Morgunblaðið - 03.08.2006, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 41
DAGBÓK
Ómissandi
eftirréttur
Samtök áhugafólks um skólaþróun haldaráðstefnu um námsmatsaðferðir 14.ágúst í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.Yfirskrift ráðstefnunnar er „Við miðlum
hugmyndum“ en Ingvar Sigurgeirsson er ritari
samtakanna: „Samtökunum, sem stofnuð voru í
nóvember 2005, er ætlað að vera virkur um-
ræðu- og samstarfsvettvangur allra þeirra sem
áhuga hafa á markvissri þróun skólastarfs og
hvers konar umbótum og rannsóknum á því
sviði,“ segir Ingvar. „Við hvetjum kennara og
skólafólk til að miðla af reynslu sinni, skiptast á
skoðunum og læra hvert af öðru, og er ráð-
stefnan liður í því.“
Á ráðstefnunni flytja erindi kennarar og sér-
fræðingar af öllum skólastigum: „Sagt verður
frá áhugaverðum verkefnum sem tengjast náms-
mati í skólum. Á undanförnum árum hefur fólk
vaknað til aukinnar vitundar um hve mikilvægt
námsmat er fyrir allan námsárangur, og að ekki
hefur verið nægilega vel hugað að þessum þætti
í skólastarfi hérlendis,“ segir Ingvar. „Með
námsmati er átt við alla upplýsingaöflun og
-miðlun sem á sér stað um gengi nemandans í
náminu. Námsmat felst ekki í prófum eingöngu
heldur í margvíslegum viðfangsefnum, bæði
formlegum og óformlegum, og er samofið öðru
skólastarfi.“
Ingvar segir próf vitaskuld eiga að skipa sinn
sess í námsmati: „Hefðbundin próf hafa oft verið
helsta námsmatstæki skólakerfisins, en á und-
anförnum árum hafa menn verið að prófa sig
áfram með aðferðir sem byggjast á því að vaka
stöðugt yfir árangri nemandans og reyna að
skilja hvaða þættir hafa áhrif á árangur hans og
hvernig má hjálpa honum sem best að ná mark-
miðum námsins.“
Dagskrá ráðstefnunnar í Fjölbrautaskólanum
í Garðabæ skiptist í þrjár lotur, og hefst sú
fyrsta kl. 13. „Þar verður farið yfir stöðuna á öll-
um skólastigum í dag varðandi námsmat,“ segir
Ingvar. „Í annarri lotu, sem hefst kl. 14.15, verð-
ur fjallað um óhefðbundin próf. Þar verða flutt
þrjú spennandi erindi sem m.a. fjalla um sam-
vinnupróf, rafræn próf og svokölluð „svindlpróf“
þar sem nemendur mega koma til prófsins með
hjálpargögn sem þeir hafa útbúið.“ Yfirskrift
þriðju fyrirlestralotunnar, sem hefst kl. 15.30, er
„Fjölbreyttar námsmatsaðferðir og einstaklings-
miðað námsmat“: „Þar verður fjallað um áhuga-
verðar tilraunir með óhefðbundnar námsmats-
leiðir s.s. einstaklingsmiðað námsmat.“
Að sögn Ingvars hafa 400 manns þegar boðað
komu sína á ráðstefnuna en enn eru laus nokkur
sæti. Skráning og frekari upplýsingar um dag-
skrá ráðstefnunnar má finna á slóðinni
www.skolathroun.is. Fundarstjórar eru Rúnar
Sigþórsson, dósent við HA, og María Björk
Kristjánsdóttir, kennari við MR.
Menntun | Samtök áhugafólks um skólaþróun halda ráðstefnu í Fjölbrautaskóla Garðabæjar
Námsmatsaðferðir framtíðarinnar
Ingvar Sigurgeirsson
fæddist í Reykjavík
1950. Hann lauk kenn-
araprófi 1970 og stúd-
entsprófi 1971 frá
Kennaraskóla Íslands,
B.Ed. prófi frá Kenn-
araháskola Íslands
1985, M.A. gráðu í upp-
eldis- og kennslufræð-
um frá Sussex-háskóla
1986 og D.Phil. gráðu
frá sama skóla 1992. Ingvar er höfundur fjölda
rita, greina og námsgagna. Hann var lektor í
kennslufræðum við KHÍ 1988–91, dósent
1991–1999 og prófessor frá 1999. Ingvar er
kvæntur Lilju M. Jónsdóttur lektor og eiga
þau tvo syni og tvö barnabörn.
