Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is SAUTJÁN ára ökumaður sem hafði haft ökuréttindi í þrjá mánuði var stöðvaður á 154 km hraða á Reykja- nesbraut til móts við Smáralind á sunnudagskvöld en þar er hámarks- hraði 70 km. Ökumaðurinn ungi reyndi að lifa sig inn í kappaksturs- mynd sem hann hafði nýverið séð í kvikmyndahúsi. „Ég hallast að því að það sé ákveð- inn hópur ungra ökumanna sem hef- ur ekki áhuga á umferðaröryggis- málum, lærir ekki af banaslysum og lítur á ökutæki sem leiktæki,“ segir Ágúst Mogensen, framkvæmda- stjóri rannsóknarnefndar umferðar- slysa, og bætir við: „Það er þá engin nema lögreglan sem getur setið fyrir þessum ökumönnum og tekið þá, af og til.“ Rannsóknarnefndin hefur árlega gert tillögur að bættri umferðar- menningu og segir Ágúst að sam- gönguráðuneytið muni taka mið af þeim, sérstaklega hvað varðar unga ökumenn, í endurskoðun sinni á um- ferðarlöggjöfinni sem fer fram um þessar mundir. „Okkar rannsóknir hafa leitt í ljós að þetta er vandamál sem miðast við unga ökumenn. Ég fullyrði að það séu of margir ungir ökumenn sem líta á bíla sína sem leiktæki og það sýnir að þeir hafa ekki þroska til að aka þessum öku- tækjum. Það sem við höfum lagt áherslu á varðandi ofsaaksturinn er að meira bil verði á milli þeirra sekta, og hærri refsing, en nú er, þar sem farið er 15 til 20 km yfir há- markshraða og síðan hraðaksturs þar sem ekið er á tvöföldum há- markshraða.“ Skelfilegur hraði „Þessi hraði er skelfilegur og það má ekkert út af bera þá verða afleið- ingarnar hrikalegar,“ segir Sigurður Helgason, sviðsstjóri hjá Umferðar- stofu, og undrast hversu gríðarlega hratt er ekið víða á stofnbrautum. Hann tekur undir með blaðamanni sem heyrt hefur af hræðslu öku- manna í umferðinni sökum hraðakst- urs. „Það er sérstaklega eldra fólk sem hættir sér vart út í umferðina á vissum tímum, s.s. seint á kvöldin, og forðast þessar götur eins og Ártúns- brekkuna og þessa hættulegustu staði.“ Ungir ökumenn hafa ekki áhuga á umferðaröryggi Ljósmynd/Guðmundur Karl Eldra fólk hættir sér vart út í umferðina á vissum tímum sökum hraðaksturs Í HNOTSKURN »Banaslys í umferðinni erukomin upp í 21 í ár en þau voru 19 í fyrra. »Samgönguráðuneytið erum að endurskoða löggjöf- ina um umferðarmál. »Meðal þess sem gert verð-ur er að hækka refsiramm- ann vegna brota á umferð- arlögum, s.s. sektir vegna hraðaksturs. NEMENDUR, kennarar og starfsfólk Menntaskólans í Reykjavík minntust þess í gærmorgun að 1. október sl. voru 160 ár liðin frá því að Sveinbjörn Egilsson rektor setti Lærða skólann í fyrsta sinn, 1. október 1846. Af því tilefni var gengið undir fána skólans að leiði Sveinbjarnar í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Þar var lagður blómsveigur í þakklætisskyni fyrir merk störf hans í þágu skólans og íslenskrar menningar. Morgunblaðið/Sverrir 160 ára afmæli MR fagnað LÖGREGLAN í Hafnarfirði hafði afskipti af pilti á tvítugsaldri vegna innbrota í tvígang um liðna helgi. Skv. upplýsingum lögreglu má kalla piltinn góðkunningja lögreglunnar en hann á að baki sakarferil m.a. vegna