Morgunblaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 13
FRÉTTIR
Besti grunnskóli
í heimi
Staður og stund
Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38.
Í dag, miðvikudaginn 18. október, kl. 17:30.
- fundur um málefni grunnskólans
Við Íslendingar eigum að geta boðið
börnum okkar upp á besta grunnskóla
í heimi.
Menntakerfið er aflvél hagkerfisins
og jafnframt besta leiðin sem við höfum
til að veita börnum jöfn tækifæri í lífinu,
óháð efnahag foreldra þeirra.
Framsöguerindi
Illugi Gunnarsson og Margrét Pála Ólafsdóttir fjalla
um málefni grunnskólans og ræða hvernig við getum
tryggt börnum okkar besta grunnskóla í heimi.
Umræður að loknum framsöguerindum.
Fundarstjóri
Þórólfur Þórlindsson.
Illugi Gunnarsson er frambjóðandi
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
Margrét Pála Ólafsdóttir er framkvæmdastjóri
Hjallastefnunnar.
Allir velkomnir
SÓLVEIG
Jónsdóttir sál-
fræðingur varði
doktorsritgerð
sína í klínískri
taugasálfræði við
læknadeild Rík-
isháskólans í
Groningen
(Rijksuniversiteit
Groningen) í Hol-
landi 27. sept-
ember síðastliðinn.
Doktorsritgerðin fjallar um at-
hyglisbrest með ofvirkni og tengsl
þess við fylgikvilla og kyn og nefnist
á ensku „ADHD and Its Relations-
hip to Comorbidity and Gender“.
Andmælendur við vörnina voru: Dr.
Dirk J. Bakker prófessor, dr. Ruud
B. Minderaa prófessor, dr. Jaap J.
van der Meere prófessor, dr. Hanna
Swaab-Barneveld prófessor, dr.
Marina Schoemaker, dr. Joke M.
Spikman og dr. Marijn W. Luijpen.
Unnin út frá
fjórum rannsóknum
Doktorsritgerðin byggist á fjórum
rannsóknum.
Þær fjalla um a) kynjamun á ein-
kennum um athyglisbrest og of-
virkni og aðrar geðraskanir í heil-
brigðu íslensku þýði, b) áhrif
sértækrar málþroskaröskunar á
vinnsluminni barna með ADHD, c)
sambandið á milli taugasálfræðilegs
mats á stjórnunarfærni (executive
function) og hegðunarmats foreldra
og kennara á einkennum athygl-
isbrests, ofvirkni og hvatvísi og d)
áhrif taugaraförvunar gegnum húð
(transcutaneous electrical nerve sti-
mulation, TENS) á vitsmunastarf,
hegðun og sveifluna á milli hvíldar
og virkni í börnum, sem greinast
með ADHD.
Það er meginniðurstaða dokt-
orsritgerðarinnar, að það sé grund-
vallaratriði að gerð sé ítarleg grein-
ing á börnum, sem grunuð eru um
ADHD, því einkenni um athygl-
isbrest og ofvirkni geti í sumum til-
fellum skýrst af algengum fylgikvill-
um eins og t.d. málþroskaröskun,
svefntruflunum og hegðunarvanda-
málum, sem þarfnast sértækrar
meðferðar.
Þrjár greinar hafa birst í er-
lendum vísindatímaritum
Þrjár greinar byggðar á dokt-
orsritgerðinni hafa þegar birst í er-
lendum ritrýndum vísinda-
tímaritum.
Sólveig hefur undanfarin 6 ár,
samhliða störfum á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi (LSH), stundað
doktorsnám undir handleiðslu dr.
Erik J.A. Scherder prófessors og dr.
Anke Bouma prófessors við Ríkishá-
skólann í Groningen og dr. Joseph
A. Sergeant prófessors við Óháða
háskólann (Vrije Universiteit) í
Amsterdam. Hún lauk B.A. prófi í
sálfræði frá Háskóla Íslands 1975,
masters prófi (M.Ed.) í Educational
Psychology frá John Carroll Uni-
versity í Ohio ríki í Bandaríkjunum
1982, sérfræðingsprófi (certifica-
tion) í School Psychology frá John
Carroll University 1984 og diploma-
prófi í taugasálfræði barna frá The
European Graduate School of Child
Neuropsychology í Amsterdam
1998.
