Morgunblaðið - 18.10.2006, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Selfossi | Stangaveiðifélag Reykja-
víkur (SVFR) hyggst verja tugum
milljóna króna á næstu árum í að
auka laxveiði í uppsveitum Árnes-
sýslu. Félagið hefur samið við eig-
endur netaveiðiréttar í Ölfusá og
Hvítá, sem veitt hafa liðlega tvo
þriðju hluta netaaflans, um að
leggja netaveiðar af gegn árlegu
gjaldi. Til að standa straum af
kostnaðinum hyggst Stangaveiði-
félagið koma á fót netaupp-
kaupasjóði en veiðimenn munu
sjálfir fjármagna hluta uppkaupana
með hærri veiðileyfum.
Bjarni Júlíusson, formaður
Stangaveiðifélags Reykjavíkur,
segir umræðu um upptöku neta í
Ölfusá og Hvítá fyrst hafa kviknað
innan félagsins fyrir um hálfri öld
og deilur á milli stangveiðimanna
og netabænda hafi blossað reglu-
lega upp í gegnum tíðina. „Að þessu
sinni fórum við samningaleiðina og
nú er ákveðnum áfangasigri fagn-
að. Við erum hins vegar ekki hættir
og ætlum okkur að ná öllum netum
upp á svæðinu,“ segir Bjarni.
Stangaveiðifélagið vill ekki gefa
upp þær fjárhæðir sem um er að
tefla varðandi einstaka veiðirétt-
areigendur en Bjarni segir að á
næsta ári muni félagið verja um
átta milljónum króna til netaupp-
kaupa. „Samningarnir við neta-
bændurna eru ýmist til þriggja eða
fimm ára svo ljóst er að heildar-
fjárhæðin skiptir tugum milljóna
króna. Félagið mun leita víða eftir
samstarfsaðilum varðandi fjár-
mögnun verkefnisins og við erum
vongóð um að Fiskræktarsjóður
styðji verkefnið,“ segir Bjarni.
Veiðimenn munu sjálfir bera
hluta kostnaðarins við netaupp-
kaupin með hærra verði á veiðileyf-
um en Bjarni treystir sér ekki til að
spá um hversu mikil hækkunin
verði.
Þeir eigendur netaveiðiréttar í
Ölfusá og Hvítá, sem undanfarin
áratug hafa veitt um einn þriðja
hluta netaaflans, munu áfram
leggja net sín. „Það er mat vísinda-
manna að 20 til 30% af þeim laxi
sem fór í net þeirra bænda sem við
höfum nú samið við muni veiðast á
stöng. Við vonum, að þetta muni
auka stangaveiðina á næsta sumri
um 500 til 600 laxa,“ segir Bjarni.
Miklu fé varið til netauppkaupa
Netaveiði verður
að mestu hætt í
Ölfusá og Hvítá
Ljósmynd/Kristján J. Kristjánsson
Ánægðir Fjórir af sjö stjórnarmönnum SVFR, auk formanns Stanga-
veiðifélags Selfoss, á blaðamannafundi á Selfossi í gær þar sem samn-
ingarnir voru kynntir. Frá vinstri: Eiríkur St. Eiríksson, Þorsteinn
Ólafs, Bjarni Júlíusson, Gylfi Gautur Pétursson og Steindór Pálsson.
VINNUSLYS varð í Skipalyftunni í Vestmanna-
eyjum á fjórða tímanum í gær. Undirstöður gáfu sig
þegar verið var að taka Gandí VE upp í lyftuna. Var
upptakan langt komin þegar vír slitnaði og það olli
því að undirstöður gáfu sig. Voru fimm menn við
botnskoðun og lentu þeir allir í sjónum. Tveir þeirra
slösuðust og voru fluttir á sjúkrahús. Annar þeirra
kenndi eymsla í baki og eftir skoðun var hann lagður
inn. Hinn fékk skurð á höfuðið en fékk að fara heim
eftir að búið var að hlúa að honum. Mikil mildi þykir
að ekki fór verr. Unnið var að því seinni part dags í
gær að koma skipinu aftur á flot en ekki er vitað um
skemmdir. Þó er talið að skemmdir á lyftunni séu
talsverðar. Á að kanna skemmdir á skipinu í dag.
Ljósmynd/Ómar Garðarsson
Tveir slösuðust í Eyjum
TILLAGA um undirbúning að sölu
Fríkirkjuvegar 11 var samþykkt á
fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í
gær en borgarráð hafði áður sam-
þykkt að fela framkvæmdasviði að
undirbúa auglýsingu húseignar-
innar.
