Morgunblaðið - 18.10.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 15
Fagmennska í fFagmennska í fyrirrúmi
Við erum leiðandi í
framleiðslu stjórn- og
gæslubúnaðar fyrir kæli-
og frystikerfi
Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf
Málþing um árangur af
einkavæðingu skipaskoðunar
Samgönguráðuneytið boðar til opins málþings um árangur af einkavæðingu
skipaskoðunar, sem haldið verður á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, miðvikudaginn
18. október nk. kl. 13:00-16:00.
Markmiðið með málþinginu er að efna til opinnar umræðu um málefnið, þar sem
fyrirtæki og einstaklingar sem standa að skoðunum skipa, útgerðir og eigendur skipa
auk opinberra aðila geta komið á framfæri sjónarmiðum sínum.
Málþingið hefst stundvíslega kl. 13:00.
Dagskrá:
A. Setning málþings,
Fundarstjóri: Unnur Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri í samgönguráðuneyti.
B. Reynsla einkarekinna skoðunarstofa og flokkunarfélaga,
1. Frumherji hf., Stefán Stephensen, tæknistjóri skipaskoðunar.
2. Skipaskoðun ehf., Stefán Guðsteinsson, skipatæknifræðingur.
3. Skipaskoðun Íslands, Hálfdán Henrysson, framkvæmdastjóri.
4. Lloyds Register EMEA, Páll Kristinsson, skoðunarmaður.
C.Sjónarmið útgerða, smábátaeigenda og sjómanna.
1. Landssamband íslenskra útvegsmanna,
Guðmundur Smári Guðmundsson, frkvstj. Guðmundar Runólfssonar hf.
2. Landssamband smábátaeigenda, Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS.
3. Farmanna- og fiskimannasamband Íslands,
Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins.
D.Afstaða stjórnvalda.
1. Póst- og fjarskiptastofnun, Guðmundur Ólafsson, forstöðumaður tæknideildar.
2. Siglingastofnun Íslands, Fulltrúi Siglingastofnunar.
E. Umræður.
Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis
VÍSISBÁTARNIR mokfiska í
haust, eins og reyndar yfirleitt.
Línubátarnir fimm voru komnir
með 2.500 tonn þegar einn og hálf-
ur mánuður var liðinn af fiskveiði-
árinu og var Kristín aflahæst með
630 tonn eða fjórðung aflans. Sig-
hvatur fylgir fast á eftir en hann
landaði 77 tonnum á Húsavík í
upphafi vikunnar.
Hrafn Sigvaldason, sem sér um
hráefnisstýringu hjá fyrirtækinu,
segir veiðarnar ganga vel. Bátarn-
ir séu svona að jafnaði að fá um 16
tonn á lögn og leggi fjórar til fimm
lagnir í veiðiferð.
„Prósentustýring“
„Við stýrum bátunum með sér-
stökum hætti. Það er ekki magn-
stýring, heldur prósentustýring.
Hún byggist upp á því að skip-
stjórarnir mega veiða eins mikið
og þeir vilja og geta, einu tak-
markanirnar eru þær að hlutfall
þorsks í heildaraflanum má ekki
fara yfir ákveðin mörk. Þá er mið-
að við fiskveiðiárið, en fyrst leggj-
um við línuna til áramóta. Með
þessu móti beinum við bátunum
sjálfkrafa í aðrar tegundir, helzt
ýsu. Eftir því sem þeir veiða meira
af ýsu og öðrum tegundum mega
þeir líka veiða meira af þorski.
Við erum líka með skiptikerfi á
bátunum, þannig að stálið stoppar
aldrei. Bátarnir koma inn til lönd-
unar og það tekur um sex tíma að
landa og gera þá klára á ný og þá
er farið strax út aftur. Allir skip-
verjar fá sitt samningsbundna frí
en hafa kost á því þar fyrir utan
að taka sér aukafrí eins og þeim
hentar best,“ segir Hrafn.
Í haust hefur Sighvatur haldið
sig við Langanesið, en hinir bát-
arnir nokkuð sunnar við Austfirð-
ina, frá Glettinganesflakinu og
suður undir Hornafjörð. Þeir
landa svo mest á Djúpavogi og
Húsavík, þar sem Vísir er með
starfsstöðvar, en einnig er aflanum
ekið til Grindavíkur í höfuðstöðv-
arnar og loks fer nokkuð af fiski til
Þingeyrar, þar sem Vísir er líka
með starfsstöð. Ýsan er unnin í
bita, bæði ferska og frysta á Húsa-
vík og fer hún á markað í Bret-
landi og Bandaríkjunum. Þorsk-
urinn er saltaður á Djúpavogi og í
Grindavík. Það eru bæði flök og
flattur fiskur, sem fara á markaði í
Grikklandi, Ítalíu og á Spáni, svo-
kallaður SPIG-fiskur.
Hrafn segir að veiðarnar gangi
vel og þeir reyni að leggja áherzlu
á ýsuna, enda sé ýsukvótinn í há-
marki um þessar mundir. Með
þessum góða afla sé hráefnisöfl-
unin tryggð og vinnslan stöðug.
Línubátar Vísis eru Hrungnir,
Kristín, Jóhanna Gísladóttir, Páll
Jónsson og Sighvatur. Útgerðar-
mynstrið hefur verið svipað und-
anfarin ár og raða bátarnir sér
undantekningarlítið í efstu sætin
yfir afla línubátanna.
Vísisbátarnir
mokfiska á línu
Fiskveiðar Sighvatur GK landaði 77 tonnum á Húsavík í byrjun vikunnar.
Aflinn fékkst á fimm lagnir við Langanesið, mest þorskur og ýsa.
Í HNOTSKURN
»Kristín er aflahæst með630 tonn eða fjórðung
aflans. Sighvatur kemur næst.
»Bátarnir að fá um 16 tonná lögn og leggja fjórar til
fimm lagnir í veiðiferð.
»Vísir er með starfsstöðvarí Grindavík, á Djúpavogi,
Húsavík og Þingeyri.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
Í HAUST hefur vinna við gerð nýrrar
„Litlu bryggju“ staðið yfir og það er
verktakafyrirtækið Berglín ehf. sem
annast framkvæmdina. Þegar er búið
að keyra út grjótgarð fram í sjó, en í
síðustu viku var hafist handa við að
reka niður stálþil umhverfis bryggj-
una. Þar er að verki Hagtak hf. en
áætlað er að þeim hluta verks verði
lokið um næstu mánaðamót en þess-
um fyrsta hluta verks við bryggjuna
1. desember nk. Þá mun hluti verks-
ins, þekja og lagnir, verða boðinn út.
Hin nýja „Litla bryggja“ verður 20 m
að breidd og 100 m að lengd og mun
hún leysa af hólmi eldri bryggju með
sama nafni sem byggð var í nokkrum
áföngum í framhaldi af steinhlöðnum
bryggjukanti er reistur var í upphafi
síðustu aldar en sá bryggjustúfur
markaði upphaf útgerðar frá Grund-
arfirði.
Hafnarbætur
í Grundarfirði
Ljósmynd/Gunnar Kristjánsson
Hafnargerð Stálþilið keyrt niður í hafsbotninn.
ÚR VERINU