Morgunblaðið - 03.08.2006, Side 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
endurskoðun
reikningsskil
skattar / ráðgjöf
www.ey.is
EINS OG við mátti búast var líf í tuskunum –
og í þetta sinn í bókstaflegri merkingu – þegar
hinir síungu meðlimir Sumargleðinnar mát-
uðu í fyrsta sinn nýja og sérsniðna galla. Með
íslenska fánann á ermunum og skjaldarmerkið
við hjartastað eru gallarnir einstaklega þjóð-
legir og hafði Magnús Ólafsson það á orði að
sér liði bara eins og í landsliðinu, sem má til
sanns vegar færa enda Sumargleðin skipuð
óopinberu landsliði íslenskra skemmtikrafta.
Ragga Bjarna virtist ekki líða eins vel í
múnderingunni enda alræmdur snyrtipinni
sem er óvanur að spóka sig í íþróttafatnaði á
almannafæri. Til málamiðlunar sagði hann þó
að þetta væri voða fínt og uppskar hlátur fé-
laga sinna fyrir vikið. Hemmi var hins vegar
hinn stoltasti þar sem hann útskýrði hlæjandi
að gallarnir yrðu vígðir í Galtalæk, en Sum-
argleðin hyggst koma þar saman um versl-
unarmannahelgina og skemmta í fyrsta sinn í
tuttugu ár.
Morgunblaðið/Golli
Líf í tuskunum hjá Sumargleðinni
EIGENDUR sumarhúsa í Dag-
verðarnesi í Skorradal hafa kann-
að möguleika á því að flytja sum-
arhús sín af svæðinu þegar 20 ára
leigusamningur þeirra rennur út
á næstu árum, vegna þess sem
þeir kalla afarkosti nýrra landeig-
enda. Landeigendur hafna alfarið
ásökunum um að þeir setji af-
arkosti. Rösklega 100 bústaðir
eru á jörðinni í Dagverðarnesi,
sem er í eigu einkahlutafélagsins
Dagverðarness.
Dagverðarnes ehf. skipti ný-
lega um eigendur og segja sumar-
húsaeigendur sem Morgunblaðið
hefur rætt við að nýir eigendur
vilji selja sumarhúsaeigendum
lóðir sem nú séu leigulóðir, og að
þeir hafi gefið sterklega í skyn að
leigusamningar verði ekki fram-
lengdir. Segja þeir verðið langt
yfir markaðsverði, en verðið sem
sett er á lóðirnar er 925 krónur á
hvern fermetra. Á lóðum sem
standa við vatnið bætast svo 600
krónur við fermetraverðið og
verð á venjulegri lóð er því komið
upp í 3,8 milljónir króna.
Landeigendur hafa hugmyndir
um afar hátt lóðaverð og á lóðum
við vatnið jafngildir það um 15
milljónum króna á hektara, sem
er margfalt markaðsverð, að sögn
Runólfs Gunnlaugssonar, löggilts
fasteignasala og eiganda sumar-
húss á svæðinu. „Það er alveg
sama hvar maður ber niður, þetta
verð er langt, langt frá raunveru-
leikanum, því sem er að gerast á
markaðinum. Það myndi ekki
nokkur maður kaupa á þessu
verði ef hann væri ekki kúgaður
til þess, eins og verið er að reyna
hérna,“ segir Runólfur.
Arngrímur Hermannsson,
framkvæmdastjóri og einn nýrra
eigenda Dagverðarness ehf.,
hafnar því algerlega að lóðirnar
séu seldar langt yfir markaðs-
verði. Hann segir enga afarkosti
setta, sumarhúsaeigendum sé
gert kleift að kaupa lóðirnar en
engu hafi verið hótað og engin
ákvörðun tekin um að endurnýja
ekki leigusamninga. Hann segir
málið unnið í samvinnu við stjórn
Félags sumarhúsaeigenda í Dag-
verðarnesi.
Sumarhúsaeigendur í Dagverðarnesi kanna möguleika á flutningi bústaða
Uppsett lóðaverð landeig-
enda langt frá markaðsverði
Kanna möguleika | 11
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
EINUM stærsta laxi sumarsins var landað
í Laxá í Aðaldal í gær. Það var Björn Jó-
hannesson sem náði, eftir rúmlega hálf-
tíma baráttu, að landa laxinum sem vó tæp
24 pund, eða tæp 12 kíló. Laxinn er sá
þyngsti sem veiddur hefur verið í ánni í
sumar og telja menn að hér sé um að ræða
þann stærsta lax sem veiddur hefur verið
á landinu það sem af er sumri. Laxinn beit
á hjá Birni þar sem hann var við veiðar við
Spegilflúð í Laxá í Aðaldal og segir Björn
að hann hafi ekki kynnst öðrum eins átök-
um í laxveiðum áður. Hann naut dyggrar
aðstoðar Péturs Péturssonar veiðileið-
sögumanns sem að sögn Björns gerði
gæfumuninn. Veður var eins og best verð-
ur á kosið en skýin skriðu frá sólinni
skömmu eftir að laxinum stóra var náð á
land. Björn notaði fluguna Svarta snældu
og 12,5 feta langa stöng.