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
50 ÁRA afmæli. Í dag, 3. ágúst, erfimmtugur Jón Svavarsson,
ljósmyndari og rafeindavirkjameist-
ari. Jón hefur starfað að ljósmyndun
síðastliðin þrjátíu ár og lengst af með
öðrum störfum til að nefna hjá Pósti og
Síma og Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
ásamt nokkrum öðrum störfum í
skemmri tíma þar á milli. Jón er að
heiman í dag og ætlar að eiga stund í
faðmi fjölskyldunnar á afmælisdaginn.
Norður
♠64
♥Á10
♦932
♣ÁD6543
Vestur Austur
♠7 ♠10853
♥D9542 ♥G76
♦KD10765 ♦G
♣8 ♣KG1072
Suður
♠ÁKDG92
♥K83
♦Á84
♣9
Suður er gjafari og vekur á einum
spaða. Vestur stingur inn tveimur
tíglum, en síðan liggur leið NS upp í
sex spaða.
Hvernig á að spila slemmuna með
tígulkóngnum út?
Ellefu slagir fást með því að
stinga hjarta í borði og frá bæj-
ardyrum sagnhafa virðist laufsvíning
helsta vonin á þeim tólfta.
Spilið er frá fyrstu umferð Spin-
gold-keppninnar og Mike Passell var
í sæti sagnhafa í suður. Hann drap á
tígulás, spilaði þrisvar hjarta og
trompaði. Tók svo alla spaðana:
Norður
♠
♥
♦9
♣ÁD6
Vestur Austur
♠ ♠
♥D ♥
♦D10 ♦
♣8 ♣KG107
Suður
♠2
♥
♦84
♣9
Sjálfsagt hefur Passell ætlað sér
að svína í laufinu, en þegar hann
spilaði síðasta trompinu henti vestur
hjartadrottningu. Það voru mistök,
því nú var vestur nokkurn veginn
upptalinn með einspil í laufi. Passell
spilaði því laufníu og lét hana sigla
yfir til austurs, sem varð að drepa
með tíunni og spila frá KG upp í
ÁD!
Slæm voru mistök vesturs, en
klúður austurs var enn verra – að
henda laufsjöu í síðasta trompið. Ef
austur kastar tíunni (eða gosanum),
getur hann látið sjöuna undir níuna
og þá er suður inni í lokastöðunni
með tvo hunda í tígli! Og ef sagnhafi
„svínar“ drottningunni, á austur
öruggan slag á G7.
Austur grét úr sér augun að missa
af þessu fágæta tækifæri, en þegar
hann hafði þerrað tárin sendi hann
ritstjórum mótsblaðsins spilið.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2
O-O 5. Bg5 Bxc3+ 6. Dxc3 d5 7. e3
Rbd7 8. c5 c6 9. Bd3 b6 10. b4 b5 11.
Dc2 De8 12. Rf3 Re4 13. Bxe4 dxe4
14. Dxe4 Rf6 15. Bxf6 gxf6 16. Dh4
Kg7 17. g4 h6 18. Hg1 Dd8
Staðan kom upp á opnu alþjóðlegu
móti, Politiken Cup, sem er nýlokið í
Kaupmannahöfn í Danmörku.
Skólastjóri Menntaskólans í
Hamrahlíð, Lárus H. Bjarnason
(1.670) hafði hvítt gegn Rene Rasm-
ussen (1.144). 19. g5! fxg5 20. Rxg5
Kf6 21. Rf3+ og svartur gafst upp
enda verður hann eftir 21... Kf5 22.
e4#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Ferðalög
Við hjónin vorum á ferð um landið í
júlí, og vorum við á hinum ýmsu
tjaldsvæðum, m.a. eina nótt á tjald-
svæðinu að Hrafnagili í Eyjafirði, í
bæklingi sem við höfðum meðferðis
voru upplýsingar um að þarna væri
rafmagn, snyrtiaðstaða og fl. Ekk-
ert rafmagn fundum við á tjaldstæð-
inu og snyrtiaðstaðan ekki til fyr-
irmyndar, enginn wc pappír, engar
handþurkur né handsápur. Hótelið
lokað og miði á hurðinni þar sem
bent var á að hafa samband við næt-
urvörð, daginn eftir tókum við sam-
an og komum við á Blómaskálanum
Vin til að greiða fyrir þessa gistingu,
og máttum við greiða kr. 1.850.- fyr-
ir gistinguna, ég spyr fyrir hvað er
verið að rukka?