auðgunar- og fíkniefnabrota. Pilturinn var tekinn á laugardags- morgun við innbrot í vélsmiðju í Hafnarfirði þar sem hann hafði sleg- ið eign sinni á fartölvu. Honum var sleppt á sunnudagsmorgun eftir yf- irheyrslur en gripinn á nýjan leik glóðvolgur á sunnudagskvöld, við innbrot í heildverslun í bænum. Pilturinn fékk að gista fanga- geymslur lögreglunnar á nýjan leik og að sögn lögreglu verður nú farið fram á svonefnda síbrotagæslu yfir piltinum, þar til mál hans verða tekin fyrir hjá héraðsdómi, enda talið ótækt að hann gangi laus til þess eins að brjóta af sér á nýjan leik. Ungur sí- brotamað- ur í haldi Gripinn tvisvar við innbrot sömu helgi GUÐMUNDUR Hallvarðsson, al- þingismaður og formaður sam- göngunefndar Al- þingis, hefur ákveðið að láta af þingmennsku í lok þessa kjör- tímabils. Guð- mundur hefur setið á Alþingi í fjögur kjörtímabil, sem einn af þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. „Mér finnst tími til kom- inn að láta af þingmennsku eftir 16 ára setu á Alþingi enda hef ég komið allmörgum málum, sem ég hef unnið fyrir sjómannastéttina og eldri borg- ara þessa lands, í góðan farveg,“ seg- ir í yfirlýsingu frá Guðmundi. Guðmundur hefur allt frá árinu 1972 sinnt málefnum sjómanna og launþega. Guðmundur hefur setið í fjölda nefnda og ráða fyrir Sjálf- stæðisflokkinn og í mörgum þing- nefndum. Hann var í borgar- stjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins 1982–1994 og hafnarstjórn 1986– 1994. Guðmundur hyggst alfarið snúa sér að uppbyggingu og þjónustu Hrafnistu, en hún starfrækir fjögur heimili; í Reykjavík, Hafnarfirði, á Vífilsstöðum og í Víðinesi. Hættir á Alþingi Guðmundur Hallvarðsson LÖGREGLAN í Reykjavík handtók karlmann á sextugsaldri grunaðan um innbrot á þjónustustöð Olís við Skúlagötu í Reykjavík aðfaranótt mánudags. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu hafði maðurinn brotið rúðu til að komast inn en um leið slasað sig og þurfti því að flytja hann á slysa- deild Landspítala – háskólasjúkra- húss til aðhlynningar. Maðurinn hafði stolið sér sælgæti úr hillum bensínstöðvarinnar og var með full- an munn og vasa af góðgæti þegar lögregluþjónar gómuðu hann. Maðurinn var í afar annarlegu ástandi og eftir að búið var að gera að sárum hans fékk hann að gista fangageymslur lögreglunnar. Hann hefur alloft komist í kast við lögin á liðnum árum og að sögn lögreglu verður reynt að finna úrræði við vanda hans. Braust inn til að stela sér sælgæti ♦♦♦ Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is ÓLAFUR F. Magnússon, borgar- fulltrúi F-listans í Reykjavík, hyggst á borgarstjórnarfundi í dag flytja til- lögur þess efnis að borgarstjórn Reykjavíkur beini þeim tilmælum til stjórnar Landsvirkjunar að há- markshæð vatnsborðs í Hálslóni verði lækkuð um 20 metra úr 625 m yfir sjó í 605 m, til að auka öryggi mannvirkja, draga úr hættu á stíflu- rofi og minnka umhverfisáhrif Kára- hnjúkavirkjunar. „Með allri virðingu fyrir málamiðl- unum, þá teljum við að allar róttækar breytingar á þessum mannvirkjum séu ekki raunhæfar, því að tími slíkra málamiðlana er