24 punda laxi
var landað í
Laxá í Aðaldal
ÞÓNOKKUÐ verður um skipulögð hátíða-
höld um verslunarmannahelgina, en að
minnsta kosti 14 hátíðir verða víða um
landið. Mikil áhersla er lögð á að koma til
móts við fjölskyldufólk og eru nánast eng-
ar hátíðir sem eingöngu eiga að höfða til
ungs fólks, og hafa slíkar hátíðir verið á
undanhaldi undanfarin ár.
Búast má við að allt að 100 þúsund
manns verði á faraldsfæti um helgina og
að sögn Jóns Bjartmarz, yfirlögregluþjóns
hjá Ríkislögreglustjóra, verður umferð-
areftirlit stóraukið um helgina og verða
tíu auka lögreglubílar við eftirlit á þjóð-
vegum landsins.
Búast má við mildu veðri víðast hvar,
með smávætu, þó aðallega á vestur- og
suðvesturhorni landsins. | Daglegt líf
100 þúsund
manns á faralds-
fæti um helgina
Morgunblaðið/Margrét Þóra
HUGMYNDIR um sameiginlegt
forval og kosningabaráttu til Alþing-
is í Reykjavíkurkjördæmunum
tveimur auk Suðvesturkjördæmis
eru langt komnar í mótun innan raða
Vinstri grænna. Enn á þó eftir að
bera þær undir almenna flokks-
menn.
„Við höfum verið að vinna út frá
þessum hugmyndum og erum að
setja saman reglur um forval, að
beiðni svæðisfélaganna,“ segir Svan-
hildur Kaaber, fyrrum varaformaður
flokksins. Hún fer fyrir starfshópi
sem skipaður var til að skoða hug-
mynd um sameiginlegt forval. Al-
mennt þótti forval flokksmanna í
þessum kjördæmum heppnast vel
fyrir síðustu sveitarstjórnarkosning-
ar. Litið er svo á að á höfuðborg-
arsvæðinu séu landamæri milli kjör-
dæma í raun lítil og því tilvalið að líta
á þau sem eitt svæði.
Kjósandi velji þrjá í fyrsta sæti
„Í reglunum er gert ráð fyrir að
litið sé á þessi þrjú kjördæmi sem
eitt. Þetta er ný hugsun og mér
finnst hún mjög spennandi,“ segir
Svanhildur. Forval færi þannig fram
að hver kjósandi veldi þrjá í fyrsta
sæti, þrjá í annað sæti o.s.frv. og svo
yrði raðað upp á lista í hverju kjör-
dæmi með hliðsjón af úrslitum, án
þess að horft yrði til þess sérstak-
lega hvar á höfuðborgarsvæðinu
frambjóðandi býr. „Þegar hópurinn
skilar af sér verður hugmyndin að
vonum kynnt og rædd í viðkomandi
kjördæmum og tekin afstaða.“ Svan-
hildur bætir við að þeir flokksmenn
sem af hugmyndinni hafi heyrt virð-
ist almennt mjög jákvæðir. Hún mun
upphaflega hafa verið viðruð á lands-
fundi í haust. Tillaga starfshópsins
um þessar nýju reglur verður vænt-
anlega send formönnum kjördæmis-
ráða eftir helgina.
„Það þarf auðvitað umræðu og
undirbúning,“ segir Svanhildur.
Ekki er á hreinu hvenær forval
myndi fara fram en hún segir það
sína persónulegu skoðun að best
væri að það gerðist vel fyrir jól.
Þrjú kjördæmi höfuð-
borgarsvæðis verði eitt
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
SÍÐDEGIS í gær voru fjórar konur
úr hópi mótmælenda Kára-
hnjúkavirkjunar handteknar og
færðar á lögreglustöðina á Egils-
stöðum til yfirheyrslu. Þær höfðu
farið inn á vinnusvæðið og ekki hlýtt
fyrirmælum lögreglu. Þetta eru
fyrstu handtökurnar vegna mót-
mæla við Kárahnjúka í sumar.
Mótmælendur, sem dvalist höfðu í
búðum við Snæfell, hafa fært búðir
sínar að Lindum á bökkum Jökulsár
á Brú. Nýju búðirnar eru í göngu-
færi við virkjunarsvæðið sjálft og
þar dveljast eftir því sem næst verð-
ur komist um 50-60 manns. Mótmæl-
endurnir segjast ekki hafa farið í
sprengiefnageymslur hjá Arnarfelli
á mánudagskvöld, þá hafi þeir verið
yfir í Snæfelli. Þeir bera af sér öll
skemmdarverk og aðrar sakir um
glæpsamlega hegðun. Þá segja þeir
lögregluna ætla að svelta þá inni
með tálmum á veginum inn í Lindir
og aftra því að vistum og vatni verði
komið til þeirra.
Lögreglan segir að hvorki liggi
fyrir leyfi landeiganda né heilbrigð-
isyfirvalda fyrir nýju tjaldbúðunum,
sem eru í landi Valþjófsstaðar og því
í eigu prestssetrasjóðs. Settir hafi
verið upp tálmar á veginum þangað
þar sem um sé að ræða vinnusvæði.
Lögregla hefur tilkynnt mótmæl-
endum að þeir verði að koma sér
burt en ekki aðhafst í því skyni enn.
Fjórir mót-
mælendur
handteknir
Ljósmynd/Gunnar G.
Lögregla ræðir við mótmælendur.
♦♦♦