Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ DEITMYNDIN Í ÁR FRÁ HÖFUNDI „TRAINING DAY“ OG „THE FAST AND THE FURIOUS“ HÁSKÓLABÍÓ 2. OKT. HAGATORGI • S. 530 1919 • www.haskolabio.is HARSH TIMES kl. 6 - 8 - 10:30 B.i. 16.ára. HARSH TIMES VIP kl. 8 - 10:30 NACHO LIBRE kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7.ára. ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ THE WILD m/ensku tali kl. 4 - 6 LEYFÐ THE ALIBI kl. 10:30 B.i.16.ára. STEP UP kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7.ára. BÖRN kl. 4 - 8:30 B.i.12.ára. BÖRN VIP kl. 6 MAURAHRELLIRINN m/Ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ OVER THE HEDGE m/Ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ THE PROPOSITION kl. 8 B.i. 16.ára. PIRATES OF CARIBBEAN 2 Tilboð 400.kr kl. 10 B.i. 12.ára. / ÁLFABAKKI ÓBYGGÐIRNAR „THE WILD“ Sýnd með íslensku og ensku tali ! Takið þátt í spennandi ferðalagi þar sem villidýrin fara á kostum. Ekki missa af fyndnustu Walt Disney teiknimynd haustins. ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ ANNAÐ TÆKIFÆRI ÞARFTU AÐ TAKA FYRSTA SPORIÐ. GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM eeee TOMMI/KVIKMYNDIR.IS eeeee H.J. MBL ELDFIM OG TÖFF HÖRKUMYND MEÐ CHRISTIAN BALE „AMERICAN PSYCHO“, „BATMAN BEGINS“ OG EVA LONGORIA „DESPERATE HOUSEWIVES“ FRAMLEIDD AF TOM HANKS. „the ant bully“ GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUMÓBYGGÐIRNAR„THE WILD“ Sýnd með íslensku tali ! ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ SÁPA 17:45 VORT DAGLEGT BRAUÐ 18:00 ÓTAKMARKAÐ 18:00 MEÐ DAUÐANN Á HENDI 20:00 ÓTAKMARKAÐ 20:00 - 22:00 HREINN, RAKAÐUR 20:00 FJÓRAR MÍNÚTUR 20:00 FALLANDI 20:00 SUMARHÖLLIN 22:00 NORÐURKJÁLKINN 22:00 LEYNILÍF ORÐANNA 22:30 lagðir eru á samkeppn- ina frá erlendum osta- framleiðendum? Vík- verji er sammála bæði ráðherranum og osta- framleiðendum um að íslenzkir ostar eru góð- ir, en þeir eru bara allt- of dýrir til að hægt sé að njóta þeirra með góðri samvizku. x x x Meira af ráðherrumvorum. Í gær hélt Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra blaðamannafund til að kynna fjárlaga- frumvarpið. Eins og menn vita er fjármálaráðuneytið staðsett í Arn- arhváli í Reykjavík. Þessi árvissi blaðamannafundur er alla jafna haldinn í því húsnæði. Nú var hins vegar boðað til blaðamannafund- arins í Hótel Selfossi! Þar með var a.m.k. klukkutími úr vinnudegi þeirra fjölmiðlamanna, sem sinntu fundinum – og auðvitað ráðuneyt- ismanna líka – tekinn í fullkomlega óþarfan akstur. Víkverji og starfs- systkin hans mega þó prísa sig sæl að fjármálaráðherrann telur sig ekki þurfa að afla neinna atkvæða á t.d. Þórshöfn eða í Grímsey. Á vef iðnaðar- ogviðskiptaráðu- neytisins rakst Vík- verji á útdrátt úr ræðu Jóns Sigurðssonar, iðnaðarráðherra og formanns Framsókn- arflokksins, sem hann hélt á Ostadögum 2006, en þá heldur Osta- og smjörsalan til að kynna vörur sínar. Í innblásinni ræðu af þessu tilefni minntist ráðherrann „þess að þetta [ostagerðin] er unnið landsmönnum til hollustu og gagns og um leið til munaðar og yndisauka í lífinu. Rómverskt skáld kvað að sá nær mestum árangri sem blandar saman gagnsemi og hollustu og yndi og sætleika. Þetta á líka við um íslenska osta.“ Að loknum þessum lestri hugsaði Víkverji með sér: Ætli rómverska skáldið hafi ekki nefnt neitt um að sá næði góðum árangri, sem gæti tryggt hagstætt verð? Ætli lang- þjáðum íslenzkum neytendum þyki yndið og sætleikinn aldrei neitt pínulítið beizkt þegar þeir átta sig á því hvað íslenzkir ostaframleiðendur okra hrikalega á þeim? Ætli þeim þyki „gagnsemi“ í ofurtollunum, sem              víkverji skrifar | vikverji@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. dagbók Orð dagsins : Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor. (Sálm. 67, 2.) Í dag er þriðjudagur 3. október, 276. dagur ársins 2006 velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Starfsfólk Landspítala EIGINMAÐUR minn þurfti, vegna smávægilegra veikinda, að leggjast inn á Bráðamóttöku Landspítala fyrir stuttu. Ég var þar með honum. Ég er fyrrverandi starfsmaður í heilbrigðisstétt og legg af og til mitt framlag til þeirra mála. En ég var al- veg gáttuð á öllu því mikla álagi sem er á starfsfólki Bráðamóttöku við mjög þröngar og erfiðar vinnuað- stæður og einnig á þeim aðstæðum sem sjúklingar þurfa að dvelja við, stundum lengur en skemur. Tel ég jafnvel að öryggi þess sé ógnað. Ég dáist að vinnuframlagi þessa fólks, þolinmæði og hlýju, sumir voru bún- ir að vera í vinnu tvöfaldan dag en héldu samt ró sinni, reynandi að sinna öllu