS Tony Blair, forsætisráðherraBretlands, hélt merkilegaræðu vestur í Los Angeles í fyrrakvöld. Annars vegar herti Blair enn tóninn í garð öfgahreyfinga músl- ima en hét því að styðja hófsama múslima með öllum ráðum. Hins veg- ar má líta á ræðu hans sem gagnrýni á aðferðir Bandaríkjanna, undir forystu George Bush, í stríðinu gegn hryðju- verkum. Blair boðaði „algera endurreisn“ stefnu Vesturlanda í þágu baráttunn- ar við hreyfingar afturhaldssamra múslima. Í þessu skyni lagði hann of- uráherzlu á lausn deilna Ísraels og Palestínumanna, þótt hann réðist jafnframt harkalega á hryðjuverka- menn í Hizbollah og Hamas og kenndi þeim – réttilega – um að hafa byrjað átökin, sem nú eru að leggja Líbanon í rúst. Forsætisráðherrann sagði að þegar tekizt hefði að binda enda á bardag- ana á landamærum Líbanons og Ísr- aels yrðu Vesturlönd að einbeita sér að því að tryggja friðsamlega sambúð Ísraela og Palestínumanna í tveimur ríkjum, þar sem Palestínuríkið yrði hvort tveggja lýðræðislegt og ekki ógnun við Ísrael. Hann hefur rétt fyrir sér í því, að lausn á deilunni fyrir botni Miðjarð- arhafs myndi ekki eingöngu færa fólkinu sem þar býr frið, heldur myndi hún sýna að ólíkar þjóðir og ólík trúarbrögð geti búið saman í friði og umborið hvert annað, þrátt fyrir viðleitni öfgamanna til að grafa undan friði og skapa átök og ringulreið. Og það er líka rétt hjá Blair að vilji Vest- urlönd sigra í stríði sínu við öfga- menn, sem ógna öryggi Vesturlanda- búa, verða þau að ná árangri í þessu máli. Það gerist ekki nema Banda- ríkjastjórn taki forystuna og hætti að láta pólitíska innanlandshagsmuni ráða stefnu sinni í málefnum Ísraels. Meginstefið í ræðu Blairs var að gildi á borð við lýðræði, umburðar- lyndi og réttlæti yrðu að sigra í bar- áttunni við öfgamenn. Stefna „banda- lags hinna hófsömu“ ætti ekki aðeins að snúast um hagsmuni, heldur líka réttlæti, sagði hann. Við megum ekki aðeins gera það sem er nauðsynlegt, heldur verðum við að gera það sem er rétt. Stríðið gegn öfgamönnum vinnst ekki aðeins með aflsmunum, heldur með því að sýna að lífsgildi okkar séu betri en þeirra. Að Vesturlönd og bandamenn þeirra séu óvilhöll, sann- gjörn og réttlát þegar þau reyni að gera þessi gildi að raunveruleika víða um heim. Að okkar gildi geti sam- einað fólk, í stað þess að leyfa öfga- mönnum að sundra því. Þetta kann að hljóma sem háfleygt tal hjá forsætisráðherranum, en er auðvitað kjarni málsins. Það þýðir ekkert fyrir Vesturlönd að ætla að beita sér fyrir lýðræði og mannrétt- indum í löndum á borð við Írak eða Afganistan ef vestrænir hermenn brjóta mannréttindi á föngum eða ef stjórnvöld verða uppvís að því að brjóta mannréttindi heima fyrir í þágu stríðs gegn hryðjuverkum. Orð og gerðir verða að fara saman hjá lýð- ræðisríkjunum; annars verður hið hófsama bandalag Blairs aldrei til. Blair beindi því til Bandaríkja- stjórnar að hún héldi áfram að vera alltaf í forystu og fremstu víglínu, en hann minnti hana líka á nauðsyn þess að leita eftir víðtækari bandalögum og að sýna að þótt það geti verið nauð- synlegt að grípa til einhliða aðgerða sé það ekki fyrsti kostur. Bandarísk stjórnvöld eiga að hlusta á sinn helzta bandamann meðal vest- rænna ríkja og leggja áherzlu á að sigra í baráttunni um hug og hjörtu almennings í ríkjum heims, ekki að- eins á hernaðarsviðinu. Ræða Tonys Blairs bendir til að hann vilji ekkert gefa eftir í stríðinu gegn öfgaöflum í heiminum, en hann telur ástæðu til að endurskoða aðferð- irnar og það er rétt og skynsamlegt. gudni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.