Morgunblaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er margt sem maður þarf að vita
til þess að komast þangað sem maður
ætlar sér. Best er að safna upplýsing-
unum á óformlegan hátt, með því að
tala við fólk. Inntu nágranna, kollega,
vini og ekki síst fjölskyldu eftir stað-
reyndunum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautinu er frjálst að láta að sér kveða
og gera mistök. Hafðu engar áhyggj-
ur, vikmörkin eru skilgreind af sálum
sem vita að um leið og þú lærir það
sem þú ert að gera skarar þú framúr.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tvíburinn metur sköpunarhæfileika.
Leiðin sem hann notar til þess að fella
það gildismat inn í líf sitt er að gefa
þeim sem eru í kringum hann nægi-
legt svigrúm til þess að láta öllum ill-
um látum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn er til í að finna sér félaga
fyrir tiltekið hættuspil. Farðu varlega
í það að biðja nána vini eða fjölskyldu
um liðsinni. Sum sambönd batna ekk-
ert við þrýsting sem af því hlýst.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hér kemur hamingjumoli dagsins: Í
stað þess að einblína á krónutölu, kíló
á vigtinni eða toppinn á ótilgreindum
tindi skaltu einbeita þér að því að
hreinsa hugann. Fallegar hugsanir
geta af sér fallegan árangur.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan er ósigrandi. Það eina sem er
slæmt við það er að hún laðar hugs-
anlega að sér fórnarlömb fyrir vikið.
En í dag langar hana mest að slást í
hópinn með öðrum ofurhetjum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Klæddu þig sjálfri þér til yndisauka.
Hvernig þú skreytir þig ræður úrslit-
um um það hvernig þér líður þegar þú
mætir veröldinni. Stíll þinn breytist
eftir því sem þarfir þínar gagnvart
umheiminum breytast, og öfugt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þögn er ekki bara það að tala ekki eða
skortur á hávaða, hún er viðhorf sálar-
innar. Ef þú ræktar þína innri þögn
blasir lífsleiðin kyrrlát og upplýst við,
eins og sveitavegur á fullu tungli.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sum vandamál hverfa með vanrækslu,
sérstaklega hjá heppnu fólki eins og
þér. Þú átt eftir að hlæja líka, ekki út
af neinu sérstöku, sem bendir til þess
að þú sért annað hvort uppljómaður,
eða klikkaður. En þú ert jafnvinsæll
fyrir því.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin á í togstreitu vegna
tveggja mikilvægra valkosta. Stundum
er besta ákvörðunin sú að ákveða ekki
neitt. Um leið og þú ert tilbúin, læt-
urðu toga þig í rétta átt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er ekki bara fé-
lagslyndur, heldur líka hlýr og um-
hyggjusamur. Trúfesta þín gagnvart
vinunum er aðdáunarverð. En jafnvel í
innilegasta sambandi kemur að því að
maður vill ekki taka upp tólið. Nú er
sá tími.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Óvissa í sambandi getur vakið ótta en
þarf ekki að gera það. Hugsaðu um
það sem þú vilt að gerist, það er hið
gagnstæða við áhyggjur. Það verður
allt í lagi hjá þér.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Tungl í sporðdreka gerir
draumana svo sannarlega
krassandi. Þeir eru ekki
lengur leyfðir öllum aldurshópum, heldur
fá á sig strangan bannstimpil. En maður
getur alltaf sagt sjálfum sér að draumar
séu bara draumar og ekki á okkar valdi.
En er það svo? Veltum því fyrir okkur að
taka taumana í undirvitundinni, með
smávegis einbeitingu getum við gert eitt-
hvað þar að veruleika.
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 kurr, 4 brattur,
7 fuglum, 8 sitt á hvað, 9
guð, 11 tætti sundur, 13
hræðsla, 14 deilur, 15
óveðurshrina, 17 hagn-
aðar, 20 blóm, 22 stiga-
gatið, 23 bíll, 24 kaka, 25
híma.
Lóðrétt | 1 fyrir neðan, 2
gaf saman, 3 vítt, 4 heit-
ur, 5 sé í vafa, 6 náði í, 10
öfgar, 12 lengdareining,
13 gruna, 15 helmingur,
16 vatnsflaumur, 18
klettasnös, 19 skyggnast
um, 20 elska, 21 skaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 værukærar, 8 útlit, 9 innbú, 10 ann, 11 tágin,
13 garns, 15 senna, 18 ólgan, 21 pól, 22 safna, 23 ennið,
24 vaðsekkur.
