Morgunblaðið - 18.10.2006, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gar›atorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni
Egilsstö›um - Höfn - Fáskrú›sfir›i - Sey›isfir›i - Neskaupsta› - Eskifir›i - Rey›arfir›i - Ísafir›i - Bolungarvík
Patreksfir›i - Borgarnesi - Grundarfir›i - Stykkishólmi - Bú›ardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn
K
R
A
FT
A
V
ER
K
Omega-3 fitusýrur geta dregið úr hættu á hjarta og
kransæðasjúkdómum. Jafnframt hafa rannsóknir sýnt fram
á gagnsemi omega-3 gegn liðagigt.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Yf i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Veður 8 Umræðan 28/32
Staksteinar 8 Bréf 32
Viðskipti 14 Minningar 33/37
Erlent 16/17 Leikhús 42
Höfuðborgin 20 Myndasögur 44
Akureyri 20 Dagbók 44/49
Suðurnes 21 Staður og stund 46
Landið 22 Velvakandi 48
Daglegt líf 22 Bíó 46/49
Menning 18 Ljósvakamiðlar 50
* * *
Innlent
Ólafur Tómasson, fyrrverandi
póst- og símamálastjóri, segir að all-
ar símhleranir sem hann vissi af á 40
ára starfsferli sínum hjá Pósti og
síma hafi verið löglegar. Ríkis-
saksóknari hefur ákveðið að taka til
rannsóknar ásakanir um hleranir í
utanríkisráðuneytinu, en viðbúið er
að komist upp um glæpsamlegt at-
hæfi sé sök fyrnd, nema um landráð
hafi verið að ræða. » 26
Fimmtán ára stúlka varð fyrir
þeirri óskemmtilegu reynslu að
bekkjarfélagi hennar birti persónu-
legar upplýsingar um hana, þar á
meðal símanúmer, á vefsíðunni
einkamál.is. Fékk hún 58 símhring-
ingar frá ókunnugum karlmönnum
áður en upplýsingarnar voru fjar-
lægðar af heimasíðunni. »52
Einar K. Guðfinnsson sjáv-
arútvegsráðherra tilkynnti á Alþingi
í gær að atvinnuveiðar á hval yrðu
hafnar á ný. Verður heimilt að veiða
níu langreyðar og 30 hrefnur en
skiptar skoðanir eru um málið á
meðal þingmanna. »1
Allt að 55% verðmunur er á lyf-
seðilsskyldum lyfjum á höfuðborg-
arsvæðinu samkvæmt könnun verð-
lagseftirlits ASÍ. Lyfjaver og
Skipholtsapótek voru oftast með
lægsta verðið í könnuninni, Lyf og
heilsa við Egilsgötu reyndist oftast
vera með hæsta verðið. »52
Erlent
Norður-Kóreumenn voru í gær
varaðir við frekari kjarnorku-
tilraunum eftir að stjórnvöld í Pyon-
gyang lýstu því yfir að refsiaðgerðir
Sameinuðu þjóðanna jafngiltu
stríðsyfirlýsingu. Talsmaður Banda-
ríkjaforseta gaf til kynna að stjórnin
í Washington byggist við því að
Norður-Kóreumenn myndu
sprengja aðra kjarnorkusprengju í
tilraunaskyni. »1
George W. Bush Bandaríkja-
forseti skrifaði í gær undir umdeild
lög sem heimila starfsemi leynifang-
elsa, harkalegar yfirheyrsluaðferðir
og sérstakan herdómstól sem á að
fjalla um mál meintra hryðjuverka-
manna. » 17
Anders Borg, fjármálaráðherra
Svíþjóðar, viðurkenndi í gær að
hann hefði borgað heimilishjálpinni
sinni undir borðið. Upplýsingarnar
eru taldar enn eitt áfallið fyrir Fred-
rik Reinfeldt, forsætisráðherra Sví-
þjóðar. »16
GUNNAR Svavarsson, forseti
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og
varaformaður stjórnar Hitaveitu
Suðurnesja, vill að sameiginleg
umsókn hitaveitunnar og Orku-
veitu Reykjavíkur um rannsókn-
arleyfi í Brennisteinsfjöllum á
Reykjanesi verði dregin til baka.
Að sögn Gunnars liggur ljóst
fyrir að í skýrslu auðlindanefndar
og almennri þjóðmálaumræðu end-
urspeglist það viðhorf að Brenni-
steinsfjöllin fái ákveðna friðhelgi
gegn röskun.
„Við í Samfylkingunni höfum
auðvitað lagt á það áherslu að
Brennisteinsfjöllin falli innan
þeirra nýju svæða sem við teljum
að eigi að skoða friðlýsingu á,“
bendir Gunnar á.