Sólveig hlaut löggildingu sem
skólasálfræðingur í Ohio ríki í
Bandaríkjunum 1984 og sem sál-
fræðingur á Íslandi 1985. Hún hlaut
sérfræðingsviðurkenningu í klín-
ískri barnasálfræði árið 2000 og í
klínískri taugasálfræði barna árið
2002.
Hún hefur síðan 1985 starfað sem
sálfræðingur í skólum, hjá Fé-
lagsþjónustunni í Reykjavík og síð-
an 1998 sem klínískur taugasálfræð-
ingur á LSH auk þess að reka eigin
stofu.
Sólveig er gift Gesti Þorgeirssyni
yfirlækni og eiga þau 4 börn og 4
barnabörn.
Doktor í
klínískri
taugasálfræði
Sólveig
Jónsdóttir
LIONSHREYFINGIN á Íslandi
stendur fyrir fræðslufundi fyrir al-
menning um sjónvernd þann 19. októ-
ber n.k. í Norræna húsinu í Reykja-
vík. Hefst fundurinn kl 17:00.
Fundarefni er: Blindusjúkdómar á
Íslandi, erum við í vörn eða sókn?
Fyrirlesarar eru Guðleif Helga-
dóttir hjúkrunarfræðingur og Har-
aldur Sigurðsson augnlæknir.
Guðleif og Haraldur sem eru hjón
hafa nýlega birt grein í Læknablaðinu
um aldursbundnar hrörnunarbreyt-
ingar í augnbotnum sem er algeng-
asta ásæða blindu í hinum vestræna
heimi í dag. Haraldur hefur fjallað um
blindu sykursjúkra, einkum þeirra
yngri. Aukin hætta er á þeim fylgi-
kvilla fylgist hinn sykursjúki ekki
grannt með sínum veikindum.
Sjónvernd og aðstoð við blinda og
sjónskerta hefur frá upphafi verið eitt
höfuðverkefni Lionshreyfingarinnar
um allan heim. Það var meðal annars
vegna hvatningar frá Helen Keller
sem var bæði blind og heyrnarlaus.
Lionsklúbbar á Íslandi hafa frá upp-
hafi stutt sjónvernd á einn eða annan
hátt m.a. með tækjagjöfum. Rifja má
upp fyrstu fjársöfnun Lionshreyfing-
arinnar hér á landi undir nafni Rauðu
fjaðrarinnar 1972 þar sem ágóðinn
rann til Augndeildarinnar á Landa-
koti sem og innkaupa á augnlækn-
ingatækjum fyrir heilsugæslustöðvar
um land allt.
Alþjóða Lionshreyfingin hefur frá
1990 staðið fyrir svokölluðu ,,Campa-
in Sight First“ átaki en það er aðstoð
við þróunarlönd í glímu við ýmsa
augnsjúkdóma sem leiða til blindu.
Þar er miklu hægt að áorka fyrir lítið
fé. Annars staðar í heiminum hefur
athyglin fyrst og fremst beinst að
uppfræðslu um og greiningu á syk-
ursýki sem er nú algengasti sjúkdóm-
urinn sem veldur blindu í okkar
heimshluta. Alls hefur verið veitt 179
milljónum dollara til 739 verkefna í 88
löndum. Markmiðið nú er að safna
150 milljónum dollara.
Fundur um blindrasjúkdóma
Undirskriftasöfnuninni stopp.is
lauk á laugardaginn, en hún er hluti
herferðarinnar „Nú segjum við
stopp“ sem Umferðarstofa hefur
staðið fyrir ásamt samgönguráðu-
neytinu og aðilum Umferðarráðs. Á
þeim mánuði sem söfnunin stóð yfir
skrifuðu 37.597 Íslendingar undir
áheit um bætta hegðun í umferðinni.
Með átakinu er gerð tilraun til að
höfða til betri vitundar ökumanna.
Vekja þá til vitundar um ábyrgð sína í
umferðinni og fá þá til að líta sér nær.
37.597 Ís-
lendingar
sögðu stopp