Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 8  9 !:;   #$ #$ < < '$!= >+?   #$ #$ < < @+@  A.?!1 #   #$ %$ < < A.?5 8     %$ %$ < < B@=? >1CD1    #$ #$ < <   ,-.   /  -.* 0/*1  -0 -,,% ! <= <  +E 0 &1F# + E # +1 &1F# +01 &1F# G 0&1F# > HI # '/&1F# & H # 5 F2 H # /  H *   # . # .1 E' 1 # ;,'+ E;1 ! JG  '%#H # K # > ?   =L  # ' &1F# BE E&1F# 8M%# $(    # N   # 0   3 !3 !   0# 3 #   B@=O !"  0 #0 $        &  $  & & & & &  G(  ( 0 #0 J  J J J J J J J J  J J  J J J  J J J J J J J PJ< PJ< PJ < J PJ< PJ < PJ < PJ< PJ< P < PJ < J P < PJ< PJ < PJ < J PJ< J J J J PJ< Q 0 F   $H1"1  R 5 F!  #  # #  #  #  # # # # # #  #  # J # # #  #  J #  J J J J #                                                  J J J   N F"2I # # +$Q#S+    '% 0 F       J   J  J J J J ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● STJÓRN Kaupþings banka hf. mun leggja það til á hluthafafundi, sem haldinn verður 16. október næst- komandi, að hluthöfum í félaginu verði greiddir 830.691.316 hlutir í Exista hf. í arð. Það svarar til 7,7% af heildarhlutafé Exista. Markaðs- virðið er um 19 milljarðar króna. Samkvæmt tillögu stjórnar Kaup- þings banka munu hluthafar fá 1,25 hluti í Exista fyrir hvern hlut í bank- anum, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá Kaupþingi banka. Kaupþing banki greið- ir hluti í Exista í arð ● Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,82% á fyrsta viðskiptadegi fjórða ársfjórð- ungs og var hún skráð 6,234,38 stig við lok við- skipta. En alls námu hlutabréfa- viðskipti 5,4 milljörðum króna í gær. Hlutabréf Atlantic Petroleum hækkuðu mest, eða um 1,36%. Bréf Landsbankans hækkuðu um 0,38%, en bréf annarra félaga hækkuðu ekki í viðskiptum gærdagsins. Mest lækkuðu bréf Exista eða um 1,72% og bréf KB banka lækkuðu um 1,65%. Þá lækkuðu bréf Icelandic Group um 1,25%. Úrvalsvísitalan lækkar um 0,82% Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is DRAGA mun úr þjóðarútgjöldum á komandi árum en minnkandi við- skiptahalli mun leiða hagvöxtinn, sem verður 1,0% á næsta ári og 2,6% á árinu 2008, ef spá fjármálaráðu- neytisins gengur eftir. Ráðuneytið spáir einnig að verðbólga muni ganga hratt niður. Er gert ráð fyrir 4,5% verðbólgu á næsta ári og 2,5% á árinu 2008. Þetta kemur fram í nýrri þjóðhagsspá ráðuneytisins sem kynnt var í gær. Í spánni eru þær forsendur sem gengið er út frá í fjár- lagafrumvarpinu fyrir árið 2007, sem fjármálaráðherra kynnti í gær. Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofu- stjóri efnahagsskrifstofu fjármála- ráðuneytisins, sagði á fréttamanna- fundi í gær, þar sem hann kynnti þjóðhagsspána, að hlutur stóriðju hefði ekki ráðið úrslitum um aukið ójafnvægi í þjóðarbúskapnum að undanförnu. Nýjungar á fjármála- markaði hefðu leitt til aukins fram- boðs og eftirspurnar eftir lánsfé sem hefði haft áhrif til að snarauka inn- lenda eftirspurn. „Það er mikil einföldun að skrifa ójafnvægi í þjóðarbúskapnum á mis- tök í hagstjórn. Hagstjórnin hefur verið virk en erfitt að tímasetja að- gerðir. Aðhald í peningastjórn hefur verið aukið mikið undanfarin miss- eri. Það hefði mátt hækka vexti fyrr og meira,“ sagði Þorsteinn. Hagkerfið leitar jafnvægis Í þjóðhagsspánni er því spáð að viðskiptahallinn muni dragast hratt saman og verða 10,7% af landsfram- leiðslu árið 2007 og 3,8% árið eftir. Þá er gert ráð fyrir að atvinnuleysi aukist úr 1,3% í ár í 2,1% á næsta ári. Í langtímaspá fjármálaráðuneytis- ins til ársins 2012 er því spáð að hag- kerfið muni leita jafnvægis. