Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN É g held að það hafi verið fyrir tveim vik- um eða svo að til- kynningin frá lög- reglunni í Reykjavík birtist á Lögregluvefnum þar sem sagði að lögreglumönnum sýndist að áróðurinn sem haldið hefði ver- ið uppi dagana á undan hefði ekki skilað sér til þeirra sem honum var beint gegn. Það fór ekki mikið fyrir þessari tilkynningu. Nokkrir fjölmiðlar höfðu þetta orðrétt upp úr Lög- regluvefnum, en ég man ekki eftir einu einasta viðtali við lögreglu- mann um málið, svo dæmi sé tek- ið. Aftur á móti minnir mig að við- tal hafi verið haft í einhverjum fjölmiðli við auglýsingasmið sem sagði að ekki væri þess að vænta að áróðurinn væri strax farinn að skila árangri. Síðan lögreglan sendi frá sér þessa tilkynningu hafa ekki borist fregnir af öðru en áframhaldandi ófremdarástandi í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu. Fréttir um ofsaakstur ungra ökumanna með ylvolg bráðabirgðaökuskírteini eru daglegt brauð. Ekki meira um það að segja, að því er virðist. Ég verð að viðurkenna að ég hef litlar áhyggjur af þeim nátt- úruspjöllum sem virkjunarfram- kvæmdir valda á Íslandi, og enn minni af vaxandi gróðurhúsaáhrif- um. Það er að segja, áhyggjur mínar af þessu tvennu eru hverf- andi miðað við þær áhyggjur sem ég hef af því að fólk haldi áfram að deyja í umferðarslysum. Ég vildi óska að allur krafturinn og öll ástríðan sem sett er í mót- mæli gegn virkjunarfram- kvæmdum og losun gróðurhúsa- áhrifa væri sett í að sporna gegn dauðsföllum í umferðinni. Með þessu er ég ekki að segja að það sé út í hött að mótmæla nátt- úruspjöllum og gróðurhúsaáhrif- um. Ég er öllu heldur að segja að það væri óskandi að fólkið sem hefur fítonskraftinn og réttlæt- iskenndina – sem er ekki síst ungt fólk – myndi beina kröftum sínum að umferðarmálum. Þegar farið var um daginn af stað með átak til bættrar umferð- armenningar voru haldnir borg- arafundir á sjö stöðum á landinu þar sem meðal annars kom fram fólk sem hafði misst ástvini í um- ferðarslysum, og einnig miðluðu af reynslu sinni sjúkraflutningamenn sem komið hafa að alvarlegum umferðarslysum. Það var dálítið skrítið hversu lítið fór fyrir frá- sögnum þessa fólks í fjölmiðlum og almennri umræðu. Þær hurfu mjög fljótt af sjónarsviðinu. Í samanburði var ótrúlegt hvernig fjölmiðlar og almenningsálitið fóru á límingunum þegar Ómar Ragn- arsson tilkynnti að hann væri orð- inn náttúruverndarsinni og ætlaði að vera á árabáti á Hálslóni. Þessi áhersluslagsíða er reynd- ar hvorki einsdæmi né séríslenskt fyrirbæri. Fyrir ekki löngu síðan var haldin mikil ráðstefna í Sydn- ey í Ástralíu þar sem fjallað var um offituvandann í hinum vest- ræna heimi, sem vissulega er gríð- arlegur. En það fór ekki mikið fyrir almennri umræðu um það sem fram kom á þessari ráðstefnu, og varla að hún sæist á radar ís- lenskra fjölmiðla. Samt er það nú svo, að offita verður margfalt fleiri að aldurtila en til dæmis fugla- flensa. Læknar hafa ennfremur bent á að það sé misræmi í því hversu lít- ið heimspressan fjalli um hjarta- og æðasjúkdóma miðað við að þetta séu þeir sjúkdómar sem dragi flesta jarðarbúa til dauða. Umfjöllun um áðurnefnda fugla- flensu, HABL og AIDS sé marg- falt meiri, þótt áhrifin sem þessir sjúkdómar – svo alvarlegir sem þeir vissulega eru – séu ekki