einfaldlega liðinn. Tími málamiðlana fór fram áður en við hófum framkvæmdir,“ segir Sig- urður Arnalds, talsmaður Kára- hnjúkavirkjunar. Bendir hann á að mannvirkin að Kárahnjúkum sem og allar framkvæmdir þar hafi tekið mið af ákveðnum forsendum. „Allar aðrar hugmyndir myndu því kalla á umtals- verðar og kostnaðarsamar breyting- ar,“ segir Sigurður. Leggja til að 20 ferkílómetra grónu svæði verði þyrmt Í greinargerð með tillögu borgar- fulltrúa F-lista kemur fram að með því að hleypa hægt í lónið og lækka hámarkshæð þess megi minnka álag á bergið við stíflurnar, minnka líkur á gliðnun í sprungum og draga úr hættu á stíflurofi. Einnig kemur í greinargerðinni fram að við lækkun lónshæðar í 605 metra muni flatarmál Hálslóns minnka úr 58 í 38 ferkílómetra eða um 35%. „Þannig er þyrmt 20 ferkíló- metra svæði sem er að miklu leyti gróið land og dregið verulega úr hættu á áfoki og uppblæstri. Auk þess myndi lækkun lónshæðar Háls- lóns tryggja farleiðir hreindýra milli Kringilsárrana og Vesturöræfa, draga verulega úr áhrifum í friðland- inu á Kringilsárrana, þyrma náttúru- fyrirbærum á borð við austustu töðu- hraukana og Töfrafoss og bjarga miklu gróðurlendi beggja vegna Jöklu,“ eins og segir í greinargerð með tillögunni. Jafnframt er bent á að við fyrr- greinda breytingu myndi lónrýmd minnka úr 2.088 gígalítrum í 1.177 gígalítra eða um 44%. „Þrátt fyrir þessa miklu minnkun á lónrýmd myndi orkugeta að hámarki minnka um 26%. Líkur benda til að orkuget- an muni þó minnka umtalsvert minna.“ Tekið er fram að með tillög- unni vilji F-listinn láta á það reyna hvort unnt sé að halda uppi nægilegri orkuframleiðslu til virkjunarinnar með minni lónshæð. Skert orkugeta gæti teflt arðsemi virkjunar í tvísýnu Aðspurður segir Sigurður ljóst að öll skert orkugeta hefði áhrif á arð- semi Kárahnjúkavirkjunar. „Öll skert orkugeta virkjunarinnar skerð- ir tekjuhliðina stórlega og þar með er arðsemin af þessari framkvæmd ekki lengur ásættanleg.“ Þegar gagnrýn- in á öryggisþáttinn er borin undir Sigurð segist hann engan veginn geta fallist á það að öryggi stíflna Kára- hnjúkavirkjunar sé ekki ásættanlegt. „Þetta eru traust mannvirki og það er algjör misskilningur að öryggi þeirra sé á einhvern hátt ábótavant.“ Vilja 20 metra lækkun Sigurður Arnalds segir tíma málamiðlana um Kárahnjúkavirkjun liðinn VALGERÐUR Bjarnadóttir, sviðsstjóri hjá Landspítala – há- skólasjúkrahúsi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í þriðja til fimmta sæti í prófkjöri Samfylkingarinn- ar í Reykjavík fyrir alþingis- kosningar. Hún nefnir lífeyrismál, málefni eldri borgara og skattamál sem þau málefni sem hún vill takast á við komist hún á þing. Valgerður var búsett í Brussel í 15 ár og starfaði hún sem skrifstofu- stjóri hjá EFTA frá 1993–2001. Frá árinu 2001 var Valgerður framkvæmdastjóri fyrirtækis sem hét Sjúkrahúsapótekið ehf. Fyrir- tækið var innlimað í LSH 2003. Í dag starfar hún sem sviðsstjóri á inn- kaupa- og vörustjórnunarsviði LSH. Býður sig í 3. til 5. sæti Valgerður Bjarnadóttir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.