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur í lok tímabils- ins muni nema um 3%, verðbólga rúmlega 2% og viðskiptahalli um 2% af landsframleiðslu. Helstu óvissuþættirnir í þjóð- hagsspá fjármálaráðuneytisins eru gengi krónunnar, frekari stóriðju- framkvæmdir og þróun alþjóðlegra efnahagsmála, að því er segir í spánni. Ekki er gert ráð fyrir áfram- haldandi stóriðjuframkvæmdum í þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins. Minnkandi viðskiptahalli mun leiða hagvöxtinn Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Ekki stóriðja Í þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins er ekki gert ráð fyrir frekari stóriðjuframkvæmdum þegar núverandi framkvæmdum lýkur. Fjármálaráðu- neytið spáir 4,5% verðbólgu 2007 Í HNOTSKURN » Spáð er 1,0% hagvexti ánæsta ári og 2,6% á árinu 2008, samanborið við 4,2% á þessu ári og 7,5% árið 2005. »Verðbólga verður 4,5% áárinu 2007 og 2,5% árið eftir, en er áætluð 7,3% í ár. »Helstu óvissuþættir varðagengið, stóðiðjufram- kvæmdir og aðstæður í al- þjóðlegu efnahagslífi. GREINING Landsbankans gerir ráð fyrir að stýrivextir hafi náð há- marki og muni lækka hratt á næsta ári. Þetta kemur fram í Vegvísi bankans í gær en greiningardeildin byggir spá sína á því að hröð lækkun verðbólgunnar muni leiða til stór- aukins aðhaldsstigs peningastefn- unnar að óbreyttum stýrivöxtum. Miðað við verðbólguspá deildar- innar munu 14% stýrivextir jafn- gilda um 11% raunstýrivöxtum á næsta ári, en til samanburðar hafi raunstýrivextir verið neikvæðir á öðrum fjórðungi ársins og 7% á þeim þriðja. Telur deildin óhugsandi að Seðlabankinn stefni að svo háum raunstýrivöxtum og telur því líklegt að stýrivextir verði lækkaðir strax í upphafi næsta árs. Stýrivextir muni lækka samtals um 5,5 prósentur á árinu 2007 og verði komnir niður í 8,5% undir lok ársins. Greining Glitnis spáir því hins vegar í Morgunkorni bankans í gær að Seðlabankinn muni ljúka vaxta- hækkunarferlinu með 0,25 prósentu hækkun í byrjun nóvember nk. Vaxtalækkanir hefjist í byrjun apríl á næsta ári og verði þeir komnir und- ir 10% fyrir lok ársins 2007. Spá snöggri vaxtalækkun FL Group á stutt í land með að selja Ólafi Ólafs- syni, fjárfesti og stjórnarformanni Samskipa, Ice- landair. Þetta kemur fram í frétt á vef Fin- ancial Times (FT) en þar segir að kaupverðið gæti verið á bilinu 46 til 66 milljarðar króna og að söluhagn- aður FL Group gæti losað meira en 20 milljarða íslenskra króna. Hannes Smárason, forststjóri FL Group, neitaði að tjá sig um söluna en FT hafði þó eftir honum að Icelandair væri áhugaverður kostur fyrir fjár- festa sem „vildu vera með nær því einokunarstöðu í ferðalögum til og frá hinni litlu eyju í Norður-Atlants- hafi“. Þá greindi Fréttablaðið frá því að SAS hefði sýnt Icelandair áhuga en talsmenn SAS segjast ekki eiga í samningaviðræðum við FL Group vegna kaupa á Icelandair. Stutt í sölu FL Group á Icelandair

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.