Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 17 MENNING Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is SEQUENCES er heitið á alþjóðlegri listahátíð sem haldin verður í Reykjavík dagana 13.–28. október. Þar verður sjónum beint að því sem aðstandendur kalla „tímatengda list“, en með því er átt við t.d. videó- og hljóðlist. Framtakið er runnið undan rifjum Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar (CIA.IS), Ný- listasafnsins, Kling og Bang galleríis og Bananananas. „Markmiðið er að skapa vettvang fyrir það sem er svo sérstakt hér á landi; annars vegar þessi mikli sam- gangur á milli listgreina, s.s. sjón- lista, tónlistar og gjörningalistar, og hins vegar þessi óbeislaði sköp- unarkraftur. Þetta eru einkenni sem komu svo greinilega upp á yfirborðið í Klink og Bank sem var og hét. Þetta eru lykilþættirnir í þróttmiklu lista- lífinu á Íslandi,“ útskýrir Christian Schoen, forstöðumaður Kynning- armiðstöðvarinnar. Christian, sem sjálfur er frá Þýskalandi, segir hérlenda sam- suðuna vera mjög sérstaka og jafn- framt mikið aðdráttarafl fyrir er- lenda listamenn. „Það er mín skoðun að þegar blás- ið er til nýrrar listahátíðar sé mik- ilvægt að geta boðið upp á eitthvað óvenjulegt, eitthvað ferskt. Ég myndi segja að það sé nákvæmlega það sem við erum að gera með því að beina ljósinu að einkennum íslensks listalífs.“ Grasrótin mikilvæg Hátíðin fer fram víða um miðborg Reykjavíkur. Hún mun ráðast inn í hefðbundin sýningarrými en líka í ýmis opin rými borgarinnar. Röð vídeó- og gjörningaviðburða mynda svo ramma utan um hátíðina en sú dagskrá fer fram í Tjarnarbíói. Auk þess að sinna tímatengdri list segir Christian að þátttakendur Se- quences eigi það allir sameiginlegt að búa yfir óbeisluðum sköpunarþrótti og viljanum til framkvæmda. Með það í huga að hátíðin hefur vægast sagt úr litlu fjármagni að moða má enda telja næsta ótrúlegt að 140 listamenn taka þátt í henni. Þegar lit- ið er yfir listann vekur einnig athygli að fjöldi þeirra kemur frá útlöndum. Hugmyndina að hátíðinni segir Christian hafa kviknað fyrir um ári. Í kjölfarið hófst undirbúningsvinnan, að leita eftir fjármagni og samstarfi við listastofnanir. „Sequences-hátíðin á upptök sín í grasrótinni en við erum stolt af að fá til liðs við okkur helstu listastofnanir í Reykjavík. Í Nýlistasafninu verður nokkurs konar miðstöð hátíðarinnar sem er mjög viðeigandi þar sem það er í svo nánum tengslum við það sem hátíðin gengur út á.“ Verði árlegur viðburður „Það eru auðvitað nokkrir kost- unaraðilar sem koma að hátíðinni,“ útskýrir Christian þegar hann er spurður út í það hvernig svona stór hátíð er rekin. „Baugur hefur lagt til eina milljón króna. Með því framlagi er okkur unnt að borga verkefn- isstjóra, Nínu Magnúsdóttur, og von- andi allan hönnunar- og prent- kostnað. Icelandair styrkir okkur svo með farmiðum. Þá eru sumir af lista- mönnunum styrktir af þeim löndum sem þeir koma frá. Hver og einn sýn- ingarstaður ber síðan uppi þá sýn- ingu sem þar er haldin. Við erum þegar farin að vinna í því að fjármagna næstu hátíð,“ heldur Christian áfram og játar því að hann sjái fyrir sér að hátíðin verði árlegur viðburður í listalífi höfuðborg- arinnar. „Viðbrögðin frá listafólkinu hafa verið með þeim hætti að ég efast ekki um að það sé raunhæft. Áhugi að utan gefur einnig fyrirheit um vel- heppnaða hátíð sem vert verður að fylgja eftir. Svona hátíð hefur mikið að segja fyrir kynningu á menningu þjóðarinnar og gerir heilmikið fyrir ímynd sjónlista. Ein ástæða til þess að við kusum að halda hátíðina á þessum tíma er að við vildum mynda tengsl við Airwa- ves-hátíðina. Hvorki við né þeir sem standa að Airwaves lítum svo á að há- tíðirnar ögri hvor annarri að neinu leyti. Það er frekar um það að ræða að þær styðji hvor aðra og reyndar koma einhverjir atburðir til með að tengjast á milli hátíðanna.“ Vettvangur fyrir þróttmikið lista- lífið á Íslandi Tímatengdar listir á Sequences – Alþjóðlegri listahátíð í Reykjavík Morgunblaðið/ÞÖK Tímatengd list Þema Sequences-listahátíðarinnar er „list sem líður í tíma“. Christian Shoen og Nína Magnúsdóttir. Alþjóðlegur viðburður Um 140 listamenn taka þátt í hátíðinni, margir hverjir erlendir. Meðal þeirra er Dirk Leroux frá Belgíu. ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122 Hummer H3 + 5 milljónir í skottinu ef þú átt tvöfaldan miða! Kauptu miða í Happdrætti DAS. Einfaldur miði kostar aðeins 1.000 kr. á mánuði eða 230 kr. fyrir hvern útdrátt. Búum öldruðum áhyggjulaust ævikvöld. 65 skattfrjálsar milljónir í október ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S D A S 34 39 5 1 0/ 20 06 Kíktu á neti› www.das.is Hringdu núna 561 7757 NÝTT &BETRA NÝR OG BETRI JÚMBÓ Í NÆSTU VERSLUN Kársnesbraut 112 | 220 Kópavogi | Sími 554 6999 | Fax 554 6239 | jumbo@jumbo.is | www.jumbo.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.