Lóðrétt: 2 ærleg, 3 urtan, 4 æfing, 5 agnir, 6 fúlt, 7 húns,
12 inn, 14 afl, 15 sess, 16 nefna, 17 apans, 18 óleik, 19
gengu, 20 níða.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Deiglan | Kvintett Ragnheiðar Gröndal leik-
ur á Listasumri á Akureyri. Á efnisskránni
eru djassstandardr í útsetningum sveit-
arinnar. Fram koma Ragnheiður söngur, Jón
Páll Bjarnason gítar, Haukur Gröndal saxó-
fónn, Morten Lundsby kontrabassi og Erik
Qvick trommur.
Hallgrímskirkja | Pamela De Sensi flautu-
leikari og Steingrímur Þórhallsson, organisti
Neskirkju, leika á hádegistónleikum á veg-
um Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgríms-
kirkju, 3. ágúst kl. 12. Á efnisskránni eru verk
eftir C. Franck og J. Langlais.
Reykholtskirkja | Fjórðu tónleikarnir af sjö í
orgeltónleikaröð Reykholtskirkju og FÍO
verða haldnir 5. ágúst kl. 17. Steingrímur
Þórhallsson leikur á orgelið og Pamela De
Sensi á þverflautu. Á efnisskránni eru verk
eftir A. Scarlatti, Jean Langlais, C. Franck
og E. Pasini.
Myndlist
101 gallery | Serge Comte – sjö systur – se-
ven sisters. Til 2. sept. Opið fim.–lau. kl. 14–
17.
Anima gallerí | Múni - Árni Þór Árnason og
Maríó Múskat (Halldór Örn Ragnarsson). Á
sýningunni, sem er þeirra fyrsta einkasýn-
ing, eru málverk sem þeir hafa unnið saman
að síðan sumarið 2005. Sýningin stendur til
12. ágúst. Opið fim. fös. og lau. kl. 13–17.
Art-Iceland Mublan | Fyrsta samsýning
gallerísins Art-Iceland.com Skólavörðustíg
1a. Listamennirnir sem sýna eru: Árni Rúnar
Sverrisson, Helga Sigurðardóttir og Álfheið-
ur Ólafsdóttir. Sýningin er í Versluninni
Mublunni, Nýbýlavegi 18, Kópavogi.
Café Karólína | Sýningu Guðrúnar Pálínu
Guðmundsdóttir lýkur 4. ágúst. Sýning ber
titilinn „Hlynur sterkur Hlynur“ (portrett af
Hlyni Hallssyni myndlistarmanni).
DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým-
isverk til 26. ágúst eða fram yfir menning-
arvöku. Opið virka daga og laugardaga kl.
14–18 í sumar.
Eden, Hveragerði | Árni Björn með mál-
verkasýningu. Opin kl. 9–22 daglega, til 14.
ágúst.
Gallerí Tukt | Rögnvaldur Skúli Árnason
sýnir málverk og teikningar til 5. ágúst. Opið
virka daga kl. 9–17.
Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar, „hin
blíðu hraun“, er frá Jóhannesi Kjarval. 12
listamenn sýna. Til 28. ágúst.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju á verkum Ásgerðar
Búadóttur veflistakonu stendur til 26.
ágúst. Í samvinnu við Listasafn Háskóla Ís-
lands.
Handverk og hönnun | Á sumarsýningunni
er til sýnis bæði hefðbundinn íslenskur list-
iðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu
hráefni eftir 37 aðila. Á sýningunni eru hlutir
úr leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og silfri. Sýn-
ingin stendur til 27. ágúst. Opið er alla daga
frá 13–17 og er aðgangur ókeypis.
Ketilhúsið Listagili | Hrefna Harðardóttir
sýnir veggskúlptúra úr leir. Til 13. ágúst.
Kirkjuhvoll Akranesi | Listsýning á verkum
eftir 12 nýútskrifaða nema frá Listaháskóla
Íslands. Listasetrið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 15–18. Til 13. ágúst.
Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur
Smith, Hafstein Austmann og Kristín Þor-
kelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einnig
eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar
Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið kl.13–
17. Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega
nema mánudaga kl. 14–17. Höggmyndagarð-
urinn við Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning Lo-
uisa Matthíasdóttir. Sýningin rekur allan
listamannsferil Louisu í sex áratugi. Til 20.
ágúst.