Í tillögunni segir að við val á
kaupanda verði auk tilboðsverða
tekið tillit til framtíðarnotkunar og
sögu hússins en borgarráð mun fá
auglýsingu með endanlegum skil-
málum til samþykktar.
Embættið bjóði í lóðina
Fram kom í máli Steinunnar
Valdísar Óskarsdóttur, borgarfull-
trúa Samfylkingar, að þegar hún
gegndi embætti borgarstjóra hafi
það verið nefnt við hana að húsið
væri þannig staðsett og af þeirri
stærð, að embætti forseta Íslands
væri sómi sýndur af því að vera
með skrifstofur þar. Björn Ingi
Hrafnsson, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, sagðist ekki hafa
heyrt um áhuga forsetaembættis-
ins en hann hvatti embættið til að
sækja um og bjóða í lóðina.
Undirbúa
sölu
Forsetaembættið á
Fríkirkjuveg 11?
TALSMAÐUR neytenda, Gísli
Tryggvason, telur að samruni MS,
Norðurmjólkur og Osta- og smjörsöl-
unnar auk hugsanlega Kaupfélags
Skagafjarðar, samkvæmt fréttum,
muni með alvarlegum hætti brjóta
gegn hagsmunum neytenda. Sömu-
leiðis verði að telja slíkan samruna til
þess fallinn að leiða til atferlis sem
brjóti gegn réttindum neytenda.
Leggur hann til að Alþingi samþykki
þegar í stað breytingu á lögum sem
komi í veg fyrir samruna af því tagi
sem fyrirhugaður er. Með því að af-
nema undanþágu búvörulaga frá
samkeppnislögum, sem heimilar sam-
runa afurðastöðva í mjólkuriðnaði,
má afstýra yfirvofandi einokun í
mjólkuriðnaði sem myndi draga mjög
úr samkeppni í greininni. Tillaga hans
byggist á því að samruni sé – ólíkt
öðrum frávikum frá samkeppnislög-
um sem búvörulög heimila – að jafn-
aði óafturkræfur nema lög standi til
ógildingar.
Talsmaðurinn bendir jafnframt á
að fordæmi séu fyrir slíkum skjótum
afskiptum löggjafans að gefnu sér-
stöku tilefni sbr. viðbrögð löggjafans
við fyrirhugaðri yfirtöku á tilteknum
sparisjóði.
Hann tekur fram að embættið taki
að jafnaði ekki að eigin frumkvæði af-
stöðu í málum sem hafa verið til um-
fjöllunar hjá öðrum eftirlitsaðilum
sem hann hefur ekki fengið til um-
sagnar. Þar sem umræddar fréttir
lúta hinsvegar að yfirvofandi sam-
runa, gangi þvert á nýtt og ítarlega
rökstutt álit Samkeppniseftirlitsins
og feli í sér hættu á óafturkræfum
breytingum sem eru til þess fallnar að
leiða til mjög skaðlegra afleiðinga fyr-
ir neytendur telur hann eðlilegt að
bregðast við með framangreindum
hætti.
Talsmaður neytenda óttast einokun í mjólkuriðnaði
Samruni ógnar hags-
munum neytenda
Í HNOTSKURN
»Einokun í mjólkuriðnaðimyndi draga úr samkeppni á
þessu sviði og stefna hags-
munum neytenda í verulega
hættu að mati talsmanns neyt-
enda, Gísla Tryggvasonar.
»Talsmanni neytenda ber skv.1. mgr. 6. gr. laga nr. 62/
2005 um Neytendastofu og tals-
mann neytenda að standa vörð
um hagsmuni og réttindi neyt-
enda og stuðla að aukinni neyt-
endavernd.
GYLFI Arnbjörnsson
hefur ákveðið að draga
framboð sitt til baka í
prófkjöri Samfylking-
arinnar í Reykjavík, en
hann sóttist eftir þriðja
til fjórða sæti á lista
flokksins vegna alþing-
iskosninga næsta vor.