nærri eins útbreidd og djúpstæð og áhrifin sem hjarta- og æða- sjúkdómar hafi. Í raun sé því mun meiri þörf á aðgerðum gegn hjarta- og æðasjúkdómum en til dæmis fuglaflensu og AIDS. Hvað veldur þessari bjögun á athygli? Hvers vegna vekur ófremdarástand í umferðarmálum ekki nærri því jafn mikinn og við- varandi áhuga og meint nátt- úruspjöll af völdum virkj- unarframkvæmda, jafnvel þótt hið fyrrnefnda kosti beinlínis manns- líf, en hið síðarnefnda ekki? Vissu- lega má halda því fram að þarna sé um að ræða ósambærilega hluti, en ég held að viðbrögð al- mennings og fjölmiðla við þeim séu fyllilega sambærileg. Í báðum tilvikum er um að ræða viðbrögð við ástandi sem talið er óvið- unandi. Fleira kemur til. Umferðarslys og hjartasjúkdómar eru hvort tveggja menningarbundin óáran, eða lífstílsbundin. Og hvort tveggja hefur verið stór hluti af lífi Vesturlandabúa um langa hríð. Hið sama má núorðið segja um of- fitu. Þannig að það er ekkert nýtt við þetta, og sagt hefur verið að „breyting á ríkjandi ástandi“ sé það sem skilgreini hvað sé frétt og hvað ekki. Umferðarslys og hjartasjúkdómar falla þannig utan hefðbundinnar skilgreiningar á frétt, en sinnaskipti Ómars Ragn- arssonar eru stórfrétt. Einnig ræður þarna eflaust miklu að hjartasjúkdómar og „ástandið í umferðinni“ eru orðin harla hversdagsleg óáran sem hef- ur verið felld undir verksvið tiltek- inna stofnana – sjúkrahúsa og lög- reglu. Það er því komið á könnu „fagaðila“ að takast á við þessa hluti, þannig að okkur hinum finnst við vera stikkfrí og geta beint kröftum okkar að nýstár- legri og göfugri vandamálum. Enda finnst eflaust mörgum eitthvað óviðeigandi við það að lögreglan skuli opinberlega gagn- rýna háttalag ökumanna í umferð- inni. Slíkt telst kannski ekki „fag- legt“ af lögreglunni. En ég verð að segja eins og er, að ég vildi að lög- reglan gerði meira af því að húð- skamma opinberlega þá sem keyra eins og fífl. Bjöguð athygli »Hvers vegna vekur ófremdarástand í umferðarmálum ekki nærri því jafn mikinn og viðvarandi áhuga og meint náttúruspjöll af völdum virkjunarframkvæmda, jafnvel þótt hið fyrrnefnda kosti beinlínis mannslíf, en hið síðarnefnda ekki? BLOGG: kga.blog.is VIÐHORF Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is Í LJÓSI umræðna um ráðningu nýs sviðsstjóra Velferðarsviðs vil ég koma eftirfarandi á framfæri. Við undirbúning ráðningar var skipaður hópur til þess að meta og fara yfir umsóknir. Það mat sem lagt var til grundvallar ráðningu sviðsstjóra Velferð- arsviðs var að starfið er fyrst og fremst starf stjórnanda. Það var samhljóma álit mats- hópsins að mæla með því við borgarstjóra að gera þá tillögu til borg- arráðs að ráða nýráðinn sviðsstjóra til að gegna þessu starfi. Hún hefur yfirgripsmikla þekk- ingu á málaflokknum eftir langt starf í stjórnunarstöðu hjá Félagsþjónust- unni í Reykjavík og á Velferðarsviði auk þess sem hún var staðgengill sviðsstjóra um sex ára skeið. Björk Vilhelmsdóttir fór rangt með það í grein í Morgunblaðinu þann 27. september síðastliðinn að nýr sviðs- stjóri væri með MBA gráðu, hið rétta er að hún er með M.Sc. gráðu í stjórnun og stefnumótun. Jafnframt gerði Björk lítið úr þeim matshópi sem fór yfir umsóknir. Í hópnum sátu ásamt mér afar hæfir embættismenn borgarinnar. Björk lét í áðurnefndri grein að því liggja