„Þetta tengist þeim hugmyndum
okkar að setja fram svokallaða
náttúruverndaráætlun. Það sem ég
er að benda á er að orkufyrirtækin
þrjú, Landsvirkjun, sem á líka um-
sókn um Brennisteinsfjöllin, Orku-
veita Reykjavíkur og Hitaveita
Suðurnesja, eigi nú að stíga fram
og draga umsóknina til baka og
einbeita sér að því með iðnaðar- og
umhverfisráðuneyti og öðrum að
þessi fyrirtæki kanni það til hlítar
hvort ekki sé unnt að fá rann-
sóknaleyfi á röskuðum svæðum
svo sem Krýsuvík og Trölla-
dyngju.“
Stefán Jón og Steinunn
hljóta að fylgja fordæminu
„Ég hef ekki trú á öðru en að fé-
lagar mínir í Samfylkingunni, þau
Stefán Jón Hafstein í stjórn Orku-
veitu Reykjavíkur og Steinunn
Valdís Óskarsdóttir í stjórn
Landsvirkjunar, muni einnig taka
upp þessa umræðu í stjórnum
þeirra fyrirtækja,“ segir Gunnar.
Vill hætta við áform
í Brennisteinsfjöllum
Óröskuðu svæðinu verði hlíft við orkufyrirtækjum
Í HNOTSKURN
»Umhverfisráðuneytiðmælir ekki með til-
raunaborunum í Brennisteins-
fjöllum en bendir þess í stað á
möguleika sem kunna að finn-
ast á Reykjanesskaganum s.s. í
Krýsuvík og Trölladyngju.
»Ráðuneytið telur aðBrennisteinsfjöll hafi mik-
ið verndargildi sem ósnortið
víðerni enda sé svæðið talið
einstakt á heimsvísu. Þar eru
enn fremur margir hellar sem
fáir hafa séð og vill Hellarann-
sóknafélagið vernda svæðið.
ÖKUMAÐUR komst ómeiddur á land eftir að bifreið
hans rann út í sjó við Geirsnef í Reykjavík í gær. Að
sögn sjónarvotts var maðurinn einn í bílnum og komst
hann af sjálfsdáðum út úr honum, var hann svo aðstoð-
aður í land af vegfaranda. Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins og lögreglan í Reykjavík komu á vettvang
auk kranabifreiðar sem fengin var til að ná bílnum upp,
en hann mun hafa farið nokkuð langt út og var allur á
kafi.
Á myndinni er kafari frá Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins að störfum við björgun bílsins eftir að öku-
maðurinn sjálfur bjargaðist á land.
Morgunblaðið/Júlíus
Bíll rann út í sjó við Geirsnef
FYRRVERANDI starfsmaður
Landssímans, sem mun hafa sagt
Jóni Baldvini Hannibalssyni frá því
er hann varð vitni að því er sími Jóns
var hleraður í stjórnstöð Landssím-
ans í ráðherratíð hans, hefur nú gefið
skýrslu hjá Ragnari Aðalsteinssyni
hæstaréttarlögmanni og mun ekki
tala við fjölmiðla um málið. Hann
mun hins vegar greina þar til bærum
opinberum rannsóknaraðilum frá
reynslu sinni, að sögn Ragnars.
„Þessi maður hefur komið á skrif-
stofu mína og staðfest frásögn sína
með formlegum hætti hjá mér,“ seg-
ir Ragnar. „Hann mun að ég tel tví-
mælalaust gefa skýrslur hjá þeim
stjórnvöldum sem verður falið að
rannsaka málið, eða dómstólum.“
Ragnar mun varðveita framburð
mannsins í sínum vörslum og segir
Ragnar að hann vilji ekki eiga sam-
skipti við fjölmiðla, heldur sinna
lagaskyldum sínum fyrir réttum
stjórnvöldum verði hann til þess
kallaður.
Samkvæmt frásögn Jóns Baldvins
hringdi viðkomandi maður í hann
fyrir skemmstu til að segja honum
frá hlerunum hjá Landssímanum.
Hefði hann séð kollega sinn sitja
mánuðum saman við hleranir. Heim-
ildarmaður Jóns Baldvins þorði ekki
að gera neitt í málinu á sínum tíma af
ótta við að missa starfið en fann sig
knúinn til að leysa frá skjóðunni mitt
í allri fjölmiðlaumræðunni sem stað-
ið hefur yfir undanfarnar vikur.
Símamaðurinn
gefur skýrslu
MAÐURINN
sem lést í umferð-
arslysi sem varð á
Kjósarskarðs-
vegi, á móts við
Þórufoss,
skömmu fyrir há-
degi á mánudag
hét Gunnlaugur
Jón Ólafur Axels-
son, til heimilis að
Kirkjuvegi 67 í
Vestmannaeyjum.
Gunnlaugur var 66 ára, fæddur
31. maí árið 1940, og lætur eftir sig
eiginkonu og þrjú uppkomin börn
Atvikið vildi þannig til að Gunn-
laugur var á ferð þegar bifreið hans
fór út af veginum, hugsanlega vegna
vindhviðu en afar hvasst var á þess-
um slóðum. Hann skaust út í veltu
og lenti að hluta til undir bílnum.
Gunnlaugur
Axelsson
Lést í um-
ferðarslysi
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,