Karen
Kjarabót öryrkja
og ellilífeyrisþega
Ég get ekki á mér setið lengur varð-
andi bætur öryrkja og aldraðra; í
desember síðastliðnum áttu bóta-
þegar að fá eingreiðslu jafnt og aðr-
ir launþegar landsins, en þá var
passað upp á að tengja þessar
greiðslur við tekjur maka þannig að
ekkert yrði nú úr þessum fjár-
útlátum, núna í sumar var gerður
samningur um að öryrkjar og ellilíf-
eyrisþegar fengju sömu fimmtán
þúsund króna hækkun og aðrir
launþegar sem setið hafa eftir í
launaþróun undanfarinna mánaða.
En viti menn, þetta er tekjutengt
þannig að konan mín sem er 75% ör-
yrki og er búin að vera það í um 20
ár hún fékk hækkun upp á heilar
1200 krónur. Geta stjórnvöld enda-
laust troðið á fólki og komist upp
með það, hvernig er með ör-
yrkjadóminn svokallaða og öll lof-
orðin sem gefin hafa verið.
Maður verður náttúrlega frekar
pirraður og fúll þegar svona er kom-
ið fram við fólk og ég er örugglega
ekki sá eini sem skrifa ykkur vegna
þessa, en mér finnst að fólk almennt
eigi að vita hvernig stjórnvöld geta
endalaust logið sig út úr öllum lof-
orðum sem þau gefa bótaþegum.
Guðbjartur Agnarsson
Öryrkjar og ellilífeyrisþegar
ÉG VAR að lesa bréf frá öryrkja og
er hjartanlega sammála. Ég er elli-
lífeyrisþegi og fæ svipað útborgað
og hann. Fyrir mína upphæð sirka
65–70 þúsund krónur á mánuði verð
ég að borga húsaleigu, síma, raf-
magn og strætómiða sjái hver heil-
vitamaður hvort mikið verður eftir.
matarkaup verða að mæta afgangi
og að fara í leikhús er lúxus sem
maður verður að vera án. Mig lang-
ar til að minnast á leiguhúsnæði.
Það eru sirka 600 manns á biðlista
og ekkert er byggt fyrir þetta fólk
og það hefur hreinlega ekki efni á að
leigja á frjálsum markaði það er svo
dýrt. Ef ráðmenn eru hræddir um
að leigjandinn standi ekki í skilum
eða sé í óreglu mega strangar reglur
vera uppi um slíkt. Um leið eru ríki
og borg að hugsa um að reisa viða-
mikla tónlistarhöll og að taka á móti
gjöf ekkju John Lennons frið-
arsúlum. Þeim virðist vanta stað
fyrir þessar súlur og hve mikið
skyldi það kosta að taka á móti slíkri
þessari gjöf? Skyldi þetta fólk til
dæmis sem vantar húsaskjól heldur
vilja að það séu reistar nokkrar
blokkir heldur en steinsúlur séu
reistar í viðey eður ei.
Kristín
Sko
ÉG skráði mig hjá Sko í júní en
ákvað strax að hætta við það, eftir
að hafa borgað 4000 kr sendi ég
tölvupóst (af því að þjónustuverið
var lokað) og lét vita að ég vildi
hætta við, hringdi líka daginn eftir
og lét vita til öryggis og í báðum til-
fellum var sagt „já, við hættum við
þetta, ekkert mál“ og að ég fengi
endurgreitt. Viku eftir þetta fæ ég
póst um það að númeraflutningur sé
samþykktur, ég hringdi í þá aftur og
lét vita í þriðja skiptið og þá var mér
sagt það sama, hætt yrði við flutn-
inginn. Um helgina fékk ég sms um
það að daginn eftir yrði númerið
flutt sem það var svo eftir allt sam-
an. Ég hafði samband við símann og
þessu var reddað fyrir mig en ég var
símalaus í alveg heilan dag, svo gat
ég hringt og sent sms en ekki tekið
við neinu og svo er bara að bíða eftir
því að Sko færi númerið mitt til
baka. Og ekki hef ég ennþá fengið
endurgreitt. Væri gaman að vita
hvort fleiri hafa lent í svona.
Hulda
Lyklakippa fannst
LYKLAKIPPA með bíllyklum og
húslyklum fannst á Hagamel sunnu-
daginn 30. júlí nálægt Melaskóla. Sá
sem leitar hennar er beðinn um að
hafa samband í síma 551-0117
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristján
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050