að það hefði verið pólitík í ráðningunni. Ég fullyrði að svo var ekki, það voru engar flokkspólitískar for- sendur hafðar að leið- arljósi við ráðningu nýs sviðsstjóra. Mér finnst óviðeigandi og ósmekk- legt gagnvart öllum um- sækjendum að draga pólitík inn í ráðninguna. Pólitískar skoðanir um- sækjenda hafa ekki komið fram og þykir mér miður að Björk Vilhelmsdóttir hafi dregið þessa umræðu niður á það plan sem hún gerði með greinaskrifum sínum. Það er mikilvægt að nýta þekkingu fagaðila þegar það á við, staða sviðs- stjóra er fyrst og fremst stjórn- unarstaða og því var sérstaklega litið til stjórnunarhæfni og stjórn- unarreynslu viðkomandi. Þrátt fyrir að fyrrverandi sviðsstjóri hafi verið félagsráðgjafi þá var hún fyrst og fremst góður stjórnandi, en þess má geta að forveri hennar í starfi var lög- fræðingur. Staða sviðsstjóra velferð- arsviðs er ekki og á ekki að vera eyrnamerkt sérstakri fagstétt, það eru margar fagstéttir sem vinna að velferðarmálum fyrir Reykjavík. Við þurfum að sameinast um það að veita samhæfða og góða þjónustu til borg- arbúa, nýr meirihluti ætlar að ein- beita sér að því. Staða sviðsstjóra Velferðar- sviðs er stjórnunarstaða Jórunn Frímannsdóttir skrifar um ráðningu nýs sviðsstjóra Velferðarsviðs » Staða sviðsstjóra erfyrst og fremst stjórnunarstaða og því er sérstaklega litið til stjórnunarhæfni og stjórnunarreynslu. Jórunn Frímannsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi og formaður Velferðarráðs. NÚ ER á enda yfir hálfrar aldar nærvera hers á Íslandi. Bandaríski herinn á Keflavíkurflugvelli hefur slíðrað hertygi sín og er á förum Ís- lendingum til misjafnrar ánægju. Og hvað skal gera við herfangið sem eft- ir verður? Um það hafa menn skegg- rætt frá vordögum þegar Banda- ríkjamönnum þóknaðist að segja okkur að þeir væru á förum. Á Miðnesheiði stendur nú eftir heil draugabyggð sem hýst gæri þúsundir manna og heilan her stofn- ana. Draugabyggð, sem eitt sinn var aðgangur okkar Íslendinga að Am- eríku, með öllum þeim gæðum sem okkur dreymdi um í bernsku, okkur sem nú erum á miðjum aldri. Draumurinn er orðinn að eyðibyggð með blóðrauðu sólarlagi. Heyrst hefur að gera byggðina að miðstöð öryggismála. Ekki skal það lastað. Lítil dúfa með ólífuviðarblað í goggi hvíslaði því hins vegar að mér að best væri að breyta herstöðinni miklu í ratsjárstöð friðarins. Hvern- ig setjum við niður deilur? Hvernig lægj- um við öldur haturs og óvildar? Hvernig stuðlum við að sáttum og friði í heimi sem tærist af vígaferlum, djöfulgangi og heimsku? Hvað með að stofna alþjóðlegt friðarsetur, akademíu friðarrannsókna, vígi þeirra sem vilja tryggja frið og far- sæld jarðarbúa? Íslendingar hafa kjörið tækifæri til að láta gott af sér leiða á tímum sem einkennast af óör- yggi og ófriði. Það eitt að við erum fyrrverandi nýlenda, fyrrum fátækt þróunarland og afskaplega lítil þjóð gerir okkur fýsilega sáttasemjara. Svo eigum við efnin nóg. Og við er- um vön að láta verkin tala. Hvað með að þróa útrás til friðar og mannúðar? Hvernig væri að geta sér orðstír sem friðelskandi þjóð sem er reiðubúin að leggja fé, kalda skyn- semi og heita velvild í það að gera heiminn öruggari? Ýmsar spurningar vakna reyndar um fram- lag okkar til heimsfrið- arins. Var rétt að ljá lið vafasamri herför vest- urheimskra hauka til landa