Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 35
✝ Kristinn Breið-fjörð (Dinni)
fæddist í Flatey á
Breiðafirði 4. jan-
úar 1943. Hann varð
bráðkvaddur í
Reykjavík 26. sept-
ember síðastliðinn.
Móðir Kristins var
Kristín Bogadóttir
frá Flatey, f. 29.
desember 1916. Hún
lést fimm dögum
eftir fæðingu Krist-
ins og foreldrar
hennar, þau Bogi
Guðmundsson, kaupmaður í Flat-
ey, f. í Miðhúsum í Gufudalssveit á
A-Barðaströnd 21. janúar 1877, d.
20. maí 1965, og Sigurborg Ólafs-
dóttir frá Beykishúsi í Flatey á
Breiðafirði, f. 7. september 1881,
d. 24. september 1952, gengu
Kristni í foreldrastað, ásamt Sig-
ríði móðursystur hans, og önn-
uðust þau hann á
meðan heilsa þeirra
leyfði.
Árið 1980 flytja
þau Kristinn og Sig-
ríður alfarin úr
Flatey og setjast að
í Hátúni í Reykja-
vík. Þegar hann
flutti til Reykjavík-
ur hóf hann störf í
Lækjarási og starf-
aði þar síðan. Átta
árum síðar flutti
Kristinn á nýstofn-
að sambýli í Blesu-
gróf 29 og átti hann þar gott
heimili upp frá því. Kristinn var
mjög félagslyndur og list-
hneigður og tók þátt í mörgum
myndlistarsýningum, þar á meðal
List án landamæra.
Útför Kristins verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Dinni vinur okkar er dáinn.
Hann kvaddi okkur á björtum
haustdegi, sem var í samræmi við
hans góðu og hlýju skapgerð. Sem
við, sem vorum í daglegri umgengni
við hann, nutum góðs af.
Því umhyggjan og hans ljúfa
lund, sem einkenndi hann svo mik-
ið, er það sem hann skilur eftir sig í
huga okkar.
Hann var mikill listamaður og
var einstaklega næmur fyrir sterk-
um litum og var gaman að fylgjast
með þróun hans í myndlistinni.
Hann tók þátt í sýningum á vegum
Listar án landamæra þar sem
myndir hans vöktu athygli fyrir
einlægni.
En fyrst og fremst var Dinni
góður félagi, mikill vinur og taldi
aldrei eftir sér að gera öðrum
greiða.
Ég sá þig hverfa í sólarátt
sólskinsdag.
Sólin vermdi veginn þinn,
þá var svo bjart um himininn,
en svo kom sólarlag.
Og húmið skyggði huga minn
harmadag.
Og hjartað finnur söknuð sinn,
þótt sólin gylli himininn,
er sefur sólarlag.
(J.G.)
Elsku Dinni okkar, við kveðjum
þig í dag, þú komst til okkar glaður
og ánægður um morguninn í nýju
peysunni sem þú hafðir keypt í
Portúgal. En um hádegið varstu
farinn frá okkur og við hin sitjum
eftir og söknum góðs vinar og fé-
laga.
Við sendum aðstandendum, sam-
býlisfólki hans og samstarfsmönn-
um okkar einlægustu samúðar-
kveðjur.
Vinir og samstarfsfélagar
í Húsinu og Lækjarási.
Elsku Dinni. Við vinir þínir í
Blesugróf sitjum hnípin og sorg-
mædd og skiljum ekki ákvörðun al-
mættisins. En kannski var það ekk-
ert skrýtið að brottför þín var svo
snögglega ákveðin, því þú sjálfur
varst þannig gerður, að hlutirnir
urðu að gerast strax, svo hægt væri
að byrja á einhverju nýju.
Hvert sem það verkefni er, sem
nú bíður þín á nýjum stað, treyst-
um við því að það færi þér gleði og
hamingju.
Við söknum þín sárt, en sam-
gleðjumst þeim, sem nú fá að njóta
hjálpsemi þinnar, glaðværðar,
brossins og síðast en ekki síst
faðmlagsins, sem þú varst svo
óspar á, meðan við áttum þig að.
Þú varst sannkallaður fagurkeri
og hafðir unun af að skreyta um-
hverfi þitt með hinum ólíklegustu
hlutum, sem urðu svo að listaverki í
höndum þér. Svo ekki sé minnst á
litadýrðina, sem einkenndi öll þín
verk. Myndirnar þínar, sem þú nú
skilur eftir, bera því gott vitni, og
eiga eftir að ylja okkur um ókomna
tíð.
Þú hafðir einstaka lund. Aldrei
var sagt styggðaryrði um nokkurn
mann, brosið þitt og faðmlag var
ósvikið. Þú varst vinur í raun, og
öllum stundum barstu velferð ást-
vina þinna hér á heimilinu fyrir
brjósti.
Hann gekk hér um að góðra drengja sið,
gladdi mædda, veitti þreyttum lið.
Þeir fundu best sem voru á vegi hans
vinarþel hins drenglundaða manns.
Þó ævikjörin yrðu máski tvenn,
hann átti sættir jafnt við Guð og menn.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Kæri vinur.
Við treystum því að Guð leiði þig
á fund ástvina þinna, sem eflaust
gleðjast yfir heimkomu þinni. Við
þökkum af alhug allar stundirnar
okkar saman. Knúsaðu Tobbu frá
okkur þegar þú hittir hana.
Þínir vinir heima í Blesugróf.
