Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 276. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Andri Snær Magnason rithöfundur og Illugi Gunnarsson hagfræðingur fjalla um þetta viðkvæma mál á opnum morgunfundi Samtaka iðnaðarins fimmtudaginn 5. október á Hótel Nordica. Sjá nánar dagskrá á www.si.is Hver er stefna stjórnvalda? Er hægt að sætta sjónarmið um nýtingu og verndun? 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Sunnan og suð- austan 3 – 8m/ sek. 8 – 13 vestan til. Léttskýjað NA- og Austanlands, annars skýjað, súld eða rigning. » 8 Heitast Kaldast 10°C 5°C KAUPHÖLL Íslands hefur ákveð- ið að áminna Atorku Group hf. op- inberlega og beita félaginu févíti að fjárhæð 2,5 milljónir króna fyr- ir brot við reglur Kauphallarinnar. Í tilkynningu frá Kauphöllinni segir að málavextir snúist um fréttatilkynningu sem Atorka sendi Kauphöllinni vegna birting- ar á sex mánaða uppgjöri félags- ins hinn 30. ágúst sl. Fyrirsögn til- kynningarinnar var: „Hagnaður Atorku Group eftir skatta á fyrri helmingi ársins var tæplega 4,9 milljarðar króna“. Við lestur upp- gjörsins hafi hins vegar komið í ljós að hagnaður samstæðu Atorku var 187 milljónir króna. Þær lykiltölur sem komu fram í fréttatilkynningunni hafi aðeins verið lykiltölur móðurfélagsins en engar lykiltölur voru um samstæð- una. Villandi tilkynning Atorka Group er samstæða og segir í tilkynningu Kauphallarinn- ar að samkvæmt samningi við Kauphöllina eigi félagið að birta uppgjör samstæðunnar. Þá segir að framsetning félagsins að láta upplýsingar um uppgjör móður- félagsins í fyrirsögn og gera það að meginefni tilkynningarinnar sé til þess fallin að villa um fyrir fjár- festum. Atorka hefur falið lögmönnum sínum að höfða dómsmál til ógild- ingar ákvörðun Kauphallarinnar og lýsir Kauphöllina ábyrga fyrir því tjóni sem málið kunni að valda, að því er segir í tilkynningu frá Atorku Group hf. Atorka áminnt og sektuð Höfða dómsmál til ógildingar á ákvörð- un Kauphallarinnar ENGINN karlmaður sinnir starfi ljósmóður á fæðingardeildum sjúkrahúsanna hér á landi og er Ís- land eftirbátur hinna Norð- urlandaþjóðanna í þessum efnum því þar eru starfandi ljósfeður. Í Svíþjóð eru þeir fimmtíu talsins enda er lögð mikil áhersla á að fjölga körlum í kvennastörfum þar í landi. Íslenskir ljósfeður hurfu af sjónarsviðinu árið 1933 og af ein- hverjum ástæðum hafa karlmenn ekki sótt í þetta nám. Erla Dóris Halldórsdóttir veltir fyrir sér hvort þetta hafi eitthvað með karlmennskuna að gera en hún rannsakar sögu ljósfeðra á Íslandi í doktorsverkefni sínu í sagnfræði sem hún vinnur að um þessar mundir. | 22 Engir ljós- feður frá 1933 Morgunblaðið/Kristinn STYRKIR úr Minningarsjóði frú Stefaníu Guð- mundsdóttur, fyrir leikárið 2005–2006, voru af- hentir við hátíðlega athöfn í Iðnó í gærkvöldi. Það voru þeir Baltasar Kormákur, Gretar Reyn- isson og Gunnar Eyjólfsson sem hlutu styrkinn þetta skiptið. Í tilefni af því að í ár eru 130 ár liðin frá fæð- ingu frú Stefaníu lét stjórn sjóðsins gera minja- genring, Gretar Reynisson, Edda Arnljótsdóttir, sem tók á móti minjagripnum fyrir hönd Ingvars Sigurðssonar, Gísla Arnar Garðarssonar og Nínu Daggar Filippusdóttur, þá koma Baltasar Kormákur, Gunnar Eyjólfsson, Steindór Sig- urðsson, Jón Viðar Jónsson, Sigurður Skúlason og Þorsteinn Gunnarsson, sem jafnframt hann- aði minjagripinn. | 16 grip handa öllu því leiklistarfólki sem hlotnast hefur heiðurinn frá því að styrkurinn var fyrst veittur árið 1970. Á myndinni sem tekin var við afhendinguna eru f.v. Sigurður Sigurjónsson, Hilmir Snær Guðnason, Jóhanna Vigdís Arn- ardóttir, Edda Heiðrún Backman, Halldóra Geir- harðsdóttir, Sunna Borg, Stefán Baldursson, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Valdimar Örn Fly- Morgunblaðið/Árni Sæberg Veitt úr Minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur segir að yfir landið í heild sé flokk- un lambanna svipuð og í fyrra og jafnvel aðeins betri hvað varðar holdfyllingu. Telur hann að þegar upp verði staðið muni munurinn á meðalfallþunga ekki verða langt frá því sem var í fyrra og að fram- haldið ráðist af tíðarfari og haust- beit. ALDREI hefur verið jafnlítið um að Íslendingar vinni í sláturhúsum og nú, að sögn Hermanns Árna- sonar, stöðvarstjóra Sláturfélags Suðurlands á Selfossi. Sláturhús landsins eru nú að stórum hluta mönnuð erlendu vinnuafli þar sem erfiðlega gengur að fá Íslendinga í vinnu. Sigurður Jóhannesson, formaður stjórnar Landssamtaka sláturleyfishafa og framkvæmdastjóri SAH Afurða ehf. á Blönduósi, segir að mikil fólksfækkun á landsbyggðinni valdi því m.a. að íslenskt starfsfólk sé ekki á lausu til að vinna í slát- urtíðinni. Flestir erlendu starfs- mennirnir komi sérstaklega til að vinna í sláturtíðinni og eru Svíar og Pólverjar áberandi á Blönduósi. Sauðfjárslátrun stendur nú sem hæst og eru horfur á að hún verði álíka mikil og í fyrra þegar slátrað var um 508 þúsund dilkum. Stefán Vilhjálmsson, fagsviðsstjóri kjöt- mats hjá Landbúnaðarstofnun, Erfitt að fá Íslend- inga í sláturhúsin Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Í HNOTSKURN » Lömbin, sem var slátrað íupphafi sláturtíðar í ár, voru ívið léttari en í fyrra um norðan- og norðaustanvert landið en svipuð og í fyrra á öðrum landsvæðum. »Í fyrra var slátrað rúm-lega 508 þúsund dilkum og stefnir í að slátrun verði svip- uð í ár.  Sláturhúsin | 12 Sláturtíð stendur nú sem hæst og hold- fylling lamba í ár er betri en í fyrra LÖGREGLUNNI á Selfossi var í gærmorgun tilkynnt um innbrot í Hvítasunnukirkjuna á Selfossi. Það- an var m.a. stolið myndvarpa, tölvu- skjá, myndbandstökuvél og ein- hverju lausafé. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni hefur innbrotið átt sér stað á tímabilinu frá kl. 13 á sunnudag til kl. 8 í gærmorg- un. Lögreglan biður þá sem hafa orðið varir við óeðlilegar mannaferðir við Hvítasunnukirkjuna við Austurveg á Selfossi á þessum tíma að hafa sam- band. Brotist inn í kirkju á Selfossi ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.