Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.10.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2006 11 ALÞINGI Eftir Örnu Schram arna@mbl.is ALÞINGI Íslendinga, 133. löggjaf- arþing, var sett í gær að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Sól- veig Pétursdóttir, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, var endurkjörin for- seti Alþingis. Þingið verður óvenju stutt að þessu sinni vegna komandi þingkosninga. Því verður frestað hinn 15. mars nk., um tveimur mán- uðum fyrir kosningarnar 12. maí. Sólveig sagði m.a. í ávarpi sínu, er hún tók við embætti forseta Alþing- is, að í ljósi þess að nú væri að hefj- ast svokallað kosningaþing mætti búast við því að hitnað gæti í kol- unum. Hún vitnaði í orð eins forvera síns, sem sagði að Alþingi væri eng- inn sunnudagsskóli, en tók síðan fram að alþingismenn ættu engu að síður að gæta hófs í málflutningi og sýna háttvísi og virða persónu og æru annarra. „Það er ekki undan miklu að kvarta hér í þessum sal en ágætt að minnast þessa annað slag- ið,“ sagði hún. Sólveig vék einnig m.a. að störf- um og starfsháttum Alþingis og sagði að hún hefði átt marga fundi með formönnum þingflokka á liðn- um vetri, sem og í sumar, um þau mál. Hún kvaðst bjartsýn á að hljómgrunnur væri fyrir því í öllum þingflokkum og hjá ríkisstjórn að ná heildarsamkomulagi um umbætur á þingstörfunum, m.a. þingskapalög- um og þingvenjum. „Markmið okkar er að Alþingi vandi vel verk sín, að löggjöfin sé vönduð og að umræður séu drengilegar og öllum til sóma.“ Þingsetningin hófst, eins og áður sagði, með guðsþjónustu í Dóm- kirkjunni. Að henni lokinni gengu forseti Íslands, biskup Íslands, ráð- herrar, alþingismenn og gestir fylktu liði til þinghússins. Jóhanna Sigurðardóttir, þing- maður og starfsaldursforseti þings- ins, tók því næst við fundarstjórn. Þingmenn minntust Magnúsar H. Magnússonar, fyrrverandi alþing- ismanns og ráðherra, sem andaðist hinn 22. ágúst sl. Jóhanna gerði grein fyrir störfum Magnúsar og bað að lokum þingmenn um að minnast hans með því að rísa úr sætum. Jóhanna stjórnaði kjöri forseta þingsins og var Sólveig Pétursdóttir ein í kjöri. Í leynilegri kosningu hlaut Sólveig 55 atkvæði. Sjö skil- uðu auðu. Að því búnu tók Sólveig við fundarstjórn. Eftir ræðu Sól- vegar var þingfundi frestað í um einn og hálfan tíma. Þegar fundi var framhaldið voru kjörnir sex varafor- setar þingsins, þau: Rannveig Guð- mundsdóttir, Jón Kristjánsson, Birgir Ármannsson, Jóhanna Sig- urðardóttir, Þuríður Backman og Sigríður Anna Þórðardóttir. „Markmið okkar er að Alþingi vandi vel verk sín“ Morgunblaðið/ÞÖK Til starfa Ráðherrar ríkisstjórnarinnar og Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, við athöfnina í gær. Búast má við því að hitni í kolunum á kosningavetri Í HNOTSKURN » Sólveig Pétursdóttir, for-seti þingsins, greindi frá því að hún hefði ákveðið í sam- ráði við forystu Krabbameins- félagsins, að alþingishúsið yrði lýst bleiku ljósi á næstunni. Það yrði gert sem táknrænn stuðn- ingur Alþingis við baráttuna gegn brjóstakrabbameini. Al- þingi myndi með því slást í hóp margra þekktra stofnana víða um heim. ÞINGFLOKKAR stjórnarandstöð- unnar kynntu og boðuðu á blaða- mannafundi í gær sameiginleg þing- mál í upphafi þingvetrar og kváðust forystumenn flokkanna vilja með þeim leggja áherslu á samstöðu sína gegn núverandi ríkisstjórn. Þá kom fram að stjórnarandstöðuflokkarnir hyggjast standa sameiginlega að kosningum í nefndir og ráð á vegum þingsins, en slík samstaða hefur ekki náðst meðal stjórnarandstöðunnar það sem af er þessu kjörtímabili. „Markmið okkar er að knýja fram gerbreytta stjórnarstefnu og til þess þarf að skipta um ríkisstjórn í land- inu,“ sagði Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstrihreyf- ingarinnar-græns framboðs. „Ef rík- isstjórnin missir meirihlutann þá hljótum við að líta á það sem áskorun til okkar um að mynda næstu rík- isstjórn.