Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn BORGARAR Í HÁSKA! ÞETTA LÍTUR ÚT FYRIR AÐ VERA VERK FYRIR... ÓÁKVEÐNA MANNINN ÉG HEF ALDREI VERIÐ SVONA LEIÐUR ÉG VILDI AÐ ÉG GÆTI HJÁLPAÐ ÞÉR, KALLI, EN ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ OF ERFITT ÁTTU VIÐ AÐ PERSÓNULEIKI MINN SÉ OF FLÓKINN FYRIR ÞIG AÐ SKILJA? NEI, ÉG SKIL EKKI HVERNIG PERSÓNULEIKI ÞINN GETUR VERIÐ SVONA EINFALDUR ÉG ER AÐ VERÐA MEIRA OG MEIRA EINS OG TÍGRISDÝR EKKI HREYFA ÞIG Á MEÐAN ÉG GERI RENDUR HVERNIG LÍT ÉG ÚT? ÞÚ LÍTUR BETUR ÚT EN... ÞAÐ VANTAR EITTHVAÐ TIL ÞESS AÐ ÞÚ SÉRT ALVÖRU TÍGRISDÝR VANTAR AÐ FÍN- PÚSSA ÉG ÆTLA AÐ NÁ Í PLAST- VÍGTENNURNAR SEM ÉG NOTAÐI Á ÖSKUDAGINN VIÐ RÉÐUMST Á FRANSKAN KASTALA OG EIGANDINN LÉT OKKUR FÁ ÞENNAN POKA FULLAN AF GERSEMUM ÁN ÞESS AÐ VIÐ ÞYRFTUM SVO MIKIÐ SEM AÐ LYFTA LITLAFINGRI OG HVAÐ ER SVO Í POKANUM EKKI HUGMYND! ÉG ER EKKI BÚINN AÐ OPNA HANN GAMLAR FRANSKAR KARTÖFLUR! GRÍMUR, MEIDDI MAMMA ÞÍN ÞIG EINHVERN TÍMANN ÞEGAR ÞÚ VARST LÍTILL HVOLPUR? JÁ, EINU SINNI ... ÞEGAR HÚN VAR AÐ BAKKA BÍLNUM ÚT ÚR INNKEYRSLUNNI ÉG HAFÐI SVO MIKLAR ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ FÓLK YRÐI ÓÁNÆGT MEÐ NÝJA HÁRIÐ MITT, EN ÞAÐ HEFUR ENGINN SAGT NEITT KEMUR ÞAÐ ÞÉR Á ÓVART? FÓLK HEFUR NÓG AF SÍNUM EIGIN VANDAMÁLUM ÁN ÞESS AÐ VERA HUGSANDI UM HVERNIG HÁRIÐ Á NÆSTA MANNI LÍTUR ÚT NEMA AÐ ÞAÐ SÉ JENNIFER ANISTON JÁ, HÚN MÆTTI NÚ ALVEG KLIPPA AÐEINS AF ÞVÍ ÉG VARÐ AÐ VERA VISS UM AÐ ÉG VÆRI NÓGU STERKUR TIL ÞESS AÐ GETA GERT ÚT AF VIÐ KÓNGULÓARMANNINN ÞANGAÐ TIL MÁ ENGINN VITA AÐ ÉG ER ALVÖRU NAS- HYRNINGURINN ÞIÐ KJAFTIÐ EKKERT, ER ÞAÐ NOKKUÐ STRÁKAR? NEI... BJÓST EKKI VIÐ ÞVÍ MEÐLIMIR Castellers de Vilafranca-hópsins mynda mennskan turn á keppni sem haldin er hálfsárslega í borginni Tarragona á Norðaustur- Spáni. Myndun mennskra turna er forn katalónsk hefð en það þarf á bilinu hundrað til tvö hundruð manns til að búa til stóran turn á við þennan. Mennskur turn Það endurspeglast ekki ístjórnmálum landsins aðhelmingur landsmanna erukonur. Það virðist sem á Alþingi sé einhvers konar 30% múr á hlutfalli kvenna og var jafnvel svo að kvenþingmönnum fækkaði í síðustu alþingiskosningum frá því sem áður var,“ segir Steinunn Gyðu- og Guð- jónsdóttir, ráðskona atvinnu- og stjórnmálahóps Feministafélags Ís- lands, en hópurinn stendur fyrir stjórnmálaskóla fyrir konur 6. og 7. október næstkomandi. „Með þessu framtaki vonumst við til að virkja áhuga fleiri kvenna á stjórnmálum og hvetja konur til að bjóða sig fram í auknum mæli í próf- kjörum stjórnmálaflokkanna sem fram fara núna í október og nóv- ember, enda verður konum ekki fjölgað á Alþingi ef þær bjóða sig ekki fram,“ segir Steinunn. „Stjórn- málaskólinn er þverpólitískur og op- inn öllum konum, á hvaða aldri sem er, og enginn bakgrunnur í stjórn- málastarfi nauðsynlegur. Konur sem þegar eru byrjaðar að stíga sín fyrstu skref í heimi stjórnmálanna hafa ugglaust líka gott af að koma og kynnast nýjum sjónarmiðum.