Morgunblaðið - 18.10.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 21
LANDIÐ
Hótel Hvolsvöllur
Villibráðarhlaðborð
Jólahlaðborð
Gisting
Fundir / ráðstefnur
Einstaklingar, hópar og fyrirtæki
leitið tilboða
Sími 487-8050. Símabréf 487-8058. hotelhvolsvollur@simnet.is
www.hotelhvolsvollur.is
Hótel Hvolsvöllur
Betra val
Hvanneyri | Landbúnaðarháskóli Íslands er
með í athugun að taka upp starfsnám í umhirðu
og ræktun grasvalla. Jafnframt er skólinn
þátttakandi í athugun norrænna landbúnað-
arháskóla á því að setja upp
samnorrænna námsbraut í
grasvallafræðum á háskóla-
stigi.
Töluvert sérhæft rækt-
unarstarf fer fram á knatt-
spyrnu- og golfvöllum
landsins og víðar. Einhverj-
ir Íslendingar hafa numið
þessi fræði erlendis. Björn
Þorsteinsson, aðstoðarrekt-
or kennslumála við Land-
búnaðarháskóla Íslands, segir að nefnd á veg-
um skólans sé að fara yfir garðyrkjunámið.
Hún muni skoða sérstaklega þörfina fyrir
starfsnám í ræktun og umhirðu grasvalla.
Enginn norrænu landbúnaðarháskólanna
hefur boðið upp á sérstakt nám á háskólastigi í
umhirðu og ræktun golfvalla og annarra gras-
valla en þeir hafa sinnt þessu verkefni með
starfsnámi. Nú fer fram umræða á milli þeirra
um að bjóða upp á háskólanám á þessu sviði og
tekur Landbúnaðarháskóli Íslands þátt í þeim.
Hugmyndin með háskólanáminu er, að sögn
Björns, að mennta fólk til að stjórna og skipu-
leggja ræktunina á meðan starfsnámið felst í
verkunum sjálfum. Björn segir því að mark-
aðurinn fyrir háskólanámið sé það lítill að ekki
hafi verið talinn grundvöllur fyrir einstaka
skóla til að standa að því.
Allt umhverfið á dagskrá
„Þetta er dæmi um það hvernig viðfangsefni
menntastofnana landbúnaðarins er að breyt-
ast. Í stað þess að sinna eingöngu landbún-
aðarframleiðslu er allt umhverfið á okkar
námsskrá, meðal annars náttúruvernd. Þessi
nýju viðfangsefni tryggja í raun líf hinna gömlu
námsbrauta,“ segir Björn Þorsteinsson.
Huga að
námi í gras-
vallafræðum
Björn Þorsteinsson
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Höfn í Hornafirði | Stemningin
frá árunum í kringum 1960 er
ríkjandi á Höfn í Hornafirði um
þessar mundir. Skemmtun með
lögum frá þessum tíma, American
Graffiti, var frumsýnd á Hótel
Höfn um helgina og ekki fer hjá
að andblærinn frá þessum tíma
smitist inn á mörg heimili og
vinnustaði bæjarins vegna þess
hversu margir taka þátt í verk-
efninu og sækja sýningarnar.
Hornfirska skemmtifélagið hef-
ur staðið fyrir tónlistardagskrá á
hverju ári í samvinnu við Hótel
Höfn í nokkur ár. American
Graffiti er fimmta skemmtunin
sem það stendur fyrir. Fyrri sýn-
ingar hafa verið afar vel sóttar og
skapað skemmtilega stemningu í
bæjarfélaginu.
Þarf að þvo sér tvisvar
„Við komum saman og ýmsum
hugmyndum er velt upp. Þetta
varð fyrir valinu núna en aðrar
hugmyndir bíða betri tíma,“ segir
Heiðar Sigurðsson, tónlistarstjóri
sýningarinnar. Hann er í hljóm-
sveitinni Kusk sem leikið hefur í
tónlistardagskránni frá upphafi.