Gylfi segist í yfirlýs-
ingu hafa fundið fyrir
miklum stuðningi en að bekkur frambjóð-
enda í efstu sætin sé þröngt setinn fram-
bærilegum einstaklingum. Líklegt sé því að
baráttan verði mikil og að þeir, sem mæti
nýir til leiks, þurfi að hafa mikið fyrir því
að ná þeim árangri sem þeir stefni að. „Eft-
ir vandlega íhugun tel ég að barátta við
þessar aðstæður samræmist illa störfum
mínum og hlutverki sem framkvæmda-
stjóra og talsmanns Alþýðusambands Ís-
lands,“ segir Gylfi svo. Því hafi hann ákveð-
ið að draga framboð sitt til baka.
Gylfi hættir við
þátttöku í prófkjöri
Gylfi Arnbjörnsson
TIL STENDUR að flytja skrifstofur
Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur
(ÍTR) í nýtt og hentugra húsnæði þar sem
undirbúningur að sölu núverandi hús-
næðis ÍTR á Fríkirkjuvegi 11 stendur fyrir
dyrum. Að sögn Björns Inga Hrafnssonar,
borgarfulltrúa Framsóknarflokks, kemur
sterklega til greina að ÍTR verði fundið
aðsetur í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykja-
víkur en viðræður þess efnis hafa átt sér
stað undanfarið.
„Það hefur legið fyrir árum saman að
ÍTR þyrfti nýtt og betra húsnæði þar sem
bæði væri til staðar betri aðstaða og betra
aðgengi. Við höfum átt í viðræðum innan
stjórnkerfisins og komið hefur í ljós að
Orkuveita Reykjavíkur hefur upp á mjög
hentugt húsnæði að bjóða í sínum höf-
uðstöðvum í Árbæ,“ segir Björn Ingi en
hann vonast til þess að ÍTR geti flutt í nýtt
húsnæði á næstu vikum.
ÍTR flytur líklega
í höfuðstöðvar OR
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur
dæmt fertugan karlmann í tveggja mán-
aða fangelsi fyrir þjófnað, fjársvik og
gripdeild. Honum var auk þess gert að
greiða rúmar 35 þúsund krónur í skaða-
bætur og tæplega 79 þúsund króna þókn-
un skipaðs verjanda síns.
Sakaferill mannsins er langur og nær
aftur til ársins 1986, flest eru brotin auðg-
unarbrot en einnig hótanir, eignaspjöll,
brot gegn valdstjórninni og umferð-
arlagabrot.
Sandra Baldvinsdóttir, settur héraðs-
dómari, kvað upp dóminn.
Dæmdur í sextíu
daga fangelsi
MORGUNBLAÐIÐ hefur tekið í
notkun nýtt móttökukerfi fyrir að-
sendar greinar. Kerfið, sem gerir
notendum kleift að senda greinar
beint inn til Morgunblaðsins, sendir
sjálfvirkt svar á netfang viðkom-
andi þess efnis að greinin hafi verið
móttekin.
Formið er að finna ofarlega á
forsíðu fréttavefjarins www.mbl.is
undir liðnum „Senda inn efni“.
Upplýsingar um hámarkslengd
greina má finna á innskráningarsíð-
unni undir liðnum „Ítarlegri upp-
lýsingar“.
Notandi skráir sig er hann
notar kerfið í fyrsta skipti
Í fyrsta skipti sem formið er not-
að þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið og fær þá sent lykilorð til
síðari nota. Næst þegar kerfið er
notað er nóg að slá inn netfang og
lykilorð og er notandasvæðið þá
virkt. Hægt er að senda mynd af
höfundi með þessu sama formi. Í
forminu er merktur reitur þar sem
koma má á framfæri upplýsingum
eða óskum til starfsfólks Morgun-
blaðsins varðandi greinina eða
myndir.
Ekki er hægt að senda inn lengri
grein en sem nemur þeirri há-
markslengd sem gefin er upp fyrir
hvern efnisþátt, en notendum gefst
kostur á að stytta greinarnar áður
en þær eru sendar.
Þeir, sem hafa hug á að senda
blaðinu greinar í umræðuna eða
minningargreinar, eru vinsamlegast
beðnir að nota þetta kerfi. Jafn-
framt er rétt að benda á að þeir,
sem senda greinar með tölvupósti á
ákveðin netföng, mega búast við því
að fá greinarnar sendar til baka
með beiðni um að nota þetta nýja
kerfi.
Þeim, sem lenda í vandræðum
með skráninguna eða eiga óvirk
notendanöfn, er vinsamlega bent á
að hafa samband við Huldu Krist-
insdóttur í síma 569 1210.
Nýtt móttökukerfi
aðsendra greina