sem best í allri mannekl- unni. Er ekki kominn tími til að bæta aðstæður og kjör þessa góða fólks sem hefur ennþá hugsjónir Florence Nightingale? Ég vil þakka þeim öllum, og ekki má gleyma læknunum, fyrir þeirra framlag og snilld Kærar þakkir. Hildur Hilmarsdóttir. Námssektir MAÐUR á það til að velta því fyrir sér hvort vissum deildum borg- arinnar hafi verið falið það verkefni að fækka námsmönnum. Í þessari viku mætti ég í stærð- fræðitíma og þar sem lítið er um bílastæði á háskólasvæðinu lagði ég upp við Háskólabíó. Ég ásamt öðr- um sem sátu í tímum þann daginn lögðum upp við gula línu en þar sem við vorum ekki fyrir umferðinni álit- um við að það myndi ekki valda vandræðum. Þegar ég kem úr stærðfræði bíður mín stöðumæla- sekt upp á 2500 kr. Þar sem ég er námsmaður leigi ég stúdentaíbúð. Ég tek námslán og er nýhætt að vinna með skóla því verk- fræði er erfitt fag sem vert er að stunda. Þar sem ég hef ekki lag á að ljóstillífa á sumrin nýti ég tímann í að vinna og koma allar þær tekjur sem ég vinn mér inn til 12% skerð- ingar á námslánunum mínum. Námslán fyrir skerðingu og að því gefnu að ég nái öllum fögum eru 87.400 kr. sem borgast eftir á og þarf ég því að taka lán hjá bank- anum með háum vöxtum sem skerð- ir upphæðina enn frekar. Ég borga 40 þúsund fyrir stúd- entaíbúð við Lindargötuna á mánuði (sem er mjög lágt miðað við íbúða- verð í dag), Ég fæ 43.500 ofan á láns- upphæðina til bókakaupa yfir allt ár- ið en bækur fyrir þessa önn kostuðu 36 þúsund og ofan á það var auka- efni fyrir hátt í sömu upphæð. Þar sem samgöngur innan borgarinnar eru ónothæfar þarf ég að reka bíl sem kostar mig í það minnsta 15 þúsund til viðbótar á mánuði. Það lít- ur því út fyrir að ég hafi innan við 1000 kr til að lifa af á dag. 2500 krón- ur jafngilda því mat í 2,5 daga fyrir mig. Að þessum sökum velti ég því fyr- ir mér hvers vegna stöðumælavörg- um sé hleypt inn á háskólasvæðið og leyft að sekta námsmenn fyrir það að mæta í tíma? Hildur Sif. Morgunblaðið/ÞÖK árnað heilla ritstjorn@mbl.is Brúðkaup | Gefin voru saman 22. júní sl. í Digraneskirkju af sr. Gunnari Sig- urjónssyni þau Sofie Isuls og Björn Ágúst Júlíusson. Svipmyndir – Fríður. Brúðkaup | Gefin voru saman 3. júní sl. af sr. Pálma Matthíassyni að heimili sínu þau Karina Orellana og Pétur Ás- geirsson. Heimili þeirra er að Hvera- fold 56, Reykjavík. Svipmyndir - Fríður. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostn- aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber- ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100 eða sent á netfangið ritstjorn@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. um kannabisefna auk þess sem hann hafði nokkuð af slíkum efnum í fórum sínum. George Michael hóf sitt fyrsta tónleikaferðalag í fimmtán ár í Barcelona á Spáni þann 23. sept- ember síðastliðinn.    Fregnir herma að Eva Longoriaog Tony Parker séu hætt sam- an. Fyrir fáeinum dögum staðfesti talsmaður Evu að skötuhjúin ættu „í verulegum erfiðleikum í sam- bandinu“. Haft er eftir heimilda- manni að þau hafi skilið í bróðerni, og ástæðan hafi verið að þau hafi hvort um sig haft mikið að gera og átt heima hvort í sinni borginni. Fólk folk@mbl.is Eva, sem er 31 árs, leikur eitt að- alhlutverkið í Aðþrengdum eig- inkonum og Tony, sem er 24, spilar með körfuboltaliði San Antonio. Þau hittust fyrst í nóvember 2004 en hafa verið saman síðan í ágúst í fyrra. Söngkonan unga frá Georgíu, Ka-tie Melua, hefur undanfarið undirgengist ítarlegar rannsóknir á heilsu sinni hjá ýmsum læknum. Ástæðan er þó ekki að hana hrjái nokkuð heldur stefnir söngkonan á að halda tónleika á 100 metra dýpi. Hafa hún og hljómsveit hennar af þeim sökum farið í ýmsar rann- sóknir til að fá staðfestingu lærðra manna á að allt sé í lagi fyrir til- raunina. Tónleikarnir fara fram í vikunni á olíuborpalli í Norðursjó og verða sýndir beint í norska ríkissjónvarp- inu NRK. Fari tónleikarnir fram eins og áformað er kemst Melua í Heims- metabók Guinness, en aldrei hafa tónleikar verið haldnir á eins miklu dýpi. Söngvarinn George Michael fékkviðvörun frá lögreglunni í Cricklewood í norðurhluta Lundúna og var sleppt úr haldi gegn greiðslu tryggingar á mánudag eftir að hann var handtekinn undir áhrifum eitur- lyfja um helgina. Lögregla var köll- uð að umferðarljósum í Cricklewood vegna bifreiðar sem stöðvuð hafði verið á ljósunum og truflaði umferð, ökumaðurinn reyndist vera söngv- arinn þekkti, í óökuhæfu ástandi og var hann í kjölfarið látinn sofa úr sér. Reyndist hann vera undir áhrif-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.