Hvað sem hefur valdið því að þú
komst ekki óskaddaður í þennan
heim og áttir ekki sömu möguleika
og jafnaldrar þínir til þroska, þá
smitaðir þú umhverfi þitt með góð-
vild og hrekkleysi. Hvers þú fórst á
mis við í lífinu var þér hulið. Í því
litla samfélagi sem við ólumst upp í
á Flatey um miðja síðustu öld varst
þú hluti af því samfélagi. Þú lékst
þér með okkur krökkunum og
dundaðir daginn langan, þá ung-
lingur, alltaf brosmildur og í góðu
skapi og varst félagi okkar. Þegar
ég og jafnaldrar mínir stækkuðum
og fórum á smáfiskaveiðar á ára-
bátum út frá eynni, stóðst þú eftir í
fjörunni dálítið sorgmæddur en
komst svo brosandi þegar við lent-
um og hjálpaðir okkur að setja bát-
inn og bera aflann. Síðar fórum við
burt úr eynni, í skóla eða eitthvert
annað að finna frama, þú varðst eft-
ir. Hlutverk þitt í lífinu var að bíða,
nú er sú bið á enda.
Kæri Dinni, hjartans þakkir fyrir
samfylgdina.
Jóhann Arnfinnsson.
Góðar minningar leita á hugann
nú þegar ég kveð Kristin Breið-
fjörð, ég kallaði hann reyndar alltaf
Dinna og það gerðu flestir. Það
hvarflaði ekki að mér að morgni 26.
september þegar við Sirra forstöðu-
maður í Blesugrófinni vorum að
skipuleggja samverustundir okkar
Dinna í vetur að hans tími væri ein-
faldlega á enda og hann yrði ekki
lengur á meðal okkar bara eftir
örfáar klukkustundir.
Þau eru orðin nokkur árin sem
við Dinni höfum átt samleið og það
er erfitt að eiga ekki eftir að banka
oftar uppá í Blesugróf 29 og sjá
Dinna opna dyrnar, brosandi út að
eyrum og ljómandi af tilhlökkun, já
hann Dinni átti einn frábæran eig-
inleika, hann kunni svo sannarlega
að gleðjast yfir litlu og njóta litlu
hlutanna í tilverunni, þessara hluta
sem svo mörgum sést yfir. Honum
fannst gaman að fara í bíó og leik-
hús og spjalla svo um verkið á eftir
og hann hefur án efa notið sín vel í
ferðinni til útlanda, sem þau voru
nýkomin úr, en hann naut þess líka
innilega að fara út að borða eða í
kaffihús og þá ekki síst í Kaffivagn-
inn á Granda ef veður var gott og
horfa á bátana á meðan við drukk-
um, en hann naut þess líka að fara í
smá gönguferð, bíltúr eða bara að
spjalla, ég á eftir að sakna þess að
heyra hann segja „Við getum
kannski rennt út á nes? (Seltjarn-
arnes.)“ já það þurfti ekki mikið til
þess að sjá andlitið hans ljóma af
ánægju og ég er þakklát fyrir þær
stundir sem ég hef átt með honum
og Gunnu, kærri vinkonu hans, á
liðnum árum.
Dinni bjó síðustu árin á sambýl-
inu í Blesugróf 29 og þar leið hon-
um mjög vel enda er starfsfólkið
þar með hana Sirru sem forstöðu-
mann alveg einstakt og eiga þau
miklar þakkir skildar fyrir sitt
ómetanlega starf og hjartahlýju. Ég
kveð Dinna nú með söknuði og
sendi aðstandendum hans, öllum í
Blesugróf 29 og Gunnu vinkonu
hans mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Erna Grétarsdóttir.
Kristinn Breiðfjörð
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
LEGSTEINAR
SteinsmiðjanMOSAIK
Hamarshöfða 4 – sími 587 1960
www.mosaik.is
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför ástkærrar móður minnar, tengdamóður,
ömmu, langömmu, systur og mágkonu,
RAKELAR BJARGAR RAGNARSDÓTTUR,
Depluhólum 8,
Reykjavík.
Ragnar Valur Björgvinsson, Fríður Sólveig Hannesdóttir,
Rakel Björg Ragnarsdóttir, Birgir Þór Svavarsson,
Ásdís Birta Birgisdóttir,
Jón Ragnarsson, Hrafnhildur Valdimarsdóttir,
Þór Ragnarsson, Vilhelmína Hauksdóttir,
Ruth Ragnarsdóttir.
Þökkum samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, sonar míns
og bróður okkar,
MAGNÚSAR Ó. KJARTANSSONAR.
Kolbrún Björgólfsdóttir,
Elsa Björg Magnúsdóttir, Guðbrandur Magnússon,
Eydís Hansdóttir,
Guðbrandur Þórir Kjartansson,
Magdalena Margrét Kjartansdóttir.
Móðir okkar,
HANNA JÓNSDÓTTIR
í Stekkjardal,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugar-
daginn 30. september.
Hún verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laug-
ardaginn 7. október kl. 13.00.
Jarðsett verður á Svínavatni.
Synir hinnar látnu.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÓLAFAR HELGU GUÐNADÓTTUR
hússtjórnarkennara,
Aratúni 38,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við Kvenfélagi Garðabæj-
ar fyrir ómetanlega aðstoð.
Jóhanna Guðný Benediktsdóttir,
Rósa Kristín Benediktsdóttir, Gunnar Jónatansson,
Hildur Benediktsdóttir, Björn Þór Guðmundsson,
Hrönn Benediktsdóttir, Hörður Bjarnason
og barnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður, barnabarns, sonar og
bróður,
BRYNGEIRS GUÐJÓNS GUÐMUNDSSONAR
rafeindavirkja,
Blásölum 21,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir viljum við færa vinum, vandamönnum, samstarfsfólki og
nágrönnum, einnig starfsfólki Landspítalans við Hringbraut.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda,
Katrín Kristín Hallgrímsdóttir.
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.350 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is