Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 40
|þriðjudagur|3. 10. 2006| mbl.is Staðurstund Húmorinn er allsráðandi í Brottnáminu úr kvennabúrinu og uppfærslan vel heppnuð, að mati Jónasar Sen. » 43 ópera Söngkonan Katie Melua freistar þess að setja heimsmet þegar hún heldur tónleika á 100 metra dýpi í Norðursjó. » 48 tónlist Ashton Kutcher fer með hlut- verk í tveimur vinsælustu myndunum í bíóhúsum Banda- ríkjanna um helgina. » 42 bíómyndir Þröstur Helgason skoðar hvaða skáldsögur eru væntanlegar með haustinu og hvað sé þar spennandi á ferð. » 43 bækur Samspil náttúru og menningar virðist vera viðfangsefnið í mál- verkum Magnúsar Helgasonar í Galleríi Fold. » 45 myndlist HLJÓMPLATAN Dirty paper cup með söng- og tónlistarkonunni Haf- dísi Huld kom út í gær í Bretlandi. Platan hefur fengið prýðisdóma í bresku pressunni að undanförnu og fyrir helgi birtist svo fjögurra stjörnu dómur í hinu virta dagblaði The Guardian. Hér á Íslandi er Hafdís ef til vill betur kunn sem fyrrum söngkona Gus Gus en eftir að hún sagði skilið við fjöllistahópinn fluttist hún til Englands þar sem hún lagði stund á frekara tónlistarnám auk þess sem hún söng um hríð með hljóm- sveitinni FC Kahuna. Platan mikil þroskasaga Hafdís segir að vinnan að Dirty paper cup hafi byrjað fyrir fimm árum þegar hún fluttist til London. „Ég neyddist til að vinna plötuna með fram því að starfa með FC Kahuna og stunda nám í upptöku- og tónsmíðum.“ Þú hefur ekki verið hrædd um að platan hljómaði úr takti við annað? „Nei, alls ekki. Ég var ákveðin í því að vinna plötuna virkilega vel og hafa ekki áhyggjur af því hvort hún kæmi út einu eða fimm árum eftir Gus Gus. Ég hef líka á þessum tíma öðlast mikla reynslu í gegnum tónlistarnámið, samið með öðrum sem þroskar mann mjög mikið þannig að ég held að platan hefði ekki getað orðið eins góð hefði ég dembt mér í að gera hana undir- eins.“ Lag um „bestu“ vinkonuna Fyrsta smáskífan af plötunni kom út fyrir nokkru í Bretlandi og kallast „Tomoko“. Í því leika þær vinkonurnar Hafdís Huld og Álfrún Örnólfsdóttir leikkona. „Lagið er um vinkonu mína sem er æðislega meiriháttar og ég held að allar stelpur eigi svipaða vin- konu, sem er aðeins mjórri og að- eins betri í skóla, hárið á henni glansar aðeins meira en á þér. Hún er aldrei jafn blönk og þú og allt virðist einhvern veginn ganga upp hjá henni. Vinkona mín, sem lagið fjallar um, veit alveg af þessu og finnst þetta jafn sniðugt og mér og „by the way“ þá er þetta ekki Álf- rún – bara svo það sé á hreinu,“ segir Hafdís Huld og hlær.“ Ekki leiðum að líkjast Aðspurð hvort henni sé líkt við Emilíönu eða Björk í breskum fjöl- miðlum segir Hafdís Huld að það sé óumflýjanlegt. „En það er svo sem ekki leiðum að líkjast og þar sem ég tala ensku með sterkum íslenskum hreim, er dökkhærð og fremur lágvaxin þá liggur þetta mjög beint við.