“ Þetta er í fyrsta skipti sem Stjórn- málaskóli af þessu tagi er haldinn á vegum Feministafélagsins og verður kennslan með fjölbreyttu sniði: „Fjallað verður um mikilvægi kvenna í stjórnmálum og mikilvægi pólitísks tengslanets kvenna. Við munum halda smiðjur þar sem feng- ist verður við raunveruleg hitamál, um þau fjallað og unnin ályktun um þau með sama hætti og gert yrði innan stjórnmálaflokks,“ útskýrir Steinunn. „Pallborðsumræður munu fara fram með þátttöku kvenfulltrúa úr öllum stjórnmálaflokkum, sem ræða munu um möguleika ein- staklingsins til að hafa áhrif innan flokksins. Haldin verða fræðandi er- indi um forystuhlutverkið, og um tjáningu og framkomu, og fjallað um samþættingu kynjasjónarmiða í ákvörðunum stjórnvalda.“ Stjórnmálaskólinn verður til húsa í sal BHM í Borgartúni 6 og er þátt- taka ókeypis. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.fem- inistinn.is þar sem einnig má skrá þáttöku. Hvert stefnir Feministafélagið? Fjölbreytt starfsemi er fram- undan hjá Feministafélaginu í vetur. Í dag, þriðjudag, verður haldinn mánaðarlegur fundur félagsins: „Við hittumst fyrsta þriðjudag hvers mánaðar og ræðum í þaula þau efni sem eru mest aðkallandi hverju sinni. Í þetta skipti verður fjallað um framtíðarstefnumótun félagsins, en Feministafélagið er ungt, stofnað fyrir tæplega 4 árum, og starfsemin verið ákaflega fjölbreytt á þeim tíma,“ segir Steinunn. „Við efnum til pallborðsumræðna með þátttöku kvenréttindaforkólfa af ýmsum svið- um og reynum að varpa ljósi á hver eiga að verða brýnustu viðfangsefni félagsins næsta áratuginn eða svo.“ Í lok október verður svo haldin hátíðleg Feministavikan: „Þá standa allir hópar Feministafélagsins fyrir atburðum, hver með sínu sniði, en innan félagsins starfa margir og fjöl- breyttir hópar sem sinna ólíkum málum.“ Jafnréttismál | Feministafélagið heldur stjórnmálanámskeið 6. og 7. október Stjórnmálaskóli fyrir konur  Steinunn Gyðu- og Guð- jónsdóttir fædd- ist í Kaupmanna- höfn 1982. Hún lauk stúdents- prófi frá MH 2001 og lauk BA- prófi í mann- fræði við Há- skóla Íslands 2006. Steinunn leggur nú stund á meistaranám í hagnýtri menningarmiðlun. Hún var kjörin ráðskona atvinnu- og stjórn- málahóps Feministafélagsins í vor, og var þar áður ráðskona ungliða- hóps. Sambýlismaður Steinunnar er Sveinn Guðmundsson, meist- aranemi í mannfræði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.