Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 268. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is DÝRAGARÐUR RUHAL AHMED OG ASIF IQBAL VORU MEÐ FYRSTU FÖNGUNUM Í GUANTANAMO >> 15 LÍÐANDI LIST ALÞJÓÐLEG LISTA- HÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 13.—28. OKTÓBER >> 17 FRAMLÖG ríkisins til samgangna aukast verulega á næsta ári, m.a hækka framlög til vegamála um 4,4 milljarða króna milli ára en sam- kvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2007 sem fjármálaráðherra kynnti í gær, er gert ráð fyrir að 18,7 millj- örðum króna verði varið til vegamála. Áætlað er að vegaframkvæmdir verði um 55,5% af heildarfjárfestingu ríkisins á árinu 2007. Í frumvarpinu er því spáð að framlög til vegamála stóraukist svo á næstu árum, verði um 24 milljarðar árið 2008, 19,3 árið 2009 og 18,2 árið 2010. „Framlög til samgöngumála verða væntanlega þau hæstu sem við höf- um séð og síðan eru áætlanir um enn meiri aukningu á næstu árum,“ sagði Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra í gær. Samkvæmt upplýsingum frá samgönguráðuneytinu er verið að leggja lokahönd á endurskoðaða samgönguáætlun, sem verður lögð fyrir þingið innan skamms, en þar verður nánar tiltekið hvert féð renn- ur. Staða ríkisfjármálanna gefur að mati ráðherrans tilefni til aukinna framkvæmda á vegum ríkisins strax á næsta ári. Tekjuafgangur ríkis- sjóðs er áætlaður 15,5 milljarðar króna, sem er mun meira en lang- tímaáætlanir ráðuneytisins höfðu gert ráð fyrir. „Þetta gerir okkur kleift að lækka skatta enn frekar en þegar hefur verið ákveðið ef við kjós- um,“ sagði Árni. Aga þörf á kosningaári Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, segir eðlilegt að framkvæmdir aukist þegar hægi á og tekist hafi að ná tökum á verðbólgunni, en rétt sé að hafa í huga að kosningaár fari í hönd, og stjórnvöld verði að beita sig aga, mikilvægt að engar U-beyjur verði á fjárlögunum í þinginu. „Frumvarpið er skynsamlega sett upp og ekkert sem kemur á óvart. Afgangurinn er heldur meiri en menn höfðu reiknað með fyrirfram, og ég held það væri mjög gott ef það væri hægt að halda þessu aðhaldi, og ná verðbólgunni niður á næsta ári,“ segir Vilhjálmur. Hagvöxtur á næsta ári verður 1,0% og 2,6% á árinu 2008, ef þjóð- hagsspá fjármálaráðuneytisins geng- ur eftir. Samkvæmt spánni mun minnkandi viðskiptahalli leiða vöxt hagkerfisins á næsta ári en hann muni fara úr 18,7% af vergri lands- framleiðslu á þessu ári niður í 10,7% árið 2007. Ráðuneytið spáir að verð- bólga muni ganga hratt niður og verði 4,5% á næsta ári og 2,5% á árinu 2008. Greining KB banka segir þetta þýða að fjármálaráðuneytið spái mjög mjúkri lendingu í íslensku efna- hagslífi á næstu árum. Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofu- stjóri efnahagsskrifstofu fjármála- ráðuneytisins, segir að hlutur stjór- iðju hafi ekki ráðið úrslitum um aukið ójafnvægi í þjóðarbúskapnum. Nýj- ungar á fjármálamarkaði hafi leitt til aukins framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé, sem hafi snaraukið innlenda eftirspurn.  Fjármunir | 10–11 og 13 Samgöngur á oddinn Raðað í sæti Þingmenn fengu nýja sessunauta þegar þeir drógu um sæti á fyrsta þingfundi haustsins í gær. Framlög til vegamála stóraukin á næstu árum samkvæmt fjárlagafrumvarpi Morgunblaðið/ÞÖK NÚ ÞEGAR ágreiningur um varnarliðið hefur verið til lykta leiddur er afar brýnt að deilurnar um nýtingu náttúru Íslands skapi ekki nýja gjá meðal þjóðarinnar. Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, við setningu Alþingis í gær. Þjóðarsátt er verðmæt auðlind, „og með samstöðuna að leiðarljósi eru okkur allir vegir færir“, sagði Ólafur. Deilur kljúfi ekki þjóðina New York. AP. | Ban Ki-Moon, utanrík- isráðherra Suður-Kóreu, styrkti í gær stöðu sína sem líklegasti eftirmaður Kofis Annans, framkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna, þegar hann fékk 14 „hvetjandi“ atkvæði og eitt hlutlaust í óformlegri kosningu ör- yggisráðs SÞ. Þetta var fjórða umferð kosning- anna og hefur Ban verið efstur í þeim öllum. Að þessu sinni var hann sá eini af sex frambjóð- endum sem fékk ekki „letjandi“ atkvæði. Indverjinn Shashi Tharoor, aðstoðarframkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna og yfirmaður almanna- tengsla og upplýsingamála hjá samtök- unum, var öruggur í öðru sæti en tilkynnti eftir kosninguna að hann gæfi ekki lengur kost á sér í embættið. „Það er ljóst að hann verður næsti framkvæmdastjóri,“ sagði hann og vísaði til Bans. Öryggisráðið ákvað að kjósa áttunda framkvæmdastjóra SÞ 9. október og þykir það vísbending um að öruggt sé að Ban verði kjörinn í embættið. Ban á beinu brautinni Ban Ki-Moon STÖÐUG framleiðsla fyrstu vélarsam- stæðu Hellisheiðarvirkjunar hófst á sunnu- dag og fara nú 45 MW af raforku frá virkj- uninni inn á kerfi Landsnets hf. Stefnt er að því að næsta vélasamstæða, jafnöflug hinni fyrstu, verði komin í fulla notkun eftir rúmlega þrjár vikur. Orkan er öll notuð í álveri Norðuráls á Grundartanga. Vélarnar tvær koma frá Mitsubishi og kosta saman um þrjá milljarða kr., að sögn Guðmundar Þóroddssonar, forstjóra OR. Undanfarnar sex vikur hefur verið unnið að prófunum á fyrstu vélasamstæðunni og hefur raforka frá henni farið inn á kerfi Landsnets frá því í ágúst sl. Það var þó ekki fyrr en á sunnudag sem framleiðslan var orðin stöðug. Guðmundur sagði að ástæðan fyrir töfunum væri aðallega sú að Landsnet hefði ekki lokið við tengingar á tilsettum tíma auk þess sem tafir hefðu orðið á afhendingu hjá Mitsubishi og fleiri birgjum. Framleiðsla hjá Norðuráli hefði þó ekki tafist þar sem fyrirtækið gat í stað- inn keypt raforku af Landsvirkjun. Haustið 2007 er stefnt á að ræsa 35 MW lágþrýstihverfil. Rafmagnið frá honum fer á almennan markað á höfuðborgarsvæðinu. | 4 Morgunblaðið/RAX Framleiðsla hafin á Hellisheiði Nickel Mines. AP. | Rúmlega þrítug- ur maður skaut þrjár stúlkur til bana og framdi síðan sjálfsmorð í litlum skóla í eigu Amish-fólks í bænum Nickel Mines í Pennsylv- aníu í Bandaríkjunum í gær. Sjö stúlkur voru fluttar alvarlega særðar á spítala og var óttast um líf sumra þeirra. Um 25 til 30 nemendur á aldr- inum sex til 13 ára voru í skól- anum. Jeffrey B. Miller, yfirmaður hjá lögreglunni, segir að mjólkur- bílstjórinn Charles Carl Roberts ófrískri konu og þremur öðrum konum með smábörn. Að því loknu hafi hann lokað sig inni með stúlk- unum, stillt þeim upp við skólatöfl- una og bundið fætur þeirra saman. Síðan hafi hann skotið þær eins og um aftöku hafi verið að ræða. Áður en Roberts hóf skothríðina hringdi hann í eiginkonu sína og sagðist vera að hefna sín fyrir eitt- hvað sem gerðist fyrir 20 árum. Hann var ekki úr hópi Amish- fólks. Tveir nemendur og 15 eða 16 ára aðstoðarstúlka kennara létu lífið í skólanum. Amish-fólk er trúflokkur af hópi mennóníta og mjög fastheldinn á fornlega lifnaðarhætti. Um 180.000 tilheyra flokknum í Bandaríkjun- um. Amish-fólk er með eigin skóla og almennt ná þeir aðeins upp í 8. bekk eða til um 13 ára aldurs. lV, hafi komið inn í kennslustofuna í gærmorgun að staðartíma og fljótlega sleppt um 15 piltum, Teknar af lífi í barnaskóla Reuters Sorg Amish-fólkið á svæðinu hópaðist saman eftir skotárásina í skól- anum í Nickel Mines í Pennsylvaníu og sameinaðist í sorginni. Skaut þrjá til bana og síðan sjálfan sig ♦♦♦ Eftir Sunnu Ósk Logadóttur, Brján Jónasson og Kristján Torfa Einarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.