“ Þau mál sem stjórnarandstaðan hyggst m.a. leggja fram sameigin- lega í byrjun þingsins eru: tillaga til þingsályktunar um nýja framtíðar- skipan lífeyrismála, tillaga til þings- ályktunar um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum, frumvarp til laga um að felld verði niður heimild iðnaðar- ráðherra til að leyfa gerð Norðlinga- ölduveitu og frumvarp til laga sem hefði það m.a. að markmiði að vinna gegn launaleynd og kynbundnum launamun. Fram kom m.a. á fundinum í gær að tillagan um lífeyrismál hefði það að markmiði að bæta kjör aldraðra og öryrkja. Í tillögunni er m.a. lagt til að tekjutrygging aldraðra verði 85 þúsund krónur og öryrkja 86 þús- und frá 1. janúar 2007. Frá sama tíma hækki frítekjumark vegna at- vinnutekna í 75 þúsund krónur á mánuði og skerðing tekjutryggingar vegna þeirra lækki úr 45% í 35%. Á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga, um síðustu helgi, réðu atkvæði fulltrúa Vinstri grænna því að sjálfstæðismaðurinn Halldór Halldórsson var kjörinn formaður sambandsins. Forystumenn stjórn- arandstöðuflokkanna sögðu að þetta myndi ekki hafa áhrif á samstarfið á landsvísu. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði m.a. ljóst að sveitarfélögin væru ekki sami vettvangurinn og Al- þingi. „ Þetta [samstarf] einskorðast hér við Alþingi.“ Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna, tók í sama streng. „Þetta eru algjörlega aðskil- in mál og kosningin á þingi Sam- bands íslenskra sveitarfélaga var ekki á nokkurn hátt á vegum flokk- anna.“ Stjórnarandstæðingar boða samstöðu á þingi Morgunblaðið/Eyþór Samstaða Fulltrúar stjórnarandstöðuflokkannna á blaðamannafundi í gær þar sem þeir gerðu grein fyrir samstarfi því sem áformað er á Alþingi. ÓLAFUR Ragn- ar Grímsson, for- seti Íslands, sagði í ræðu sinni við setn- ingu Alþingis í gær, að nú þegar ágreiningur um veru Bandaríkja- hers hefði verið til lykta leiddur með brottför varnarliðsins væri afar brýnt að deilurnar um nýtingu náttúru Íslands sköpuðu ekki nýja gjá meðal þjóðarinnar. „Við sjáum ýmis merki þess að af- staðan til náttúrunnar kunni að verða viðlíka hitamál og herinn var fyrrum. Þúsundir mótmæla á göt- um Reykjavíkur á sama tíma og íbúar Austurlands fagna nýjum áföngum í byggðaþróun. Náttúra Íslands er okkur öllum kær, sam- ofin sjálfstæðisvitund Íslendinga, uppspretta þjóðarauðs og framfara á flestum sviðum.“ Hann sagði að þjóðarsátt í erfiðum málum væri verðmæt auðlind „og með samstöð- una að leiðarljósi eru okkur allir vegir færir“. Fyrr í ræðu sinni gerði hann deil- urnar um veru hersins að umtals- efni. „Það er erfitt fyrir þá sem nú vaxa úr grasi að skilja til hlítar hve hatrömm þessi glíma var, deilurnar um veru hersins, varnarliðið á Mið- nesheiði og kannski getur ekkert okkar skilið til fulls hve afgerandi þáttaskil hafa nú orðið. Herinn er farinn. Gærdagurinn sá fyrsti í meira en hálfa öld án hermanna í okkar landi. Nú hefjast nýir tímar – nýtt skeið í þjóðarsögunni. Lær- dómarnir eru býsna margir en mik- ilvægastur kannski sá að forðast ber í lengstu lög að Íslendingar verði á ný fórnarlömb svo djúp- stæðs klofnings.“ Síðar í ræðu sinni sagði hann að nú þyrfti að ná þjóðarsátt um grundvöllinn í utanríkisstefnu Ís- lendinga. „Aldrei fyrr frá lýðveld- isstofnun hefur aðstaða skapast til að ná svo víðtækri sátt í þessum efnum.“ Lítil þjóð þyrfti á því að halda að einhugur ríkti um stöðu hennar í veröldinni. Ný gjá skapist ekki Forseti Íslands gengur til Alþingis í gær. Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.