Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 25
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 25
Haustið er jafnan tími mikilla athafna á lands-
byggðinni; það er smalað og farið í göngur og
segja bændur féð þokkalega framgengið af
fjalli.
Oft hafa veðrabrigði orðið um það leyti sem
bændur fara í göngur. Þetta haust hefur verið
þokusamt og gert bændum erfitt fyrir um
smölun en fyrsta smölun á Brekknaheiði var
ekki fyrr en fyrsta október. Veður er þó mun
skaplegra en í fyrra þegar bændur lentu í ill-
viðri í byrjun október svo leitað var á vél-
sleðum og fjárflutningar fóru fram í krapas-
lyddu og hálku.
Sláturgerð er eitt af haustverkum hjá mörgum
og í Fjallalambi á Kópaskeri segja menn slát-
ursölu svipaða og verið hefur. Húsmæður
hérna eru margar hverjar afkastamiklar í slát-
urgerðinni og vandfundinn er betri skyndibiti
en lifrapylsusneið og mjólkurglas.
Gæsaveiði hefur gengið vel hjá veiðimönnum
hér um slóðir og villibráðarilm leggur frá eld-
húsum fengsælla veiðimanna. Mest ber á grá-
gæs en heiðagæsir eru lengra inni í landi, segja
veiðimenn. Heiðagæsin er eftirsóknarverðari
vegna bragðsins, sem er mýkra og fínna.
Fálkinn hefur sést nokkuð á sveimi og ný-
lega sáu veiðimenn hann hremma gæs og voru
nokkuð hissa á atferli hans, því gæsin er ill-
skeytt ef önnur dýr veitast að henni. Fálkinn
reif sig inn í gæsahóp á flugi, renndi sér á eina
fullfríska gæs, slæmdi í hana klónum svo hún
féll og hefði orðið málsverður fálkans hefði
keppinauturinn maðurinn ekki verið á jörðu
niðri og tekið af honum bráðina, sem var með
djúpan skurð á bringunni eftir hárbeittar klær
fálkans.
Veiðieðlið er ríkt í mörgum landsbyggðar-
manninum og hver veit nema það eigi sinn þátt
í því að sumir kjósa fremur að búa úti á landi
en í stærri byggðakjörnum. Þar er jafnan stutt
að fara í hvers kyns veiði, hvort sem er á láði
eða legi og menn á heimaslóðum þekkja hverja
þúfu og vita hvar helst er veiðivon. Þetta fólk
er gjarnan nátengt sínu umhverfi, friðsæld og
víðáttu svo borgarlífið, sem oft fylgir erill og
umferðarys er ekki efst á óskalistanum.
Það eru að mörgu leyti forréttindi að geta
leyft sér að búa úti á landi og vissulega fylgi því
ýmsir dýrir kostnaðarliðir. Friðsældin og ná-
lægð við óspillta náttúru er nokkuð sem íbúum
hér finnst sjálfsagður hlutur. Þetta er ekki
svona sjálfsagt hjá öllum og e.t.v. að hluta
skýring á því að auðmenn landsins sækjast í
auknum mæli eftir að kaupa jarðir á lands-
byggðinni.
ÞÓRSHÖFN
Líney Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Erlendur Pálsson hélt upp áfertugsafmæli sitt á dögunum.
Þar flutti Bjarni Stefán Konráðsson
honum vísur, sem færðu orðið
mömmustrákur í annað veldi:
Þúsundfaldan þokka ber,
þetta margir trega.
Mesti kostur mannsins er
mamman – eðlilega.
Hjá honum allir finna frið
og fráleitt því að skamm’ann.
Elli er fínn og allt hans lið,
en allra best er mamman.
Elli reynist öllum best
elur góða krakka.
Það er vel að merkja mest
mömmu hans að þakka.
Elli er sjarmör, allt veit best
elskaður af konum.
Það sem heillar meyjar mest
mamma’ans kenndi honum.
Elli hefur hlýlegt glott,
hefur það frá ömmu,
en hugann bjarta og hjartað gott
hefur’ann frá mömmu.
Fegurð Ella er öllum þekkt
í allri veröldinni.
Það þykir alveg lygilegt
hvað líkist mömmu sinni.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af mömmu-
strák
DRENGIR, sem æfa skíðagöngu, ná
meiri árangri í íþróttinni ef þeir
stunda lyftingar af krafti og lyfta
þungum lóðum. Skíðagöngustúlkur
styrkjast á hinn bóginn meira með
því að lyfta léttari lóðum en end-
urtaka æfingarnar oftar.
Þetta er niðurstaða doktorsrann-
sóknar við Vísinda- og tækniháskól-
ann (NTNU) í Þrándheimi. Skýrt er
frá rannsókninni á norska vefnum
forskning.no.
„Við prófuðum nítján stúlkur og
átján drengi sem voru framarlega í
skíðagöngu unglinga,“ hafði vef-
urinn eftir rannsóknarmanninum
Boye Welda. Hann skipti ungling-
unum í tvo hópa. Sumir þeirra voru
látnir lyfta svo þungum lóðum að
þeir gátu gert hverja æfingu um það
bil sex sinnum áður en þeir þreytt-
ust. Hinn hópurinn fékk léttari lóð
en gat endurtekið æfinguna um það
bil þrjátíu sinnum.
Styrkur unglinganna var mældur
í æfingatækjum og á skíðabrautinni,
fyrir og eftir lyftingatörnina, með
fyrrgreindri niðurstöðu.
Léttari lóð
styrkja stúlk-
urnar meira
heilsa