Á dagskránni eru 25 lög sem
endurspegla líf bandarískra ung-
menna á árunum 1958 til 1965
eins og því var lýst í samnefndri
kvikmynd. Reynt er að skapa
stemningu þessa tíma með ýms-
um öðrum hætti, búningum
söngvara, skreytingu hússins og
meira að segja með matseðlinum.
Þannig er í forrétt amerísk kjúk-
lingaveisla en rétturinn minnir á
lítinn hamborgara. Og í eftirrétt
er mjólkurhristingur. Hljóm-
sveitin er ekki undanskilin, þeir
eru klæddir upp og greiddir með
brilljantíni. „Þetta er allt í lagi.
Maður þarf bara að þvo sér tvisv-
ar um höfuðið þegar maður kem-
ur heim,“ segir Heiðar.
Tæplega þrjátíu manna hópur
stendur að sýningunni, allir í
sjálfboðavinnu. Tekjur sem félag-
ið fær fyrir sýningarnar eru not-
aðar til að standa fyrir blúshátíð
og ýmsum öðrum skemmtunum.
„Þetta er skemmtilegt. Það er
ástæðan fyrir því að við stöndum í
þessu ár eftir ár,“ segir Heiðar.
Tónlistardagskráin var flutt í
fyrsta skipti á Hótel Höfn síðast-
liðinn laugardag. Var fullur salur
og góð stemning, að sögn Heið-
ars.
Allir starfsmennirnir með
Heiðar vinnur hjá Galdri ehf.
sem gefur út héraðsfréttablaðið
Eystra Horn, auk annarar starf-
semi. Fjórir starfsmenn eru hjá
fyrirtækinu og taka allir þátt í
sýningunni. „Jú, þetta er heil-
mikið rætt á kaffistofunni. Svo
þurftum við að loka snemma á
föstudaginn til að undirbúa sýn-
inguna,“ segir Heiðar.
Stemningin frá 1960 á Höfn
Gömul amerísk rokklög og unglingamenning setja svip sinn á Hornafjörð
Ljósmynd/Urður María
Tilþrif Kristján Hauksson lagði sig vel fram þegar hann söng lokalagið á frumsýningu American Graffiti.
Tæplega þrjátíu manns taka þátt í sýningunni, þar á meðal tólf söngvarar og fjögurra manna hljómsveit.
Í HNOTSKURN
»American Graffiti erfimmta tónlistar-
dagskráin sem Hornfirska
skemmtifélagið stendur fyr-
ir, auk blúshátíðar.
»Sýnt er á hverjum laug-ardegi fram eftir nóv-
ember.
»Sýningunni fylgir kvöld-verður og dansleikur og
gestir fá tilboð í gistingu á
Hótel Höfn.
Keflavíkurflugvöllur | Fulltrúaráð
Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna (LSS) hvetur
í ályktun stjórnvöld og sveitarfélög
til að koma upp á Keflavíkurflugvelli
æfingasvæði fyrir slökkviliðs- og
sjúkraflutningamenn og aðra við-
bragðsaðila svo sem lögreglu, björg-
unarsveitir og Landhelgisgæslu.
Það álit kemur fram í ályktuninni
að nú sé lag til að byggja upp til
framtíðar öflugan skóla og þjálfun-
araðstöðu fyrir slökkviliðs- og
sjúkraflutningamenn. Bent er á að
svæði fyrir verklega þáttinn sé fyrir
hendi á varnarliðssvæðinu og einnig
góð aðstaða fyrir kennslu og þjálfun,
svo sem skóli og íþróttamannvirki.
Í fréttatilkynningu sem LSS hefur
sent frá sér af þessu tilefni er vakin
athygli á því að Brunavarnir Suður-
nesja hafi byggt upp vísi að æfinga-
og kennsluaðstöðu við gömlu sorp-
eyðingarstöðina sem er í jaðri varn-
arliðssvæðisins. Þar sé mengunar-
varnabúnaður og önnur aðstaða.