“ Á fimmtudaginn leggur Hafdís Huld upp í tónleikaferðalag um Stóra-Bretland með bresku rokk- abillísveitinni Vincent Vincent and the Villains en þar á eftir fer hún til Frakklands þar sem platan kem- ur út 10. nóvember. Einnig er fyr- irhuguð ferð til Danmerkur og Spánar en tónleikaferð um Ísland verður líklega ekki fyrr en um jól- in. Prýðilegur árangur Hafdís Huld fékk fjórar stjörnur hjá gagnrýnanda The Guardian. Hafdís Huld gefur út plötu í Bretlandi BILL Holman er einn af helstu stórsveitarútsetjurum og stjórn- endum djassins á síðari hluta 20. aldarinnar og á NASA sannaði hann að hann hefur engu gleymt. Hann útsetti fyrir stórsveitir Stan Kentons, Gerry Mulligans, Woody Hermans, Buddy Richs og Count Basie, svo þær helstu séu nefndar, og sumt af því fengum við að heyra á þessum tónleikunum í upphafi Jazzhátíðar Reykjavíkur. Sveitin hóf leikinn með hinu sí- vinsæla lagi Jerome Kern, „Old Man River“, og var dálítið sál- arbragð af útsetningu Holmans. Í næsta lagi, „Any Duéll Do“ eftir hann sjálfan var brassið ótrúlega voldugt og spilaði sveitin þetta með elegans og Kiddi Svavars minnti á Leo Parker í barýtonsóló sínum. Svo var þeyst í hálfrar ald- ar gamla útsetningu Holman á „After Yoúve Gonne“ og end- urgerð á „Stompin At The Savoy“. Spilamennska sveitarinnar var frábær, en aðeins fataðist henni flugið í snilldarútsetningu Holm- ans á Monkklassíkinni „Ruby My Dear“ þar sem ballaðan var skreytt boppfrösum. „Midnight Run“, „Ready Mix“ og „Norwegi- an Wood“ skrifaði Holman fyrir Buddy Rich og samdi tvö þau fyrstnefndu sjálfur, en það þriðja er að sjálfsögðu Bítlaklassíkin. Ekki fannst mér sú útsetning vel- heppnuð en sóló Eyþórs var frum- legur. Sigurður Flosason var ein- leikari í „Stella By Starlight“, sem Holman skrifaði fyrir Stan Kenton, og var sóló hans frábær. Stefán S blés altósólóinn í „Lover Man“ og var nær Parkerskólanum með að- kenningu af Sanborn en Siggi, sem var með hinn svala altótón einsog Bud Shank, sem blés Stellu með Kenton. „You Go To My Head“ svíngaði feitt og „Just Friends“ lag- línan var skreytt stórskemmtilegum saxafónfraseringum. Þetta voru einir bestu tónleikar Stórsveitar Reykjavíkur sem ég hef heyrt og Holman sannaði svo sann- arlega snilli sína sem útsetjari þarna. Ekki spillti fyrir hve magn- aðir einleikarar eru í sveitinni og fyrir utan þá sem þegar eru nefndir má geta Kjartans Hákonarssonar, Snorra Sigurðarsonar, Samúels Jóns, Jóels Pálssonar og Ólafs Jóns- sonar sem blésu áttu marga góða sólóa og hrynsveitin hélt sveiflunni gangandi af miklum krafti. Stórsveitartöfrar Bill Holmans Snilld „Þetta voru einir bestu tónleikar Stórsveitar Reykjavíkur sem ég hef heyrt og Holman sannaði svo sannarlega snilli sína sem útsetjari.“ Tónlist NASA Stórsveit Reykjavíkur: Einar St. Jónsson, Kjartan Hákonarsson, Snorri Sigurðarson og Ívar Guðmundsson trompeta, Oddur Björnsson, Edward Frederiksen og Sam- úel J. Samúelsson básúnur, David Bo- broff bassabásúnu, Sigurður Flosason, Stefán S. Stefánsson, Jóel Pálsson, Ólaf- ur Jónsson og Kristinn Svavarsson saxó- fóna, Eyþór Gunnarsson rafpíanó, Eðvarð Lárusson gítar Gunnar Hrafnsson bassi og Jóhann Hjörleifsson trommur. Stjórn- andi og útsetjari Bill Holman. 27. sept- ember 2006. Jazzhátíð Reykjavíkur Vernharður Linnet

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.