sem fóstruðu sið- menninguna í bernsku hennar? Er rétt að af- henda ungum mönnum sem gaman hafa af því að munda byssur friðarvörslu? Eig- um við ekki að byggja upp friðinn frekar en að verja hann í herbún- ingum? Norðmenn hafa lagt áherslu á „peacebuilding“ frekar en „peace- keeping“. Ef þeir geta það þá enn- frekar Íslendingar. Við erum enn minni ógn við heimsfriðinn en fjórar milljónir Norðmanna með sinn her Plógjárn úr sverðum … Halldór Reynisson skrifar um framtíð Keflavíkurflugvallar Halldór Reynisson ÞAÐ ER von fyrir fólk með þunglyndi. Einu sinni hélt ég að það væri engin von, að ég væri dæmd til þess að lifa í eilífu svartholi og að ég væri ein um það. Ein um að líða alltaf illa og að langa ekki að vera til, ein um að vilja bara liggja uppi í rúminu mínu og vor- kenna mér þangað til ég var bókstaflega dregin í hjálparleit. Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hvað þunglyndi hefur mörg andlit og þá andlit á öllum aldri. Ég er að- eins 18 ára gamall menntaskólanemi og það er um ár síðan ég greindist eftir að hafa liðið illa í um 4 ár. Ég er mjög heppin því í kringum mig er margt gott fólk sem þykir vænt um mig. Það var til dæmis pabbi vinkonu minnar sem hringdi í mömmu mína og sagði henni hvað væri í raun og veru að gerast og vinkonur mínar höfðu samband við foreldra mína og töluðu við þá um hvað ég hafði breyst. Það hefur meðal annars hjálpað mér mikið hvað fjölskylda mín og vinir hafa staðið þétt við bakið á mér og stutt mig og fyrir það er ég þeim ævinlega þakklát því það er næstum því ómögulegt að komast í gegnum svona tímabil einn og óstuddur. Ég veit ekki hvar ég væri í dag ef ég hefði ekki notið hjálpar alls þessa góða fólks í kringum mig. Ég var strax sett á lyf sem hafa hjálpað mikið, en með því að taka lyfin hélt ég að ég myndi ganga á skýjum strax daginn eftir að ég tók fyrstu töfluna sem var mikill mis- skilningur því samtalsmeðferð hjá fagmanni er nauðsynleg. Með hjálp samtalsmeðferðarinnar get ég loks- ins horft í spegil og sagt til dæmis: Ég er frábær, ég er falleg og ég er góð manneskja með gott hjarta. Þessi orð voru ekki til í mínum orðaforða fyrr en ég hafði gengið til sálfræðings næstum því í hverri viku í um hálft ár. Ég var líka tilbú- in að þiggja hjálp því ég gerði mér grein fyrir að ég væri hætt að geta tekist á við þetta ein. Fyrst var ég þó svolítið á móti því að taka inn lyfin, mér fannst eins og ég yrði fyrir fordómum því ég væri á geð- lyfjum en ákvað þó að fela það ekki fyrir neinum því mitt þunglyndi byggðist mikið á því hversu mikið ég byrgði inni. Þegar ég sagði vin- konu minni frá því að ég væri byrj- uð á lyfjunum komst ég í framhaldi að því að mamma hennar var á sömu lyfjum og ég. Það að vita af einhverjum svona nálægt manni í svipaðri stöðu hjálpaði mér mjög mikið því ég var að mörgu leyti sannfærð um að það sæist utan á mér að ég væri á þunglyndislyfjum og yrði því fyrir fordómum. Þegar ég fór að segja vinum og kunningjum frá veikindum mínum komst ég að því hvað það er í raun- inni margt fólk sem þjáist af ofsa- Það er von Jónína Margrét Sigurðardóttir skrifar um geðsjúkdóma Jónína Margrét Sigurðardóttir »Minn bati hefðiörugglega orðið meiri á skemmri tíma ef ég hefði ekki verið svona hrædd við þessa fordóma …

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.