Framtakið sé hins vegar í uppnámi
vegna óvissu um framtíð svæðisins.
Loks kemur fram það álit að tíma-
bært sé að auka samvinnu skóla sem
koma að kennslu og þjálfun við-
bragðsaðila og jafnvel sameiningu.
Óska eftir æfingaað-
stöðu á varnarsvæðinu
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Grindavík | Bæjarverkfræðingurinn
í Grindavík undirbýr útboð á fjölnota
íþróttahúsi, knattspyrnuhúsi. Húsið
verður reist austan við stúkuna við
knattspyrnuvöll Grindvíkinga.
Stjórn knattspyrnudeildar UMFG
styður áformin. Stefnt er að því að
„Grindavíkurhöllin“ verði tekin í
notkun 1. nóvember á næsta ári.
Fjölnota íþróttahúsið í Grindavík
verður 50 sinnum 70 metrar að
stærð. Bæjarráð Grindavíkur ákvað
að gefa kost á tilboðum í tvær gerðir
húsa. Annars vegar ódýrt og óupp-
hitað hús úr dúk, í stíl við hús FH við
Kaplakrika. Hins vegar upphitað
hús úr varanlegu efni.
Líkur á vönduðu húsi
Áform voru uppi um byggingu
ódýrs knattspyrnuhúss og voru 100
milljónir ætlaðir til þess á fjárhags-
áætlun bæjarins í ár. Var þeim
áformum skotið á frest og nú telur
Pétur Bragason bæjarverkfræðing-
ur mestar líkur á að ráðist verði í
byggingu vandaðs húss. Kostnaður
er áætlaður 165 til 270 milljónir.
Ekki er gert ráð fyrir búningsað-
stöðu í þessum áfanga og snyrtingar
í stúkunni verða notaðar. Hins vegar
er gert ráð fyrir að búningsklefar og
önnur aðstaða fyrir húsið verði í
framlengingu af stúkunni sem einka-
aðilar hyggjast byggja í samvinnu
við knattspyrnudeild UMFG.
Töluverð þróun er í gervigrasi fyr-
ir slík hús. Pétur segir ákveðið að
velja það nýjasta sem í boði er í dag.
Hringinn í kringum knattspyrnu-
völlinn verður göngu- og hlaupa-
braut. Annars segir Pétur Bragason
að mest muni íþróttahúsið verða not-
að af knattspyrnufólki, ekki síst í
yngri flokkunum. Á móti losni tímar í
íþróttahúsi Grindvíkinga sem meðal
annars verði úthlutað til íþrótta-
greina sem ekki hafi komist þar að.
Ingvar Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeildar UMFG,
segir að tilkoma hallarinnar muni
breyta miklu fyrir starfið. Grindvík-
ingar eigi ekki átt kost á öðru en af-
gangstímum í öðrum æfingahúsum
og hafi orðið að æfa úti og við slæmar
aðstæður yfir veturinn. „Nú kom-
umst við í skjól með alla flokka á góð-
um tímum og getum æft allt árið,“
segir Ingvar.
Knattspyrnuhús
tekið í notkun að ári
Æfing Boltinn byrjar væntanlega að rúlla í Grindavíkurhöllinni 1. nóv-
ember á næsta ári. Útboð verður auglýst eftir áramótin.
Grindvíkingar stefna
að upphituðu og
vönduðu íþróttahúsi
Í HNOTSKURN
»Fjölnota íþróttahús meðgervigrasi verður tekið í
notkun í Grindavík eftir ár.
»Æfingaaðstaða knatt-spyrnumanna á öllum
aldri batnar til mikilla muna.
Hefði þurft að koma ári fyrr,
segja forystumenn knatt-
spyrnunnar.