Listasafn Íslands | Landslagið og þjóðsag-
an, sýning á íslenskri landslagslist frá upp-
hafi 20. aldar og túlkun þjóðsagna. Verk úr
safneign og Safni Ásgríms Jónssonar. Opið í
Safnbúð og í Kaffitári í kaffistofu. Ókeypis
aðgangur. Opið daglega kl. 11–17, lokað
mánudaga til 19. ágúst.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir,
gifs, stein, brons og aðra málma – og hvern-
ig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum.
Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýning
á listaverkum sem voru valin vegna úthlut-
unar listaverka- verðlaunanna Carnegie Art
Award árið 2006. Sýningin endurspeglar
brot af því helsta í norrænni samtímalist en
meðal sýnenda eru fjórir íslenskir lista-
menn, meðal annars listmálarinn Eggert
Pétursson sem hlaut önnur verðlaun þetta
árið. Til 20. ágúst.
Erro - Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum
tímabilum í list Errós þær nýjustu frá síðast-
liðnu ári. Til 31. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem
fagurfræði er höfð að leiðarljósi við val verk-
anna og hefðbundin listasöguleg viðmið lát-
in víkja fyrir samhljómi þeirra. Margir af
helstu málurum þjóðarinnar eiga verk á sýn-
ingunni sem spannar tímabilið frá aldamót-
unum 1900 til upphafs 21. aldarinnar. Til 17.
sept.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
völdum skúlptúrum og portrettum Sig-
urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema
mánudaga kl. 14–17. Kaffistofan er opin á
sama tíma. Tónleikar á þriðjudagskvöldum.
Sjá nánar á www.lso.is
Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri
Norræna hússins til 27. ágúst. Ljósmyndir
frá Austur-Grænlandi eftir danska ljós-
myndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga
kl. 9–17. Laugardaga og sunnudaga kl. 12–17.
Out of Office – Innsetning. Listakonurnar
Ilmur Stefánsdóttir og Steinunn Knútsdóttir
í sýningarsal til 30. september. Opið alla dag
kl. 12–15, nema mánudaga. Gjörningar alla
laugardaga og sunnudaga kl. 15–17.
Nýlistasafnið | Björk Guðnadóttir, Daníel
Magnússon og Hildur Bjarnadóttir sýna. Til-
vist mannsins er drifkrafturinn að list Bjark-
ar. Daníel veltir fyrir sér sambandi texta og
ímyndunar og Hildur vinnur á nýjan hátt úr
textíl og ögrar hefðbundinni nálgun kons-
eptlistar.
Næsti bar | Sigurður Örlygsson sýnir ný
málverk. Sýningin stendur til 19. ágúst.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til
28. ágúst.
Safn | Bandaríska myndlistarkonan Joan
Backes sýnir ný málverk og skúlptúra í
Safni; samtímalistasafni við Laugaveg 37.
Einnig eru til sýnis verk úr safneigninni. Opið
er mið.–fös. kl. 14–18 og lau.–sun. kl. 14–17.
Ókeypis er inn.
Salfisksetur Íslands | Ari Svavarsson sýnir í
Listsýningarsal til 6. ágúst. Atli nefnir sýn-
inguna Tákn og leikur sér þar með línur og
form.
Skriðuklaustur | Bandaríska listakonan Ka-
milla Talbot sýnir vatnslitamyndir af ís-
lensku landslagi en hún hefur síðustu vikur
fetað í fótspor langafa síns, danska listmál-
arans Johannesar Larssen, sem gerði teikn-
ingar fyrir danska Íslendingasagnaútgáfu
um 1930.
Listakonan Ingrid Larssen frá Vesterålen í
Norður-Noregi sýnir hálsskart sem hún
vinnur úr silki, ull, perlum og fiskroði. Sýn-
ingin er liður í menningarsamstarfi Austur-
lands og Vesterålen.
Skúli í túni | Þóra Gunnarsdóttir sýnir „Upp-
tekin! -hef annað betra að gera“. Mynd-
bands- og hljóðinnsetning. www.skulit-
uni.com www.thoragunn.is. Til 6. ágúst.
Suðsuðvestur | Hreinn Friðfinnsson sýnir
innsetninguna Sögubrot og myndir í Suðs-
uðvestur í Reykjanesbæ. Sýningin stendur
til 20. ágúst. Opið, fimmtud. og föstudaga
kl. 16–18, um helgar kl. 14–17. www.sudsud-
vestur.is
Thorvaldsen Bar | Jónína Magnúsdóttir,
Ninný, með myndlistarsýninguna Í góðu
formi. Sýningin stendur til 11. ágúst.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning í til-